SunnudagsMogginn - 14.08.2011, Page 27
14. ágúst 2011 27
tónlistarhátíð í Malmö 18. ágúst og
svo verður hún með sýningu í febr-
úar. „Þar verð ég með sitt lítið af
hverju af því sem ég hef unnið und-
anfarin ár,“ segir hún. „Það var
Þjóðverji sem fann mig og vill mark-
aðssetja mig í Þýskalandi.“
Og hún hefur einnig komið að
kvikmyndagerð, sá til dæmis um
förðun í stuttmyndinni Tune for
Two, sem kærastinn Gunnar Jörvstad
leikstýrði og vakti mikla athygli á
Youtube. „Hún fékk þrjár milljónir
heimsókna á innan við þremur mán-
uðum og eflaust eru þær orðnar fleiri
núna. Þetta er ofbeldisfull mynd og
það vottar fyrir blóði,“ segir hún og
hlær. „Í kjölfarið var myndinni boðið
á kvikmyndahátíðir í Frakklandi,
Ítalíu, Hollandi og Wales, án þess við
værum nokkuð að markaðssetja
hana, og frönsk auglýsingastofa hafði
samband og vildi koma honum á
framfæri, en hann rekur framleiðslu-
fyrirtækið Primodrom.“
Þyrluflug með Noomi Rapace
Særún er hálfsystir leikkonunnar
Noomi Rapace, sem lék í kvikmynd
Ridleys Scott á Íslandi í sumar og sló
í gegn sem Lisbet Salander í róm-
uðum spennumyndum eftir sögum
Stiegs Larssons. Þær hittust þegar
Særún kom til landsins og fóru í
þyrluflug um Ísland. „Það var geggj-
að,“ segir Særún og ljómar. „Ég var
með myndavélina og það var fallegt
að horfa yfir landslagið – ég tók
skemmtilegar myndir af jöklum.“
Það leit reyndar út fyrir að Særún
myndi missa af Noomi. „Hún flaug
heim að morgni og ég kom að
kvöldi. Mér þótti það leiðinlegt, því
ég hafði ekki hitt hana lengi. Svo
frétti að hún þyrfti bara að skreppa
einhverra erinda til Svíþjóðar, en
kæmi aftur og yrði við tökur hjá
Dettifossi. Þá bauðst mér að fara með
frá Keflavík til Dettifoss og ég gat þá
líka passað Lev [sjö ára son Noomi].
Við komum svo við á Akureyri um
kvöldið og sváfum á Hótel KEA.
Flugstjóri þyrlunnar var mjög
skemmtilegur. Þyrluferðin var
skemmtileg framan af, en svo flaug
hann helst til hátt og ég spurði hvort
hann gæti ekki farið upp og niður.
Þá flaug hann beint upp í loftið og
svo niður, það tók ekkert smávegis á
taugarnar. „Ég get ekki horft,“ sagði
Noomi. Og Lev fannst það svo
skemmtilegt að hann hrópaði: „Upp
og niður! Upp og niður!“
Hún þagnar kímin.
„Núna verður Noomi örugglega
reið við mig,“ segir hún og hlær.
Ljósmynd/Særún Norén
Morgunblaðið/Kristinn