Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 01.04.1988, Side 34

Skólablaðið - 01.04.1988, Side 34
lukti bílinn, titrandi eins og stjörnur við jörð. í geislaflóðinu, sem bifreiðin rak á undan sér, birt- ist hávaxin mannvera í svörtum frakka. F>au litu hvort í hins svip, síðan greyptu hjólin mynstur sitt í fannkalda jörðina og bíllinn mal- aði kyrr. Hann keyrði hattkúfinn lengra niður ennið, tók tösku upp úr köldu sæti sínu, sneri sér við og fótaði sig með varkárni að farar- skjótanum, steig inn og hreiðraði um sig. Þegar hann tók hattinn af höfðinu birtist þeim fölt andlit með há og greinileg kinnbein, fölblá, næstum litlaus augu í skugga slút- andi augnabrúnanna, brúnt hárið snöggklippt nema í hliðum, þar löfðu lokkar langt niður á kinnar; nef er sveigðist í ákveðnum boga yfir varir sem mynduðu lítinn munn, af dráttunum kringum hann sást að tennurnar voru stórar og stungust í góminn. Hann hafði yfir sér blæ harðneskju. Þau spurðu hann að nafni og hann svaraði: „Ægir.“ Þau spurðu hvert hann ætlaði. „Langt og hvergi,“ svaraði hann. Hún hafði gaman af svarinu og hló, hann brosti líka. „Hvernig stendur á þessum flækingi um há- vetur á reginfjöllum?“ spurði hann. Ægir beraði tennurnar í eins konar brosi: „Mig langaði til að ganga og ég gekk, svo nennti ég ekki að stoppa.“ Hlátur fyllti bíl- inn sem fleygaði nóttina. Ægir fór langt og fór þó hvergi, hann slóst í för með þeim á ein- hvern þöglan og óútskýrðan hátt, var aldrei leiðinlegur og tilsvör hans voru í kaldhæðni sinni og lítt dulinni illgirni fyndin. Bakgrunnur hans var myrkt tjald sem hann veitti enga innsýn í, hann var fátal- aður um sjálfan sig. Fljótlega skildu þau að hann vissi mætavel hver þau voru, en það kom þeim ekki á óvart, mynd þeirra hafði verið birt um land allt, andlit þeirra hömruð inn í minni fólks. Þegar þau hittu fyrir leiðann stóð hann afsíðis, eins og þögull áhorf- andi sjónarspils, glotti að grimmd- inni sem þau sýndu og henti gaman að leiðindaseggjum, afhjúpaði 34 gagnsleysi þeirra veröldinni með orðum háðsins napurs. Fljótt var ljóst að Ægir einbeitti sér meir að honum en henni. Hann tók hann á löng eintöl og gerði henni á lævísan hátt ljóst, að hún væri óþörf, alls ekki óskað. Og hann var gleðispill- ir, hún skildi það síðla vetrar í sumarbústað sem þau brutust inn í. Þau elskuðust. Varir hans snertu hálfopnar brjóst hennar, fingur- gómarnir hringsóluðu í varfærinni leit um geirvörturnar sem hörðn- uðu og risu stinnar þegar tunga hans hvolfdist um þær og kysstu, fingurnir leituðu annað. Lófar hennar struku hnakka hans með hægum strokum sem teygðust út á axlirnar naktar. Augu beggja lokuð. Á vörum hennar glóðu agnarsmáar perlur. Hann hnikaði sér til og þau runnu saman í kyrrð líkamanna sem gæddi spennuna mýkt og hreyfinguna stillu, eins og dans loga. Kossar þeirra voru djúpir og hann kyssti augu hennar og enni, tennurnar nörtuðu í eyrun eins og fullar stríðni. Og þögnin ríkti, hún var sveipuð hljómríkri dul ástar sem gæðir orð þagnarinnar fjör- legra lífi og meiri merkingu en bækur tímans geyma allar; leikur ástarinnar var þrunginn töfrum, þau voru einsömul í landi eigin sælu. Dyrnar slógust upp í vegginn, skjannabirtan ruddist inn, húmið hrökk undan, hún fláði hvern kima herbergisins. Ósjálfráð viðbrögð þeirra voru að skiljast að, faðm- lagið rofnaði eins og á það væri brugðið hnífi. Skuggi Ægis lagðist yfir gólfið og skar skugga þeirra. Hann hló djúpum óheillahlátri svo undir tók í veggjum og töfrarnir voru hraktir burt á hröðum flótta skelfingar, þagnarinnar dul sprakk eins og sápukúla á svifi. Og erindið var einskisvert, gagnsær, rakinn til- búningur, að athuga hvert þeirra ætti að leitar matar í kjarri um- kringdu bústöðunum og hann vissi fullvel að verkefnið beið hans. Hann kom til að reisa vegg, deyða gleðina. Hún reyndi að halda ábreiðunni þéttar að nöktum líkama sínum, koma Ægis hafði vakið henni hroll og þegar hún starði á hávaxna, eilítið hokna mannveruna sem bar svarta við ljósið svo að aðeins augun skáru sig úr skugganum, fæddist hræðilegur grunur í huga hennar. Hún leit út á kjarrið, horfði á þykk snælaufin samvaxin hríslast um kræklótt tré, sem ann- ars drypi bert yfir silfrað föl. í heilabúi hennar æddi tryllt hugsun snöggrar hugljómunar að ógeð- felldum getgátum, - eða svarinu eina. Eftir því sem vikurnar liðu við auðsæjar tilraunir Ægis til að sá fræjum sundrungar og haturs í þetta litla samfélag, svo að upp af yxi óskapnaður er tortímdi, styrkt- ist grunur hennar. Hún orðaði það ekki við hann, en færði í tal leið- indaframkomu Ægis með varúð. En tíminn, sem Ægir hafði gernýtt til að grafa sér leið að vinsemd hans, olli því að Ægi leit hann með augun aftur, hann dró úr og neitaði falsi hans og flærð. „Ægir er að vísu ekki eins skemmtilegur og hann var,“ viðurkenndi hann treg- lega, „en hann er vinur okkar og vinir verða að sjá í gegnum fingur hvor við annan. Vinir verða að standa saman.“ Einhliða vinátta er eins og blóm sem ákveður að veita fegurð úr gnægtabrunnum sínum til kaktusa eyðimerkurinnar, svo að þeir megi dafna og blómstra, en veit ekki fyrr en lífið er sogað úr krónum þess og visnun stendur andspænis með arfaher að baki. Ægi óx ásmegin, hann varð óbæri- lega leiðinlegur.

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.