Morgunblaðið - 26.04.2010, Blaðsíða 4
Áttu að vita betur en að
auka útlán Íbúðalánasjóðs
Morgunblaðið/Ómar
Hækkaði í verði Hærri lánsfhlutföll og lægri vextir hjá Íbúðalánasjóði, samhliða lækkun á sköttum og stóriðjuframkvæmdum, varð til að auka þensluna.
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynurorri@mbl.is
RANNSÓKNARNEFND Alþingis
gagnrýnir harðlega breytingar sem
gerðar voru á lánum og vöxtum
Íbúðalánasjóðs á árunum 2004 og
2005. Telur nefndin þáverandi fjár-
málaráðherra hafa samþykkt breyt-
ingarnar, þrátt fyrir að gera sér grein
fyrir efnahagslegum afleiðingum
þeirra, þar sem hann taldi afleiðing-
arnar ásættanlegan kostnað við að
tryggja að sitjandi stjórn héldi völd-
um.
Í stjórnarsáttmála þáverandi ríkis-
stjórnar Framsóknarmanna og Sjálf-
stæðismanna var kveðið á um ýmsar
breytingar á Íbúðalánasjóði. Þáver-
andi félagsmálaráðherra óskaði síðla
árs 2003 eftir því að Seðlabankinn
gerði úttekt á hugsanlegum efna-
hagslegum áhrifum þess að hámarks-
lánshlutfall hjá sjóðnum yrði hækkað
í 90%, hámarkslán hækkuð og vextir
lækkaðir.
Seðlabankinn varaði eindregið við
breytingunni. Sagði bankinn hana
mjög illa tímasetta, þar sem á sama
tíma væri ráðist í þensluhvetjandi
stóriðjuframkvæmdir, og hún myndi
valda enn meiri þenslu og hækkandi
íbúðaverði.
Líkt og Hagfræðistofnun Háskóla
Íslands, sem haustið 2003 vann
skýrslu um áhrif rýmri veðheimilda
Íbúðalánasjóðs, varaði Seðlabankinn
við því að á endanum myndi húsnæð-
isverð taka að lækka aftur, sem
myndi koma sér illa fyrir þá sem
gripu gæsina og tækju 90 til 100 pró-
senta lán fyrir húsnæði þegar verð
þess væri í hámarki.
Hlustuðu ekki á aðvaranir
Þrátt fyrir aðvaranir sérfræðing-
anna var ákveðið að ráðast í breyt-
ingar á Íbúðalánasjóði. Vextir voru
lækkaðir, hámarkslán hækkuð og
veðhlutfall aukið. Eftir að vextir
Íbúðalánasjóðs höfðu verið lækkaðir
og fyrirheit höfðu verið gefin um
hækkun hámarkslána tóku viðskipta-
bankarnir – sem fram að því höfðu
fyrst og fremst boðið viðbótarlán – að
bjóða lán í samkeppni við sjóðinn.
Ný útlán jukust verulega vegna
þessa, sérstaklega á árinu 2005 er ný
lán að frádregnum uppgreiðslum hjá
Íbúðalánasjóði námu 145 milljörðum
króna. Þensla hélt áfram að aukast og
íbúðaverð að hækka, rétt eins og sér-
fræðingarnir höfðu varað við.
Stjórnvöld áttu að vita betur
Í ályktunum rannsóknarnefndar-
innar segir að stjórnvöldum hafi átt
að vera – og hafi raunar verið – full-
komlega ljóst að rýmkun á reglum
Íbúðalánasjóðs, samfara skattalækk-
unum og stóriðjuframkvæmdum,
gæti orðið til þess að þenslan færi úr
böndunum. Á móti hafa forsvars-
menn þáverandi ríkisstjórnar bent á
að þeir gátu ekki séð fyrir allt sem
gerðist, svo sem að bankarnir færu í
samkeppni við Íbúðalánasjóð.
Í skýrslutöku nefndarinnar af Þór-
arni G. Péturssyni, hagfræðingi hjá
Seðlabanka Íslands, lýsti hann því
hvernig gekk að vara Árna Magnús-
son, þáverandi félagsmálaráðherra,
við umræddum breytingum: „Og þeir
hlustuðu og svo sagði félagsmálaráð-
herra til að summera upp: Já, þetta er
mjög áhugavert, við erum þá sammála
um að þetta sé ekki mjög alvarlegt
vandamál ... þetta voru því miður mjög
algeng viðbrögð stjórnvalda á þessum
tíma ... gríðarlegur hroki og áhuga-
leysi við að heyra eitthvað sem gæti
verið vandamál.“
Einnig er vitnað í skýrslutöku af
Geir H. Haarde, sem var fjármálaráð-
herra þegar breytingarnar voru
gerðar, þar sem hann viðurkennir að
sig hafi grunað að breytingarnar
væru mistök. Hins vegar hefði verið
samið um það við myndun ríkisstjórn-
arinnar 2003 að farið yrði í þær.
Nefndin ályktar af þessu að Geir
„hafi metið það svo að væntanlegur
skaði fyrir samfélagið væri ásættan-
legur kostnaður við það að sitjandi
flokkar héldu völdum.“
RNA segir að Geir taldi afleiðingarnar ásættanlegan kostnað við að halda völdum
Í HNOTSKURN
» Núverandi aðal-hagfræðingur Seðla-
banka Íslands sagði við
skýrslutöku að stjórnvöld
hefðu sýnt hroka og
áhugaleysi gagnvart við-
vörunum bankans um
breytingar á Íbúðalána-
sjóði.
