Fréttablaðið - 26.10.2011, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 26.10.2011, Blaðsíða 2
26. október 2011 MIÐVIKUDAGUR2 LÖGREGLUMÁL „Ekki er hægt að sofa á gólfinu þegar það er flóð þarna inni!“ segir í ákalli systur Brynjars Mettinissonar, fanga í Taílandi, um fjárstuðning honum til handa. Ákallið var sent út í gær vegna flóðanna sem geisa nú í Suðaustur-Asíu. „Nú eru flóðbylgjur að skella á alls staðar þar sem hann Brynj- ar er og það er ein á leiðinni inn í fangelsið eftir tvo daga,“ segir systirin, Eva Davíðsdóttir, í bréf- inu, sem birt var á samskipta- vefjum og sent vildarvinum. „Það mun ná Binna upp að hné/maga.“ Samkvæmt upplýsingum frá taílenskri kærustu Brynjars þurfi að leysa hann út gegn tryggingu svo hægt sé að flytja hann af hættusvæði. Því þurfi að safna fé. Brynjar var handtekinn í Bang- kok í byrjun júní og úrskurðaður í þriggja mánaða gæsluvarðhald vegna tengsla sinna við fíkni- efnamál. Brynjar er ta l i n n h a fa æ t l a ð a ð flytja lítra af metamfetamíni í vökvaformi til Japans ásamt áströlskum vini sínum. Sjálf- ur segist hann hafa verið gabbaður af araba sem hafi talið honum trú um að vökvinn væri lyfjablanda ætluð japönskum lækni. Brynjar átti að fá jafnvirði tæpra 300 þúsund króna fyrir viðvikið en var handtekinn þegar hann réð burðardýr til verks- ins, sem reyndist vera dulbúinn lögreglumaður. Hann hefur síðan búið við illan aðbúnað í fangelsi í höfuðborg- inni og beðið réttarhalda. „Nú eru allir fangar samþjapp- aðir og ég skil ekki hvað er að gerast!“ segir Eva í ákalli sínu. „Við vitum ekki hvað við eigum að gera eða hvern við eigum að tala við. Össur er ekkert búinn að svara okkur, lögfræðingurinn talar enga ensku og Brynjar fær ekki að vita neitt,“ bætir hún við. Hún segir móður þeirra hafa náð tali af ræðismanni Íslands þar ytra en hann hafi sagt að allir hefðu það erfitt í Taílandi. Eva kveðst ekki vita hvað það mun kosta að fá bróður sinn flutt- an, en þar sem þau borgi mánað- arlega fyrir mat hans og aðrar nauðsynjar sé enginn pening- ur eftir fyrir aðrar nauðsynjar. „Svo ég bið ykkur, virkilega grát- bið ykkur að hjálpa okkur Binna.“ stigur@frettabladid.is Óttast að flóðbylgjan nái fangelsi Brynjars Systir Brynjars Mettinissonar grátbiður um fjárstuðning svo hægt sé að flytja bróður hennar úr fangelsi á flóðasvæði í Bangkok. Utanríkisráðherra svari ekki, lögfræðingur Brynjars tali ekki ensku og ræðismaðurinn segi alla eiga erfitt. ALLT Á KAFI Gríðarleg flóð hafa verið í Suðaustur-Asíu undanfarnar vikur. Þessi mynd var tekin í gær í útjaðri Bangkok. Nú flæðir ört inn í borgina. NORDICPHOTOS/AFP BRYNJAR METTINISSON DÓMSMÁL Kæru varðstjóra í lög- reglunni á Selfossi á hendur hæstaréttardómara hefur verið vísað frá, samkvæmt upplýsingum frá embætti Ríkissaksóknara. Er það gert á grundvelli laga um með- ferð sakamála þar sem ríkissak- sóknari taldi ekki efni til að hefja lögreglurannsókn út af henni. Eins og Fréttablaðið greindi frá kærði Svanur Kristinsson, varðstjóri í lögreglunni, Árna Kolbeinsson hæstaréttardómara fyrir rangar sakargiftir. Árni hafði áður kært Svan fyrir afglöp í starfi. Héraðsdómur Suðurlands sýknaði Svan af ákæru þess