SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 14.08.2011, Qupperneq 35

SunnudagsMogginn - 14.08.2011, Qupperneq 35
14. ágúst 2011 35 Í bókinni er meðal annars sagt frá Magnúsi Pálssyni sem fædd- ist árið 1842 í Pálshúsum við Bakkastíg í Reykjavík. Hann vann sem steinsmiður og múrari í Reykjavík. Þegar hann komst á efri ár varð hann blindur og gerðist þá vatnsberi. Eins og sjá má á ljósmyndinni sem er frá Bókhlöðustíg, þá dregur hann vagninn með þungum vatns- byrðum en konan við hlið hans er augu hans og leiðsögumaður. Fátækt Vatnsberar  Á myndinni sem tekin er skömmu eftir 1880 sjást bæði ferðamenn og bænd- ur á leið í bæinn niður Bakarabrekkuna sem síð- ar var nefnd Bankastræti. heiðra minningu sinnar fjölskyldu sem best þeir gátu. Upplýsingar um eldri kynslóðirnar í verkinu voru oft tor- fundnar, en með samstarfi við einn vandaðasta ættfræðing okkar, Eggert Thorberg Kjartansson, hefur okkur tek- ist að hafa uppi á flestum þeim upplýs- ingum sem við höfum leitað að. Í verk- inu er reynt að gera öllum jöfn skil, en að sjálfsögðu er auðveldara að skrifa um lífshlaup ráðherrans en vatnsburð- arkarlsins,“ segir Þorsteinn. Fleiri myndir takk! „Myndasöfnunin hefur kannski verið hvað tímafrekasti þátturinn í undirbún- ingi verksins. Þá söfnun hóf ég fyrir ára- tugum og hef í gegnum tíðina keypt mörg glerplötu- og filmusöfn til að birta í þessu verki. Fæstar þeirra mynda hafa áður komið fyrir sjónir almennings. Af- komendur íbúanna í Reykjavík 1910 eiga síðan drjúgan þátt í að leiða fram í dags- ljósið marga ljósmyndaperluna sem hvergi er til nema í þeirra fórum. Vonast ég til að njóta áfram liðstyrks þeirra í að safna ljósmyndum af gengnum kyn- slóðum í Reykjavík, húsunum í bænum og ýmsum þjóðlífsmyndum sem varpa skemmtilegu ljósi á lífið í Reykjavík um aldamótin 1900. Þegar komið var að útgáfuundirbún- ingi munaði mest um aðstoð Ingu Láru Ljósmynd/Sigfús Eymundsson. Þjóðminjasafn Íslands.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.