SunnudagsMogginn - 14.08.2011, Blaðsíða 10

SunnudagsMogginn - 14.08.2011, Blaðsíða 10
10 14. ágúst 2011 H vort kom á undan eggið eða hænan? Það er spurning sem margir hafa velt fyrir sér. Hvort kom á undan skattpíning Steingríms J. fjármálaráðherra eða stór- aukin skattsvik borgara, þannig að hér er orðið til öfl- ugt svart hagkerfi? Það er líka spurning sem margir velta fyrir sér. Í fimmtudagsblaði Morgunblaðsins var áhugaverð úttekt á bls. 12 um breytingar á skattkerfinu í tíð núverandi ríkisstjórnar, þar sem meginniðurstaðan var sú að þrettán nýir skattar hafa verið lagðir á í tíð ríkisstjórnarinnar og aðrir hækkað, frá 4% allt upp í 586%. Skelfileg lesning! Ekki er þar með allt upp talið sem prýða má afrek ríkisstjórn- arinnar í aukinni skattpíningu, því fyrirhugaðir eru auknir banka- skattar, orkuskattar og stórfelld hækkun auðlindagjalds. Það sér ekkert fyrir endann á því hvar stjórnvöld ætla næst að drepa niður fæti til þess að auka enn á skattpíningu okkar, sem á ann- að borð borgum skatta. En er skattpíning stjórnvalda einhver afsökun fyrir því að æ fleiri virðast kjósa að stunda svarta atvinnustarfsemi og koma sér þannig hjá því að greiða til samfélagsins hluta tekna sinna, sem eiga að standa undir sameiginlegum rekstri okkar? Ýmsir, ekki síst þeir sem halda úti vefnum Andríki og fleiri, virðast líta á skattsvik sem sjálfsagða og eðlilega sjálfs- bjargarviðleitni hjá ofurskatt- píndum einstaklingum. Ég er þessum sjónarmiðum ósammála, því það á enginn vinnandi maður rétt á því að stela sér fari í samfélagslegu lestinni með því að láta borgandi far- þega greiða farið fyrir sig líka. Svarta hagkerfið hefur augljóslega vaxið mjög frá hruni. Skýrasta sönnun þess er stóraukið magn pen- inga í umferð, því svört atvinnustarfsemi er jú einu sinni þannig að svikarinn (þjófurinn) vill fá greitt í reiðufé og sá sem kaupir svarta vinnu tekur þátt í stuldinum frá okkur hinum með því að greiða fyrir nótulaus viðskipti í reiðufé. Þjófurinn og þjófsnauturinn eru á sama siðferðisstiginu og þótt ég teljist seint til stuðningsmanna sívaxandi eftirlitsiðnaðar hins opinbera, þá vildi ég gjarnan sjá það gerast, að þjófarnir og þjófs- nautarnir væru gómaðir og látnir greiða svik sín dýru verði. Ef þeir sem stunda svarta atvinnustarfsemi væru afhjúpaðir og látnir greiða margfaldar sektir fyrir brot sín þyrftum við hin, sem greiðum alla okkar skatta og skyldur, bæði einstaklingar og fyr- irtæki, ekki að borga jafnmikið til hins opinbera og við gerum. Það er því bæði réttlætis- og sanngirnismál að þeir sem svíkjast undan því að taka þátt í sameiginlegum rekstri ríkisins, rekstri heilbrigðiskerfisins, menntakerfisins, samgöngukerfisins, velferð- arkerfisins, fái að finna til tevatnsins, ef þeir á annað borð eru staðnir að svikum. Þannig bötnuðu vonandi lífskjör löghlýðinna borgara þessa lands, svo fremi sem stjórnvöld gættu þess að nota auknar skatttekjur á skynsamlegan hátt (fyrir því er því miður engin trygging) og reyna um leið að draga úr ríkisumsvifum. En hverjir eru jafnvel enn ljótari blettur á okkar litla þjóðfélagi en þeir sem tilheyra svarta hagkerfinu? Jú, það eru þeir sem eru svo forhertir í græðgi sinni og aumingjaskap, að þeir stunda svarta vinnu og komast þar með hjá því að greiða skatta og bæta svo gráu ofan á svart með því að svíkja út atvinnuleysisbætur. Er hægt að leggjast öllu lægra?! Hér er um tvöfaldan þjófnað að ræða frá okkur, íslenskum skatt- greiðendum. Fyrst er stolið frá okkur því sem ætti að greiðast í rík- issjóð í formi skatta og svo eru atvinnuleysisbætur sviknar út í of- análag; bætur sem greiddar eru út fyrir tilstuðlan okkar, sem á annað borð greiðum skatta. Steingrímur J. hefur fyrir margt löngu aflað sér nafnbótarinnar „Skattmann“, en forveri hans á stól fjármálaráðherra