Fréttablaðið - 02.11.2011, Blaðsíða 6
2. nóvember 2011 MIÐVIKUDAGUR6
Frá kr. 29.900
Nú getur þú tryggt þér síðustu sætin í sólina til eða frá Kanarí á
hreint ótrúlegu verði.
Um er að ræða flug til Kanarí 15. nóvember. Einnig flug frá Kanarí 15. nóvember
eða 20. desember.
Gríptu tækifærið og tryggðu þér flugsæti á frábærum kjörum
Kanarí
Kr. 29.900
Netverð á mann. Flugsæti aðra leið með sköttum til eða frá Kanarí.
Aðeins örfá sæti.
Ótrúlegt sértilboð!
á flugsætum!
Kínversk fræði við HÁSKÓLA ÍSLANDS
konfusius@hi.is | www.konfusius.hi.is
Konfúsíusarstofnunin Norðurljós sýnir heimildamyndina
Sýnd í Odda 101, 3. nóv. kl. 17:00
Grænmetisgarður heimsins
Allir velkomnir,
aðgangur ókeypis
Nánar á viðburðaskrá www.hi.is
Hádegisfyrirlestur Magnúsar Björnssonar
Utanríkisstefna Kína og aðdragandi
diplómatískra samskipta Íslands og Kína
Lögberg 102, 4. nóv. kl. 13:20
GRIKKLAND Grikkir virðast margir
líta svo á að Georg Papandreú for-
sætisráðherra ætli sér að kúga
þjóðina til hlýðni með því að bera
samkomulag stjórnarinnar við
Evrópusambandið undir þjóðar-
atkvæðagreiðslu.
„Þetta er fáránlegt. Nú hafa þeir
sent boltann til okkar, en er það
ekki þeirra ábyrgð að taka ákvörð-
unina?“ hefur gríska dagblaðið E
Kathimerini eftir Haris Velakou-
takou, 64 ára gömlum ferðaleiðsögu-
manni í Aþenu.
Stjórnarandstaðan hefur sömu-
leiðis brugðist ókvæða við ákvörðun
forsætisráðherrans og tveir þing-
menn Sósíalistaflokksins hafa sagt
sig úr honum, með þeim afleiðing-
um að stjórnarmeirihlutinn er orð-
inn mjög tæpur.
Papandreú tilkynnti um ákvörð-
un sína á þriðjudag, en daginn áður
hafði hann boðað atkvæðagreiðslu
á þingi um stöðu stjórnarinnar.
Reiknað er með að þingið gangi til
atkvæða seint á föstudag, og ræðst
þá hvort stjórnarmeirihlutinn fellur.
Hann hefur hins vegar ekki gefið
upp neina tímasetningu fyrir þjóð-
aratkvæðagreiðsluna, að öðru leyti
en því að hún verði eftir að Evrópu-
sambandið hefur endanlega geng-
ið frá útfærslu björgunaraðgerða
sinna, sem meðal annars fela í sér
helmings niðurfellingu á skuld-
um Grikkja og yfir hundrað millj-
arða evra fjárhagsaðstoð til við-
bótar þeirri, sem áður hafði verið
ákveðin.
Mikil andstaða er meðal almenn-
ings við björgunaraðgerðir ESB og
niðurskurðaráform stjórnarinnar,
en felli þjóðin björgunaraðgerðirn-
ar aukast mjög líkur á greiðslufalli
Grikklands og hruni evrunnar. Pap-
andreú hefur engu að síður ákveðið
að taka áhættuna. - gb
Grískur almenningur og gríska stjórnarandstaðan bregðast ókvæða við ákvörðun um þjóðaratkvæðagreiðslu:
Segja Papandreú varpa frá sér ábyrgðinni
AFTUR TIL DRÖKMUNNAR? Kona í
Aþenu gengur fram hjá minnismerki um
drökmuna, myntina sem Grikkir notuðu
áður en þeir tóku upp evruna fyrir
rúmum áratug. NORDICPHOTOS/AFP
375 grömm af kókaíni
Mennirnir fjórir, sem teknir voru í
sumarbústað fyrir austan fjall fyrir
skömmu, reyndust vera með 375
grömm af kókaíni í bústaðnum. Eftir
er að rannsaka styrkleika efnisins.
