Fréttablaðið - 26.10.2011, Page 32
Netfang
rit stjorn@markadurinn.is
Sími 512 5000 Fax 512 5301
Netfang auglýsingadeildar
auglys ing ar@markadurinn.is
Veffang visir.is
Allmargt hefur tapast í
bankahruninu. Fjölmargir
hafa tapað eign sinni í heim-
ilum sínum, íslenska þjóðin
hefur tapað kaupmætti launa
sinna, stjórnmálamenn hafa
tapað getu til annarra gjörða
en upphrópana og erlendir
kröfuhafar hafa tapað hátt í
7.500 milljörðum króna.
Auk þess hefur nánast allt
traust til fjármálakerfi sins
tapast. Skoðanakannanir
sýna að einungis 3-4%
landsmanna treysta bönk-
unum mjög vel. Við þessar
aðstæður ákvað stjórn
Bankasýslunnar að ráða Pál
Magnússon sem forstjóra
sinn. Hann hefur nú tekið þá
skynsömu ákvörðun að taka
ekki við starfi nu.
Nú getur vel verið að
Páli sé margt til lista lagt,
en ráðning hans var ekki til
þess fallin að auka traust
á þá stofnun sem fer með
eignarhluti ríkisins í fjár-
málafyrirtækjum, er ætlað
að endurreisa öfl ugan inn-
lendan fjármálamarkað
og að lokum að selja þau
fjármálafyrirtæki sem vilji er
til að selja úr fangi ríkisins.
Ástæðan er einföld: Páll
var aðstoðarmaður þess
ráðherra sem seldi bankana
síðast.
Það þýðir auðvitað ekki
að Páll sé ekki hæfur til að
selja banka. Það getur vel
verið að hann hafi verið allur
af vilja gerður til að sinna
starfi nu óaðfi nnanlega. Það
virðist bara vera almennt
sjónarmið að honum sé ekki
treystandi til að gera það.
Upphaf endaloka íslenska
fjárglæfraævintýrisins
sem hefur snúið íslensku
samfélagi á rönguna á
undanförnum þremur árum
er, held ég að megi fullyrða,
í huga fl estra landsmanna
einkavæðing ríkisbankanna
fyrir tæpum áratug. Á tímum
þess gífurlega sundurlyndis
sem ríkir á Íslandi er líkast
til það eina sem þjóðin er
sammála um er að það eigi
ekki að selja/gefa bankana
með sama hætti og gert var
síðast. Framkvæmd þeirrar
sölu verður að vera hafi n yfi r
allan vafa. Pólitísk afskipti
mega ekki vera nein. Fólk
verður að minnsta kosti að
geta treyst því. Slíkt traust
hefði aldrei verið til staðar
ef Páll Magnússon sæti við
stýrið.
Bölvað traustið
þvælist fyrir
BANKAHÓLFIÐ
Þórður Snær
Júlíusson
Greinar valinna penna um
hrunið og eftirleik þess –
Viðtal við Guðmund
Steingrímsson –
ÞRJÚ ÁR FRÁ HRUNI
Rannsóknir sýna að notkun sykurlauss Extra eykur munnvatnsframleiðslu,
jafnar sýrustig, heldur tönnunum hreinum og stöðvar sýklaárásir á þær.
Extra minnkar upptöku hitaeininga og dregur það úr streitu í amstri
hversdagsins.