Fréttablaðið - 26.10.2011, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 26.10.2011, Blaðsíða 29
MARKAÐURINN Bankar ráða yfir tæpum helmingi allra stórra fyrirtækja á helstu sam- keppnismörkuðum hérlendis. Bank- arnir hafa tilkynnt um yfirtöku á 17% þeirra en 29% fyrirtækjanna eru í mjög slæmri fjárhagslegri stöðu og ráða ekki örlögum sínum. Þau eru í höndum lánardrottna þeirra, bankanna. Þetta var niður- staða rannsóknar sem Samkeppn- iseftirlitið gerði á stöðu 120 stórra fyrirtækja á völdum samkeppnis- mörkuðum. Eftirlitið telur að í ljósi sterkrar stöðu viðskiptabankanna þriggja hafi þeir „ægivald yfir at- vinnulífinu í dag og séu að því leyt- inu til ígildi viðskiptablokkar, hver í sínu lagi“. Slitastjórnir eru síðan taldar fara með 7% ráðandi hlut í þessum stóru fyrirtækjum rétt eins og lífeyrissjóðir. Samanlagt ráða því bankar, slitastjórnir og lífeyrissjóðir, beint eða óbeint, yfir 60% af stærstu fyrirtækjum landsins. Verið að brjóta skilyrði Einungis hefur verið tilkynnt um yfir- töku bankanna á um þriðjungi þeirra fyrirtækja sem samkeppnisyfirvöld skilgreina að séu sannarlega í mjúk- um faðmi þeirra. Að taka yfir fyrir- tækin fylgja enda töluverðar kvaðir. Samkeppniseftirlitið hefur sett ítarleg skilyrði sem snúa meðal annars að því að bankarnir verða að gera eðlilegar arðsemiskröfur til fyrirtækjanna og að þeir verði að selja þá innan tiltek- ins tíma. Hver sá tímarammi er hefur þó ekki verið gefið upp. Samkeppnisyfirvöld hafa áhyggjur af því að bankarnir séu í sumum til- fellum að brjóta bæði þessi skil- yrði. Stundum hefur tímaramman- um sem bankarnir hafa fengið til að selja fyrirtækin verið hnikað til og í öðrum er augljóst að arðsemiskröfur sem gerðar hafa verið til endurskipu- lagðra fyrirtækja standast ekki. Þau fá einfaldlega að tapa peningum í sam- keppni við önnur fyrirtæki sem eiga ekki banka sem eiganda. Haltra áfram með stuðningi bankanna Samkeppnisyfirvöld telja að vegna þeirra ströngu skilyrða sem þau hafa sett bönkunum um meðferð þeirra fyrirtækja sem þeir taka yfir þá dragi bankarnir lappirnar við að tilkynna um slíka yfirtöku. Þá fá bersýni- lega gjaldþrota fyrirtæki að haltra áfram, að forminu til með sömu eig- endur og stjórnendur, en í raun liggur allt ákvörðunarvald um stjórnun og framtíð þeirra hjá lánardrottnum, bönkunum. Í rannsókn Samkeppniseftirlitsins er komist að þeirra niðurstöðu að um 29% 120 stórra fyrirtækja á stórum samkeppnismörkuðum séu í þessari stöðu. Rangir hvatar Eftirlitið telur marga ranga hvata búa að baki þessari stöðu. Einn er svokall- aður „umsýsluvandi“. Í skýrslu sam- keppnisyfirvalda „Samkeppni eftir hrun“, sem var kynnt í júní, segir að þessi vandi „endurspeglist í því að þeir aðilar sem starfa við að leysa úr vandamálunum hafa af því talsverð- ar tekjur og byggja lifibrauð sitt á því. Þrátt fyrir góðan ásetning vinna hags- munir þeirra af tekjuöflun og atvinnu- öryggi gegn hagsmunum samfélagsins af hraðri úrlausn. Hér eiga í hlut skila- nefndir, starfsmenn í úrlausnarferl- um bankanna, starfsmenn viðkomandi fyrirtækja o.fl.