efnis. - jss Ekki tilefni til rannsóknar: Kæru á hæsta- réttardómara var vísað frá SAMFÉLAGSMÁL Um 16 prósent landsmanna treysta landsdómi, samkvæmt könnun sem MMR gerði á trausti fólks til nokkurra helstu stofnana landsins á sviði réttarfars og dómstóla. Fæstir treystu landsdómi en flestir, 78,3 prósent, sögðust treysta Landhelgisgæslunni. Um 47 prósent treysta sérstökum saksóknara og 44,8 prósent ríkis- lögreglustjóra. Báðar stofnanir nutu meira trausts í síðustu könnun í febrúar. Þá fækkaði þeim sem treysta héraðsdómstólum og ríkis- saksóknara. Aðrar stofnanir mæld- ust með svipað traust og áður. - þeb Traust á stofnunum kannað: Fæstir treysta landsdómi DÓMSMÁL „Við erum bara komin í þjóð- félag sem George Orwell lýsti í bók sinni 1984. Hið vakandi auga ríkis- ins hefur eftirlit með þér,“ segir Jón Magnússon, lögmaður og fyrrver- andi alþingismaður, sem hefur stefnt Persónuvernd fyrir dómstóla og kraf- ist ógildingar á úrskurði hennar. „Persónuvernd heimilaði Seðlabanka Íslands að skoða kreditkortafærslur allra Íslendinga með tilliti til gjaldeyr- isyfirfærslna. Það var gert án nokkurs lágmarks eða skilyrða. Ég tel að þarna sé brotinn réttur á mér með því að heimila óeðlilega hnýsni í mín einka- málefni,“ segir Jón. Hann segir engan einstakling í þjóð- félaginu undanskilinn í heimild Seðla- bankans og því hljóti hann að teljast hagsmunaaðili í málinu, eins og allir aðrir. „Það er alveg hægt að viðurkenna að þegar menn setji svona fyrirbrigði eins og gjaldeyrishöft geti þurft að fylgja því eftir með víðtækum skoðunum í þjóðfélaginu, en þá ber náttúrulega að takmarka það þannig að þú sért ekki með fjármál allra borgara í landinu gjörsamlega opin fyrir skoðunarmönnum,“ segir Jón. „Ég vil bara ekki að Stóri bróðir geti verið með nefið ofan í öllu mínu,“ bætir hann við og kveðst munu láta kalla seðlabankastjóra og fleiri fyrir dóminn til að gera grein fyrir málinu. - sh Fyrrverandi þingmaður telur á sér brotið og höfðar mál gegn Persónuvernd: Frábiður sér hnýsni í kortafærslur TYRKLAND, AP Tveggja vikna gam- alli stúlku, móður hennar og ömmu var öllum bjargað á lífi úr rúst- um húss í Ercis í Tyrklandi í gær, tveimur sólarhringum eftir að stór jarðskjálfti reið þar yfir. Að minnsta kosti sex til við- bótar var bjargað úr rústunum í gær, en 432 lík höfðu fundist í gær- kvöldi. Þegar björgunarmenn fundu nýfæddu stúlkuna var hún í fangi móður sinnar, við hlið ömmunn- ar. Barninu var fyrst bjargað upp úr rústunum, við mikinn fögnuð. Faðir stúlkunnar var einnig í rúst- unum en hann hafði ekki fundist í gærkvöldi og engin merki voru um að fleiri væru á lífi í byggingunni. Fyrr í gærdag hafði þungaðri konu verið bjargað úr rústum húss ásamt tveimur börnum hennar. Tyrknesk yfirvöld hafa lofað auk- inni aðstoð við þá sem eiga um sárt að binda, en um tólf þúsund tjöld til viðbótar þarf fyrir þá sem hafa misst heimili sín. Fólk hefur hafist við undir berum himni frá því að skjálftinn reið yfir, en um 500 eftir- skjálftar hafa mælst síðan þá. Fréttir hafa borist af slagsmálum um neyðaraðstoð og því að tjöldum og teppum hafi verið stolið. Rauði hálfmáninn í Tyrklandi hefur viðurkennt að ekki hafi tekist að hjálpa öllum sem þurfi. - þeb Fjöldi látinna kominn yfir 400 eftir skjálftann í Tyrklandi og margra er saknað: Fundu nýfætt barn á lífi í rústum BJÖRGUN Tveggja vikna gömul stúlkan nýkomin upp á yfirborðið og á leið í skoðun til lækna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Rúnar, blómstrar Sóley bara í spriklinu með ykkur körlunum? „Hún blómstrar alls staðar og alltaf en sérstaklega við að kenna okkur.