Fréttablaðið - 02.11.2011, Side 12
2. nóvember 2011 MIÐVIKUDAGUR
Magnaður
miðvikudagur
15% afsláttur
af öllum
Blackberry
símum í dag
Þú færð meira
hjá Símanum
Í dag er magnaður
miðvikudagur og þú færð
15% afslátt af öllum Blackberry
símum ef þú ert hjá Símanum.
Nýttu tækifærið!
Gildir á meðan birgðir endast
FISKELDI Forsvarsmenn Arnarlax á Bíldudal gera
ráð fyrir að tilraunaeldi á laxi í Arnarfirði geti
hafist næsta vor, en síðustu þrjú ár hefur fyrir-
tækið kannað aðstæður á svæðinu. Umsóknir um
starfsleyfi og rekstrarleyfi fyrirtækinu til handa
liggja nú hjá Umhverfisstofnun og Fiskistofu, að
því er fram kemur í tilkynningu frá Arnarlaxi.
Samhliða tilraunaeldinu verður ráðist í uppbygg-
ingu á vinnsluhúsnæði og seiðaeldi í landi. Eftir
fimm ár er gert ráð fyrir því að framleiðsla Arnar-
lax, með tilheyrandi fullvinnslu afurða á neytenda-
markað, verði um þrjú þúsund tonn á ári. Í tilkynn-
ingunni segir einnig að fimmtíu ný störf geti orðið
til við uppbygginguna, en heildarkostnaður á bak
við verkefnið verði um þrír milljarðar króna.
Stór fyrirtæki í Noregi og Danmörku, bæði á
sviði eldis, vinnslu og markaðssetningar, eru á
meðal þeirra sem standa á bak við Arnarlax.
Aðstæður til eldis í Arnarfirði þykja ákjósan-
legar að mati sérfræðinga. Í Harðangursfirði í
Noregi eru svipaðar aðstæður og þar eru fram-
leidd 30 til 40.000 tonn af laxi á ári, að því er Arn-
arlax segir. - þj
Vongóðir um að uppbygging laxeldis Arnarlax í Arnarfirði hefjist brátt:
Vilja hefja tilraunaeldi í vor
SÉÐ YFIR ARNARFJÖRÐ Vonast er til þess að tilraunaeldi Arnar-
lax í firðinum geti hafist næsta vor. Uppbygging fyrirtækisins
gæti skapað um 50 ný störf á svæðinu. MYND/VÍKINGUR GUNNARSSON
HEILBRIGÐISMÁL Fjöldi þeirra sem
greinst hafa með klamydíu hefur
dregist saman um tæp 10 prósent á
milli ára, sé litið á fyrstu níu mán-
uði ársins. Samkvæmt upplýsing-
um frá sýklafræðideild Landspít-
ala bendir það til þess að færri hafi
smitast af klamydíu. Frá þessu er
greint í Farsóttarfréttum Land-
læknisembættisins.
Alls greindust 1.584 með klam-
ydíu fyrstu níu mánuði þessa árs.
Töluvert fleiri konur greindust en
karlar – 941 kona og 609 karlar.
Kyns er ekki getið hjá 34 einstak-
lingum.
Sé litið á aldursdreifinguna
síðast liðin fjögur ár sést að konur
eru yngri þegar þær sýkjast en
karlar. Vitað er að stúlkur byrja
að stunda kynlíf fyrr en strákar.
Algengasti aldur þeirra stúlkna
sem smitast er 15 til 19 ára, og
algengasti aldur drengja er 20 til
24 ára.
Í Farsóttarfréttum er einnig
greint frá nýjum tilfellum af lek-
anda, en alls hafa 23 greinst á
fyrstu níu mánuðum þessa árs,
sextán karlar og sjö konur. Er þetta
svipaður fjöldi og árið 2010, en þá
greindust 18 með lekanda. - sv
Tæplega 1.600 einstaklingar hafa greinst með klamydíu á þessu ári:
Klamydíusmitum fer fækkandi
HÚÐ- OG KYNSJÚKDÓMADEILD LSH
Allt bendir til þess að klamydíusmitum
hafi fækkað á Íslandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FRAKKLAND Leiðtogar helstu efna-
hagsvelda heims hittast í Cannes í
Frakklandi á morgun og föstudag.
Til stendur að samþykkja aðgerðir,
sem eiga að halda aftur af bönkum
og fjármálafyrirtækjum og draga
verulega úr hættunni á að önnur
eins kreppa endurtaki sig og sú
sem hófst fyrir þremur árum og
enn sér ekki fyrir endann á.
Meðal annars á að sjá til þess, að
fjármálafyrirtæki geti ekki framar
orðið „of stór til að fara á hausinn“,
og jafnframt á að tryggja að skatt-
greiðendur fái ekki reikninginn
fari svo að „of stórt“ fjármálafyrir-
tæki verði samt sem áður gjald-
þrota.
Þá er meiningin að setja alþjóð-
legar reglur, sem koma í veg fyrir
ofurbónusa og hömlulaus áhættu-
viðskipti, eins og farin voru að tíðk-
ast í fjármálaheiminum fyrir hrun-
ið 2008.
Ekki síst er ætlunin að setja
strangar reglur um starfsemi vog-
unarsjóða og annarra jaðarfyrir-
bæra fjármálaheimsins, með öfl-
ugu eftirliti. Þá er hugmyndin að
flóknir fjármálagjörningar á borð
við afleiðuviðskipti verði eingöngu
leyfilegir innan ramma kauphallar-
viðskipta og á rafrænu formi, svo
unnt verði að rekja þau síðar meir.
Þetta allt saman fullyrðir þýska
tímaritið Spiegel á vefsíðu sinni,
og vísar þar í drög að lokaálykt-
un fundarins, sem blaðamenn þess
hafa komist yfir. Ekki er þó víst að
allar þessar aðgerðir verði sam-
þykktar þegar á hólminn er komið.
Þetta verður sjötti fundur leið-
togahópsins frá því haustið 2008,
þegar þeir fyrst ákváðu að koma
reglulega saman til að ræða við-
brögð við kreppunni og móta
aðgerðir.
Þessi fundur í Cannes, þar sem
Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti
verður gestgjafi hópsins, er hald-
inn í beinu framhaldi af leiðtoga-
fundum Evrópusambandsins og
evrusvæðisins í síðustu viku, þar
sem samþykkt var bæði að stækka
mjög neyðarsjóð ESB og herða regl-
ur um bankastarfsemi.
Efnahags- og þróunarstofnunin
OECD spáir „vægum samdrætti“
í sumum löndum evrusvæðisins á
næsta ári og hagvöxtur á svæðinu
í heild fari niður í 0,3 prósent.
Stofnunin segir aðallega því
um að kenna, að almennt hafi fólk
misst trúna á getu stjórnmála-
manna til að bregðast við ástand-
inu. gudsteinn@frettabladid.is
Vilja koma böndum
á fjármálastarfsemi
Á leiðtogafundi G20-ríkjanna síðar í vikunni er ætlunin að samþykkja að settar
verði strangari reglur um banka- og fjármálastarfsemi. Stærð banka verða
settar strangar skorður, hömlur verða settar á ofurbónusa og áhættuviðskipti.
UNDIRBÚNINGUR LANGT KOMINN Frakkar vinna hörðum höndum að undirbúningi G20-fundarins í Cannes síðar í vikunni.
NORDICPHOTOS/AFP