Fréttablaðið - 02.11.2011, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 02.11.2011, Blaðsíða 50
2. nóvember 2011 MIÐVIKUDAGUR HANDBOLTI Það var stutt gaman hjá línumanninum Einari Inga Hrafnssyni sem var valinn í íslenska landsliðið á dögunum. Hann varð fyrir miklu áfalli í fyrrakvöld þegar hann handar- brotnaði á æfingu íslenska lands- liðsins. Einar Ingi var að fá sín fyrstu alvöru kynni af A-landslið- inu en átti að baki einn leik með hálfgerðu b-liði sumarið 2009. „Ég veit eiginlega ekki hvað gerðist. Ég greip boltann og er í baráttu á milli tveggja manna. Það kemur einhver slinkur á puttann og ég hélt fyrst að ég hefði farið í og úr lið. Svo kom í ljós að þetta var brotið. Ég hef fengið eitthvert högg á höndina í þessu krafsi en ég datt samt ekkert á höndina eða neitt,“ sagði Einar Ingi og bætti við: „Ég held að það sé ekki hægt að ímynda sér þetta meira svekkj- andi. Þetta er alveg skelfilegt og ég veit ekki hvað ég gerði til þess að verðskulda þetta,“ sagði Einar en slysið gerðist í lok æfingarinn- ar. „Þetta er þvílík óheppni og það voru bara svona tvær mínútur eftir af æfingunni þegar þetta gerðist. Þetta var algjörlega í restina á æfingunni. Ofan á allt annað er þetta síðan skothöndin,“ sagði Einar. Hann hefur leikið ákaflega vel fyrir félag sitt, Mors Thy, í Danmörku á þessu tímabili og hann viðurkennir að það hafi verið erfitt að hringja út og láta þjálfarann vita af meiðslunum. „Ég var stressaður vegna þessa símtals í morgun. Svona er þetta bara og hann blótaði þessu örugg- lega í sand og ösku þegar hann var búinn að skella á mig. Hann sýndi mér stuðning á meðan ég talaði við hann,“ sagði Einar en það var strax komin pressa á hann að ná leikjum í lok ársins. „Ég er ekki bjartsýnn á að ég nái að spila þennan leik sem hann vill að ég spili milli jóla og nýárs. Það er bara bull að reyna að taka einhvern einn leik þar og skemma meira fyrir sérstaklega þar sem það kemur pása þarna á eftir,“ segir Einar Ingi en landsliðs- draumurinn er dáinn í bili. „Læknirinn sagði við mig í morgun að gifs-tíminn væri svona fjórar vikur og svo eru sex til sjö vikur þangað til maður getur byrjað að gera eitthvað. Þetta ætti því að gróa án þess að ég þurfi að fara í aðgerð. Ef ég er ekki negld- ur þá á þetta ekki að há mér neitt í framtíðinni. Þeir vilja samt fá mynd af þessu aftur eftir átta til níu daga til að sjá hvort það sé komin einhver hreyfing á þetta. Ef það verður komin einhver hreyfing á brotið þá þarf að negla þetta,“ segir Einar. - óój Einar Ingi Hrafnsson handarbrotnaði á skothendi á æfingu karlalandsliðsins: Það voru bara tvær mínútur eftir KOMINN Í GIFS Einar Ingi Hrafnsson spilar ekki handbolta fyrr en á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Magnaður miðvikudagur 20% auka- áfylling í dag á siminn.is Þú færð meira hjá Símanum Í dag er magnaður miðvikudagur og þú færð 20% ábót þegar þú fyllir á Frelsi og Ring á siminn.is. Gildir einungis ef fyllt er á í gegnum siminn.is KÖRFUBOLTI Landsliðsmaðurinn Helgi Már Magnússon setti nýtt og glæsilegt stigamet í 90-81 sigri 08 Stockholm á Uppsala á föstu- dagskvöld. Það var ekki nóg með að Helgi bætti sitt persónulega met í sænsku deildinni um heil 20 stig heldur tók hann einnig stiga- met Íslendings í deildinni af Loga Gunnarssyni. Helgi Már klikkaði á þremur fyrstu skotum sínum í leiknum