SunnudagsMogginn - 14.08.2011, Blaðsíða 6

SunnudagsMogginn - 14.08.2011, Blaðsíða 6
6 14. ágúst 2011 Skoðanir eru enn skiptar um Berlínarmúrinn í Þýska- landi og ekki sjá allir í honum tákn kúgunar. Vinstri- flokkurinn, Die Linke, sem er afsprengi sósíalíska einingarflokksins, sem fór með völd í Austur- Þýskalandi, hugðist koma saman á 50 ára afmæli múrsins í Mecklenburg-Vorpommern og ræða tillögu nokkurra félaga um að flokkurinn lýsi yfir því að það hafi verið „óumflýjanleg nauðsyn“ að reisa múrinn. Þessi tillaga sprettur ekki úr tómarúmi. Sam- kvæmt skoðanakönnun, sem birtist í dagblaðinu Berliner Zeitung, eru 75% stuðningsmanna flokksins þeirrar hyggju að múrinn hafi verið réttlætanlegur eða að hluta réttlætanlegur. Könnun stofnunarinnar Emnid sýndi að 23% íbúa í austurhluta Þýskalands telja að betur væri komið fyrir þeim stæði múrinn enn. 25% íbúa í vesturhluta landsins eru sama sinn- is. Ástæðurnar eru hins vegar ólíkar. Atvinnuleysi er mun meira í austrinu en í vestrinu og þegar múrinn féll yfirgáfu margir hæfustu einstaklingarnir austrið og sneru ekki aftur. Í austrinu telja margir að þeir hefðu notið meiri lífsgæða hefði Austur-Þýskaland haldið velli, á meðan margir vestanmegin líta svo á að sameiningin hafi verið fjárhagsleg byrði. Sakna múrsins Minnisvarði um Berlínarmúrinn með myndum af fólki, sem lét lífið við að reyna að flýja yfir múrinn. Reuters D ie Mauer Weg,“ stóð á grárri stein- steypunni og skammt frá hafði verið máluð mynd af dyrum, sem úr fjarlægð voru það raunverulegar að hægð- arleikur virtist að opna þær. Árið er 1981. Fyrir strákhvolp nýskriðinn úr menntaskóla var þetta mannvirki bólusetning við stjórnarfarinu handan þess. Berlínarmúrinn hafði þá staðið í 20 ár og ekk- ert virtist geta haggað honum. Átta árum síðar var hann fallinn. Múrinn var tákn um gjaldþrota þjóðfélagsskipan. Á milli 1945 og 1961 höfðu um 2,5 milljónir manna flúið frá austri til vesturs. Þrjú þúsund manns flúðu á dag. Austur-Þýskalandi var að blæða út. 13. ágúst 1961 bundu austurþýsk stjórnvöld enda á fólks- flóttann. Þau kölluðu mannvirkið „andfasískan skjólvegg“. 17 milljónir manna voru lokaðar inni. Það krafðist talsverðrar hugmyndafræðilegrar leikfimi að réttlæta múrinn. Hann gekk eins og fleygur í gegnum Berlín og umhverfis vesturhluta borgarinnar, þvert á götur og í gegnum hús, 155 kílómetrar alls. Hægt var að láta fyrirberast í borg- inni án þess að hafa múrinn stöðugt fyrir augum, en hann hvarf ekki úr kollinum á manni við það. Múr- inn var vitnisburður um kalda stríðið milli austurs og vesturs og sundraði fjölskyldum og vinum. Að minnsta kosti 136 manns létu lífið við að reyna að flýja yfir. Fyrsta fórnarlambið hét Günter Litfin. Hann var skotinn í hálsinn 24. ágúst 1961 og drukknaði þar sem hann var að reyna að synda milli Austur- og Vestur-Berlínar. Þegar múrinn féll 1989 var eins og lífið lægi við að fjarlægja öll ummerki um hann. „Hvar var múr- inn?