Fréttablaðið - 26.10.2011, Side 22
Þó að leikskólabörnin séu víðs
fjarri þurfa Kolbrún Björt og
Erlingur að vera í skólanum í sex
til sjö tíma daglega en eftir það
fara þau út að borða, enda eldhús
sjaldgæf á heimilum, að sögn Kol-
brúnar. Hún kveðst hafa kynnst
skemmtilegu fólki í Taílandi, bæði
aðkomnu og innfæddu og fólkið
sem þau leigi hjá sé duglegt að
kynna þeim taílenska menningu.
„Við höfum skoðað helstu hof og
minnismerki í nágrenninu, lært að
steikja núðlur og spila á taílensk
hljóðfæri, auk þess að sitja fíla og
skoða apana í Lop Buri sem hafa
lagt undir sig miðbæinn. Ég var
reyndar bitin af einum,“ segir
hún glaðlega. „En það var engu að
síður mjög merkilegt.“
Nokkrum sinnum kveðst Kol-
brún Björt hafa komið til Bang-
kok og segir hana áhugaverða
borg þegar komist hafi verið yfir
umferðarbrjálæðið og söluhörk-
una. „Við höfum líka heimsótt eyna
Koh Samet og látið öldurnar rugga
okkur og sólina sleikja okkur,“
segir hún og heldur áfram að telja
upp ævintýri. „Í Kanchanaburi
skoðuðum við brúna yfir Kwai-
fljótið og kíktum í frábært tígris-
dýrahof þar sem við fengum að
ganga með tígrunum, klappa þeim
og sjá þá leika sér. Það er með
því mest spennandi sem ég hef
upplifað! Við hjónin höfum alltaf
verið mjög hrifin af stórum kattar-
dýrum þannig að þarna fengum
við að lifa langþráðan draum.“
Kolbrún og Erlingur stefna á að
vera í Taílandi út febrúar og eru
því rétt að byrja að kynnast því
hvað landið hefur að bjóða. „Við
hlökkum mikið til að fara til Phu-
ket og Chiang Mai og svo væri
ekki leiðinlegt að læra að kafa,“
segir Kolbrún Björt. „En ævintýr-
in liggja ekki síður í hversdegin-
um – í því að finna froska í skónum
sínum eða labba um markaðinn og
furða sig á því sem er í boði. Þetta
er allt hluti af upplifuninni.“
gun@frettabladid.is
Kolbrún Björt þarf að feta sig eftir sandpokum á leið í vinnuna. MYND/ERLINGUR GRÉTAR
Framhald af forsíðu
Á netinu er að finna
gagnagrunn með alls
kyns fróðleik um bíla
í kvikmyndum og
sjónvarpsþáttum; til
dæmis hvaða gerðir
sjást oftast og frá
hvaða löndum þær
eru. Þegar eru skráðir í
grunninn um 410.000
bílar sem bregður fyrir
í hátt í 25.000 kvik-
myndum og þáttum.
www.imcdb.org
Áður en
lagt er af stað til fjar-
lægra landa getur
verið gott að vita hvar
íslenski ræðismaður-
inn er, því hann getur
til dæmis liðsinnt
ferðalöngum sem hafa
glatað vegabréfi.
www.utanrikis-
raduneyti.is
BÓKIÐ AUGLÝSINGAR
TÍMANLEGA:
ÍVAR ÖRN HANSEN
S: 512 5429, GSM: 615 4349
ivarorn@365.is
SÆLLA ER AÐ
GEFA
EN ÞIGGJA
Sérblað um fyrirtækjagjafir kemur
út þann 9. nóvember.
Hvaða tækifæri eru í norðurljósunum? - Hlutverk
gagnrýnna rannsókna í ferðaþjónustu er yfirskrift ráðstefnu
sem haldin verður í Hátíðarsal Háskóla Íslands á morgun
klukkan 17. Þar velta fræðimenn fyrir sér á hvaða grunni
ferðaþjónustu mætti betur byggja til framtíðar.