og fyrrver- andi flokksbróðir í Alþýðubandalaginu sáluga, Ólafur Ragnar Grímsson, var fljótur í fjármálaráðherratíð sinni 1988-1991 að ávinna sér þá nafnbót. Hann átti nafnbótina fyllilega skilið, en Steingrímur J. hefur toppað hann í skattpíningu fyrir löngu. Skattpíning og skattsvik Agnes segir Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Steingrímur J. Sigfússon Ólafur Ragnar Grímsson ’ Fyrst er stolið frá okkur því sem ætti að greiðast í ríkissjóð í formi skatta og svo eru atvinnuleys- isbætur sviknar út í ofanálag 9:00 Vakna á gistiheimilinu Gunnarshólma þar sem ég er stödd í hestaferð ásamt stór- skemmtilegum vinkvennahópi. Að öllu jöfnu væri ég mætt í vinnuna klukkan 8:00, með sjúklingamóttöku fyrir hádegi á Landspítala og aðgerðir eftir hádegi á stofunni í Glæsibæ. Þetta er sem sagt óvenjulegur dagur og lofar virkilega góðu. Veðrið glimrandi gott og fé- lagsskapurinn frábær. Erum að- eins rámar eftir sönginn í gær- kvöldi en mjög spenntar að komast aftur á bak. Fáum ljúf- fengt morgunverðarhlaðborð hjá húsfreyjunni og smyrjum okkur nesti fyrir daginn. 11:00 Tökum nokkrar góðar teygjur á hlaðinu undir stjórn Beggu Rist, sem er dásamlegi fararstjórinn okkar frá Íslenska hestinum. Eldrauðum varalit er skellt á varirnar enda alvöru dömur fram í fingurgóma og kvenleikinn allsráðandi. Vink- um húsráðendum um leið og við ríðum úr hlaði, ég er ekki mjög vön hestakona en finnst ofboðslega gaman og hann Freyfaxi sem mér er úthlutað í dag er sannur herramaður og gerir allt sem ég bið hann um. Reiðleiðin liggur um Hólsheiði og inn í Heiðmörk, afskaplega fallegt umhverfi og veðrið gæti ekki verið betra. 13:00 Áning við Elliðavatn, nestið dregið upp og svo er flat- magað í grasinu í bongóblíðu, þær hörðustu kasta sér til sunds í vatninu en ég læt nægja að sleikja sólina á bakkanum. 17:00 Komnar á áfangastað. Aðeins lúin en afskaplega ánægð með lífið og tilveruna. Við kveðjumst með virktum, ákveðnar að fara í lengri ferð næst. Líður eins og alvöru hestamanneskju þegar ég kem við í Melabúðinni á leiðinni heim, í skítugum reiðbuxum og heimaprjónuðu hestapeysunni minni. 18:00 Hendi mér í sturtu, finn dauða flugu í hægra auga. Áhugavert. Börnin mín, Katla og Sölvi, eru hjá pabba sínum og því þarf ég ekki að hugsa um neinn nema sjálfa mig og fæ mér harðfisk í kvöldmat, kæm- ist ekki upp með það ef þau væru heima. Fletti dagblöð- unum leiftursnöggt og bruna svo upp í Grafarvog á æfingu með sönghópnum Spectrum. Við verðum með tvenna tón- leika á Menningarnótt og því þéttar æfingar þessa dagana. Stjórnandinn okkar, hún Ingv- eldur Ýr, er nokkuð ánægð með okkur en boðar nýja æfingu eft- ir tvo daga, á laugardags- morgni! Ég er með kenningu og hef þá staðföstu trú að við raddaðan söng losni heilmikið af hamingjuhormónum út í blóðið, og eins og venjulega er ég í skýjunum eftir söngæfingu. 22:00 Komin heim, hendi í eina þvottavél og sest svo við þá æsispennandi iðju að fara yfir sænska skattframtalið. Þótt lið- in séu þrjú ár frá því að ég flutti heim frá Svíþjóð vilja Svíarnir vita allt um mína hagi. Klóra mér dágóða stund í hausnum yfir þessu en ákveð síðan að það geti beðið. Þessi yndislegi dagur var of góður til að eyðileggja með þessari leiðindaiðju í lokin. Hreiðra um mig undir sæng með bók en sofna á augabragði. Vinnudagur framundan á morgun og er hvíldarþurfi eftir alla útivistina. Dagur í lífi Sigríðar Sveinsdóttur háls-, nef- og eyrnalæknis Á milli þess sem Sigríður kafar ofan í eyru og hálsa sjúklinga sinna fer hún á hestbak. Dauð fluga í auganu Það verða eldgos víðar en á Íslandi. Hér sést maður taka ljósmynd af eldgosi í eldfjall- inu Etnu á Sikiley. Etna er hæsta og virkasta eldfjall Evrópu. Veröldin Etna spýr eldi Reuters

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.