Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.10.2011, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 26.10.2011, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 26. október 2011 13 Ármúla 30 | 108 Reyk jav í k | S ími 560 1600 | w w w.borgun . i s Það er alltaf nóg að gera! Borgun gerir það eins auðvelt og hægt er. J Ó N S S O N & L E ’M A C K S • jl .i s • S ÍA Ísland hefur tekið virkan þátt í evrópskri vinnuverndarviku sem Evrópusambandið hefur stað- ið fyrir árlega frá árinu 2000. Við- fangsefni vinnuverndarvikunnar í ár snýst um viðhald og viðgerðir véla og tækja og öryggi þeirra sem sinna viðhaldsvinnu, oft við erfiðar aðstæður og undir miklu álagi. Samkvæmt upplýsingum Vinnu- verndarstofnunar Evrópu er talið að 15–20% allra vinnuslysa tengist viðhaldsvinnu og um 10–15% allra banaslysa. Hér er því mikið í húfi og mikill ávinningur fólginn í öfl- ugu forvarnarstarfi. Vinnueftirlit ríkisins er mið- stöð vinnuverndarstarfs í landinu og sinnir fjölbreyttum verkefnum á því sviði. Stofnunin ber ábyrgð á framkvæmd laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnu- stöðum og gegnir því ríku eftir- litshlutverki samhliða því að sinna fræðslu um vinnuvernd og vinna að rannsóknum á þessu sviði. Eftirlitshlutverk Vinnueftirlits- ins er mikilvægt og stofnunin hefur ýmis úrræði sem hún getur grip- ið til ef öryggi á vinnustöðum er áfátt. Fræðsluhlutverk stofnunar- innar vegur þó ef til vill þyngst, því árangur á sviði vinnuverndar velt- ur á því að stjórnendur og starfs- fólk vinnustaða sé vel upplýst og meðvitað um þær hættur sem eru fyrir hendi í vinnuumhverfinu, hvernig megi forðast þær og hvaða aðgerðir og úrræði stuðla að öryggi á vinnustað. Enn eitt mikilvægt hlutverk Vinnueftirlitsins felst í því að fylgja eftir skráningu upp- lýsinga um vinnuslys sem atvinnu- rekendum er skylt að tilkynna til stofnunarinnar samkvæmt lögum. Vinnuvernd spannar vítt svið og er í eðli sínu flókin. Þetta segir sig sjálft þegar maður leiðir hugann að fjölbreytni atvinnulífsins þar sem fólk starfar við flókin tæki og vél- búnað, notar margvísleg verkfæri, stýrir þungavinnuvélum, vinnur í mikilli hæð, meðhöndlar hættuleg efni og svo mætti lengi telja. Mik- ill fjöldi reglna og reglugerða heyra undir vinnuverndarlöggjöfina sem brýnt er að farið sé eftir undir öllum kringumstæðum. Skyndilegar bilanir véla og tækja geta skapað hættuástand á vinnu- stað. Oft er mikið í húfi þegar bilun veldur því að stöðva þarf fram- leiðslu eða gera hlé á framkvæmd- um. Þessar aðstæður geta skapað mikinn þrýsting á þá sem sinna viðhaldi og viðgerðum, að finna orsökina sem fyrst og koma hlut- unum í lag. Miklu skiptir að álag af þessum völdum leiði ekki til þess að nauðsynlegum öryggisráðstöfunum sé ýtt til hliðar, því þá er voðinn vís. Kerfisbundið eftirlit og viðhald er ein mikilvægasta leiðin til að fyrir- byggja óvæntar bilanir og óvissu- ástand sem af því getur hlotist. Áhersla evrópsku vinnuverndar- vikunnar er á þessa þætti og hefur Vinnueftirlitið sett upp metnað- arfulla dagskrá í tilefni hennar. Áhersla er lögð á heimsóknir í fyrirtæki þar sem þessi mál eru kynnt stjórnendum og fulltrú- um starfsmanna auk ýmissa ann- arra leiða til að koma á framfæri fræðslu og upplýsingum um örugga viðhaldsvinnu. Vinnueftirlitið vekur einnig athygli á því sem vel er gert með því að veita viðurkenn- ingu þeim fyrirtækjum sem skarað hafa fram úr á þessu sviði. Frá því að lög um aðbúnað, holl- ustuhætti og öryggi á vinnustöðum voru sett hér á landi og tóku gildi árið 1981 hefur verið lyft grettis- taki á sviði vinnuverndar. Vinnu- vernd er forvarnarstarf sem fæstir leiða hugann að dags daglega þegar lífið gengur sinn vanagang. Þau slys sem tekst að fyrirbyggja með öflugu vinnuverndarstarfi vekja skiljanlega enga athygli og kom- ast ekki í fréttir. Það er hins vegar mikilvægt að atvinnurekendur eigi reglulegt og gott samstarf við Vinnueftirlitið, sæki þangað ráð- gjöf og leiðbeiningar eftir þörfum, hlíti fyrirmælum stofnunarinnar og sýni jafnframt frumkvæði í því að auka öryggi á vinnustað. Í þess- um málum gildir að engar fréttir eru góðar fréttir. Vinnuvernd og ábyrgð atvinnurekenda Velferðarkerfið er hornsteinn samfélagsins sem hefur gert öllum kleift, óháð efnahag og aðstæðum, að njóta sama réttar til þjónustu. Verulega er vegið að velferðarkerfinu í því fjárlaga- frumvarpi sem ríkisstjórn Íslands hefur nú lagt fyrir Alþingi og lýsir BSRB þungum áhyggjum yfir því. BSRB óttast að Fæðingarorlofs- sjóður og það fæðingarorlofs- kerfi sem byggt hefur verið upp á Íslandi sé í hættu. Bent er á að sífellt færri foreldrar hafa nýtt rétt sinn til fæðingarorlofs síðustu ár þar sem greiðslur úr sjóðnum hafa verið skertar til muna. Greiðsluþak sjóðsins er nú orðið svo lágt að fleiri og fleiri foreldr- ar, sér í lagi feður, telja sig ekki hafa efni á að taka fæðingarorlof. Aðrir forðast að taka fæðingar- orlof af ótta við viðbrögð vinnu- veitanda sinna og slíkt ástand er óásættanlegt. Forsætisráðherra lýsti nýverið vilja sínum til að lengja fæðing- arorlofið og hækka greiðsluþak á greiðslum úr fæðingarorlofs- sjóði en sagði það ekki raunhæft fyrr en að nokkrum árum liðnum. Slíkar breytingar yrðu vissulega framfaraskref en óhjákvæmi- legt er að benda á það óréttlæti sem börn, er fæðast þangað til breytingarnar komast á, verða fyrir. Á meðan foreldrar eru að neita sér um fæðingarorlof vegna fjárhagsástæðna eða af ótta við að missa vinnuna í kjölfarið er kerfið ekki að virka. Stjórnvöld verða að tryggja að kerfið virki eins og því er ætlað og tryggja þannig rétt barna til samvista við báða foreldra líkt og markmiðið var með setningu fæðingar- og foreldraorlofslaga. Síðustu ár hefur öflugt séreign- arlífeyriskerfi verið byggt upp á Íslandi. Nú er höggvið að rótum þess með tillögum að skattlagn- ingu á inngreiðslum yfir 2% í sér- eignarlífeyrissjóði. Fyrirhugaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar opna á þann möguleika að tvískatta hluta af séreignarlífeyrissparnaði fólks og telur BSRB fullvíst að slíkar aðgerðir séu upphafið að endalok- um séreignarlífeyriskerfisins. Bandalagið leggst alfarið gegn breytingum á séreignarlífeyris- kerfinu og óttast jafnframt að þessar aðgerðir gætu verið fyrsta skrefið í átt að almennri skatt- lagningu inngreiðslna í lífeyris- sjóði sem myndu á endanum rýra kjör lífeyrisþega til mikilla muna. BSRB vonast til að stjórnvöld leið- rétti þau mistök sem greinilega áttu sér stað við gerð fjárlaga- frumvarpsins áður en það verður endanlega afgreitt sem lög frá Alþingi. Kerfið er ekki að virka Atvinnumál Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra Eftirlitshlutverk Vinnueftirlitsins er mikilvægt og stofn- unin hefur ýmis úrræði sem hún getur gripið til ef öryggi á vinnustöðum er áfátt. Samfélagsmál Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB Á meðan foreldr- ar eru að neita sér um fæðingarorlof vegna fjárhagsástæðna eða af ótta við að missa vinnuna í kjölfarið er kerfið ekki að virka.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.