SunnudagsMogginn - 16.10.2011, Page 38
38 16. október 2011
L
ungann úr 20. öldinni var Framsóknarflokkurinn stórveldi í
íslensku þjóðlífi. Allt frá stofnun var flokkurinn gerandi afl í
stjórnmálunum og átti oftast nær aðild að ríkisstjórnum og
hafði þannig aðstöðu til að hrinda stefnumálum sínum í
framkvæmd. Áhrif flokksins hafa líklega aldrei verið jafn sterk og í
ríkisstjórn Tryggva Þórhallssonar sem sat að völdum frá 1927 til 1932.
Á þeim tíma var Framsóknarflokkurinn einn í stjórninni sem naut þó
stuðnings Alþýðuflokks. Tryggvi Þórhallsson var forsætisráðherra en
óhætt er að segja að Jónas Jónsson frá Hriflu hafi verið potturinn og
pannan, en ráðherradómur gaf honum tækifæri til að koma ýmsu í
framkvæmd.
Í vitund almennings ber þar líklega hæst byggingu skóla víða um
landið, en markmiðið með starfsemi þeirra var kannski öðrum þræði
að ungt fólk gæti aflað sér alhliða menntunar á ekki löngum tíma og
væri þannig þess albúið að láta til sín taka í félags- og framfaramálum
– ekki síst úti á landi en þar bæði var kjörlendi flokksins og er
kannski enn. Kemur það heim og saman við grunntóninn í stefnuFramsóknarmenn ganga til Alþingis árið 1987. Fram nú allir í röð, eins og segir í frægum skólasöng.
Morgunblaðið/úr safni
Myndasafnið 20. janúar 1987
Framsókn var
mikið stórveldi
B
ítillinn Paul McCartney gekk í hjónaband með
Nancy Shevell um síðustu helgi. Shevell, nú
Lady McCartney, er 51 árs (eiginmaðurinn er
69 ára) og er frá Edison í New Jersey í Banda-
ríkjunum. Samband hennar og McCartney hóst skömmu
eftir erfiðan skilnað hans við aðra eiginkonu hans, Heat-
her Mills, en þau sáust fyrst saman í Hamptons í New
York árið 2007. Foreldrar Nancy eru Myron og Arlene
Shevell en móðir hennar er nú látin. Hún tvö systkini,
Jon og Susan. Fjölskyldan á virt og jafnframt ábatasamt
fyrirtæki í flutningabransanum sem heitir New Eng-
land Motor Freight. Hún er því erfingi mikilla auðæfa
og ekki á flæðiskeri stödd frekar en Sir Paul þannig að
peningar ættu ekki að vera deiluefni í þessu sam-
bandi.
Shevell giftist lögfræðingnum Bruce Blakeman árið
1984 og þau eiga saman soninn Arlen, sem er nú 19 ára.
Hún skildi við Blakeman eftir 23 ára hjónaband og fer sög-
um af því að skilnaðurinn hafi verið í góðu.
Nancy og Bruce höfðu hitt á árum áður Paul og Lindu,
fyrstu eiginkonu hans, sem lést úr krabbameini 1998. Þau
heimsóttu nefnilega Hamptons-svæðið oft og þar bjó fjöl-
skylda Lindu.
Shevell er frænka fjölmiðlakonunnar Barböru Walters. The
New York Observer greindi frá því að hún hefði hjálpað þeim
að ná saman og haldið mörg matarboð þar sem þau fengu
tækifæri til að kynnast nánar. „Mér þykir mjög vænt um
þessa frænku mína. Mamma hennar og ég vorum systk-
inabörn en hún er núna látin og ég hef alla tíð verið náin
þessari ungu konu,“ sagði Walters.
Shevell gegnir stjórnunarstöðum í fjölskyldufyrirtækj-
unum Shevell Group of Companies, LLC og The Shevell Cro-
up/Carrier Indurstries INC. Hún hefur líka verið í stjórn
nefnda New York-borgar sem tengjast samgöngumálum.
Gengu í hjónaband á fæðingardegi Lennons
Sjálf hefur hún fengið brjóstakrabbamein og sigrast á því.
Sögusagnir hafa verið uppi um að hún og Linda hafi verið
Bítillinn Paul McCartney gekk í hjóna-
band með Nancy Shevell, auðugri
bandarískri konu, um síðustu helgi. Er
þetta þriðja hjónaband hans en
annað hennar.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Hér eru þau á opnun sýningar Met-
ropolitan-safnsins til heiðurs breska
hönnuðinum Alexander McQueen,
sem nú er látinn, í New York í vor.
Deila ekki
um peninga
Frægð og furður