Fréttablaðið - 18.11.2011, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 18.11.2011, Blaðsíða 66
18. nóvember 2011 FÖSTUDAGUR46 krakkar@frettabladid.is Krakkasíðan er í helgarblaði Fréttablaðsins Ævar vísindamaður leiðir krakka í gegnum æsispennandi tilraun „Ég var að spila fyrir norðan í vor og þá kom sægur af fólki og kvartaði undan því að það kæmist aldrei á Þorláksmessutónleikana mína, það gæti aldrei farið suður á þessum árstíma því það væri svo erf- itt. Þannig að ég settist yfir dæmið og velti því fyrir mér hvort og hvernig ég gæti komið til móts við þetta fólk. Og komst að þeirri niðurstöðu að ég gæti haldið Þorláksmessutónleikana tveimur dögum fyrr fyrir norðan,“ segir Bubbi Morthens. Árlegir Þorláksmessutónleikar hans eru fastur liður í jólahaldi margra og þeir verða á sínum stað í Háskólabíói hinn 23. desember. Bubbi ætlar hins vegar að halda ámóta tónleika í menningarhúsi Norðlendinga, Hofi, hinn 21. desember. „Þeir verða í sama formi og það verður svipuð uppröðun laga,“ segir hann og vonast til að sem flestir íbúar Norður- lands láti sjá sig. Hins vegar runnu á Bubba tvær grímur þegar rifjað var upp ársgamalt viðtal við hann, en þar sagðist hann einmitt vera orðinn svolít- ið lúinn á aðfangadag þegar öllu tónleikahaldi væri lokið. „Ég reyni yfirleitt að leggja mig með börn- unum í klukkutíma,“ sagði hann fyrir ári. „Ég var eiginlega búinn að gleyma öllu þessu stússi en þetta verður allt í lagi, ég er í góðu formi, reima á mig hanskana á hverjum morgni og kýli og líkaminn og hjartað virðast vera í lagi,“ segir Bubbi í dag. Tónlistarmaðurinn virðist í feiknaformi, hann gefur út veiðibók fyrir jólin og er á leiðinni í hljóðver eftir tíu daga til að taka upp nýja plötu. Hann kýs að lýsa sjálfum sér sem duglegum, ekki ofvirkum. „Þetta verður svona týpísk Bubbaplata, ballöður og mikið gítarspil.“ - fgg Hinn 18 ára Hjörvar Stein vantar aðeins einn áfanga til að verða næsti stórmeist- ari Íslendinga í skák. Hann segir að lífið snúist ekki bara um skákina og stundar félagslífið af krafti. Hjörvar Steinn Grétarsson er 18 ára Verzlingur, fótboltaunn- andi og mögulega næsti stór- meistari Íslands í skák. Hann er nýkominn heim frá Grikklandi þar sem hann tók þátt í Evr- ópumótinu í skák með íslenska skáklandsliðinu. Þar tefldi hann glæsilega og tryggði sér tvo stórmeistaraáfanga – sem þýðir að hann vantar aðeins einn upp á til að verða fjórtándi Íslending- urinn til að hampa þessum eftir- sóknaverða titli. „Ég byrjaði að tefla þegar ég var sex ára. Ég var í Rimaskóla þar sem alltaf hefur verið mikið teflt, þannig að það var áhuginn í skólanum á skák sem dreif mig áfram. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á stærðfræði þannig að þetta átti vel við mig. Mér fannst þetta strax frábært, það varð ein- hver tenging þarna.“ Það kom fljótt í ljós að Hjörvar var á heimavelli í skákinni. Hann varð Íslandsmeistari barna níu ára gamall og hlaut titilinn Skák- meistari Reykjavíkur aðeins fimmtán ára. „Það var hrika- lega gaman. Upp úr því fór ég að setja mér markmið. Ég ákvað að reyna að komast í landsliðið og það gekk eftir á síðasta ári. Svo var ég búinn að ákveða að reyna að verða stórmeistari án þess að setja mér sérstök tímamörk á það. Ég vissi bara að ef ég myndi halda áfram myndi það koma á endanum, mér finnst þetta það gaman og þegar maður er áhugasamur tekur maður alltaf framförum.“ Þótt Hjörvar hafi ekki sett sér tímamörk er ekki hægt að líta framhjá því að hann er yngsti Íslendingurinn sem náð hefur stórmeistaraáfanga, en heiðrinum deilir hann með Hannesi Hlífari Stefánssyni. Aldur Hjörvars og frábær frammistaða vakti líka athygli á mótinu í Grikklandi þar sem hann gegndi lykilhlutverki í landsliðinu. Hann hóf mótið á að sigra einn sterkasta skákmann heims, Alexei Shirov og tefldi svo tvær skákir á fyrsta borði, en yngri skákmaður hafði ekki gert það í 59 ár. Hjörvar lauk svo mótinu með því að tryggja sér tvöfaldan stórmeistaraáfanga, og var árangur hans stór þáttur í því að Íslendingarnir urðu óopinberir Norðurlandameistarar. Hjörvar lætur velgengnina ekki stíga sér til höfuðs og þver- tekur fyrir það að lífið snú- ist bara um skákina. Hann er á þriðja ári í Verzlunarskólanum og gefur sér tíma til að stunda námið og félagslífið af krafti. Hann hlær að spurningu blaða- manns um hvort hann upplifi sig sem skákrokkstjörnu á göngum skólans, en segir þó að flestir viti eitthvað af afrekum hans í skák- heiminum. „Sumir halda náttúru- lega að ég eigi mér ekki líf út af þessu en það er alls ekki þannig. Það gefst tími fyrir allt ef maður skipuleggur sig nógu vel. Ég elska til dæmis fótbolta og gef mér alltaf tíma fyrir hann.