Fréttablaðið - 18.11.2011, Page 1
veðrið í dag
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl - júní 2011
Föstudagur
skoðun 18
3 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Föstudagur
Jólaföt
18. nóvember 2011
270. tölublað 11. árgangur
JÓLAFÖTFÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2011 KynningarblaðKjólarYfirhafnirFylgihlutirSkartGóð þjónustaSanngjarnt verð
V ið erum með alveg ótrúlega breitt og vandað vöruúrval á góðu verði og leggjum áherslu á persónulega þjónustu. Því er kannski ekki skrítið að hópur fastakúnna fari ört stækkandi. Svo er líka altalað hversu skemmtilegt er að kíkja í heimsókn,“ segir Jóna Lárus-dóttir, betur þekkt sem Jóna Lár, létt í bragði um verslun sína Soho Market á Grensásvegi 8 sem hefur verið rekin við góðar undirtektir í þrjú ár.Að sögn Jónu er Soho Market tískuvöruverslun sem sérhæfir sig í sölu á fatnaði fyrir konur á öllum aldri, jafnt stórar sem smáar, og fylgihlutum. Verslunin var upp-haflega til hú á
en vegna sívaxandi aðsóknar sá Jóna sér ekki annað fært en að flytja hana í stærra rými. Fyrir valinu varð Grensásvegur 8 sem hún segir í alla staði hentugra húsnæði. „Fyrir utan að það er stærra og bjartara þá eru viðskiptavinir okkur þakklátir fyrir betra aðgengi; hér eru bílastæði beint fyrir framan og aftan húsnæðið og strætóstoppistöð fyrir utan. Að sama skapi segjast marg-ir ekki hafa vitað áður af verslun-inni sem sést nú betur frá götunni og voru miður sín yfir að hafa ekki vitað af okkur þar sem við vorum inni í porti. Þetta hafi verið bgey d
felum,“ segir Jóna hlæjandi og getur þess að eins njóti vörurnar sín betur í nýja húsnæðinu.Jóna segir heiti búðarinnar hafa valdið vissum misskilningi gegn-um tíðina. Margir telji að um ein-hvers konar markað sé að ræða en reyndin sé sú að heitið vísi í Soho í London og New York sem flest-ar konur þekki af góðu. „Þangað förum við konur oft til dæmis ef við ætlum að kaupa okkur það nýj-asta í skarti, töskum og fatnaði. Í takt við það selur Soho Market allt það nýjasta frá Ba d
við að eins fáist í búðinni tækifæris-gjafir, svo sem tertuspaðar, snyrti-vörur og fleira. „Þannig að við erum kannski ekki alveg dæmigerð tískuvöruverslun.“Þá segir Jóna gott vöruverð ekki skemma fyrir. „Konum, sem hafa verið að versla erlendis, kemur mjög á óvart að hér eru vörurnar á sama verði eða ódýrari,“ segir hún.Soho Market er opið virka daga klukkan 12-18, til 19 á föstudögum og 12-17 á laugardögum. Jóna segirfyrirtæki h
Soho Market kemur úr felum
Soho Market á Grensásvegi 8 er tískuvöruverslun sem sérhæfir sig í sölu á fatnaði og fylgihlutum fyrir konur á öllum
aldri. Í versluninni er áhersla lögð á fjölbreytt vöruúrval, sanngjarnt verð, persónulegt viðmót og úrvals þjónustu.
Að sögn Jónu Lár er Soho Market tískuvöruverslun sem sérhæfir sig í sölu á fatnaði fyrir konur á öllum aldri, fylgihlutum og tækifæris-
gjöfum.
MYND/GVA Fjölbreytt vöruúrval kemur mörgum á óvart.
GOTT VERÐ
Brjóstahaldarar
Svokallaðir „2 size up“ brjósta-haldarar hafa notið mikilla vinsælda í Soho Market að undanförnu, en þeir kosta aðeins 1.990 krónur.
Gott aðhald
Aðhaldsfatnaður hefur verið vinsæll; blúnduaðhaldsbolir á 3.450 krónur, aðhaldsbuxur sem minnka ummálið um eina og hálfa stærð á 2.990 krónur, heilir gallar 3.990. Líka má nefna buxur með rassfyllingu á 2.990 krónur.