“ spyrja ferðalangar, sem nú koma til Berlínar, og þeir geta ýmislegt gert vilji þeir sjá hvernig Berl- ín var á árum áður, þótt deila megi um myndina sem þeir fá. André Prager ólst upp í Austur- Þýskalandi. Nú er hann með 120 Trabant-bifreiðar á sínum snærum og býður upp á „Trabi-Safari“, afturhvarf til Austur-Þýskalands þar sem þátttak- endur þurfa að ganga í gegnum umferðareftirlit al- þýðulögreglunnar og eru neyddir til að skipta gjaldeyri í austurþýsk mörk. Við Brandenborgarhliðið og gömlu landamæra- stöðina Checkpoint Charlie klæðir ungt fólk sig í austurþýska einkennisbúninga og býðst til að láta mynda sig með ferðamönnum gegn gjaldi. Við Checkpoint Charlie er samnefnt safn, þar sem gestir streyma í gegn og geta til hvaða örþrifaráða fólk var tilbúið að grípa til að flýja og hvernig aust- urþýsk yfirvöld reyndu að loka fyrir allar leiðir, jafnvel þótt ljóst væri að það myndi kosta mannslíf. 865 þúsund manns fara um safnið á ári. Ef einhver borg getur kallast deigla 20. aldarinnar er það Berlín og sagan trekkir. Fyrir fimmtán árum heimsóttu sex hundruð þúsund manns sögulega minnisvarða og söfn í borginni. Nú er talan komin upp í 5,5 milljónir. Berlín hefur tekið fram úr Róm í ferðamennsku og farið er að kalla borgina Disn- eyland kalda stríðsins. Mörgum finnst sú útgáfa, sem blasir við ferðamönnum af fortíðinni, heldur léttvæg og vanvirðing gagnvart fórnarlömbunum. Sumir vilja láta banna fólki að klæða sig upp eins og austurþýskir landamæraverðir með sama hætti og bannað er að flíka merkjum nasista. Markus Meckel, sem var síðasti utanríkisráðherra Austur-Þýskalands og er nú í flokki sósíal- demókrata, SPD, er einn þeirra, sem vilja reisa nýtt safn vegna þess að alþjóðlegri merkingu múrsins séu ekki gerð viðeigandi skil í höfuðborginni. Stjórn Angelu Merkel, sem er frá Austur-Þýskalandi, hef- ur ekki veitt þeirri hugmynd brautargengi. Hvað sem því líður eru flestir sammála um að Þjóðverjar hafi verið of ákafir í að fjarlægja öll ummerki múrs- ins á sínum tíma. Brandenborgarhliðið í miðri Berlín fyrir og eftir múr. Reuters Skemmtigarður kalda stríðsins Hálf öld liðin frá því að Berlín- armúrinn var reistur Vikuspegill Karl Blöndal kbl@mbl.is Philipp Rössler, fjármálaráðherra Þýskalands, og Hans-Dietrich Genscher, fyrrverandi utanríkisráð- herra, lögðu á föstudag blómsveig við minnisvarða um Günter Litfin, fyrsta fórnarlamb Berlínarmúrsins. Reuters „Sú ásökun hefur verið sett fram að of mikið af múrnum hafi verið rifið niður. Ferðamenn kunna að líta þannig á, en á sínum tíma vorum við bara svo ham- ingjusöm að múrinn væri fallinn að við gátum ekki beðið eftir að gröfustjór- arnir kæmu og losuðu okkur við þetta, þennan hlut, sem orsakaði svo mikla eymd í þessari borg, sundraði fjöl- skyldum, heimtaði svo mörg fórn- arlömb og olli slíkri þjáningu. En kannski hefði átt að skilja meira eftir til að sýna hrylling skiptingarinnar í raun.“ Klaus Wowereit, borgarstjóri Berlínar, í liðinni viku. Klaus Wowereit Reuters Gátum ekki beðið

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.