Fréttablaðið - 02.11.2011, Page 2

Fréttablaðið - 02.11.2011, Page 2
2. nóvember 2011 MIÐVIKUDAGUR2 Eiríkur Guðnason, fyrrver- andi seðlabankastjóri, er lát- inn. Hann var 66 ára gamall. Eiríkur starfaði í Seðlabank- anum í fjöru- tíu ár. Hann hóf störf við hag- fræðideild bankans árið 1969, varð forstöðu- maður peningamáladeildar 1977 og aðalhagfræðingur 1984. Frá árinu 1987 var hann aðstoðarseðlabankastjóri og seðlabankastjóri frá árinu 1994 til ársins 2009. Hann var viðskiptafræðingur að mennt. Banamein Eiríks var krabbamein og lést hann á Landspítalanum á mánudag. Hann lætur eftir sig eiginkonu og fjögur börn. Eiríkur Guðna- son er látinn UMHVERFISMÁL „Þetta veldur kannski ótta hjá fólki en við töld- um ekki þá hættu stafa af þessu að það væri ástæða til að senda út tilkynningu,“ segir Guðmundur B. Friðriksson, hjá umhverfissviði Reykjavíkurborgar, um rottueitur sem fyrir misgáning barst í Foss- vogslæk. Guðmundur segir að í Fossvogi hátti þannig til að frárennslis- kerfið sé tvöfalt þannig að regn- vatnið sé aðskilið frá skolpinu. Fyrir mistök hafi í sumar verið settir vaxstaukar með rottueitri í regnvatnsbrunna í hverfinu. Í miklum rigningum síðari hluta september hafi þessir staukar síðan verið að skila sér niður sett- jörn í dalnum. Ekki var send út viðvörun frá borginni en í síðustu viku var greint frá því á heima- síðu Kópavogsbæjar að starfs- menn bæjarins hefðu þá hreinsað upp 84 eitur stauta úr Fossvogs- læk. Guðmundur segir að starfsmenn borgarinnar hafi hreinsað upp rottueitur úr settjörninni og séu ennþá að hreinsa úr brunnunum. Net hafi verið sett fyrir útrásarop í settjörnina. Síðustu daga hafi ekki fundist fleiri eiturstautar. Vonandi sé búið að ná öllu eitrinu. Aðspurður segir Guðmund- ur litla sem enga hættu stafa af rottueitrinu fyrir menn og gælu- dýr þeirra. Stautarnir séu ætlaðir í skolplagnir. Eftir að þeir komist í snertingu við sólarljós sé helm- ingunartími rottueitursins í þeim 2,1 klukkustund. Í læknum og sett- jörninni hafi stautarnir sokkið til botns þar sem erfitt sé að ná til þeirra. „Það var dýralæknir sem sagði hugsanlegt að tengja þetta við ketti sem hefðu drepist í Foss- vogi en sagði þó engar sannanir fyrir því. Ég held að það sé alveg ljóst að kettir sækja ekki í að éta þetta. Það væri ástæða fyrir fólk til að fylgjast með hundum sínum en þeir myndu þurfa að kafa eftir staukunum. Maður hefur heyrt af dæmum úti á landi þar sem hundar hafa étið rottueitur en þá er bara gefið lyf við því,“ segir Guðmundur og ítrekar að borgar- starfsmenn telji sig hafa hreinsað allt upp úr tjörninni. Tilkynningum um rottur í íbúð- arhverfum hefur fækkað veru- lega. „Við vorum með um fimm hundruð tilkynningar á ári en þær eru um tvö hundruð núna,“ segir Guðmundur sem kveður rotturnar hins vegar vera að færa sig austar í borginni. Þetta hafi Orkuveitan merkt við skoðun á lögnum sínum. „Við höfum aldrei eitrað austan Elliðaáa eða í Breiðholti en það gæti komið til þess á næstu árum. Það gæti verið að rotturnar séu farnar að færa sig eitthvað aust- ar.