Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.04.1988, Page 49

Skólablaðið - 01.04.1988, Page 49
bensínsprengjum eða brenna bíia. Það er ekki mjög uppörvandi að tönnlast á því sýknt og heilagt. að allt sé á niðurleið. Ég vii ekki semja lög, sem leggja ofuráherslu á drunga og bölsýni, þar sem enga framtíð er að finna. Ef ég skrifa um eitthvað, sem er sorglegt eða ógnvekjandi, vil ég gjarnan hafa einhverja vonargiætu í lokin. Lagið endurspeglar þetta viðhorf. Þetta er mjög dapurlegt lag, en í lokin kemur fram sigurgleði.“ ímyndin Gagnrýnendur ásaka Sting oft um uppgerð og látaiæti, þ.e., að samkennd hans með þeim, sem minna mega sín, sé ekki einlæg. Sting svarar þessu: „Hvað er uppgerð? Mér er ætluð sú ímynd eins og öðrum poppurum að vera átrúnaðargoð, sem á sér einungis tilverurétt á sviði. Þeim er ekki ætlað að segja hug sinn, hvorki að vera læsir né skrifandi eða vera færir um að lifa eðlilegu lífi. Og hver sá, sem fellur ekki í þessa fyrir fram ákveðnu ímynd, er sagður vera að þykjast, þykjast vera mannlegur, hugsandi, um- hyggjusamur, þykjast vera veik- burða eða sterkur.“ Margir velta því ef til vill fyrir sér, hvernig Sting fer að því að semja svona góð lög, - hvort and- inn komi allt í einu yfir hann. Sting segir að svo sé sjaldnast. Hann bætir því við, að hann hafi einu sinni vakað heilar nætur af áhyggjum af því, hvað hann ætti að semja og hvort allur hæfileiki væri endanlega úr honum farinn. En lög eins og Every Breath You Take og Don’t Stand so Close to Me komu honum aftur á sporið. Þau komu alveg fyrirhafnarlaust, og hann fékk strax hugboð um að þau mundu slá í gegn. Og það gerðu þau. Sumir hafa bent á, að lög Stings séu mörg hver keimlík. Hann viðurkennir það fúslega og segist kunna ágætlega við það. „Við getum líkt þessu við málara, sem málar margar myndir af sama við- fangsefninu frá ólíkum sjónarhorn- um. If You Love Sombody Set Them Free og Every Breath You Take eru eins konar hliðstæður, Ijóðræn spegiimynd hvort annars. Sister Moon og Moon over Bour- bon Street eru Iíka slíkar hliðstæð- ur. Sting hefur leikið í nokkrum kvikmyndum. meðal annars The Bride og Dune, sem David Lynch leikstýrði. Á síðastliðnu ári lék hann lágkúrulegan eiganda djass- búlu í kvikmyndinni Stormy Monday. Taka myndarinnar fór fram í heimabæ Stings, Newcastle á Englandi. Einnig lék hann í kvikmynd, sem heitir Julia and Julia, en í þeirri mynd leikur ekki ómerkari leikkona en Kathleen Turner. Líðandi ár verður sjálfsagt anna- samt hjá þessum fjögra barna föður á þrítugasta og sjöunda aldursári, og má minnast á hljóm- leikaferð hans og Peters Gabriels á vegum Amnesty International. Vonandi kemst hann samt fljótlega í hljóðver, svo að við fáunr að heyra meira frá þessum frábæra tónlistarmanni. Anna Dís Ólafsdóttir (Heimild: Rolling Stone sem kom út 11. febrúar sl.) 49

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.