Fréttablaðið - 18.11.2011, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 18.11.2011, Blaðsíða 10
18. nóvember 2011 FÖSTUDAGUR10 MIÐENGI AUGLÝSIR TIL SÖLU BYGGINGARLÓÐIR Eskivellir 13 Hafnarfirði lóð fyrir 2645 fm fjölbýli Skipalón 1-3 Hafnarfirði lóð fyrir 3813 fm fjölbýli Skipalón 7-9 Hafnarfirði lóð fyrir 3840 fm fjölbýli Síðasti frestur til að skila inn tilboði er miðvikudaginn 30. nóvember 2011, kl. 14.00 Allar nánari upplýsingar um eignirnar ásamt tilboðsformi er að finna á vef Miðengis undir slóðinni www.mengi.is Sími 527 3060 • Lækjargötu 12 • 155 Reykjavík • mengi@mengi.is Sími 527 3060 • Lækjargötu 12 • 155 Reykjavík • mengi@mengi.is STOLTIR AF STÓRHÝSINU Þessi himna- turn í Tókýó, Tokyo Sky Tree, telst nú hæsta bygging veraldar, eins og fram kemur á vottorði frá Heimsmetabók Guinness sem eigendurnir sýna stoltir. NORDICPHOTOS/AFP ALÞINGI Nokkrum sinnum í sögu Alþingis hafa þingmenn rokið úr sal í þeim tilgangi að gera atkvæðagreiðslu ólögmæta, eins og stjórnarandstaðan gerði á miðvikudaginn. „Þetta er herbragð sem hefur verið reynt nokkrum sinnum og lukkast stundum sem skammtíma- sigur en er ekki algengt hérna,“ segir Helgi Bernódusson, skrif- stofustjóri Alþingis. Til að Alþingi sé ályktunarbært og geti þar með greitt atkvæði með lögmætum hætti þarf helmingur þingheims, eða 32 þingmenn, að vera viðstaddur og taka þátt, jafn- vel þótt þingmenn ákveði að sitja hjá. „Alla jafna eru ríkisstjórnir með meirihluta og ef þær tryggja viðveru sinna þingmanna dugir það til að ekki sé hægt að gera þingfund óályktunarbæran,“ segir Helgi. Það brást þó á miðvikudag, þegar greiða átti atkvæði um hvort halda skyldi kvöldfund og stjórnarandstöðuþingmenn yfir- gáfu salinn. Of fáir stjórnarþing- menn voru þá í salnum til að hægt væri að afgreiða málið. „Það er ekki góður bragur að þessu því að það er mjög ákveð- ið þingskapaákvæði um að þing- mönnum sé skylt að vera viðstadd- ir atkvæðagreiðslu nema lögmæt forföll séu,“ segir Helgi. „Þetta er því skýlaust brot á þingsköpum.“ stigur@frettabladid.is Skýlaust brot á þingsköpum að yfirgefa atkvæðagreiðslu Atvikið á þingi á miðvikudag, þegar stjórnarandstaðan rauk á dyr til að spilla atkvæðagreiðslu, á sér nokkur fordæmi. Skrifstofustjóri Alþingis segir ekki góðan brag að slíkri hegðun, hún sé skýlaust brot á þingsköpum. Helgi Bernódusson rifjar upp nokkur dæmi um það að þingmenn hafi gengið úr sal til að setja atkvæða- greiðslu í uppnám: ■ Vorið 1979 strunsuðu þingmenn Alþýðuflokksins úr sal og sjálf- stæðismenn á eftir þeim í miðri atkvæðagreiðslu um verðlagsmál landbúnaðarins. Hvatamaðurinn að uppreisninni var Sighvatur Björgvinsson, manna ósáttastur við frumvarpið sem kvað á um milljarðaútgjöld úr ríkissjóði til bænda. Þetta leiddi til þess að þingið varð ekki ályktunarbært og því tókst ekki að hafa lögmæta atkvæðagreiðslu um frumvarpið að sinni. ■ Nokkrir þingmenn Sjálfstæðis- flokks og Alþýðuflokks yfir- gáfu fund efri deildar þingsins í desember 1981 þegar þeim ofbauð ósvífni þingflokksfor- manns Alþýðubandalagsins, Ólafs Ragnars Grímssonar, eins og sjálfstæðismaðurinn Eyjólfur Konráð Jónsson komst að orði. Þeir höfðu gert samkomulag við þingforsetann Helga Seljan um að afgreiða frumvarp til nefndar gegn loforði um að fá að koma athugasemdum á framfæri við ráðherra við næstu umræðu. Þegar Ólafur Ragnar steig síðan í pontu og sakaði Alþýðuflokks- manninn Kjartan Jóhannsson um að mæta stopult á nefndarfundi var þingmönnum Sjálfstæðis- og Alþýðuflokks nóg boðið, þeir riftu samkomulaginu og gengu úr sal. Þá var ekki hægt að ljúka atkvæða- greiðslunni. ■ Þingmenn stjórnarandstöðunnar, Alþýðubandalags, Alþýðuflokks, Kvennalista og Þjóðvaka, reyndu árið 1996 að koma í veg fyrir að umdeilt frumvarp Páls Péturssonar um stéttarfélög og vinnudeilur kæmist áfram til nefndar. Allir gengu þeir úr sal, nema Ögmund- ur Jónasson, sem sat sem fastast og greiddi atkvæði gegn málinu. Tilraunin mistókst hins vegar því málinu var komið til nefndar með 32 atkvæðum stjórnarliða. Þingmönnum ofbauð ósvífni Ólafs Ragnars ÖRYGGISMÁL Slökkviliðsmenn hafa farið í útköll þar sem fólk hefur látist í brunum í heimahúsum af þeirri ástæðu einni að ekki var reykskynjari til staðar. Tveir lét- ust í eldsvoðum í fyrra og eigna- tjón nam 1,7 milljörðum króna. Þetta kemur fram í tilkynningu Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS), sem gengst þessa