“ Annar er „eigendavandinn“. Í honum felst að kröfuhafar bank- anna, sem eru að mestu eigendur tveggja þeirra, hafi af því hagsmuni að fá „eins mikið og mögulegt er út úr kröfum sem standa á fyrirtækjun- um“. Þess vegna láti þeir langtímavið- skiptahagsmuni bankanna víkja fyrir skammtímagróðasjónarmiði. 5MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 201126. OKTÓBER 2011 MIÐVIKUDAGUR Bankar ráða yfir helmingi fyrirtækja Bankarnir eru með ægivald yfir atvinnulífinu. Samkeppniseftirlitið telur þá, beint eða óbeint, ráða yfir 46 prósentum stórra fyrirtækja sem keppa á mikilvægum samkeppnis mörkuðum. Margir rangir hvatar liggja að baki. ARION BANKI: Eignabjarg Eignabjarg er dótturfélag Arion banka sem stofnað var til að halda utan um þau fyrirtæki sem bankinn leysti til sín. Félagið á síðan að selja fyrirtækin þegar tóm þykir til. Í dag á Eignabjarg 100% hlut í Pennanum á Íslandi og Fram Foods. Auk þess á félagið 61,7% hlut í smá- sölurisanum Högum hf. og 42,7% í Reitum fasteigna- félagi. Eignabjarg átti einnig 100% hlut í BM Vallá en seldi hann nýverið fyrir ótilgreinda upphæð. BM Vallá hafði þá verið í eigu Arion banka, eða Eigna- bjargs, frá því í maí 2010. Áður hafði Eignabjarg selt Rekstarfélag tíu-ellefu ehf. til nýrra eigenda. Eignabjarg tapaði 2,3 millj- örðum króna á árinu 2010. Tapið er nánast einvörðungu tilkomið vegna áhrifa frá dóttur- og hlutdeildarfélög- um þess; fyrirtækjanna sem Arion hefur yfirtekið og fært til Eignabjargs. ÍSLANDSBANKI: Miðengi Miðengi er dótturfélag Íslandsbanka. Starfsemi félagsins snýst um að halda utan um heil fyrirtæki eða eignarhluti sem Íslandsbanki hefur yfirtekið. Á meðal þess sem finna má á eignaskrá Miðengis er 100% hlutur í Jarðborunum, 71,1% hlut- ur í Bláfugli ehf. og 62,9% hlutur í BLIH ehf. (sem á og rekur bílaumboðin Ingvar Helgason og B&L). Auk þess á félagið minni eignarhluti í Atorku Group, Frumtaki GP ehf., IG Invest ehf. og nokkrum til við- bótar. Þess utan á Miðengi hlut í níu félögum sem halda utan um fasteignir. BLIH ehf. og Jarðboranir eru bæði í sölumeðferð. Miðengi hefur ekki skilað ársreikningi vegna ársins 2010. Í uppgjöri félagsins fyrir árið 2009 kemur fram að félagið hafi tapað 276 milljónum króna á því ári. Tapið var nær einvörðungu vegna hlut- deildar Miðengis í afkomu dótturfélaga sinna. LANDSBANKINN: Horn og Framtakssjóðurinn Landsbankinn stofnaði eignaumsýslufélagið Vestia á fyrri hluta ársins 2009. Tilgangur Vestia var sagður að fara með eign- arhald bankans á hlutafé annarra rekstrarfélaga. Landsbankinn ákvað síðan að selja Vestia til Framtaks- sjóðs Íslands í janúar 2011. Vestia hafði þá þegar tekið yfir Icelandic Group, Teymi (sem m.a. á Skýrr og EJS), Húsasmiðjuna og Plast- prent. Landsbankinn fékk 15,5 milljarða króna fyrir fyrirtækin auk þess sem hann eignaðist 27,6% hlut í Framtakssjóðnum. Lands- bankinn er því stærsti einstaki eigandi sjóðsins. Síðan Landsbankinn eignaðist í sjóðnum hefur hann keypt stóran hlut í N1 ehf. og Promens. Fyrir átti sjóðurinn stóran hlut í Icelandair Group. Landsbankinn á auk þess Horn fjárfestingafélag sem á meðal annars hluti í Eimskipum, Eyri Invest (sem á 34,7% í Marel) og Promens. Framtakssjóðurinn hagnaðist um 2,5 milljarða á fyrstu sex mánuðum ársins 2011. Líkt og sagt er frá annars staðar í Markaðinum hefur Horn