Fréttablaðið - 02.11.2011, Page 44
2. nóvember 2011 MIÐVIKUDAGUR32
folk@frettabladid.is
Skátahreyfingin hefur um árabil selt sígræn
eðaltré í hæsta gæðaflokki og prýða þau
þúsundir heimila og fyrirtækja.
Sígrænu jólatrén eru seld í Skátamiðstöðinni
Hraunbæ 123 í Reykjavík, s: 550 9800 og á
skátavefnum: www.skatar.is
Frábærir eiginleikar:
-eðaltré ár eftir ár!
Sígræna jólatréð
10 ára ábyrgð
12 stærðir (90-500 cm)
Stálfótur fylgir
Ekkert barr að ryksuga
Veldur ekki ofnæmi
Eldtraust
Þarf ekki að vökva
Íslenskar leiðbeiningar
20%
Kynningarafsláttur
út nóvember
Sante snyrtivörurnar eru framleiddar
úr lífrænt ræktuðum jurtum og eru
lausar við skaðleg kemísk efni. Þær eru
margprófaðar af húðsjúkdómafræðingum
og hafa staðist strangar gæðaprófanir.
Sýndu fyrirhyggju og veldu náttúrulegar
snyrtivörur fyrir fjölskylduna þína.
Náttúrulegar
snyrtivörur fyrir
alla fjölskylduna
www.lifandimarkadur.is
„Ég nota snyrtivörur sem raska
ekki hormónastarfssemi, framkalla
ekki ofnæmi né þurrk á húð og eru
í senn lausar við paraben-efni.
Ég mæli með Sante.”
Þorbjörg Hafsteinsdóttir,
Næringarþerapisti og höfundur
bókarinnar „10 árum yngri á 10 vikum”
Yfir fjórtán þúsund Íslend-
ingar hafa heimsótt nýja
vefmiðilinn Innihald.
is en hann fór í loftið á
laugar daginn. Þær Sigrún
Jóhannsdóttir, Sæunn Ingi-
björg Marinósdóttir og
Anna Jóna Heimisdóttir
sem skipa ritstjórn miðils-
ins eru í skýjunum yfir
viðtökunum. Innihald.is er
í senn afþreyingarvefur og
vettvangur málefnalegrar
umræðu.
„Aðsóknin fór langt fram úr
okkar björtustu vonum og við
erum mjög sáttar með viðtökurn-
ar,“ segir Sigrún Jóhannsdótt-
ir lögfræðingur og einn þriggja
aðstandenda nýs vefmiðils, Inni-
hald.is.
Vefurinn fór í loftið á laugar-
daginn og hafa þegar um fjór-
tán þúsund manns skoðað vefinn
oftar en einu sinni á síðustu fjór-
um dögum. Sem dæmi má taka er
vefur Alþingis með ellefu þúsund
notendur á heilli viku.
Eina af ástæðum góðrar
aðsóknar á vefinn má rekja til
athyglinnar sem pistill Maríu
Lilju Þrastardóttur hefur vakið en
hún skrifaði opið bréf til Davíðs
Þórs Jónssonar. „Pistill Maríu og
eftirmálar hans hafa vakið mikla
athygli en við ætlum ekki að taka
efnislega afstöðu í þessu máli.
Okkar hlutverk er að sjá til þess
að siðareglum sé fylgt en umfram
það er orðið frjálst,“ segir Sigrún
en hvetur þá sem telja að á sér
hafi verið brotið að hafa samband
við sérstaka siðanefnd miðilsins
sem meti hvað gert verður í fram-
haldinu.
Þær Sigrún, Anna Jóna Heimis-
dóttir, stjórnmála- og kynjafræð-
ingur, og Sæunn Marinósdótt-
ir viðskiptafræðingur kynntust
í aðdraganda Druslugöngunn-
ar í sumar. Með nafni miðilsins
vilja þær stöllur benda á að það
er innihaldið sem skiptir máli
en ekki útlitið. „Við vorum allar
orðnar þreyttar á tilfinninga-
rúnki margra vefmiðla og hvern-
ig fréttaflutningi var háttað til að
næla sér í sem flestar flettingar.“
Innihald.is fer eftir ströngum
siðareglum og hefur ritstjórnin
sett saman sérstakt vefráð sem
á að veita ritstjórninni aðhald og
uppbyggilega gagnrýni mánað-
arlega en í ráðinu er fjölbreyttur
hópur einstaklinga.
