SunnudagsMogginn - 16.10.2011, Side 45

SunnudagsMogginn - 16.10.2011, Side 45
16. október 2011 45 Lesbók Ó venjuleg sjón mætti mér um daginn. Ég sá unglinga hlaupa inn í bókabúð. Hamingja skein úr augum þeirra þegar þeir hrópuðu: „Þarna er bókin“. „Hver segir að ungdóm- urinn sé ekki bókelskur,“ hugs- aði ég og mér hlýnaði um hjarta- rætur. Ungmennin þutu að bókarekka og gripu bók fagn- andi um leið og þau hrópuðu í aðdáun. Eitt þeirra tók bókina upp og kyssti hana. Svo skríktu þau af gleði og byrjuðu að fletta bókinni og ráku öðru hvoru upp aðdáunaróp. Bókin sem gladdi þau svo óstjórnlega er ævisaga söng- goðsins Justin Bieber, en hann er vart af barnsaldri. Vissulega hefði ég fremur viljað sjá þau kyssa 453 blaðsíðna Harry Potter bók en myndabók um syngjandi strákling. En kannski lýsir sú skoðun ákveðnu yfirlæti. Litrík bók um manneskju sem maður dáir gleður mann vitaskuld. Ég á nokkrar þannig bækur um ýmsa listamenn, eins og til dæmis Oscar Wilde, og mér þykir vænt um þær. Justin Bieber á sitt fólk og það elskar hann út af lífinu og kyssir bók sem fjallar um hann. Það er fallegt. Það hefur komið fyrir að ég hafi kysst bækur eftir að hafa lesið þær. Vissulega gerist það ekki oft en það gerist samt. Stundum, ef þær hafa glatt mig, klappa ég þeim vinalega og horfi á þær með ástúð. Það er engin ástæða til annars en að sýna góðum bókum alúð. Eitt sinn sat ég með fjögurra ára vin minn í fanginu og var að fletta með honum Tinnabók. Hann tók bókina skyndilega af mér, kyssti hana og sagði sæll: „Ég elska Tinna“. Hann var ekki læs og enginn hafði lesið Tinna fyrir hann. Hann hafði bara skoðað myndirnar en það nægði alveg til að hann að ákvæði að Tinni væri hans maður. Það er indælt að vita af því að ungt fólk elskar sumar bækur. Börn kyssa bækur ’ Ungmennin þutu að bóka- rekka og gripu bók fagnandi um leið og þau hrópuðu í að- dáun. Eitt þeirra tók bókina upp og kyssti hana. Orðanna hljóðan Kolbrún Berþórsdóttir kolbrun@mbl.is B ak við höfundarnafnið Lars Kep- ler eru Alexandra og Alexander Ahndoril sem í sameiningu skrif- uðu Dávaldinn sem kom út í ís- lenskri þýðingu á síðasta ári, og var ekki sérstaklega góð bók. Nú kemur ný bók, Paganinisamningurinn sem er ein af þess- um löngu glæpasögum sem virðist aldrei ætla að taka enda. Á rúmum 500 síðum er hrúgað saman dágóðum slatta af morðum og misþyrmingum en persónurnar sem við sögu koma eru svo óáhugaverðar að það er erfitt að sýna þessari framleiðslu mikinn áhuga. Bókin byrjar þó bara nokkuð vel. For- stjóri sænska vopnaeftirlitsins finnst hengdur á heimili sínu. Ung kona er myrt og systir hennar er á flótta undan morð- ingjanum ásamt kærasta sínum. Í kringum þessi mál skapast sæmileg spenna. Eltinga- leikur morðingjans við parið á eyju nokk- urri er sennilega það besta í bókinni. Allt þar til parið hittir fyrrverandi fjölmiðla- stjörnu sem vill bregða á leik. Í þeim þætti mistekst höfundunum illilega og eftir það tekur við sundurlaus og fremur kjánaleg atburðarás þar sem pólitík og vopna- viðskipti koma við sögu. Höfundarnir telja sig greinilega eiga brýnt erindi með bók- inni því henni lýkur með lista yfir níu mestu útflutningsríki heims á sviði hefð- bundinna vopna og þar er Svíþjóð á listan- um, sem höfundunum þykir greinilega mjög miður. Sannarlega er ekki hægt að álasa þeim fyrir að hafa sterka þjóðfélags- lega vitund. En ef þeir vildu sýna í skáld- verki andstöðu sína við vopnadekur Svía hefðu þeir átt að skrifa snarpari og beittari bók en þessi er. Það er nóg af góðum glæpasögum á markaðnum en þetta er ekki ein þeirra. Þetta er glæpasaga allnokkuð undir með- allagi. Þunnur þrettándi BÆKUR Paganinisamningurinn bbnnn Eftir Lars Kepler. JPV gefur út, 505 síður, innb. Alexander og Alexandra Coelho Ahndoril sem kalla sig Lars Kepler.Kolbrún Bergþórsdóttir LISTASAFN ÍSLANDS Söfn • Setur • Sýningar ÞÁ OG NÚ 22.9.