Morgunblaðið - 26.04.2010, Blaðsíða 21
Dagbók 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2010
Sudoku
Frumstig
3 8 2
4 5 1 3
6 1
3 4 7 8
2 1 4
5 6
8
4 2 7
7 1 2 5 8
3 1
4 6 9
8 5 3 1
1 9 7
7 4 1 6 8
8 5 6
7 9
4
9 3
1
8 4
3 8 9
1 3 7
9 1 6 7
7 2
4 8 1
1 7 8
3 9 1 4
4 3 6 5 1 8 7 2 9
1 9 8 7 4 2 5 3 6
5 2 7 3 6 9 8 4 1
8 1 5 9 7 4 2 6 3
3 7 4 6 2 5 9 1 8
9 6 2 8 3 1 4 7 5
2 8 3 1 9 7 6 5 4
6 4 9 2 5 3 1 8 7
7 5 1 4 8 6 3 9 2
4 5 2 3 1 9 6 7 8
1 3 6 2 7 8 9 4 5
7 8 9 6 4 5 1 3 2
2 6 8 7 5 3 4 1 9
3 1 5 9 8 4 7 2 6
9 7 4 1 6 2 5 8 3
8 9 1 4 3 6 2 5 7
5 2 7 8 9 1 3 6 4
6 4 3 5 2 7 8 9 1
5 2 3 6 8 4 9 1 7
4 8 1 7 2 9 5 3 6
9 7 6 3 5 1 2 8 4
1 9 8 5 7 6 4 2 3
2 3 5 1 4 8 6 7 9
7 6 4 9 3 2 1 5 8
8 5 2 4 6 3 7 9 1
6 1 7 8 9 5 3 4 2
3 4 9 2 1 7 8 6 5
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 26. apríl, 116. dag-
ur ársins 2010
Orð dagsins: Daníel tók til máls og
sagði: „Lofað verði nafn Guðs frá eilífð
til eilífðar, því hans er viskan og mátt-
urinn.“ (Daníel 2, 20.)
Afsökunarbeiðnir koma í ýmsumgervum. Víkverji þekkti einu
sinni mann sem taldi sig miðdepil
alheimsins. Víkverji þekkti mann-
inn að vísu ekki náið en þó nóg til að
fá innsýn í skapgerð hans.
Viðfangsefni okkar var mikið fyr-
ir að láta bera á sér. Víkverji hitti
söguhetju okkar fyrst og fremst á
líkamsræktarstöð fyrir lengra
komna, ef svo má að orði komast.
Við getum kallað hann Pétur.
x x x
Á góðum degi tíundaði Pétur af-rek sín í viðskiptum með
hlutabréf um leið og hann minnti
nærstadda á að þeir hefðu ekki til
að bera sömu ógnarkrafta Þórs og
hann sjálfur.
Og Pétur gekk lengra. Eigandi
líkamsræktarstöðvarinnar átti
konu sem leiddist ekki að láta horfa
á sig, jafnvel fyrir framan kærast-
ann.
Og auðvitað þurfti Pétur að
ganga á lagið. Stemningin breyttist
í kjölfarið en eigandinn varð að láta
það yfir sig ganga. Þetta var hans
lifibrauð. Pétur lét sig heldur ekki
vanta. Þetta var hans æfingasalur.
x x x
Um það bil sjö árum síðar rakstVíkverji á Pétur fyrir tilviljun.
Víkverji sat þá á kaffihúsi og
þóttist þá heyra rödd sem hringdi
bjöllum. Víkverji leit við og viti
menn. Pétur var mættur tveimur
borðum frá með sæti við gluggann.
Fyrir framan Pétur sat maður
sem hlustaði af hluttekningu á sögu
hans. Pétur hafði drukkið sig út úr
vinnu, spillt hjónaböndum, só-
lundað fé, svikið foreldra sína,
gengið á bak orða sinna og brennt
flestar þær brýr sem hægt er að
kveikja í.
En auðvitað var þetta ekki Pétri
að kenna. Flaskan átti alla sök.
Samt var Pétur alltaf allsgáður
þegar Víkverji sá til hans. Hér var
komin afsökunin fyrir öllu saman.
Og að sjálfsögðu sá Pétur ekki eftir
neinu.
Hann reyndi þó að vera einlægur.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 stórt land-
svæði, 4 húsa, 7 snúin, 8
vesælan, 9 elska, 11 for-
ar, 13 kjánar, 14 manns-
nafn, 15 köld, 17 slæmt,
20 bókstafur, 22 glæst-
ur, 23 ólyfjan, 24 kind,
25 mál.