» Þrátt fyrir viðvaranirsérfræðinga lækkuðu
stjórnvöld vexti sjóðsins og
hækkuðu hámark lána, á
sama tíma og skattar voru
lækkaðir og ráðist var í
stóriðjuframkvæmdir.
Félagsmálaráðherra hlustaði ekki
á aðvaranir Seðlabankans og
fjármálaráðherra breytti gegn
betri vitund þegar vextir voru
lækkaðir og hámarkslán hækkuð
hjá Íbúðalánasjóði.
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2010
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Sértilboð á Aguamarina
Heimsferðir bjóða frábært tilboð í 8 nátta
Hvítasunnuferð til Costa del Sol í vor. Í boði
er frábært sértilboð, með eða án fæðis á
Aguamarina íbúðahótelinu, einum allra
vinsælasta gististað okkar. Ath. mjög tak-
markaður fjöldi herbergja í boði á þessum kjörum.
Fyrstur kemur, fyrstur fær! Gríptu þetta frábæra tækifæri og njóttu
lífsins í vor á Costa del Sol á ótrúlegum kjörum.
Verð kr. 79.900
Netverð á mann, m.v. fjóra í
íbúð með einu svefnherbergi í
8 nætur á Aparthotel Aguama-
rina. Aukalega fyrir hálft fæði
kr. 19.200 fyrir fullorðna og
kr. 9.600 fyrir börn. Sértilboð
17. maí
Verð frá 79.900
Costa del Sol
Frábær Hvítasunnuferð til
Atvinnumál eru
algert forgangs-
verkefni í borg-
inni á næsta
kjörtímabili að
mati
Samfylkingar-
innar í Reykja-
vík. Þetta kemur
meðal annars
fram í kosninga-
stefnuskrá vegna
komandi borgarstjórnarkosninga,
sem samþykkt var á Reykjavík-
urþingi flokksins í Breiðholti á laug-
ardag. Til að standa undir velferð
og lífskjörum þurfi að tryggja 3,5%
meðalhagvöxt í Reykjavík næsta
kjörtímabil og vegna stöðu efna-
hagsmála þýði þetta jafnframt að
stefna þurfi að um 5% hagvexti
2014.
Þörf á víðtækari samstöðu
Til þess þurfi margþættar að-
gerðir sem ekki séu allar á færi
Reykjavíkur heldur þurfi víðtækari
samstöðu og samstarf. Í stefnu-
skránni er meðal annars lagt til að
borgin taki lán til að halda uppi
framkvæmdastigi í kreppunni í stað
þess að skera framkvæmdir niður
um 70% eins og nú sé ráðgert.
Vilja stefna
að 3,5%
hagvexti
Lán til að viðhalda
framkvæmdastigi
Dagur B.
Eggertsson
ÓLAFUR Halldórsson handrita-
fræðingur var í gær heiðraður fyrir
starf sitt í þágu menningartengsla
Færeyinga og Íslendinga. Það var
Hanna Birna Kristjánsdóttir borg-
arstjóri sem afhenti Ólafi heiðurs-
skjal og blómvönd við setningar-
athöfn færeyskrar menningar-
hátíðar á Kjarvalsstöðum. Ólafur,
sem varð níræður 18. apríl, hefur
um áratugaskeið unnið að rann-
sóknum á handritum, textum og út-
gáfum á fornsögum. Að afhending-
unni lokinni hélt hann fyrirlestur
um Færeyingasögu í einum sal
safnsins.
Heiðraður á færeyskri
menningarhátíð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
BRYNJAR Steinbach sem býr
ásamt fjölskyldu sinni í Kaupmanna-
höfn vaknaði við það í gærmorgun
að lögregla réðst með alvæpni inn í
íbúðina fyrir neðan hann. Nágrann-
ar hans eru grunaðir um að hafa tek-
ið þátt í að ræna úra- og skartgripa-
verslun á Amager á laugardag, sem
endaði með skotbardaga á milli lög-
reglu og ræningjanna þar sem einn
ræningjanna lést.
„Ég vaknaði um níu við það að
hundurinn á neðri hæðinni varð al-
veg brjálaður. Það er svo sem ekkert
óvenjulegt en mér fannst þetta að-
eins meira en vanalega, og heyrði
líka dynki og læti. Ég kíkti út og sá
sex lögreglumenn með vélbyssur og
önnur vopn og mér sýndist þeir vera
að horfa á íbúðina fyrir neðan okkur.
Ég var samt ekki alveg viss þannig
að ég fór út á svalir og leit niður og
sá þar aðra sex lögregluþjóna sem
skipuðu mér að fara aftur inn.“
Ekki fyrirmyndargrannar
Stuttu síðar urðu mikil læti fyrir
neðan og í kjölfarið sá Brynjar fjóra
einstaklinga leidda út um aðal-
innganginn Aðspurður hvernig sé að
vakna við svona lagað, viðurkennir
Brynjar að það hafi verið frekar súr-
realískt. „Við búum reyndar við hlið-
ina á Bella Center, þar sem lofts-
lagsráðstefnan var í desember, svo
að við erum vön því að sjá vélbyssur
út um gluggann.“ Hann segir fólkið
á neðri hæðinni ekki beint hafa verið
fyrirmyndarnágranna. Mikil læti
hafi verið frá íbúðinni, bæði vegna
rifrilda og partíhalda, og þau hafi oft
orðið vör við fíkniefnaneyslu ná-
grannanna.
Kaupmannahöfn Vopnað rán var
framið í Amager á laugardag
Vakin við
vopnaskak