LÖGREGLUMÁL
Glasaþras á 800 bar
Maður var sleginn nokkur högg í
andlitið inni á skemmtistaðnum
800 bar aðfaranótt sunnudags.
Árásarmaðurinn, enskumælandi, bar
á hann að hann væri að drekka úr
glasi sem væri ekki hans glas. Þegar
hinn mótmælti fékk hann hnefann í
andlitið. Hann ætlar að kæra.
Sussaði á hund sem beit
Kona var bitin af hundi í Reykjavík
síðastliðinn laugardag. Hún var á
gangi við verslunarmiðstöð í austur-
borginni þegar hundurinn beit hana í
fótlegginn svo á sá. Hundurinn, sem
var bundinn, gelti að konunni sem
ætlaði þá að „sussa” á hann með fyrr-
greindum afleiðingum.
STJÓRNSÝSLA Helga Jónsdóttir,
framkvæmdastjóri BSRB, segir
fjölda ráðninga ráðuneytanna án
auglýsinga vera sláandi og ekki í
anda þess að sá hæfasti sé ráðinn
í hvert skipti.
Fram kom í Fréttablaðinu í gær
að frá ársbyrjun 2009 hafi 77 sinn-
um verið ráðið í stöður hjá ráðu-
neytunum án þess að staðan hafi
verið auglýst.
Helga segir BSRB einmitt hafa
árið 2007 mótmælt lagabreyting-
um þar sem ein grein gerði ráð
fyrir að ekki
þyrfti að aug-
lýs a s tö ð u r
ef ráðið væri
innan Stjórnar-
ráðsins.
„ E n n e r u
sömu rök í gildi
og BSRB var
með þá. Við
kölluðum eftir
gagnsæi í ráðn-
ingum þannig að farið sé yfir
hæfni einstaklinga og sá sem er
metinn hæfastur hljóti starfið.“
Helga minnir jafnframt á að
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra hafi, þegar hann
var í stjórnarandstöðu, gagnrýnt
umrædda grein og kallað hana
laumu farþega í frumvarpi um lög
um Stjórnarráð.
Helga segir að á þeim tíma hafi
BSRB talið að verið væri að stíga
fyrsta skrefið í þeirri þróun að
ráða almennt án auglýsinga.
„Og það virðist einmitt vera að
gerast núna.“ - þj
Hörð gagnrýni á fjölda ráðninga án auglýsinga hjá ráðuneytum:
BSRB segir fjöldann sláandi
HELGA JÓNSDÓTTIR
UMHVERFISMÁL Samtök sveitarfé-
laga á Suðurlandi vilja að vatns-
yfirborð Hagavatns verði fært
til upprunalegs horfs með stíflu
í Farinu. Hagavatn er suður af
Hagafellsjökli í austanverðum
Langjökli.
„Umhverfisáhrif yrðu umtals-
verð og jákvæð þar sem svif-
ryk af svæðinu myndi minnka
til muna og lífríkið allt njóta
góðs af. Um mikið þjóðþrifamál
yrði að ræða fyrir allt nær-
umhverfið. Möguleiki myndi
enn fremur skapast til bygg-
ingar jafnrennslisvirkjunar er
skapa myndi atvinnu á svæð-
inu á framkvæmdatíma og auka
hagkvæmni framkvæmdanna,“
segir í ályktun frá ársþingi
SASS.
- gar
Vilja Hagavatn í fyrra horf:
Stíflað verði
vegna svifryks
VIÐSKIPTI Sýslumaðurinn í Reykja-
vík hafnaði í gær beiðni Iceland
Express um lögbann við því að
Matthías Imsland, fyrrverandi
forstjóri félagsins, nýtti sér upp-
lýsingar sem hann hefði öðlast í
starfi sínu við stofnun nýs flug-
félags, WOW Air.