Lóðrétt | 1 skordýr, 2
gubbaðir, 3 duglega, 4
álft, 5 kvíslin, 6 korns,
10 veiðarfærið, 12
hnöttur, 13 púki, 15 ró-
ar, 16 krók, 18 bogin, 19
grassvörður, 20 baun,
21 fín.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 sjúkrahús, 8 jurta, 9 arfur, 10 fól, 11 skata, 13
liðna, 15 rispa, 18 slæga, 21 fok, 22 fress, 23 erill, 24
skeleggar.
Lóðrétt: 2 jarða, 3 krafa, 4 aðall, 5 úlfúð, 6 ljós, 7 grúa,
12 táp, 14 ill, 15 rófa, 16 stelk, 17 afsal, 18 skegg, 19 æð-
ina, 20 afli.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 Be7 4. Bd3 Rf6
5. e5 Rfd7 6. c3 c5 7. Re2 Rc6 8. f4 cxd4
9. cxd4 a5 10. 0-0 Rb6 11. Rf3 Bd7 12.
g4 a4 13. f5 Rc4 14. Rf4 Db6 15. Kh1
Rb4 16. Rh5 0-0-0 17. b3 Ra5 18. Bb1
g6 19. Rf6 Bb5 20. Hf2 axb3 21. axb3
Kb8 22. Bh6 Hc8 23. Bg7 Hhd8 24. Rg5
Staðan kom upp í Skákþingi Íslands,
landsliðsflokki, sem lauk fyrir skömmu
í Mosfellsbæ. Ingvar Þór Jóhannesson
(2.343) hafði svart gegn Daða Ómars-
syni (2.127). 24. … Rxb3! 25. Dxb3
Dxd4 26. Db2 Dd1+ 27. Kg2 Bxf6 28.
h3 Bxg5 29. Dxb4 Hc1 30. Kg3 Dg1+
og hvítur gafst upp.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Stórmál.
Norður
♠K1098
♥Á8
♦ÁKG872
♣6
Vestur Austur
♠732 ♠4
♥KD107 ♥G432
♦943 ♦D106
♣K108 ♣ÁD542
Suður
♠ÁDG65
♥965
♦5
♣G973
Suður spilar 6♠.
Útspilið er ♥K, sem sagnhafi tekur
og veltir vöngum. Tígulinn þarf að fría,
en hvernig á að standa að því verki?
Þetta er lítill vandi þegar allar hend-
ur sjást, en við borðið gæti sagnhafi
verið í vafa um hvort hann eigi að taka
báða hámennina í tígli fyrst eða byrja á
♦Á og stungu. Hvað segja menn um
það?
„Smáatriði,“ myndi Kalli á þakinu
segja, en það er ekki rétt. Segjum að
sagnhafi taki ♦Á og trompi tígul hátt.
Hann spilar næst spaða á blindan, en
hvað svo? Ef trompið er 2-2 og drottn-
ingin í tígli við fjórða spil verður að
trompa tígul aftur. En þá er spilið tap-
að eins og legan er – trompið 3-1, en
tígullinn flatur.
Nei, þetta er stórmál. Með því að
taka ♦Á-K í byrjun kemur tígullegan
strax í ljós og af því ræðst framhaldið.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Öll umræða þín við vini reynist
erfið í dag. Viljirðu vinna þig í álit skaltu
reyna aðrar og betri aðferðir en að tala
hæst á fundum.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú gætir lent í deilum um trúmál,
Tillitssemi og umburðarlyndi eru stikk-
orðin svo friður haldist í námunda við
þig.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú færð sjaldgæft tækifæri til
þess að eyða tíma í félagsskap fólks sem
færir þig nær upprunanum. Kannski
kemstu á snoðir um eitthvað dýrmætt.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Láttu það ekki hvarfla að þér að
þú getir borið allar heimsins byrðar.
Slakaðu á kröfunum!
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Leggðu þig fram um að koma til
móts við aðra. Miklar tilfinningar eru í
samskiptum þínum við ferfætlinga þessa
dagana. Er ekki kominn tími til að mála
heima?