“ Rúnar Gunnarsson arkitekt er í hópi karla sem í aldarfjórðung hafa notið leiðsagnar Sóleyjar Jóhannsdóttur í morgunleikfimi. Hlé varð þó í nokkur ár á leikfiminni á meðan Sóley reyndi fyrir sér sem blómasali. LÍÐUR EINS OG Í 1984 Jón Magnússon vill að Seðlabankinn verði sviptur heimild til að skoða kreditkortafærslur. DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur ákært mann fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Manninum er gefið að sök að hafa á veitingastaðnum Prikinu í Reykjavík slegið eða kastað stóru bjórglasi í andlit annars manns. Fórnarlambið skarst víða í andliti og þurfti að sauma skurðina með alls 63 sporum. Auk þess hlaut maðurinn fleiri áverka og bólgur. Hann krefst þess að árásarmaður- inn verði dæmdur til að greiða sér rúmlega 1,1 milljón króna í skaða- og miskabætur. - jss Sérlega hættuleg árás: 63 spor í andlit eftir glasakast NOREGUR Bæði norski olíusjóður- inn og kínverska ríkið eru spenn- andi kostir sem fjárfestar í vara- sjóði evrusvæðisins. Þetta sagði Fredrik Rein- feldt, forsætis- ráðherra Sví- þjóðar, þegar norskir blaða- menn spurðu hann um málið. Sigbjörn Johnsen, fjár- málaráðherra Noregs, segir að ekki hafi farið fram viðræður um þátttöku olíusjóðsins eða norska ríkisins við ESB vegna þessa. Stjórnendur sjóða geti sjálfir tekið ákvörðun um hvort þeir vilji fjárfesta í vara- sjóðnum. Johnsen segir að ef ríkið verði beðið um þátttöku þá verði slík bón tekin alvarlega. Norð- menn hafi þegar hjálpað Íslend- ingum og Lettum, og boðist til að lána Írum í þeirra kreppu. - þeb Vilja stækka varasjóð ESB: Norski sjóður- inn spennandi LÖGREGLUMÁL Unnur Millý Georgs-dóttir, barnsmóðir Valgeirs Víðissonar, hefur óskað eftir fundi með Ögmundi Jónassyni innanrík- isráðherra þar sem hún hyggst biðja hann um að taka upp rannsókn á mál- inu á ný. „Ég trúi því að hann hafi verið myrtur,“ sagði Unnur Millý við Vísi í gær. Hún segir að Valgeir hafi verið kominn í vandræði gagnvart valdamiklum mönnum í undirheimunum. Unnur segist hafa nýjar upplýsingar undir höndum og telur að rannsókn lögreglunnar hafi verið verulega ábótavant. Valgeir hvarf 19. júní árið 1994 en þá var hann rétt tæplega þrí- tugur. Ekkert hefur til hans spurst síðan. Rannsókn fór fram á hvarfi Valgeirs. Einn maður var handtek- inn og framseldur frá Hollandi til Íslands en var sleppt að lokum. Biðlar til Ögmundar: Vill rannsókn á hvarfi Valgeirs VALGEIR VÍÐISSON SIGBJORN JOHNSEN Kínversk fræði við HÁSKÓLA ÍSLANDS konfusius@hi.is | www.konfusius.hi.is Konfúsíusarstofnunin Norðurljós sýnir heimildamyndina Sýnd í Odda 101, 27. okt. kl. 17:00 Í viðjum regnskógarins Allir velkomnir, aðgangur ókeypis Nánar á viðburðaskrá www.hi.is SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.