„Við viljum halda ákveðnum
staðli á síðunni og sjá til þess að
við förum ekki út fyrir okkar
eigin markmið. Við erum til
dæmis strangar á að pistlahöf-
undar geri grein fyrir heimildum
sínum, eitthvað sem ætti að vera
sjálfsagt mál í vefmiðlum en er
því miður ekki,“ segir Sigrún og
hún hvetur alla til að senda inn
pistla á síðuna.
Umfjöllunarefni Innihald.is er
allt milli himins og jarðar eins og
til dæmis þjóðfélagsmál, matar-
gerð, listir, handavinna og kynlíf.
„Við viljum að sem flestar raddir
heyrist og höfða til fjölbreytileik-
ans en um leið uppræta fordóma.
Til dæmis viljum við ekki skrifa
um kynlíf með því að leiðbeina
konum hvernig á að fullnægja karl-
manni heldur viljum við fjalla um
kynlíf á eðlilegri hátt og sem hluta
af góðri heilsu.“ alfrun@frettabladid.is
MIKILL ÁHUGI Á INNIHALDI
RITSTJÓRNIN Þær Sæunn Ingibjörg Marinósdóttir og Sigrún Jóhannsdóttir voru orðnar leiðar á mörgum vefmiðlum og boða
aukinn fjölbreytileika í úrvali netmiðla með stofnun Innihald.is. Á myndina vantar þriðja meðlim ritstjórnar, Önnu Jónu Heimis-
dóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Fátt hefur vakið meira athygli
en skilnaður raunveruleika-
stjörnunnar Kim Kardashian
og Kris Humphries. Hjónaband
þeirra entist aðeins í 72 daga
þrátt fyrir að öllu hefði verið
tjaldað til þegar þau játuðust
hvort öðru frammi fyrir Guði og
E!-sjónvarpsstöðinni.
Tölurnar í kringum hjóna-
bandið eru ansi skondnar.
Humphries er meðal annars
2,06 metrar á hæð en Kardashi-
an er ekki nema 1,57 metrar.
Þau þurftu að borga 20 milljón-
ir dollara fyrir brúðkaupið sitt,
sem þótti einkar glæsilegt, en
í staðinn græddu þau 18 millj-
ónir dollara, með sölu á sjón-
varpsrétti og myndatöku. Kim
pantaði þrjá Veru Wang-kjóla
fyrir athöfnina, kampavín fyrir
400 þúsund dollara og 750 þús-
und dollara fyrir veitingarnar.
Og allt var þetta frítt. Ef allt
er tekið saman þénaði parið á
þessum 72 dögum 250 þúsund
dollara á dag samkvæmt breska
blaðinu Daily Mail.
Sá sem hefur grætt einna
mest á þessu hjónabandi er
Humph ries. Hann fékk fjörutíu
þúsund dollara fyrir hvern leik í
NBA-deildinni; í dag þénar hann
250 þúsund dollara.
Kim og Kris
í tölum
SKRINGILEGT Kim Kardashian og Kris
Humphries eru að skilja, þau þurfa hins
vegar ekki að gráta glataðar krónur því
þau græddu umtalsvert á hjónabandinu.
TÍMUM eyddi leikkonan Lindsay Lohan í líkhúsi í Los
Angeles. Það er 16 tímum meira en dómari skipaði henni að
vinna í þágu samfélagsins eftir að hún rauf skilorð.
24
Poppstjarnan Justin Bieber átti í erfiðleikum með
röddina þegar hann söng dúett með Mariuh Carey
og vill umboðsmaður söngvarans meina að unglings-
stjarnan sé komin í mútur. Bieber og Carey sungu
saman gamlan slagara söngkonunnar, All I Want for
Christmas Is You, og átti Bieber víst í miklum erfið-
leikum með að ná háu tónunum.
„Fyrir ári hefðu þessir tónar ekki verið
vandamál fyrir Bieber,“ segir umboðsmað-
urinn Scooter Braun í viðtali við vefsíðuna
Billboard.com.
Bieber er 17 ára gamall og ein vinsælasta
poppstjarnan í heiminum i dag. Hann undir-
býr nú plötuna Under the Mistletoe sem á að
koma út á næstu dögum en ofangreint lag
verður einmitt á þeirri plötu.
Justin Bieber í mútur