“ gar@frettabladid.is Töldu óþarft að vara við eitri í Fossvogsdal Rottueitur fór óvart í regnvatnsbrunna og barst í Fossvogslæk. Borgin taldi óþarft að vara fólk við. Það hafi helst verið ástæða til að fylgjast með hundum. Tilkynningum um rottur fækkar. Þær eru þó að nema ný lönd austan Elliðaáa. SETTJÖRN Í FOSSVOGSDAL Bæjarstarfsmenn í Kópavogi og borgarstarfsmenn í Reykjavík hafa fiskað upp mikið af rottueitursstautum sem bárust í Fossvogslæk fyrir handvömm í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI DANMÖRK Meðferð við ófrjósemi verður aftur gjaldfrjáls í Dan- mörku, að því er danski heil- brigðisráðherrann, Astrid Krag, hefur greint frá. Frá því að ný lög um greiðslur fyrir meðferðina tóku gildi 1. janúar síðastliðinn hefur með- ferðum við ófrjósemi fækkað um 23,4 prósent miðað við sama tímabil í fyrra. Ráðherrann segir ekki réttlátt að stærðin á buddu fólks ráði því hvort það geti eign- ast börn. Greiðslur einstaklinga vegna frjósemislyfja verða einnig lækk- aðar verulega og verða eins og þær voru áður. Nýju lögin eiga að taka gildi á næsta ári. - ibs Lagabreyting í Danmörku: Gjaldfrjáls meðferð við ófrjósemi Árni, synda ferðamenn í peningum? „Nei, en spurning hvort sundlaug- arnar bjóða upp á á það.“ Sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu skoða nú tillögu um að hækka verulega gjald fyrir stakar sundferðir þannig að ferðamenn greiði upphæðir sem svari betur til kostnaðarins af rekstri lauganna. Árni Gunnarsson er formaður Samtaka ferðaþjónustunnar. SÞ, AP Samningur um samein- ingu gríska og tyrkneska hlut- ans á Kýpur verður að veruleika í janúar, að mati Bans Ki-moon, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Hann segist hafa átt uppbyggilegar viðræður við leið- toga beggja þjóðarbrotanna. „Báðir leiðtogarnir hafa full- vissað mig um að þeir telji sig geta komist að samkomulagi,“ sagði Ban í gær. Í sumar sagðist hann reyndar búast við slíku samkomu- lagi í október, sem leið án þess að samningar tækjust. - gb Ban Ki-moon bjartsýnn: Samkomulag á Kýpur í janúar DÓMSMÁL Ákæra hefur verið gefin út á hendur einum þriggja karl- manna sem kærðir voru fyrir að níðast á fjórtán ára pilti á Akra- nesi. Þetta kom fram í fréttum RÚV í gær. Maðurinn er ákærður fyrir að hafa mök við drenginn og greiða honum fyrir. Hinir mennirnir tveir eru grunaðir um hið sama. Mál annars þeirra er enn til rann- sóknar hjá lögreglu og hitt bíður afgreiðslu hjá ríkissaksóknara. Einn mannanna þriggja var kennari við Fjölbrautaskóla Vest- urlands. Hann var sendur í ótíma- bundið leyfi þegar það kom upp. - sh Barnavændismál á Akranesi: Ákærður fyrir að níðast á fjór- tán ára dreng VIÐSKIPTI Ákvörðun Georgs Pap- andreús, forsætisráðherra Grikk- lands, um að vísa björgunarpakka evrusvæðisins til þjóðaratkvæða- greiðslu olli mikilli ókyrrð á mörk- uðum heimsins í gær. Í samkomulaginu felst bæði niðurfelling helmings skulda Grikklands og 100 millarðar evra í ný lán, en einnig mikill niðurskurður á ríkisútgjöldum og skattahækkanir, sem hafa valdið