Fréttablaðið - 02.11.2011, Blaðsíða 40
2. nóvember 2011 MIÐVIKUDAGUR28
FIMMTUDAGINN
3. NÓV KL. 20:30
Forsala: midi.is og salurinn.is
ANDREA GYLFADÓTTIR Söngur
STEFÁN HILMARSSON Söngur
SIGURÐUR FLOSASON Saxófónar
ÞÓRIR BALDURSSON Hammond B-3 orgel
EINAR SCHEVING Trommur
TÓNLEIKAR
www.dimma.is
„Frábær plata, mikill húmor, rosalega skemmtilegt.
Ég gef henni níu af tíu í einkunn.“ Andrea Jónsdóttir, RÚV
„Gæða tónlist flutt af tilfinningu og með tilþrifum.
Fínar lagasmíðar og góður flutningur. “ Trausti Júlíusson, Fréttablaðið
Í SALNUM Í KÓPAVOGI
28
menning@frettabladid.is
HARPA OG SLAGVERK HITTAST Á RÓSENBERG Duo Harpverk spilar á árlegum tónleikum á Café Rosenberg
í kvöld. Dúóið skipa þau Katie Elizabeth Buckley hörpuleikari og Frank Aarnik slagverksleikari, sem bæði tvö eru hljóðfæra-
leikarar hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands. Tónleikarnir hefjast klukkan 21 og það kostar 500 krónur inn.
Leikhús ★★★★
Eftir lokin
Höfundur: Dennis Kelly. Þýð-
ing og leikstjórn: Stefán Hallur
Stefánsson. Leikarar: Sveinn
Ólafur Gunnarsson og Lilja Nótt
Þórarinsdóttir Tónlist: Gísli
Galdur Þorgeirsson. Leikmynd
og búningar: Brynja Björns-
dóttir. Lýsing: Stefán Benedikt
Vilhelmsson.
Tjarnarbíó
Hver ræður
yfir hverjum?
Á laugardagskvöldið var hið
ágæta leikhús í gamla Tjarnar-
bíói með frumsýningu á væg-
ast sagt óhugnanlegu verki eftir
Dennis Kelly, sem einnig samdi
Elsku barn sem flutt var í Borg-
arleikhúsinu í fyrra.
Í þröngum klefa hafast tvær
persónur við um nokkurt skeið
því að það virðist sem kjarn-
orkustríð geysi utan hans. Áhorf-
endum er komið fyrir eins og í
kringum boxhring; miðjan er
girt af með geislum og í fern-
ingi kljást tvær persónur við að
lifa meðan dauðinn er alls staðar
utan þeirra.
Hér er verið að tefla allan
tímann, tvö skref fram og eitt
til baka. Leikreglur settar upp
um hvað beri að gera til þess
að tíminn líði bærilega. Í kjarn-
orkubyrginu er takmarkað magn
fæðu og ræður karlmaðurinn
Markús alfarið yfir henni, enda
er þetta kjarnorkubyrgið hans.
Þau eru vinnufélagar og það er
greinilegt að hún eins og aðrir
á vinnustaðnum hafa hlegið að
honum og þótt hann nokkuð und-
arlegur í háttum.
Þetta er þrusuvel skrifað verk
og vafalítið draumur hvers ungs
leikara að fá að kljást við svo
mergjaðar sveiflur sem til verða
í samskiptum fólks við aðstæður
sem þessar. Lilja Nótt og Sveinn
Ólafur skiluðu afbragðsleik í
þessari nálægu glímu við mögu-
leikann á að lifa af. Skyndilega
kemur vendipunktur sem breytir
sambandinu mjög millum þeirra
og gefst þá tækifæri til þess að
skoða enn samskiptamynstrið.
Hér er verið að vinna með hið
svokallaða Stokkhólmssyndróm,
eða þá flóknu sálarflækju þegar
fórnarlamb fer að elska eða alla
vega þykja vænt um kvalara
sinn.
