Fréttablaðið - 26.10.2011, Side 14
14 26. október 2011 MIÐVIKUDAGUR
Allir velkomnir
HÁTÍÐARMÁLÞING ÚLFLJÓTS, TÍMARITS LAGANEMA
Réttarheimspeki og lög
12.00 Hádegishressing í anddyri Lögbergs í boði Lagadeildar
12.20 Ávarp deildarforseta - Upptökur af námskeiðinu Inngangur að lögfræði á vef
deildarinnar opnaðar
12.40 Hátíðardagur Úlfljóts, tímarits laganema settur - Hátíðarmálþing
Stóra myndin af lögunum: Fjórflokkun Tómasar af Aquino
Garðar Gíslason, hæstaréttardómari
Tekið verður undir ábendingu Sigurðar Líndal, að tvær meginstefnur
réttarheimspekinnar, náttúruréttur og vildarréttur, séu ekki and stæður
heldur bæti þær hvor aðra upp. Reynt verður að skýra nánar tengsl þeirra
og í því skyni kannað hvort flokkun Tómasar á lögum eftir tegundum varpi
ljósi á þessi tengsl.
Til hvers er stjórnarskráin? Hugleiðingar í
tilefni af tillögum stjórnlagaráðs
Hafsteinn Þór Hauksson, lektor við lagadeild HÍ
Í erindinu verður fjallað um hugtakið stjórnarskrárhyggja
og tillaga stjórnlagaráðs um nýja stjórnarskrá skoðuð í
ljósi þeirrar hugmyndafræði.
Hrun, lagahyggja og siðferði
Davíð Þór Björgvinsson, dómari við Mannréttindadómstól Evrópu
Fjallað um hugtakið „lagahyggju“ í ljósi kenninga réttarheimspekinga um
tengsl laga og siðferðis.
14.00 Léttar veitingar í anddyri Lögbergs í boði Úlfljóts
14.30 Sýndarréttarhöld laganema í Lögbergsdómi.
Allt milli himins og jarðar er látið flakka á Facebook. Hvenær teljast slík ummæli
fara yfir mörk hins leyfilega? Ummæli geta falið í sér ærumeiðingar, valdið
skaðabótaábyrgð og jafnvel verið refsiverð.
Réttarhöldin verða einnig sýnd í stofu 101 í Lögbergi. Hér er hægt að sjá hvernig
mál eru flutt fyrir dómstólum í raunveruleikanum.
16.00 Dagskrárlok
Garðar Gíslason
Davíð Þór Björgvinsson
Hafsteinn Þór Hauksson
Um hvað fjallar lögfræði?
Gefin verður innsýn í grunngreinar lögfræðinnar sem varða flesta þætti mannlegs lífs og
allir þurfa að gefa gaum einhvern tímann á lífsleiðinni.
Eru menn ábyrgir orða sinna á Facebook?
Laganemar setja á svið réttarhöld þar sem ummæli á Facebook verða m.a. tekin fyrir.
Fimmtudagur 27. október, kl. 12-16 í Lögbergi
Opið hús Lagadeildar Háskóla Íslands
LAGADEILD
Ísland getur orðið grænt hagkerfi með áherslu á hreina náttúru,
sjálfbæran orkubúskap, nýsköp-
un og menntun til sjálfbærni. Það
er framtíðarsýn nefndar Alþingis
um eflingu græna hagkerfisins. Í
þessari grein fjalla ég um nokkr-
ar stefnuáherslur nefndarinnar og
hvernig þær birtast í einstökum
aðgerðum.
Ríki til fyrirmyndar
Nefndin leggur fram átta almenn
stefnumið og 48 aðgerðir. Í fyrsta
lagi er lögð áhersla á að ríkið verði
fyrirmynd og skapi aðstæður fyrir
grænt hagkerfi. Þetta verði gert
með stefnumótun og aðgerðum
sem undirstrika pólitískan vilja
til að setja málefnið í forgang.
Lagt er til að efling græns hag-
kerfis verði grundvallaratriði í
atvinnustefnu sem nú er verið að
móta og byggir m.a. á Sóknaráætl-
un 2020. Nefndin leggur áherslu
á að forsætisráðuneytið hafi með
höndum verkstjórn málaflokksins,
fylgi eftir mótun og framkvæmd
aðgerðaáætlunar á grundvelli til-
lagna nefndarinnar og virki önnur
ráðuneyti til verka en málaflokk-
urinn hefur skírskotun til allra
málasviða stjórnarráðsins.
Jafnframt er nauðsynlegt að
efna til samráðs við sveitarfélög
um beina aðkomu þeirra að verk-
efninu, því þau geta ráðið úrslitum
um það hversu vel tekst til. Lagt er
til að fram fari heildarendurskoð-
un á löggjöf um opinberar stofn-
anir í þá veru að flétta áherslur
sjálfbærrar þróunar og græns
hagkerfis inn í ákvæði um hlut-
verk einstakra stofnana. Nefnd-
in leggur til að Alþingi og ráðu-
neyti og opinberar stofnanir taki
upp markvisst umhverfisstarf til
að bæta nýtingu og draga úr sóun,
úrgangi og öðrum neikvæðum
áhrifum á umhverfið, m.a. með
hliðsjón af ISO 14001 staðlinum.
Liður í þessu verkefni ætti að vera
að gera Alþingi að pappírslausum
vinnustað.
Nefndin leggur sérstaka áherslu
á vistvæn innkaup en áætlað er
að ríkið kaupi á hverju ári vörur
og þjónustu fyrir um 100 millj-
arða króna. Ríkið hefur í krafti
þess kaupmáttar sterka stöðu til
að ýta undir þróun og útbreiðslu
vistvænna lausna á markaðnum.
Nefndin leggur m.a. til að öll ráðu-
neyti og ríkisstofnanir innleiði
vistvæn innkaup, að allir ramma-
samningar ríkisins um innkaup
uppfylli viðmið umhverfisskil-
yrða þar sem slíkt liggur fyrir og
að opinber stefna um vistvæn inn-
kaup verði endurskoðuð með það
að markmiði að hlutfall vistvænna
útboða á vegum ríkisins verði 50%
árið 2015 og 80% árið 2020.
Hagrænir hvatar
Nefndin leggur til að hagrænum
hvötum verði beitt til að efla
græna hagkerfið. Þar er byggt á
þeirri sýn að efnahagsleg umbun
sé vænlegri en boð og bönn til að
koma á grænu hagkerfi. Nefnd-
in leggur til ýmsar aðgerðir í því
efni, t.d. að hvatt verði til vist-
vænna innkaupa með heimild til að
endurgreiða opinberum stofnunum
allt að 20% af kostnaðarverði vöru
og þjónustu sem uppfyllir skilyrði
umhverfismerkja af tegund 1, en
norræna umhverfismerkið Svan-
urinn og evrópska umhverfis-
merkið Blómið falla í þann flokk.
Aðrar tillögur nefndarinnar sem
falla undir hagræna hvata eru m.a.
tillögur um endurgreiðslu á hluta
af kostnaði við innleiðingu vott-
aðra umhverfisstjórnunarkerfa,
endurgreiðslur kostnaðar vegna
orkuskipta í skipum, niðurfelling
tolla á reiðhjól og tengdan búnað
og framlenging á endurgreiðslu
vörugjalda til þeirra sem láta
breyta bílum í vistvæn ökutæki.
Græn störf
Tölfræðilegar upplýsingar um
umfang grænnar atvinnustarf-
semi á Íslandi eru mjög af skorn-
um skammti. Nauðsynlegt er að
taka atvinnugreinaflokkun og
hagtölugerð Hagstofu Íslands til
endurskoðunar þannig að hægt
verði að greina vægi grænna
atvinnugreina og fjölda grænna
starfa. Á grundvelli þeirrar gagna-
öflunar verði síðan mótuð áætlun
um fjölgun grænna starfa sem er
eitt hinna almennu stefnumiða sem
nefndin leggur til grundvallar.
Nefndin telur mikilvæga for-
sendu atvinnusköpunar í þessum
málaflokki að sérstakt átak verði
gert í að stuðla að fjárfestingum í
umhverfisvænni atvinnustarfsemi
í landinu. Þar verði horft bæði til
innlendra og erlendra fjárfest-
inga. Lagt er til að Nýsköpunar-
sjóði atvinnulífsins verði falið að
undirbúa stofnun Græns fjárfest-
ingarsjóðs með aðkomu innlendra
og erlendra fjárfesta. Á undanförn-
um árum hefur komið fram áhugi
norrænna fjárfestingarsjóða á að
taka þátt í grænum fjárfestingum
á Íslandi og gefst nú gott tækifæri
til að láta á það reyna.
Grænar fjárfestingar
Nefndin leggur jafnframt til að
efnt verði til sérstaks átaks í að
laða til landsins erlendar fjárfest-
ingar í umhverfisvænni atvinnu-
starfsemi, m.a. með því að nýta
heimild í 15. gr. laga nr. 99/2010
um ívilnanir vegna nýfjárfestinga.
Þar er fjallað um ýmiss konar íviln-
anir vegna umhverfistengdra fjár-
festinga, þ.m.t. þeirra sem tengj-
ast orkusparnaði eða samdrætti
í losun gróðurhúsalofttegunda.
Átakið feli m.a. í sér val áherslu-
sviða, hagræna greiningu mála-
flokksins, kortlagningu vænlegra
fjárfesta, kynningu og markaðs-
setningu. Þegar hefur verið leit-
að til Fjárfestingarsviðs Íslands-
stofu um að útfæra þetta átak og
liggja fyrir fyrstu tillögur þar að
lútandi. Enn má nefna sem lið í
grænni atvinnusköpun að nefnd-
in leggur til að stofnuð verði deild
innan Tækniþróunarsjóðs sem
verði helguð styrkveitingum til
umhverfisvænna þróunarverkefna
en slík ráðstöfun gæti örvað mjög
nýsköpun í þessum málaflokki.
Í þriðju og síðustu grein minni
mun ég fjalla um önnur stefnumið
nefndarinnar, sem m.a. tengjast
aðgerðum er byggja á grunnreglum
umhverfisréttar, varúðarreglunni
og mengunarbótareglunni.
Hvernig eflum við græna hagkerfið?
Þjóðir sem ætla sér að verja velferðarsamfélagið hafa
áttað sig á því að aflvélin í sam-
félagi framtíðarinnar verður
tækni- og hugverkaiðnaðurinn
sem drifinn er áfram af iðn-,
tækni- og raungreinamenntuðu
fólki. Þessi iðnaður byggir mest-
megnis á hugviti og minna á
þverrandi náttúruauðlindum og
er því í eðli sínu bæði sjálfbær
og umhverfisvænn.
Við Íslendingar verðum að
skilja að við getum ekki nema
að litlu leyti skapað þær þús-
undir sjálfbærra starfa sem
þörf er á næstu árum nema með
öflugri uppbyggingu tækni- og
hugverkaiðnaðar.
Tækni- og hugverkafyrirtæk-
in standa nú fyrir um 20% af
útflutningstekjum þjóðarinnar
og skapa um 10.000 störf. Iðnað-
urinn fer ört stækkandi en ekki
er ólíklegt að hann vaxi núna um
10-30% á milli ára. Staðan er því
miður þannig að vöxtur þessara
fyrirtækja fer að mestu fram
erlendis. Ein helsta ástæðan er
skortur á tæknimenntuðu fólki.
Það vantar sárlega til starfa
forritara og hugbúnaðarfólk,
véla- og rafmagnsverkfræðinga,
eðlisfræðinga, stærðfræðinga,
rafeindavirkja, kerfisfræðinga,
vélfræðinga og svo mætti lengi
telja.
Við þurfum því öll, stjórnmála-
menn, menntayfirvöld, skólar og
atvinnulíf að vinna markvisst að
því að beina unga fólkinu okkar í
það nám sem atvinnulífið kallar
eftir ef viljum tryggja þau lífs-
gæði sem Íslendingar sækjast
eftir. Skólakerfið þarf að kveikja
áhuga á þeim grunnfögum sem
nauðsynleg eru til að ná árangri
í þessu námi og atvinnulífið verð-
ur að taka vel á móti þeim með
spennandi atvinnutækifærum.
Við Íslendingar eigum erfitt
með að hugsa langt fram í tím-
ann, átaksverkefni til skemmri
tíma falla betur að okkar eðli.
Flókið og margbreytilegt sam-
félag nútímans krefst þess hins
vegar að við horfum til fram-
tíðar og skipuleggjum okkur til
langs tíma með skýrri atvinnu-
mennta- og velferðastefnu.
Samstaða um sameiginlega
framtíðarsýn kemur til með að
verða það afl sem við þurfum
á að halda til að vinna okkur
áfram. Tökumst á við framtíð-
ina því hún er svo ótrúlega björt
ef okkur lánast að vinna þétt
saman.
Tækifæri í tækni-
og hugverkaiðnaði
Grænt hagkerfi
Skúli
Helgason
alþingismaður
Menntamál
Jón Ágúst
Þorsteinsson
framkvæmdastjóri
Marorku
Katrín Dóra
Þorsteinsdóttir
forstöðumaður
hugverkaiðnaðar og
mannauðs hjá SI
Átakið feli m.a. í sér val áherslusviða,
hagræna greiningu málaflokksins, kort-
lagningu vænlegra fjárfesta, kynningu og
markaðssetningu.