dagana fyrir átaki um að fræða fólk um eldvarnir og mikilvægi þeirra. Munu slökkvi- liðsmenn heimsækja yfir 4.000 átta ára börn til að fræða þau og fjölskyldur þeirra um eldvarnir. Íslensk heimili eru mörg hver vanbúin þegar kemur að eldvörnum. Yfir helmingur heimila er án reykskynjara, slökkvitækis eða eldvarnateppis. Um þriðjungur heimila er með engan eða aðeins einn reykskynjara. Bent er á að nú fer í hönd tími þegar eldhætta eykst á heimilum. Slökkviliðsmenn hvetja fólk því til að grípa til viðeigandi varúð- arráðstafana, en kannanir sýna að hægt gengur að bæta eldvarnir heimilanna þrátt fyrir fræðslu og hvatningu þar um. Átakið hefst í Fossvogsskóla í Reykjavík í dag en í kjölfarið fá allir grunnskólar í landinu heim- sókn frá sínu slökkviliði. - shá Fólk deyr vegna skorts á öryggistækjum og eignatjón er gríðarlegt vegna elds: Heimili berskjölduð fyrir eldi ÓÞARFI Margir missa aleiguna og jafnvel lífið þegar eldur kemur upp. VIÐSKIPTI Félag í eigu Ernu Gísla- dóttur, fyrrverandi forstjóra B&L, hefur keypt bifreiðaumboð- in Ingvar Helgason og B&L, sam- kvæmt tilkynningu. Umboðin fóru í þrot og komust þar með í eigu kröfuhafa; Mið- engis, sem er dótturfélag Íslands- banka, auk SP Fjármögnunar og Lýsingar. Þau voru færð undir félagið BLIH ehf. af kröfuhöfum. Það félag var sett í opið söluferli sem nú hefur verið leitt til lykta. Fimm lýstu áhuga á að kaupa félagið. Erna var forstjóri B&L til ársins 2008, en hafði þá starfað hjá félaginu í tvo áratugi. - bj Tvö bifreiðaumboð seld: Seld fyrrum forstjóra B&L UMBOÐ Bifreiðaumboðin tvö eru með umboð fyrir Hyundai, Nissan, Renault og fleiri bílategundir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SKÓLAR Fyrirtækið Skólamatur ehf. er hætt að krefjast þess að foreldrar sem kaupa máltíðir fyrir grunnskólabörnin greini frá því ef þeir eru í greiðsluaðlög- un. Skilyrðið var tekið út eftir að Persónuvernd fór að kanna málið. Í skýringum Skólamatar til Persónuverndar kemur fram að sú ályktun hafi verið dregin af samtali við starfsmann umboðs- manns skuldara að nauðsyn- legt væri að skrá hvort kaup- endur skólamáltíða væru í greiðsluaðlögun. Því hafi verið settur inn sérstakur texti um það fyrir þá sem keyptu matará- skrift á heimasíðu fyrirtækisins. Það var sagt tengjast því álita- máli hvort skólamáltíðir teldust til framfærslu sem fólk í greiðslu- aðlögun mætti greiða á meðan svonefndur „frestur“ varaði. Persónuvernd leitaði ti l umboðsmanns skuldara, sem sagði þetta misskilning. „Umboðsmaður skuldara hefur ekki beðið Skólamat ehf. um að safna persónuupplýsingum um þá sem eru í greiðsluaðlögun hjá embættinu,“ sagði umboðsmaður. Stuttu seinna hætti Skólamatur að krefjast upplýsinga um greiðsluaðlögun og Persónuvernd lét þá málið niður falla. Skólamatur ehf. annast meðal annars skólamáltíðir í Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og víða á Suðurnesjum. - gar Skólamatur ehf. vildi fá upplýst hvort forráðamenn væru í greiðsluaðlögun: Fallast á að hætta að spyrja for- eldra skólabarna út í fjármálin SKÓLAMÖTUNEYTI Fyrirtækið Skólamatur skráir ekki lengur hvort viðskiptavinir eru í greiðsluaðlögun. Myndin er úr Háteigsskóla, sem er ekki á starfssvæði Skólamatar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Stolið kort varð dýrkeypt Kona á fimmtugsaldri hefur verið dæmd í fimmtán mánaða fangelsi, þar af tólf á skilorði, fyrir að kaupa símainneign á tvö símanúmer með stolnu greiðslukorti. Konan keypti símainneignina fyrir sex þúsund krónur hjá NOVA. Hún gekkst greið- lega við broti sínu. Hún hefur hlotið sex refsidóma frá árinu 2007. Hún hlaut síðast dóm 14. maí 2010 fyrir tilraun til fjársvika, skjalafals, þjófnað, umferðarlaga- og fíkniefnabrot. DÓMSMÁL UMHVERFISMÁL Þingvallanefnd hyggst styrkja urriðarannsóknir í Þingvallavatni og Öxará um níu hundruð þúsund krónur. Jóhannes Sturlaugsson hjá Laxfiskum ehf. leiðir þessar rannsóknir, sem hafa verið stundaðar samfleytt frá árinu 1999. Á kynningu fyrir almenning við Öxará um miðjan október kom fram að hrygningarstofn urriðans væri í hámarki nú í haust og tífalt stærri en árið 1999, þegar hrygn- ingarstofninn mældist innan við eitt hundrað fiskar. - gar Þingvallanefnd veitir fjárstyrk: Tæp milljón í urriðarannsókn SIGHVATUR BJÖRGVINSSON ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON ÖGMUNDUR JÓNASSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.