og var bara kominn með 7 stig í hálfleik. Hann skoraði síðan 32 stig í seinni hálfleiknum og hitti þá úr 11 af 12 skotum sínum utan af velli. „Þetta var einn af þessum dögum sem allt gekk upp. Fyrri hálfleikurinn var allt í lagi en í seinni hálfleik fékk ég nokkur opin skot í byrjun sem ég setti niður og eftir það gekk allt upp,“ sagði Helgi Már. Logi hafði mest skorað 38 stig í sigri Solna á 08 Stockholm fyrir rétt rúmu ári. „Það var með ráðum gert að komast í 39 og upp fyrir Loga,“ sagði Helgi Már í léttum stríðnis- tóni þegar hann frétti af nýja stigametinu sínu. „Ég held að þetta sé persónulegt met hjá mér og þá skiptir engu máli um hvaða flokk er verið að tala um. Það er alltaf gaman að standa sig á móti sínu gamla liði,“ sagði Helgi Már sem spilaði með Uppsala-liðinu í vetur. „Þetta er ekki eitthvað sem ég geri á hverjum degi að skora 30 og eitthvað stig. Þetta var mjög skemmtilegt. Ég held ég hafi einu sinni náð því að skora 30 stig í háskóla en ég hef aldrei verið þessi spilari. Það er gaman að sjá að maður getur þetta að minnsta kosti,“ segir Helgi. Helgi Már og félagar í 08 Stock- holm HR hafa unnið fjóra af fyrstu sjö leikjum sínum og eru eins og er í 6. sætinu. „Við stefnum á að vera í einu af efstu fjórum sætunum og ef við ætlum okkur eitthvað í vetur þá verðum við að geta unnið gott lið eins og Uppsala á okkar heima- velli. Þetta var mjög kærkominn sigur,“ segir Helgi og finnur sig vel með nýja liðinu. „Það gengur ágætlega. Við erum nokkrir að berjast um sömu stöðuna og þjálfarinn er búinn að gefa það út að sá sem stendur sig best fær flestar mínútur í það skiptið. Ég hef verið að byrja mikið á bekknum og uppleggið í þessum leik var bara svipað og er búið að vera í síðustu leikjum,“ segir Helgi Már. Helgi kann vel við uppleggið í liðinu. „Það vill svo skemmtilega til að það er enginn Ameríkani í liðinu. Þetta eru allt bara Svíar og ég. Hingað til höfum við verið lausir við að það sé einhver eigingirni í liðinu og menn eitthvað að hugsa um rassinn á sjálfum sér eða að reyna að ná í góða tölfræði,“ segir Helgi sem er sjálfur mikill liðsmaður og oftar en ekki að gera þá hluti vel sem koma ekki fram í tölfræðinni. Helgi og kærasta hans, Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, eignuðust strák 30. september síðastliðinn og voru foreldrar hans í heimsókn í síðustu viku. „Mamma og pabbi voru í stúk- unni. Þau voru í heimsókn og náðu þessum eina leik. Þau komu í vikunni til að hitta drenginn og náðu þessum leik. Það gerði þetta aðeins skemmtilegra að hafa þau þarna í stúkunni og svo ég tali ekki um að vera að spila á móti Uppsala,“ segir Helgi. En hvað með framhaldið? „Við skulum vona að þjálfarinn setji eitthvað meira upp fyrir mig í næstu leikjum. Ef þeir vilja setja pressu á að ég skori meiri þá er eins gott að þeir hlaupi fleiri kerfi fyrir mig,“ segir Helgi léttur að lokum. ooj@frettabladid.is SKOTSÝNING FYRIR MÖMMU OG PABBA Helgi Már Magnússon setti nýtt stigamet Íslendings í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta á dögunum. Helgi Már kom þá inn af bekknum og skoraði 39 stig á aðeins 29 mínútum í flottum sigri á gömlu félögunum hans í Uppsala. TUTTUGU STIGA BÆTING Helgi Már Magnússon hafði mest skorað 19 stig í sænsku úrvalsdeildinni fyrir leikinn á föstudaginn var. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.