Armbönd
Einföld stálarmbönd með sirkon-steinum hafa einnig verið eftirsótt en þau fást einföld, tvöföld, þreföld og fjórföld, á verðbilinu 1.990 og upp í 4.990 krónur.
Bolir
Blúndubolir hafa slegið í gegn enda á aðeins 2.990 krónur.
Jóga- og íþróttafatnaðurLoks má nefna jóga og íþ óf
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512 5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457
Taktu þátt í frábærum leik!
Allir krakkar
Frú Kitschfríður hefur það að markmiði að endurmennta og uppfræða íslenskar húsmæður.
Hin nýja Helga Sig
Safar og þeytingar er handhæg bók í jólastressinu. Bókin inni-
heldur uppskriftir að 200 ljúffengum hollustudrykkjum sem bæta,
hressa og kæta. Ítarleg atriðisorðaskrá auðveldar notendum að
finna drykki úr því hráefni sem þá langar mest til að nota.
FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS
föstudagur
18. nóvember 2011
FÓLK Það var ekki vegna dag-
setningarinnar sem Anna Sig-
ríður Pálsdóttir, sem gekk með
tvíbura, var sett af stað hinn 11.
nóvember síðastliðinn.
„Ég valdi fyrsta lausa tím-
ann fyrir gangsetningu og hann
reyndist vera þennan dag, en ég
var komin 37 vikur á leið,“ segir
Anna og bætir því við að talan
11 hafi komið nokkrum sinnum
við sögu daginn sem strákarnir
hennar komu í heiminn.
„Sá fyrri var ellefta barnið
sem fæddist á Landspítalan-
um þennan dag. Hann fædd-
ist 15 mínútum fyrir 11 um
kvöldið en hinn um klukkan 11.
Þyngd beggja við fæðingu var
rétt tæpar 11 merkur. Þetta er
auðvitað svolítið sérstakt og
enn skemmtilegra er að þeir
eignuðust frænku sama dag.“
Snáðinn sem kom fyrr í heim-
inn átti fyrst í svolítilli baráttu,
að því er Anna greinir frá.
„Hann útskrifaðist af vökudeild
í gær og er í fínu lagi núna. Við
fáum öll að fara heim í dag.“
Að sögn Önnu vissi hún að
hún gekk með stráka og hún
hefur þess vegna, ásamt föður
þeirra, Jóni Ara Arasyni, haft
nægan tíma til þess að huga að
því hvaða nöfn eigi að gefa þeim.
„Þau verða samt ekki opinberuð
fyrr en þeir allra nánustu hafa
fengið að vita þau.“
- ibs
Talan 11 kom nokkrum sinnum við sögu við fæðingu tvíbura á Landspítalanum:
Komu í heiminn 11.11.11 um
11-leytið og voru 11 merkur
TVÍBURARNIR Snáðarnir, sem eru fyrstu börn foreldra sinna, fá að fara heim af Landspítalanum í dag. FRÉTTABLAÐIÐ STEFÁN
BARNAVERND Sérfræðingur á
vegum Barnaverndarstofu er kall-
aður út oft í viku, um kvöld, nætur
og helgar til að sinna börnum sem
hafa orðið vitni að heimilisofbeldi.
Félagsráðgjafi sem sinnir verk-
efninu segir brýnt að sérfræðing-
ar sinni börnunum sem fyrst eftir
að atvikin eigi sér stað.
Mikil umræða hefur staðið síð-
ustu misseri um stöðu barna sem
verða vitni að ofbeldi, en úrræðum
og þjónustu þeim til handa hefur
þótt ábótavant. Nýlegar úttekt-
ir hafa gefið til kynna að hundr-
uð barna búi við slíkar aðstæður.
Þá hefur samráð þeirra sem sjá
um málaflokkinn ekki verið talið
nægjanlegt.
Þessi umræða varð til þess að
Barnaverndarstofa fór út í tíma-
bundið tilraunaverkefni með
barnaverndarnefndum og lögregl-
unni á höfuðborgarsvæðinu til að
auka þjónustu í málum barna og
unglinga sem hafa orðið vitni að
ofbeldi milli foreldra.