-31.12. 2011 SUNNUDAGSLEIÐSÖGN kl. 14 í fylgd Jóns Proppé listheimspekings. HÖFUNDAKYNNING, miðvikudaginn 19. okt. kl. 12.10 - Kynning á 4. bindi Íslenskrar listasögu, Halldór Björn Runólfsson safnstjóri og Dagný Heiðdal listfræðingur SAFNBÚÐ Listaverkabækur, kort, plaköt, íslenskir listmunir og gjafavara. SÚPUBARINN, 2. hæð Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga. Allir velkomnir! www.listasafn.is ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ Þúsund ár - fjölbreytt verk úr safneign Listasafns Íslands frá 19. öld til nútímans. Fyrsti áfangi nýrrar grunnsýningar um þróun íslenskrar myndlistar. „Óskabarn – Æskan og Jón Sigurðsson“ Sýning um æsku og lífsstarf þjóðhetjunnar, undirbúin í samvinnu við Afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar. Sýn- ingin höfðar sérstaklega til barna og ungs fólks á skólaaldri. Áhugaverður viðburður fyrir alla fjölskylduna. Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir. ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík Opið daglega kl. 11.00-17.00. www.thjodmenning.is Listasafn Reykjanesbæjar Dúkka. Valgerður Guðlaugsdóttir. 1. sept. – 16. okt. Óvættir og aðrar vættir. Grafík. 1. sept.- 16. okt. Byggðasafn Reykjanesbæjar Bátasafn Gríms Karlssonar Opið virka daga 12.00-17.00 helgar 13.00-17.00 Aðgangur ókeypis reykjanesbaer.is/listasafn ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Leiðsögn sunnudaginn 16. október kl. 14:00 um sýninguna Guðvelkomnir góðir vinir! Útskorin íslensk horn Aðrar sýningar: Þetta er allt sama tóbakið! Ljósmyndir Emils Edgrens Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár Útskornir kistlar Tveir fyrir einn af aðgangseyri sunnudaginn 16. október Glæsileg safnbúð og Kaffitár Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is Opið þriðjudaga-sunnudaga kl. 11-17. Lokað á mánudögum ALMYNSTUR Arnar Herbertsson JBK Ransu Davíð Örn Halldórsson Laugard. 15. okt. kl. 16-18 Vinjettuhátíð upplestur og tónlist Opið fim.-sun. Kl. 12-18 AÐGANGUR ÓKEYPIS www.listasafnarnesinga.is Hveragerði Í bili Sýningarstjóri Ólöf Gerður Sigfúsdóttir Yfirsýn Sigurgeir Sigurjónsson ljósmyndari Lau. 15. október kl. 13-16 – Málþing Bil beggja: Safnið sem vettvangur lista og lærdóms Málþing haldið í tengslum við sýninguna Í bili Erindi: Bryndís Snæbjörnsdóttir, Oddný Eir Ævarsdóttir, Ólöf Gerður Sigfúsdóttir Þáttakendur í pallborði: Sigurjón Baldur Hafsteinsson, Ólafur Sveinn Gíslason, Anna Jóa og Ólöf K. Sigurðardóttir Sýningunum lýkur 23. október Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri. www.hafnarborg.is sími 585 5790 - Aðgangur ókeypis Verið velkomin á Eyrarbakka Opið samkvæmt samkomulagi í vetur Byggðasafn Árnesinga Sjóminjasafnið www.husid.com 15. október til 6. nóvember 2011 Inga Þórey Jóhannsdóttir og Þorbjörg Þorvaldsdóttir Opnun laugardaginn 15. október kl. 15.00 Opið 13-17, nema mánudaga. Freyjugötu 41, 101 Rvk www.listasafnasi.is Aðgangur ókeypis. LISTASAFN ASÍ HLUTIRNAR OKKAR – úr safneign safnsins Leiðsögn Sunnudag 16. okt. kl. 14: Elísabet V. Ingvarsdóttir Fyrirlestur Þriðjudag 18. okt. kl. 20: Pétur H. Ármannsson Tímamótahús 7. áratugar í Garðabæ Ókeypis aðgangur á fyrirlestra safnsins Opið alla daga nema mán. kl. 12-17. Verslunin KRAUM í anddyri. Garðatorg 1, Garðabær www.honnunarsafn.is

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.