mikilli úlfúð meðal almennings í Grikklandi. Dow Jones-vísitalan féll um nær 300 punkta og hlutabréf stórra banka eins og Citigroup og JP Morgan féllu skarpt. Vísitölur féllu einnig víða um Evr- ópu. Á Ítalíu féll markaðurinn um 6,8 prósent, 5,4 í Frakklandi og 5 í Þýskalandi. Bandaríkjadalur styrktist hins vegar sem og ríkisskuldabréf og aðrar tryggari fjárfestingar. Gríska stjórnin fundaði um ástandið í gærkvöldin en van- trauststillaga verður lögð fram á þingi á föstudag. Papandreú mun einnig hitta aðra leiðtoga ESB-ríkja á næstu dögum í tengslum við fund G20-ríkjanna. - þj / sjá síðu 6 Djúp dýfa eftir að boðað var til þjóðaratkvæðagreiðslu í Grikklandi: Óróleiki á mörkuðum heimsins Á NIÐURLEIÐ Hlutabréfamarkaðir í Bandaríkjunum og Evrópu tóku dýfu vegna ástandsins í Grikklandi. NORDICPHOTOS/AFP SAMGÖNGUR Vegagerðin hefur dregið úr lýsingu á Reykjanesbraut um helming í sparnaðarskyni. Nú er slökkt á öðrum hverjum ljósastaur á leiðinni. „Mörg- um vegfarendum finnst þægilegra að keyra við svona ljós en það er ekki þar með sagt að það auki umferðaröryggi,“ segir G. Pétur Matthíasson, upp- lýsingafulltrúi Vegagerðarinnar. „Þetta er bara hagræðing í rekstri. Við verðum að forgangsraða eins og aðrir,“ segir G. Pétur. Með þessu sparist um tíu milljónir á ári og rannsóknir bendi ekki eindregið til þess að lýsing á þjóðvegum auki umferðaröryggi. En til hvers er hún þá? „Þú verður að spyrja þá sem settu hana upp á sínum tíma,“ segir hann. „Það er eiginlega hvergi í heiminum sem menn eru að lýsa þjóðvegi utan þétt- býlis. Víða erlendis hafa menn verið að taka niður svona lýsingu, hafi þeir á annað borð sett hana upp.“ G. Pétur segir að í kjölfarið hljóti menn að skoða hvort ástæða sé til að hætta alfarið lýsingu á braut- inni, fyrir utan á gatnamótum, sem áfram verði lýst. „Reyndar þyrfti frekar að gera meira af því að lýsa gatnamót úti á landi en ekki svona langar vega- lengdir,“ segir hann. - sh Vegagerðin útilokar ekki að hætta með öllu að lýsa upp Reykjanesbraut: Slökkt á öðrum hverjum staur DÝR BIRTA Vegarðin ætlar að spara tíu milljónir á ári með því að draga úr lýsingu. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI ÞÚ SKALT EKKI LISTAR NJÓTA Styttur bæjarins voru huldar plasti í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FÓLK Landsmenn voru í gær hvatt- ir til að sniðganga listina, hvaða form sem hún tók sér. Listalausi dagurinn, kallaðist átakið, sem var að undirlagi Bandalags íslenskra listamanna. Útbúinn var listi yfir það sem skyldi forðast, meðal annars söfn, öll myndverk, tónlist, tölvu- leiki, skáldsögur aðrar fagurbók- menntir, kvikmyndir, byggingar og garða hannaða af arkitektum og tískufatnað. Markmiðið var að fá fólk til að velta fyrir sér þýðingu listar í samfélaginu. - sh Listalausi dagurinn: Fólk hvatt til að sniðganga list VIÐ ERUM 50 ÁRA FAGNAÐU MEÐ OKKUR 3.–5. NÓVEMBER FRÁ KLUKKAN 8:50–21:50 Gleraugnasalan | Laugarvegi 65 | 551 8780 | gleraugnasalan.is AFSLÁTTUR AF ÖLLU SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.