Gísli Galdur Þorgeirsson á
hér einnig vænan þátt í að skapa
stemningu óhugnaðar. Hljóð-
myndin öll var eins og ískrandi
tónverk úr helvíti og notkun ljósa
og ekki síður myrkurs undir-
strikaði þann ofurkraft geð-
veikinnar sem smám saman var
að vaxa fram. Starandi sturlast
persónan Markús og virðist nær
blindur af sinni eigin brjálsemi.
Textinn var mjög áheyrilegur
og framsögn leikaranna góð.
Elísabet Brekkan
Niðurstaða: Flott verk, ekki fyrir við-
kvæma en svo sannarlega fyrir þá
sem hafa áhuga á að sjá magnaðan
leik í návígi.
Mannréttindasamtökin
Amnesty International
standa ásamt Bíói Paradís
fyrir kvikmyndadögunum
(Ó)sýnileg, sem hefjast á
morgun. Tólf heimildar-
myndir sýna þrautseigju
fólks sem berst fyrir rétti
sínum.
Í tilefni af fimmtíu ára starfi
Amnesty International á alþjóða-
vísu halda samtökin á Íslandi kvik-
myndahátíðina (Ó)sýnileg í Bíói
Paradís. Hátíðin stendur yfir dag-
ana 3. til 13. nóvember og verða
tólf heimildarmyndir til sýnis.
Samtökin gera mannréttindabrot
sýnileg og krefjast úrbóta.
„Heimildarmyndir eru sterkur
miðill. Myndformið færir okkur
inn í raunverulegar aðstæður og
sýnir sannleikann. Á augabragði
erum við stödd á útvarpsstöð konu
í Níkaragva, sem hefur það að
markmiði að segja frá ofbeldi gegn
konum, eða í fangelsi hjá ungum
dreng, sem sat inni ásamt hundruð-
um í kjölfar grænu byltingarinnar
í Íran,“ segir Bryndís Bjarnadótt-
ir, herferðarstjóri Íslandsdeildar
Amnesty International.
„Við áhorf myndanna verða
þessir einstaklingar svo nærri
þér að þú hreinlega verður að taka
afstöðu og grípa til aðgerða.“
Myndirnar, sem allar hafa unnið
til alþjóðlegra verðlauna, endur-
spegla þann raunveruleika sem
viðgengst í heiminum og reynt er
að fela.
„Nokkrar taka á mannréttinda-
brotum gegn konum, aðrar gefa
innsýn inn í gang mála í Norður-
Afríku og Mið-Austurlöndum eða
fjalla um brot á tjáningarfrelsinu.“
Áhorfendum gefst kostur á að
þrýsta á yfirvöld Sýrlands, Kongó
og Írans vegna þeirra sem eru þar
í hættu og sæta mannréttindabrot-
um.
„Það er vegna sýrlenskrar kven-
réttindakonu, nauðgana í Kongó
sumarið 2010 og samviskufanga í
Íran sem hlaut sex ára dóm fyrir að
nýta sér tjáningarfrelsið. Við viljum
krefja yfirvöld um að vernda eftir-
farandi einstaklinga og koma í veg
fyrir áframhaldandi brot.“
Peter Löfgren, framleiðandi
myndarinnar Travel Advice for
Syria, er heiðursgestur hátíðarinn-
ar. Myndin veitir einstaka innsýn
í sýrlenskt samfélag í aðdraganda
uppreisnarinnar sem hófst fyrir
hálfu ári. Hann verður viðstaddur
sýningu myndarinnar 8. nóvember
og mun svara fyrirspurnum kvik-
myndagesta.
Nánari upplýsingar um dagskrá
hátíðarinnar er að finna á amnesty.
is og bioparadis.is.
hallfridur@frettabladid.is
Mannréttindabrot sýnileg
SANNLEIKURINN SÝNDUR Bryndís Bjarnadóttir segir heimildarmyndirnar færa
áhorfandann inn í raunverulegar aðstæður einstaklinga sem berjast fyrir rétti sínum.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRA SJÓNVARP
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða,
meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi.