SunnudagsMogginn - 14.08.2011, Blaðsíða 36

SunnudagsMogginn - 14.08.2011, Blaðsíða 36
36 14. ágúst 2011 Baldvinsdóttur, forstöðumanns Ljós- myndasafns Íslands á Þjóðminjasafni, og hennar samstarfsfólks, en á safninu er varðveitt stærsta safn sinnar tegundar á landinu. Einnig hef ég fengið ljósmyndir á Ljósmyndasafni Reykjavíkurborgar, en þar er m.a. varðveitt merkilegt safn Magnúsar Ólafssonar og safn Sveins Þórðarsonar, sem myndaði húsin í Reykjavík um eftir miðja 20. öld, en í það hef ég leitað ef ekki finnast gamlar húsa- myndir. Þú mátt koma því á framfæri við lesendur að það væri afar vel þegið að fá að taka eftirtökur af öllum þeim ljós- myndum sem fólk á af gömlu húsunum í Reykjavík, þannig að hægt verði að varðveita þær í réttu samhengi í bók- inni,“ segir Þorsteinn. Bókin er heillandi verk en maður getur ekki að því gert að velta fyrir sér hvað það hefur verið gríðarlega mikil vinna að gera þetta. Að finna andlitin og vekja þau aftur til lífsins með sögum þeirra. Að- spurður játar hann því. „Á löngum tíma hef ég viðað að mér hvers kyns upplýs- ingum um fólkið í Reykjavík um alda- mótin 1900, farið í gegnum þúsundir af- mælis- og minningargreina og efnistekið þær bækur sem ég hef komist yfir og fjalla að einhverju leyti um fólkið sem byggði bæinn. Oftast hef ég svo leitað í bækur Jóns Helgasonar biskups, Árna Óla og Páls Líndals og margra annarra. Víða fyrirfinnast í handriti frásagnir og ýmsar upplýsingar hjá afkomendum um fólkið sem byggði bæinn í byrjun 20. aldar. Þegar um svo umfangsmikið verk- efni er að ræða sem þetta verður athyglin að vera nokkuð bundin verkefninu og kemst fátt annað að, því maður verður að setja sig á bólakaf inn í þann tíma sem verið er að fjalla um. Það er rétt ályktað hjá þér, að svona verk verður ekki unnið nema ástríðan fyrir verkinu sé ráðandi. Fyrsta bindið er nú komið út og annað bindið er að verða tilbúið í prentvélarnar og sit ég nú þessa dagana og teikna upp fjórða bindi verksins, en nauðsynlegt er að hafa heildarverkið undir í einu, því miklar tilvísanir eru á milli kafla í verk- inu, t.d. milli foreldra sem búa á einum stað og barna sem búa á öðrum árið 1910. Við gagnavinnslu nota ég öðrum þræði nýtísku tölvuforrit, en Baldurs Möllers- kerfið er þó enn við lýði á minni vinnu- stofu. Í bókinni virðast vera myndir af nær öllum íbúunum í Reykjavík árið 1910,“ segir Þorsteinn. Þekkir fólk af gömlum myndum Það kemur á óvart fyrir leikmann sem er ekki vel að sér í sögu alþýðunnar um þarsíðustu aldamót að hægt hafi verið að finna ljósmyndir af nánast öllum Reyk- víkingum þegar aðeins rúm sjötíu ár voru liðin síðan fyrsta daguerre- ljósmyndin var tekin og aðeins nokkrum áratugum eftir að tæknin fór eitthvað að verða almenn í Evrópu. „Í upphafi verksins gerði ég mér engar vonir um að finna myndir af allri alþýðu manna í Reykjavík fyrir 100 árum. Það Þorsteinn Jónsson hefur unnið að þessu verki í yfir tuttugu ár. Hann hefur keypt fjöldann all- an af ljósmyndum til að kortleggja bæinn og komast að því hver bjó í hvaða húsi. Morgunblaðið/Kristinn Séra Friðrik Friðriksson með félagsmönnum í vínbindindisfélaginu Bjarma, sem var innan vébanda KFUM. Brynjúlfur Björnsson var fyrsti íslenski tannlæknirinn og rak um langt skeið tannlæknastofu í húsi sínu á Hverfisgötu 14. Í bókinni er sagt frá því þegar rithöf- undurinn Kristmann Guðmundsson hitti pabba sinn í fyrsta sinn. Hann hafði alist upp hjá móðurforeldrum sínum en hitti ömmu sína og afa í föðurætt einhverju sinni þegar hann var í heimsókn í Reykjavík. Hann segir svo frá að sér hafi fallið mjög vel við ömmu sína en á milli hans og afa hans hafi verið gagnkvæm tor- tryggni. „Honum þótti ég alltof stolt- ur, en ég leit á hann með borgfirskum hofmóði og fannst mér karl almúga- legur,“ er vitnað í Kristmann í bók- inni en texti hans er tekinn úr sjálfs- ævisögunni Ísold hin svarta. Þar er áfram vitnað í Kristmann að tala um ömmu sína; „Hún sýndi mér ósköpin öll af fjölskyldumyndum, m.a. af börnum sínum tveimur, Helgu og Jörundi, sem búsett voru í Ameríku. Var það fallegt fólk og glæsilegt. – Yfir endalokum Jörundar þessa hvílir nokkur hula í fjölskyldunni, en ein- hver sagði mér, að hann hefði verið skotinn sem „gangster“ eftir margra daga frækilega baráttu við lögregluna einhvers staðar vestur í Klettafjöll- um. Hvað sem satt er í þessu, þykir mér líklegt, að hann hafi aldrei verið neinn smáborgari, og hef alltaf talið heldur prýði að honum í ættinni.“ Svo segir frá því þegar amma hans fer með hann niður á Grettisgötu til að hitta pabba sinn í fyrsta sinn. „Þar á tröppum lítils timburhúss stóð há- vaxinn og föngulegur maður, ásamt laglegri konu og bráðfallegum dreng á mínum aldri. Gekk amma mín fyrir þau og mælti til mannsins svohljóð- andi orðum: „Hér sér þú, Guð- mundur, son þinn Kristmann, og komið þið öll sæl.“ Maðurinn steig nú niður af tröpp- unum og kom til mín, studdi hönd á öxl mér og kyssti mig á munninn. Hann var hreinn og snyrtilegur og í alla staði hinn geðslegasti, en eigi að síður kunni ég illa við þessi vinahót hans og svaraði þeim lítt.“ Feðgar Rithöfundur hittir pabba sinn í fyrsta sinn

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.