Skólablaðið - 01.04.1988, Page 60
Straumurinn
Hversu gott
er að skrúfa fyrir augun,
slökkva á líkamanum
og hleypa draumunum að,
láta þá líða um líkamann,
bærast
líkt og þang í hafinu,
skrúfa síðan frá
En draumarnir halda áfram
af fullum krafti.
Ég berst einungis fyrir straumnum.
Grámann.
iitlu gulu
mennirnir og ég
þegar ég var loksins komin til kína
ætlaði ég að taka mynd af einhverju
dæmigerðu
litlu gulu mönnunum
á hjólunum sínum
sem mynda stórfljót
sem streymir eftir breiðu götunum í beijing
ég mundaði vopn mitt
nýja minoltavél
en viti menn
það var sem móse hefði stöðvað streymi vatnsins
þurrkað upp flæði
litlu gulu mannanna
ég sneri mér við
myndast hafði hafsjór
að baki mér
litlu gulu mennirnir horfðu
litlum svörtum augum
á þessa veru annars heims
munduðu sín vopn
teikniblokkir og pensla.
Das Auto
Ein Auto steht dort
und ein alter Mann
dabei.
„Wieviel kostet das Auto?"
Der Alte denkt nach.
„Mehr Geld als ich in
zehn Jahren verdient habe."
Onkel Franz.
Lestin
Lestin klýfur myrkrið
göt rofna á húm næturinnar.
Ég stari út í tómið.
Aldrei aftur mun ég
koma til baka.
Y.K.
I rigningu
Úti var rakt,
særinn var grár.
Það hafði verið sagt
að hann gæti verið blár.
Himinninn var þrunginn
eins og andarunginn
sem misst hafði
móður sína.
60
Ásta Kristjana Sveinsdóttir.
Gúrú