Forsvarsmenn Iceland Express
fullyrtu að Matthías hefði undir-
ritað ráðningarsamning sem
hefði kveðið á um að yrði honum
slitið af öðrum samningsaðila
væri Matthíasi óheimilt á næstu
tveimur árum eftir lok uppsagn-
arfrests að ráða sig til starfa hjá,
sitja í stjórn eða eiga hlut í fyrir-
tæki sem keppti á sama markaði
og Express. Matthías á innan við
tíu prósent í félaginu, að því er
lögmaður hans sagði hjá sýslu-
manni.
Lögmaður Matthíasar sagði við
fyrirtöku málsins hjá sýslumanni
að slíkur samningur hefði aldrei
verið í gildi og Matthías ræki
raunar ekki minni til þess að hafa
nokkurn tíma skrifað undir ráðn-
ingarsamning.
Samningurinn var lagður fram
sem gagn í málinu, óundirritað-
ur, en sýslumaður taldi að þannig
hefði hann ekkert sönnunargildi,
að því er fram kemur í úrskurð-
inum.
Sigurður G. Guðjónsson, lög-
maður Iceland Express, kvaðst
hins vegar í samtali við Frétta-
blaðið í gær vera í sjöunda himni,
enda samningurinn kominn í
leitirnar. „Ég er búinn að eyða
klukkutíma í að kemba allt sem
ég gat kembt hjá Iceland Express
og heldurðu að ég hafi ekki fund-
ið samninginn, undirritaðan af
Matthíasi Imsland.“
Sigurður segir samninginn
verða lagðan fram þegar málið
komi til kasta dómstóla, enda hafi
Express ákveðið að kæra niður-
stöðuna til héraðsdóms.
Sigurður var spurður um það
hjá sýslumanni hvaða leyndarmál
það væru sem Matthías byggi
yfir og hann sagði það vera vitn-
Gátu ekki sýnt fram
á tilvist samningsins
Sýslumaður hafnar beiðni Iceland Express um lögbann á störf Matthíasar Ims-
land fyrir WOW Air. Gátu ekki sýnt fram á að Matthías hefði undirritað samn-
ing með samkeppnisákvæði. Lögmaður IE segist nú hafa fundið samninginn.
EKKI LAUS ALLRA MÁLA Iceland Express ætlar með málið fyrir dómstóla.
Endanleg niðurstaða þeirra liggur kannski ekki fyrir fyrr en eftir jól.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Lögmaður Matthíasar Imsland segir í yfirlýsingu að „innbrot fyrirtækisins í
persónuleg gögn starfsmanns“ sé „skýrt brot á lögum um persónuvernd“, þó
svo að ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvort það lögbrot verði kært.
Í yfirlýsingunni segir að niðurstaðan sé í fullu samræmi við væntingar
hans og Matthíasar og þeir líti svo á að með honum sé fullt atvinnufrelsi
Matthíasar staðfest.
Íhugar kæru vegna innbrots í einkagögn
eskju um samninga við ferða-
heildsala og allan „kostnaðar-
strúktúr“ Express. Lögmaður
Matthíasar benti á móti á að auð-
velt væri að nálgast upplýsingar
um hvaða ferðaheildsalar skipta
við hvaða flugfélög. Þær lægju
öllum opnar á vef Ferðamálaráðs.
Þá komu til tals ásakanir
Express-manna þess efnis að
Matthías hefði reynt að lokka
starfsmenn Express til WOW Air.
Sigurður tilgreindi starfsheiti
þeirra sem þetta ætti við um, en
kvaðst þó ekki geta sýnt fram á
það gegn mótmælum lögmanns
Matthíasar.
Express-menn fóru fram á að
sýslumaður svipti Matthías síma
og tölvu í eigu félagsins sem
hann hefur enn til umráða. Lagt
var fram yfirlit yfir símnotkun
hans frá því að honum var sagt
upp. „Engin rök eru sett fram
hvers vegna gerðarþoli megi ekki
tala við umrædda aðila í síma,“
segir hins vegar í úrskurði sýslu-
manns. stigur@frettabladid.is
Ert þú farin(n) að huga að
jólunum?
Já 44,5%
Nei 55,5%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Eru kynþáttafordómar land-
lægir á Íslandi?
Segðu skoðun þína á visir.is
KJÖRKASSINN