Ragna B. Guðbrandsdóttir
félagsráðgjafi hefur umsjón með
verkefninu, en í því felst að ef lög-
regla er kölluð til vegna ofbeldis
inni á heimilum þar sem börn eru
viðstödd eru sérfræðingar kallaðir
til.
„Það miðar eingöngu að því
að sinna börnunum, meta hvaða
áhrif atvikið hafði á þau, komast
að því hvort um endurtekin tilvik
sé að ræða og meta þörfina fyrir
áframhaldandi stuðning og með-
ferð. Börnin halda oft að ástandið
sé á einhvern hátt þeim að kenna,“
segir Ragna.
Spurð um fjölda tilvika segir
Ragna að um nokkur tilfelli sé að
ræða á viku, sem sé í samræmi við
það sem búist hafi verið við.
Verkefnið stendur til 15. mars
næstkomandi og segir Ragna að þá
muni Barnaverndarstofa ákveða
hvort framhald verði þar á. - þj
Mörg útköll á viku þar
sem börn sjá ofbeldi
Tilraunaverkefni Barnaverndarstofu, barnaverndarnefnda og lögreglu miðar
að því að sinna börnum sem hafa horft upp á heimilisofbeldi. Nokkur tilfelli á
viku þar sem lögregla kallar sérfræðinga til. Framhaldið ræðst í mars 2012.
Hjálpartæki fyrir fjölskyldur
Guðmundur Finnbogason sameinar
fjölskyldur landsins í eldhúsinu með
matreiðslubók fyrir krakka.
allt 3
Með skákina í blóðinu
Hinn 18 ára Hjörvar Steinn
Grétarsson gæti orðið næsti
stórmeistari Íslands.
Fólk 46
Gjöfult starf
Hitt húsið er 20 ára.
Tímamót 30
HÆGUR VINDUR af austri ríkjandi
á landinu í dag. Víða skýjað með
köflum og yfirleitt úrkomulítið en
fer að rigna SA-til í kvöld. Hiti á
bilinu 3-8 stig.
VEÐUR 4
6
7
8
5
3
SAMFÉLAGSMÁL Amal Tamimi
varaþingmaður myndi vilja að
sérstök stofnun eða umboðsmað-
ur hefði málefni innflytjenda hér
á landi á sinni
könnu. Þetta
kemur fram í
viðtali við hana
í dag.
Hún segir
mikla þörf á
bæði íslensku-
kennslu og
túlkaþjónustu.
Þá sé ekki síður
mikilvægt
að fólk fái upplýsingar á einum
stað og fræðslu um samfélagið.
Útlendingar sem búsettir hafi
verið hér í mörg ár viti ekki
hvar Alþingi sé til húsa eða hvað
tónlistarhúsið Harpa sé.
„Með því að fólk þekki sam-
félagið erum við líka að minnka
fordóma. Þetta er ekki greiði við
útlendinga, þetta er spurning um
að byggja okkar samfélag.“
- þeb / sjá síðu 16
Amal Tamimi á þingi:
Stofnun fyrir
innflytjendur
TÆKNI Vírusvarnir sem í boði eru
fyrir snjallsíma gera lítið sem
ekkert gagn samkvæmt nýrri
rannsókn sem vitnað er til í Vírn-
um, fréttabréfi sem ráðgjafar-
fyrirtækið Deloitte gefur út.
Hægt er að fá ókeypis vírus-
varnir fyrir farsíma sem nota
Android-stýrikerfið en þær gera
lítið til að verja símann. Þær geta
raunar gert ógagn þar sem þær
kunna að skapa falskt öryggi hjá
símnotendum.
Notendur snjallsíma ættu
að hafa varann á, rétt eins og
notendur annarra nettengdra
tölva. Þegar forritum er hlaðið
niður í símana þarf að opna fyrir
aðgengi þeirra. Notendur ættu
sérstaklega að varast öll forrit
sem vilja fá heimild til að senda
SMS, hringja símtöl eða komast
í símaskrá. - bj
Lélegar vírusvarnir fyrir síma:
Geta skapað
falskt öryggi
AMAL TAMIMI
Áfram á toppnum
Fram hélt toppsætinu
í N1-deild karla með
dramatískum sigri á FH.
sport 52