Morgunblaðið - 26.04.2010, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 2 6. A P R Í L 2 0 1 0
STOFNAÐ 1913
95. tölublað
98. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
DAGLEGT LÍF
ÚLFUR! ÚLFUR!
Á KVELDÚLFSHÁTÍÐ
ÚT Á LÍFIÐ
FLUGAN FLÖGRAÐI
UM Á SÓDÓMU
6
VÍSINDIN lifnuðu við í Vatnsmýrinni í gær á degi umhverfisins
og er ekki annað að sjá en að þessar litlu telpur hafi kunnað vel
að meta að fá tækifæri til að sulla svolítið undir vísindalegu
yfirskyni. Í ár var dagurinn tileinkaður líffræðilegri fjölbreytni
og var fjöldi viðburða í boði.
Viðurkenningar voru einnig veittar fyrir störf á sviði umhverf-
ismála og afhenti Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra
Sigrúnu Helgadóttur náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í
Brattholti. Þá fékk prentsmiðjan Oddi afhentan Kuðunginn,
umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins, og nem-
endur Hvolsskóla voru útnefndir varðliðar umhverfisins.
Dagur umhverfisins er haldinn 25. apríl ár hvert, en þann dag
árið 1762 fæddist Sveinn Pálsson, fyrsti íslenski náttúrufræð-
ingurinn, sem var einna fyrstur til að hvetja til aðgerða gegn
skógareyðingu á Íslandi.
FJÖLBREYTTIR VIÐBURÐIR Á DEGI UMHVERFISINS
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ungir vísindamenn skemmta sér konunglega við að gera tilraunir með vatnsaflið
RAGNA Árnadóttir dómsmála-
ráðherra telur að vel geti reynst
nauðsynlegt að kanna það álag sem
er á dómstólum landsins. „Það er
mikilvægt að dómstólar geti sinnt
sínum lögbundnu verkefnum og að
þeir ráði við málafjöldann,“ segir
Ragna, en sex nýir dómarar munu
hefja störf við héraðsdóm á næst-
unni. „Þess vegna hef ég velt því
fyrir mér hvort það þurfi að fara
fram einhvers konar úttekt á því
hvort öruggt sé að álagið sé ekki of
mikið.“ »14
Þörf á álagsúttekt
hjá dómstólum?
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
SLEGIST er um skuldabréf í þrotabúum Kaupþings og
Glitnis og er eftirspurnin slík að aðeins bréf í risabank-
anum Lehman Brothers eru vinsælli, en hrun hans í
októberbyrjun 2008 markaði upphaf fjármálakrepp-
unnar.
Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, stað-
festi þetta í samtali við Morgunblaðið en að hans sögn
hefur gengi skuldabréfa í Glitni allt að sexfaldast frá hinu
örlagaríka hausti, eða úr genginu 5-7 í um 30 nú.
Hin mikla hækkun á gengi skuldabréfanna er góð frétt
fyrir kröfuhafa bankans en hlutdeild innlendra kröfuhafa
í bréfasafninu er um 15%, að sögn Árna.
Á þessari stundu sé útlit fyrir að lýstar kröfur eftir
fyrstu leiðréttingu séu 2.700 milljarðar en þær hafi í
fyrstu verið 3.400 milljarðar. Mismunurinn er 700 millj-
arðar eða um 47% af þjóðarframleiðslu síðasta árs. Þá
séu bókfærðar skuldir um 2.500 milljarðar.
Gengishækkun skilar hundruðum milljarða
Sé miðað við 15% hlut innlendra hluthafa af heildar-
kröfum upp á 2.700 milljarða samsvarar það rúmlega 400
milljörðum. Miðað við gengið 30 ættu innlendir kröfuhaf-
ar því að fá um 120 milljarða. Gert er ráð fyrir að 800
milljarðar fáist upp í skuldir. Forgangskröfur greiðast
fyrst og það sem eftir stendur fer í almennar kröfur.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins stefnir hand-
bært fé Glitnis nú í um 200 milljarða en Árni staðfesti að
það hefði numið um 130 milljörðum um áramót. Reynist
þetta rétt nemur aukningin um 53% á fjórum mánuðum.
Í gögnum frá Glitni kemur fram að lán sem veitt voru
við kaup á dótturfélagi Glitnis í Noregi eru á gjalddaga á
fyrri helmingi ársins 2010 og skýrir þetta hina miklu
aukningu á handbæru fé bankans.
Staða Glitnis mun betri en óttast var
Inntur eftir stöðu Glitnis nú segir Árni ljóst að hún sé
umtalsvert betri en þegar hvað mest svartsýni réð ríkj-
um örlagahaustið 2008. Á móti beri að hafa í huga að
skuldabréfin hafi gengið kaupum og sölum frá falli bank-
ans og því sé ekki hægt að ganga út frá að hækkunin á
gengi þeirra skili sér að fullu til upphaflegra kröfuhafa.
Setið um skulda-
bréf bankanna
Bréf í Glitni og Kaupþingi næst á eftir Lehman Brothers
Gengi skuldabréfa í Glitni hefur sexfaldast frá hruninu
» Lýstar kröfur í Glitni eru nú 700
milljörðum lægri en í upphafi
» Handbært fé Glitnis hefur aukist
um 70 milljarða frá áramótum
Óþarft að óttast vogunarsjóði | 2
ÞRETTÁN af sextán leikskóla-
starfsmönnum í Bláskógabyggð eru
strandaglópar í Kaupmannahöfn
vegna öskufallsins frá eldgosinu í
Eyjafjallajökli. Ekki er því útlit fyrir
að hægt verði að halda úti starfsemi
í leikskólum sveitarfélagsins í dag.
Icelandair ákvað að flytja tengi-
flug í Ameríkuflugi sínu tímabundið
frá Keflavík til Glasgow í Skotlandi,
til að koma í veg fyrir að flugleiðin
legðist af. Áætlar flugfélagið að
halda því fyrirkomulagi til morguns.
Samkvæmt öskuspám er búist við
því að öskuskýið frá gosstöðvunum
standi suður af landinu í dag og því
verði hægt að fljúga til og frá Kefla-
vík í millilandaflugi í dag. | 6
Morgunblaðið/RAX
Röskun
á flugi
Búist við að Kefla-
víkurflugvöllur verði
opnaður í dag
TVÆR af stúlkunum þremur sem
lentu í alvarlegu bílslysi í Keflavík á
laugardagsmorgun létust í gær-
kvöldi á gjörgæsludeild Landspít-
alans í Fossvogi. Hinni þriðju er enn
haldið sofandi í öndunarvél að sögn
læknis á vakt.
Stúlkurnar voru ásamt pilti í
jeppa sem fór út af Hringbraut við
Mánatorg norðan við Keflavík og
lenti á staur. Slösuðust þær allar al-
varlega en pilturinn slapp án telj-
andi meiðsla og var útskrifaður af
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í
gær. Þau eru öll um tvítugt.
Bænastund var haldin í Útskála-
kirkju í Garði í gær og boðið upp á
samtöl að henni lokinni. Um 100
manns mættu á bænastund fyrir
stúlkurnar á laugardag.
Tvær stúlk-
ur látnar