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þótt sumum þyki nóg um þá
ábyrgð, sem þér er falin, þarftu hvergi
að óttast, því þú ert maður fyrir þinn
hatt. Vertu þolinmóð/ur.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þeir sem fóru frá þér, koma nú aft-
ur, þegar þú hefur staðið við þitt og
stendur með pálmann í höndunum. Ráð-
færðu þig við þá sem næst þér standa.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það er óþarfi að taka alla
skapaða hluti bókstaflega því það kallar
bara á álag og örvæntingu. Taktu
stjórnina í þínar hendur og fáðu svo út-
rás fyrir tilfinningarnar með skaplegum
hætti.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú verður að létta ein-
hverjum verkefnum af þér, ef ekki á illa
að fara. Helgin ætti að verða góð hjá
þér. Börn koma mikið við sögu.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú gengur með margar djarf-
ar hugmyndir í maganum. Reyndu því
að vega og meta möguleikana áður en þú
reynir að finna lausn á þeim.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Það getur verið ósköp þreyt-
andi að hlusta á sjálfshól annarra. Forð-
astu fólk sem hefur slæm áhrif á þig.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú verður að láta heilsuna ganga
fyrir öllu öðru. Mundu bara að gjalda
líku líkt þegar þar að kemur. Bjóddu
fólki í heimsókn, þú hefur haldið þig til
hlés undanfarið.
Stjörnuspá
26. apríl 1839
Kvæðið Íslands minni (Þið
þekkið fold …) eftir Jónas Hall-
grímsson var frumflutt í sam-
sæti til heiðurs Þorgeiri Guð-
mundssyni í Kaupmannahöfn.
26. apríl 1944
Gamall öskuhaugur kom í ljós
þegar verið var að grafa fyrir
húsi við Tjarnargötu í Reykja-
vík. Þar fundust bein úr svín-
um, geirfugli og fleiri dýrum.
Jafnvel var talið að þetta hafi
verið öskuhaugur Ingólfs Arn-
arsonar.
26. apríl 1951
Fjörutíu daga Vatnajökulsleið-
angri Íslendinga og Frakka
lauk. Farið var um jökulinn á
„skriðbíl,“ þykktin mæld og
flutt efni í skála. „Til þess að
ráða gátur Vatnajökuls til hlít-
ar þarf miklar og vandaðar
rannsóknir,“ sagði Jón Eyþórs-
son leiðangursstjóri í samtali
við Morgunblaðið.
26. apríl 1966
Akraborg kom í síðasta sinn til
Borgarness. Þá hafði áætlunar-
ferðum með skipum milli
Reykjavíkur og Borgarness
verið haldið uppi í hálfan átt-
unda áratug.
26. apríl 1979
Ríkisstjórnin samþykkti að
heimila umtalsverðar hækk-
anir á opinberri þjónustu.
Áburður hækkaði um 52%, raf-
magn um 30%, heitt vatn um
20-30%, fargjöld strætisvagna
um 25% og sement um 23%.
26. apríl 1991
Sorpa, móttöku- og flokk-
unarstöð Sorpeyðingar höf-
uðborgarsvæðisins í Gufunesi,
var formlega tekin í notkun.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist …
„ER ekki best að hafa sem fæst orð um það,“ sagði
Þórir Páll Guðjónsson og hló þegar blaðamaður
hringdi og spurði hvort hann ætti ekki örugglega
afmæli 26. apríl, þ.e.a.s. í dag. „Það stendur nú
ekkert sérstakt til hjá mér annað en að vera í
minni vinnu sem er kennsla við Háskólann í Bif-
röst. Ég kenni þar bókfærslu, bókhald aðallega og
reikningshald, bæði í staðnámi og fjarnámi.“
Þórir Páll var fyrst kennari við Samvinnuskól-
ann á Bifröst, eins og hann hét þá, frá 1973-1987.
Hann hóf þá störf hjá Kaupfélaginu í Borgarnesi
en þar var hann kaupfélagsstjóri. Hann hætti þar
árið 1998, var tímabundið framkvæmdastjóri heilsugæslustöðvar en
hóf aftur kennslu á Bifröst árið 2000. Auk þess að kenna hefur Þórir
Páll umsjón með Hollvinasamtökum skólans.
Þótt ekkert sérstakt standi til í dag verður hugsanlega lítið matar-
boð með fjölskyldunni í kvöld en Þórir Páll og eiginkona hans Helga
Karlsdóttir eiga þrjú börn og tvö barnabörn. Hann afþakkar boð um
að fá að koma á framfæri óskum um afmælisgjafir. „Nei, nei, mér
finnast þetta nú ekki þannig tímamót að maður þurfi að hafa áhyggj-
ur af slíku,“ sagði hann og hló dátt. runarp@mbl.is
Þórir Páll Guðjónsson er 65 ára
Kennir á Bifröst á afmælinu
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is