“ Spurður hvort vinir og jafn- aldrar hans skilji skákáhugann segir hann það ekki algilt. „Bestu vinir mínir hafa verið það lengi í kringum mig að þeir skilja þetta. En það eru alltaf einhverjir sem finnst óskiljan- legt að ég nenni þessu eða finn- ist þetta gaman. Það truflar mig ekkert, ég hef lengi hugsað að ég haldi áfram þangað til ég hætti að hafa gaman af því að tefla. Það er engin ástæða til að halda áfram í einhverju sem maður hefur ekki ánægju af, hvort sem maður er góður eða ekki.“ Hjörvar er ekki nærri hættur enn, því nú finnst honum gaman. Hann ætlar að halda áfram að undirbúa sig fyrir næstu mót sem færa hann enn nær áfanganum. „Nú þarf ég að passa mig að staðna ekki, það er mjög algengt á þessum tíma. Það er lokaspretturinn sem reynist erfiðastur, en það er gott að gera þetta á meðan maður er ungur.“ bergthora@frettabladid.is Sumir halda náttúrulega að ég eigi mér ekki líf út af þessu en það er alls ekki þannig. Það gefst tími fyrir allt ef maður skipuleggur sig nógu vel. Ég elska til dæmis fótbolta og gef mér alltaf tíma fyrir hann. HJÖRVAR STEINN GRÉTARSSON SKÁKMAÐUR MEÐ SKÁKINA Í BLÓÐINU EFNILEGASTI SKÁKMAÐURINN Hjörvar Steinn Grétarsson er Íslandsmeistari í atskák og efnilegasti skákmaður Íslands. Eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir skömmu hefur síbreytileg óléttubumba Beyoncé Knowles vakið spurningar. Knowles kom til að mynda fram í þætti Jimmy Fallon á dögunum með sléttan maga, en það var útskýrt þannig að flutningurinn hafi verið tekinn upp fyrir þrem- ur mánuðum. Það þótti skrýtið vegna þess að þátturinn er í beinni útsendingu. Hún var svo mynduð í Miami á dögunum með myndarlega bumbu sem hún huldi með þunnum sloppi. Samvkæmt safaríkasta slúðr- inu vestanhafs á Knowles að hafa fengið staðgöngumóður til að ganga með barnið til að hlífa líkama sínum. Hún neitar því. Bumban snýr aftur ÓLÉTT EÐA EKKI? Beyoncé Knowles var mynduð með stóra óléttubumbu í Miami í vikunni. George Clooney hrósaði nýverið kærustu sinni, glímukonunni Stacy Keibler, í hástert í blaða- viðtali og sagði hana óvenju sterka. „Hún er mjög hávaxin og hún gæti lamið mig í klessu ef til þess kæmi. Hún gæti líklega gert út af við mig í þremur höggum. En hún er líka ofsalega ljúf og yndisleg,“ sagði leikarinn um kærustu sína. Keibler komst í sviðsljósið árið 1999 þegar hún stundaði fjöl- bragðaglímu undir nöfnunum Miss Hancock og The Duchess of Dudleyville. Með þennan starfs- feril er ekki ólíklegt að Clooney hafi rétt fyrir sér. Kærastan sterkari STERK KÆRASTA George Clooney segir kærustu sína, Stacy Keibler, mun sterkari en hann. NORDICPHOTOS/GETTY Breska leikkonan Keira Knightley fór varla út úr húsi þegar hún lék í myndunum Pirates of the Carib- bean. Hún er mjög ánægð með að frægð hennar hafi dvínað síðan þá. „Þegar Pirates-myndirn- ar voru að koma út gekk ég í gegnum brjálað tímabil þar sem mjög erfitt var að framkvæma einföldustu hluti. „Það voru um tutt- ugu náungar sem biðu fyrir utan dyrnar hjá mér og þess vegna var mjög erfitt fyrir mig að kaupa í mat- inn. Ég fór ekki út úr húsi,“ sagði hún við Mirror. „Síðan þá hef ég leikið í öðru- vísi myndum og lífið er orðið auðveldara.“ Frægðin hélt Keiru heima Rihanna og Usher stíga á svið þegar tilkynnt verður um tilnefn- ingar til bandarísku Grammy- verðlaunanna 30. nóvember. Aðrir sem koma fram verða Ludacris og Lupe Fiasco, Sugarland, Jason Aldean og Lady Gaga. Kynnir verður rapparinn LL Cool J. Grammy-verðlaunahátíðin sjálf verður haldin í 54. sinn í febrúar á næsta ári í Staples Centre í Los Angeles. Lady Gaga stal senunni á síðustu hátíð þegar hún var borin inn á svæðið í eggi. Á sviðinu söng hún síðan lagið Born This Way. Rihanna stígur á svið STÍGUR Á SVIÐ Söngkonan Rihanna stígur á svið á Grammy-verðlauna- hátíðinni 30. nóvember. Bubbi syngur inn jólin á Akureyri NORÐUR FYRIR JÓLIN Bubbi Morthens heldur Þorláksmessu- tónleika fyrir norðan hinn 21. desember. Þeir verða með sama sniði og sömu uppröðun og hinir eiginlegu Þorláksmessu- tónleikar í Háskólabíói. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.