Fréttablaðið - 18.11.2011, Blaðsíða 68
18. nóvember 2011 FÖSTUDAGUR48
7. SÆTI Josh Charles
6. SÆTI Tim McGraw
8. SÆTI Joel McHale 9. SÆTI Jason Momoa
10. SÆTI Ryan Gosling
1. SÆTI Bradley Cooper 2. SÆTI Liam Hemsworth 3. SÆTI Idris Elba 4. SÆTI Justin Theroux 5. SÆTI Chris Evans
Bandaríska tímaritið People hefur valið tíu kynþokkafyllstu karlmenn í heimi en kapp-
arnir eiga það sameiginlegt að vera úr leikarabransanum. Það vekur athygli að hvorki
Johnny Depp né Brad Pitt er að finna á listanum en þeir hafa átt fast sæti á listum á borð
við þennan síðustu ár. Nokkur ný og óþekkt nöfn eru á listanum en leikarinn Bradley
Cooper trónir á toppnum.
BRADLEY COOPER KYN-
ÞOKKAFYLLSTUR Í HEIMI
„Er verið að gera at í mér?“ spurði hinn
36 ára leikari þegar hann fékk að vita
að hann hefði verið kjörinn kynþokka-
fyllsti leikari í heimi. Hann hefur
meðal annars leikið í Hangover 1 og 2.
Breski leikarinn, sem er þekktur fyrir
leik sinn í þáttaröðinni The Wire, var
tilnefndur til Emmy-verðlauna fyrir
BBC-sjónvarpsþáttinn Luther og sló
svo í gegn á hvíta tjaldinu í myndinni
Thor.
Nafn hans hefur heldur betur verið títt
nefnt í slúðurmiðlum eftir að hann
byrjaði með Jennifer Aniston á þessu
ári en leikarinn hefur meðal annars
leikið í Iron Man 2 og Tropic Thunder.
Kántrísöngvarinn og leikarinn Tm
McGraw er greinilega vinsæll hjá
Bandaríkjamönnum.
Charles hefur slegið í
gegn vestanhafs fyrir
leik sinn í sjónvarps-
þáttaröðinni The
Good Wife.
Leikari og grínisti sem er vinsæll núna
í þáttaröðinni The Community.
Fyrirsæta og seinna leikari sem er
giftur leikkonunni Lisu Bonet og þar
með stjúpfaðir Zoe Kravitz. Hefur bæði
leikið í Game of Thrones og myndinni
Conan the Barbarian.
Gosling hefur heldur betur verið í
sviðsljósinu á þessu ári. Hann leikur
í myndunum Drive, Ides of March
og Crazy, Stupid, Love sem allar hafa
slegið í gegn. Ýmsir hafa gagnrýnt að
Gosling sé ekki hærra á listanum en
sitt sýnist hverjum og hann verður að
láta sér lynda tíunda sætið þetta árið.
Blásið var til frumsýningar á tónleika-
mynd Páls Óskars og Sinfóníuhljómsveitar
Íslands í Smárabíói á miðvikdag en geisla-
og mynddiskar með tónleikum söngvarans
og hljómsveitarinnar verða væntanlega í
fjölmörgum jólapökkum þetta árið. Tón-
leikarnir þóttu einstaklega vel heppnaðir
og áhorfendur í Eldborgarsal Hörpu fengu
sitthvað fyrir sinn snúð. Þeir geta nú end-
urupplifað þessa lífsreynslu sína og hinir
fjölmörgu aðdáendur Páls sem ekki kom-
ust í þetta skiptið geta bætt sér upp miss-
inn með því kyrja Gordjöss og Allt fyrir
ástina heima í stofu um jólin.
Páll Óskar frumsýndi
tónlistarmyndina
Þórir Baldursson með þær Guðrúnu Pálsdóttur
og Moniku Abendroth upp á arminn en samstarf
Moniku og Páls fær að njóta sín í tónleikamyndinni.
Bergrún Íris Sævarsdóttir og Elísabet Ólafsdóttir
voru meðal gesta.Páll með þeim Guðlaugu Elísabetu Ólafsdóttur og Kristjönu Stefánsdóttur.
Þessi ungi ástralski leikari hefur
tekið Hollywood með trompi ásamt
bróður sínum Chris,
og ekki skemmir
fyrir að kappinn
er með ung-
lingastjörnunni
Miley Cyrus.
Hann leikur í
myndinni The
Hunger Game
sem verður
frumsýnd á
næsta ári.
Þessi þrítugi
leikari vakti
athygli fyrir
frammistöðu
sína í myndinni
Captain America.