fjárfestingafélag hagnast um 10,1 milljarð króna á fyrstu níu mánuðum þessa árs. EIGNAUMSÝSLUFÉLÖG BANKANNA Fréttaskýring Þórður Snær Júlíusson Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir það niðurstöðu rannsóknar eftirlitsins að endur- skipulagning fyrirtækja hafi ekki gengið nógu hratt og að bankarnir og aðrir sem að málinu koma þurfi að gera mun betur. Þessi niðurstaða sé sett fram á mjög skýran hátt í skýrslunni „Samkeppni eftir hrun“ sem kynnt var síð- asta sumar. „Ályktunin sem við drógum af rannsókn á þessum 120 fyrirtækjum er sú að það væri ekki verið að reka nægilega mörg þeirra með arðsemissjónarmið að leiðarljósi. Við höfum líka áhyggjur af því að bank- arnir hafi yfirráð yfir fleiri fyrirtækjum en þeir hafa tilkynnt til okkar og erum að skoða það hvort svo sé. Þegar við fórum að rannsaka þetta þá sló það okkur hversu stór hluti fyrirtækja hefur ekki farið í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu þótt þau hafi greini- lega þurft á því að halda. Það er ekki búið að taka yfir fyrirtækin heldur eru þau rekin áfram á óljósum grund- velli. Í þeim tilvikum er ekki búið að taka nægilega til né taka þær ákvarðanir sem gera fyrirtækjunum kleift að starfa sjálfstætt á samkeppnismarkaði. Við erum því með umhverfi þar sem hætta er á að fyrirtæki séu rekin lifandi dauð. Það er engum til góðs og skapar afleitar samkeppnisaðstæður.“ Vont fyrir samkeppni Samkeppniseftirlitið hefur sett bönkunum ströng skil- yrði sem þeir verða að fylgja þegar þeir taka yfir fyrirtæki. Fyrstu ákvarðanirnar voru teknar í mars í fyrra. Að sögn Páls Gunnars voru þar sett ítarleg skil- yrði, meðal annars varðandi það hversu lengi bankarn- ir mættu eiga þessi fyrirtæki sem þeir tóku yfir. „Þar voru auk þess sett fram skilyrði um hvernig bankinn má koma fram sem eigandi, um armslengdarsjónarmið og reynt að búa þannig um hnútana að þessi erfiða og vonda staða fyrir samkeppnina, sem í felst að banki er bæði eigandi og lánveitandi tiltekins fyrirtækis, verði bætt á meðan á eignarhaldinu stendur. Síðan þá höfum við sett bönkum fjölmörg sambærileg skilyrði. Frá því í mars í fyrra og þar til í dag eru ákvarðanirnar 27 tals- ins. Af þeim eru 17 ákvarðanir enn virkar, en tíu ekki lengur virkar vegna breytinga á eignarhaldi.“ Ekki farið eftir skilyrðum Páll Gunnar segir að eftirlitið hafi lagt mikla áherslu á eftirfylgni þessara skilyrða. „Sú eftirfylgni er í höndum óháðra aðila, til dæmis innri endurskoðenda eða utanaðkomandi aðila, sem er með völd til að skila okkur skýrslum um það sem aflaga hefur farið. Við höfum verið að taka við slíkum skýrslum og í þeim hafa komið fram ýmis atriði sem gefa til kynna að það sé ekki farið eftir skilyrðunum. Í þeim tilvikum höfum við gripið inn í og sagt bönkunum að bæta úr. Við höfum ekki sekt- að bankana vegna þessa enn sem komið er, en við höfum sektað skilanefnd Landsbankans vegna þess að hún tilkynnti okkur ekki með réttum hætti um yfirtöku á fyrirtæki.“ Hefur skapað afleitar samkeppnis aðstæður SKÝRSLAN KYNNT Páll Gunnar Pálsson ásamt Árna Páli Árnasyni, efnahags- og viðskiptaráðherra, þegar skýrslan „Samkeppni eftir hrun“ var kynnt.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.