Fréttablaðið - 18.11.2011, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 18.11.2011, Blaðsíða 12
18. nóvember 2011 FÖSTUDAGUR12 MÓTMÆLANDI Í LJÓSASTAUR Efst í ljósastaur í Sana, höfuðborg Jemen, mátti í gær sjá mótmælanda veifa fána landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/AP INDÓNESÍA, AP Heimsókn Baracks Obama Bandaríkjaforseta setur svip sinn á leiðtogafund tíu Suð- austur-Asíuríkja sem hófst á eyj- unni Balí í Indónesíu í gær. Obama hefur kynnt margvís- leg áform um sterkari ítök Banda- ríkjanna á Kyrrahafinu og allt til Asíu. Þau áform hafa mætt gagn- rýni, ekki síst frá Kínverjum, sem virðast telja þessi auknu umsvif beinast gegn sér. „Bandaríkin telja að heims- yfirráðum þeirra stafi nú vax- andi hætta frá Kína,“ segir í ritstjórnargrein frá Xinhua, hinni opinberu fréttastofu kínverskra stjórnvalda. „Þess vegna er þess- ari breyttu áherslu Bandaríkjanna, sem nú horfa til austurs, í reynd beint að því að halda Kína niðri og halda Kína í skefjum og vinna á móti þróun Kína.“ Í ræðu sem Obama hélt í Ástralíu, þar sem níu daga Asíuferð hans hófst á miðvikudag, sagði hann að Bandaríkin myndu á næstunni leggja mikla áherslu á að rækta tengsl sín við Kyrrahafs- og Asíu- ríki, ekki síst í varnarmálum. Fjár- hagslegur niðurskurður í Banda- ríkjunum myndi ekki draga neitt úr því. „Nú þegar flest kjarnorkuveldi heims og helmingur mannkyns eru í Asíu mun Asía að stórum hluta ráða því hvort öldin fram undan einkennist af átökum eða sam- vinnu, tilgangslausum þjáningum eða framförum mannkyns,“ sagði hann og lagði meðal annars áherslu á að efla samstarf við Kína. Á leiðtogafundi Suðaustur-Asíu- ríkjanna bar það annars til tíð- inda að tekin var ákvörðun um að Búrma yrði gestgjafi fundar- ins árið 2014. Þessi ákvörðun var tekin eftir að ljóst þótti að veru- legar lýðræðisumbætur væru að eiga sér stað í Búrma eftir að Sinn Thein tók við forsetaembætti þar í kjölfar hinna umdeildu kosninga fyrr á árinu. Stjórnvöld í Búrma hafa meðal annars látið fjölda stjórnarand- stæðinga lausa úr fangelsi og fyrir liggur að Lýðræðishreyfing- in, flokkur Aung San Suu Kyi, fái á ný skráningu sem löglegur flokkur og geti boðið fram til næstu kosn- inga. Þessi flokkur vann stórsigur í kosningum árið 1990 en herfor- ingjastjórnin þar vildi ekki við- urkenna sigurinn og hefur síðan barið niður alla stjórnarandstöðu í landinu, allt þar til nú á síðustu mánuðum. Meðal erfiðra viðfangsefna á leiðtogafundinum eru deilur um til- kall til nokkurra eyja í Suður-Kína- hafi og mörk landhelgi ríkjanna. gudsteinn@frettabladid.is Kínverjar gagnrýna Asíuáform Obama Níu daga Asíuferð Bandaríkjaforseta hefur ýtt við Kínverjum. Leiðtogar tíu Suðaustur-Asíuríkja ræða saman á Balí. Búrma kemur inn úr kuldanum. TAKA HÖNDUM SAMAN Leiðtogar Suðaustur-Asíuríkjanna á fundinum í Indónesíu. Thein Sein, hinn nýi leiðtogi Búrma, er lengst til hægri. NORDICPHOTOS/AFP DÓMSMÁL Kona, fyrrverandi bók- ari og gjaldkeri hjá fasteignasöl- unni Hraunhamri, hefur verið dæmd í sex mánaða skilorðs- bundið fangelsi fyrir stórfelldan fjárdrátt. Hún dró sér á árunum 2007 og 2008 fjármuni og önnur verðmæti frá félaginu, alls rúm- lega sex milljónir króna. Pen- ingunum varði hún í eigin þágu. Meðal annars greiddi hún seljanda fasteignar, sem hún hafði sjálf fest kaup á fyrir milligöngu Hraunhamars, þrjár milljónir króna af bankareikn- ingi fasteignasölunnar, sem greiðslu vegna afhendingar fast- eignarinnar. Konan hafði áður aðeins lagt tvær milljónir inn á reikning Hraunhamars. - jss Kona dæmd á skilorð: Dró sér rúmar sex milljónir STJÓRNSÝSLA Elín Jónsdóttir mun láta af störfum forstjóra Banka- sýslu ríkisins í dag, að því er fram kemur í tilkynningu frá Bankasýslunni. Hún sagði starfi sínu lausu í byrjun ágúst. Karl Finn- bogason, sér- fræðingur hjá Bankasýslunni, hefur verið skipaður staðgengill forstjóra. Hann mun gegna því hlutverki þar til nýr forstjóri verður ráð- inn. Starf forstjóra var auglýst laust til umsóknar fyrr í mán- uðinum, og rennur umsóknar- frestur út 27. nóvember. Bankasýslan er ríkisstofnun sem fer með eignarhlut ríkisins í fjármálastofnunum. - bj Breytingar hjá Bankasýslunni: Forstjóri ráðinn tímabundið ELÍN