Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 01.04.1988, Side 27

Skólablaðið - 01.04.1988, Side 27
I. Dándimaðurinn var borinn í heim- inn 13. október 1969. Snemma beygðist krókurinn, og varð dándi- manninum strax Ijóst í sandkass- anum að honum líkaði best að halda um stjórntaumana. Æ síðan hefur dándimaður gripið hverja þá lausu tauma, sem á vegi hans hafa orðið. Aftur á móti er langt frá því að hægt sé að telja dándimann sjálfan léttan í taumi, enda hafa víst fáir náð að beisla hann og engum enn tekist að temja hann. Dándimaður er þó blíður og góður viðskiptis, sé vel að honum farið. II. Ferill dándimanns hófst, eins og svo margra góðra nema Mennta- skólans, í Melaskóla, og þaðan lá leiðin í Hagaskóla. Naut stjórn- semi dándimanns og málgleði sín vel þar og var það góð upphitun fyrir komandi frægðarverk. Þegar dándimaður gekk fyrstu skref sín upp Skólabrú fór þó loks að draga til tíðinda. III. Dándimaður settist í III. bekk G og gerðist þar inspectrix classis sem og formaður þriðjabekkjarráðs. Dándimaður háði einnig keppni við aðra dánumenn um titilinn orator minor við góðan orðstír. Var dándimaður umsvifalaust tek- inn í dýrlinga- (ræðumanna) -tölu og stýrði m.a. hinu sigursæla ræðu- liði Menntaskólans í keppni við Veslinga. Var dándimaður viðloð- andi (sitt) Framtíðarstarf og var um vorið kosinn ritari hinnar merku tíðar. IV. Er dándimaður sat í IV. bekk M starfaði hann af kappi í þágu hinnar ókomnu- tíðar og var gerður að því rómur góöur, svo góður að þegar kjósa átti tíl forseta þess merka félags, fannst enginn sem etja vildi kappi við dándimann vorn. Var hann þvf sjálfkjörinn tif að stjórna þeim málglöðu piltum og stúlkum, sem yndi hafa af því að standa í ræðustól og sannfæra félaga sína og aðra um að þessi og hin vitleysan sé heilagur sannleik- ur. Þar er dándimaður í essinu sínu (auk þess er hann í fimmta ess). Ekki er nóg með að dándimaður hafi haldið um stjórntaumana í Framtíðinni (hvort dándimaður notaði svipuna góðu, skal látið ósagt), heldur stýrði hann og mælskugoðum skólans til fræki- legra sigra og var þar að auki í framkvæmdastjórn MORFÍS. Ljóst er af þessu sem öðru að stefnuátt dándimanns er ein: UPP. V. Hvernig skyldi svo þessi guðdóm- lega vera líta út? Pó að blindir verði að öllum líkindum að notast við hugarflugið, skal hér tíundað ytra útlit dándimanns. Dándi- maður er grannur, miðlungi hár, síðhærður, skarpleitur og ekki fram úr hófi toginleitur. Reisn er yfir dándimanni og er hann verð- ugur fulltrúi hins „veikara“ kyns og fær án efa mörg piltshjörtun til að slá hraðar. Er nú lo'.ið vísbendingum. Telja má víst að flestir hafi áttað sig á hver dándimaðurinn er. Augljóst er að þeim, sem ekki fylla þann hóp, er ekki við bjargandi og óhætt ætti því að vera að hvísla ofurvar- lega nafn Elsu Bjarkar Valsdóttur í hægra eyra þeirra sömu og læðast svo burt, hægt og hljótt. Asta Kristjana Sveinsdóttir. 27

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.