JÓNSDÓTTIR ORKUMÁL Landsvirkjun hyggst reisa eina eða tvær 45 metra háar vindmyllur við Búrfells virkjun á komandi ári í rannsóknar skyni. Gangi það eftir mun í fram haldinu rísa þar vindmyllugarður líkt og í nágrannalöndunum og gæti vindorka orðið stór hluti af orkuframleiðslu Íslend- inga, að mati Óla Grétars Blöndal Sveins- sonar, framkvæmdastjóra þróunarsviðs hjá Landsvirkjun. Óli Grétar sagði á haustfundi Landsvirkj- unar í vikunni að tilraunaverkefni með virkjun vindsins á Suðurlandsundirlendinu hefði gengið vel, en 60 metra hátt mastur var reist við Búrfellsvirkjun fyrr á þessu ári til að mæla vindorku á svæðinu. „Vindorka er sá óhefðbundni orkugjafi sem hefur náð bestri fótfestu og er í mest- um vexti í nágrannalöndum okkar,“ sagði Óli og bætti við að mikil tækifæri lægju í nýtingu vindorku hér á landi. „Helstu kostirnir eru að við búum á vindasömu landi og aðstæður eru betri en á flestum öðrum stöðum,“ sagði hann. „Nýtingartími hér er tvöfalt betri en heims- meðaltal, mikið landrými og aðstæður svipaðar og á hafi úti.“ Hægt er að taka niður bæði það mastur sem nú þegar hefur verið reist við Búrfells- virkjun og þær vindmyllur sem stendur til að reisa, þannig að um afturkræfar aðgerðir er að ræða. - sv Tilraunaverkefni Landsvirkjunar með vindorku hefur gengið vel: Reisir vindmyllur í rannsóknarskyni VINDMYLLUGARÐUR Ef áætlanir Landsvirkjunar ganga eftir mun vindmyllugarður rísa á Suðurlandi. NORDICPHOTOS/AFP STJÓRNSÝSLA Kona sem var laus- ráðin við Brekkubæjarskóla fær 1.655 þúsund króna í bætur, þar sem hún fékk ekki fastráðningu þegar starf var auglýst við skól- ann. Í kæru til menntamálaráðu- neytisins sagði konan að skóla- stjórinn hefði útilokað sig áður en ráðningarferlinu hefði verið lokið. Ráðuneytið úrskurðaði að ranglega hefði verið staðið að ráðningunni. Árni Múli Jónasson, bæjarstjóri á Akranesi, sagði að ákveðið hefði verið að una niðurstöðunni. - jhh Ekki fastráðinn á Akranesi: Kennari fær 1,6 milljónir í bætur REYKJAVÍKURBORG Efla á notkun almenningsbókasafna meðal yngstu grunnskólabarnanna í Reykjavík. Skóla- og frístundaráð borgarinnar vill að í því skyni verði útfært verkefni sem miði að því að kynna fyrir börnum á frístundaheimilum kosti almenn- ingsbókasafna í þeirra hverfi. „Verkefnið gangi út á að börn í frístund eignist bókasafnskort, nýti sér safnkost og læri hvern- ig auðveldlega megi komast á fæti eða í strætó að bókasafni í þeirra hverfi,“ segir í samþykkt skólaráðsins, sem vill sömuleið- is samstarf milli Borgarbóka- safns og frístundaheimila um að nýta bókakost bókasafnanna á frístundaheimilum. - gar Vilja efla bókalestur barna: Bókasöfn verði kynnt börnum Á BÓKASAFNI Borgin vill börn inn á bókasöfnin. DÓMSMÁL Tveir menn um tvítugt og átján ára stúlka hafa verið ákærð fyrir allmörg brot. Öðrum mann- inum og stúlkunni er meðal annars gefið að sök að hafa, ásamt tveimur öðrum, brotist inn í sund- laugina á Varmá í Mosfellsbæ og gert þarfir sínar í hana. Hinn maðurinn er ákærður fyrir að hafa stolið bíl, sett á hann stolin númer og ekið honum að verslun Ellingsen þar sem hann stal nær þriggja milljóna króna hjólhýsi, eftir að hengilás hafði verið sagaður sundur. Að því búnu hafi hann haldið á Hellu og síðan að Flúðum, ásamt félaga sínum, þar sem þeir voru handteknir í hýsinu. Bílþjófurinn meinti er jafnframt ákærður fyrir að stela tveimur öðrum bílum. Samtals eru þremenningarnir ákærðir fyrir níu þjófnaðarbrot og gripdeildir, þar sem þeir létu greipar sópa. Að auki er annar mannanna og stúlk- an ákærð fyrir að hafa brotið rúður í bíl í Bolungar- vík og síðan kveikt í honum þannig að hann gjör- eyðilagðist. Mosfellsbær gerir skaðabótakröfu upp á rúmlega 85 þúsund krónur og Samkaup gera skaðabóta- kröfu á hendur þremenningunum upp á rúmlega 211 þúsund krónur. Þá gerir Kaupfélag Vestur- Húnvetninga skaðabótakröfu sem nemur rúmlega 252 þúsund krónum og Skeljungur gerir kröfu upp á skaðabætur að upphæð rúmlega ellefu þúsund krónur. - jss Ákært fyrir að stela þriggja milljóna króna hjólhýsi og fleiri afbrot: Brutust inn og skitu í sundlaug FLÚÐIR Mennirnir voru handteknir í hjólhýsinu á Flúðum. MYND ÚR SAFNI.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.