Fréttablaðið - 18.11.2011, Síða 30
18. nóvember 2011 FÖSTUDAGUR30
timamot@frettabladid.is
Hjartans þakkir fyrir hlýhug og
samúðar kveðjur við andlát og útför
eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Margrétar Jakobsdóttur
Líndal
kennara.
Kristinn Gíslason
Jakob Líndal Kristinsson Kristín Gísladóttir
Halldóra Kristinsdóttir Þorkell Traustason
Gísli Kristinsson Bjarney Sigvaldadóttir
Jónína Vala Kristinsdóttir Gylfi Kristinsson
ömmubörn og langömmubörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigríður Gunnarsdóttir
úr Von, Reykási 47,
lést á Landspítalanum Fossvogi 11. nóvember.
Útför fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn
21. nóvember kl. 13.00.
Lilja Sigurðardóttir
Jón Gunnar Sigurðsson Cheryl Jonson
Viðar Marel Jóhannsson
Birgir Marel Jóhannsson
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar ástkæri
Vilhjálmur Grímsson
tæknifræðingur
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
12. nóvember. Hann verður jarðsunginn frá
Fella- og Hólakirkju 18. nóvember kl. 13.00.
Vigdís Pálsdóttir
Páll Vilhjálmsson Guðbjörg R. Guðmundsdóttir
Guðmundur Óskar, Vigdís Ingibjörg og Inga Þóra
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir
Vilhjálmur Theodór og Krista Sól
Garðar Vilhjálmsson Ásta Steinunn Eiríksdóttir
Berglind Glóð, Birgitta Björt og Bryndís Perla
Inga María Vilhjálmsdóttir Gestur Páll Reynisson
Anna Lilja og Vilhjálmur Reynir
Páll Þorsteinsson
systkini og tengdafólk
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Svanhildur
Snæbjarnardóttir
áður til heimilis Hellu, Hellissandi,
sem lést fimmtudaginn 10. nóvember, verður
jarðsungin frá Ingjaldshólskirkju laugardaginn
19. nóvember kl. 14.00.
Gunnar Már Kristófersson Auður Jónsdóttir
Steinunn J. Kristófersdóttir Lúðvík Lúðvíksson
Sigurjón Kristófersson Sigurlaug Hauksdóttir
Snæbjörn Kristófersson Kristín S. Karlsdóttir
Svanur K. Kristófersson Anna Bára Gunnarsdóttir
Þröstur Kristófersson Sigurbjörg E. Þráinsdóttir
Kristinn Valur Kristófersson Guðríður A. Ingólfsdóttir
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn.
72 MARGARET ATWOOD rithöfundur og ljóðskáld er 72 ára í dag.„Svörin sem fást í bókmenntunum eru undir spurningunum komin.“
Á þessum degi árið 1920 lést íslenski presturinn
og skáldið Matthías Jochumsson. Matthías
fæddist 11. nóvember árið 1835 á bænum
Skógum í austurhlíðum Þorskafjarðar undir
Vaðalfjöllum. Hann var sonur Jochums Magn-
ússonar bónda og Þóru Einarsdóttur, sem bæði
voru af merkum breiðfirskum ættum.
Tvítugur dvaldi Matthías vetrarlangt í Kaup-
mannahöfn og með styrk ættingja sinna gat
hann hafið nám í Latínuskólanum, 24 ára að
aldri. Skáldskaparhneigð Matthíasar birtist
snemma og blómstraði þegar hann settist á
skólabekk. Matthías var einnig prestur, meðal
annars á Odda á Rangárvöllum, en hann stund-
aði líka blaðamennsku og ritstýrði tímaritinu
Þjóðólfi á sjö ára tímabili. Eftir Matthías liggja
mörg ritverk og kvæði ásamt sjálfum þjóðsöng
Íslendinga, sem hann nefndi Lofsöng. Matthías
kvæntist þrisvar og eignaðist ellefu börn. Síðari
hluta ævi sinnar bjó hann á Sigurhæðum á
Akureyri. Húsið reisti hann sjálfur og í dag er þar
safn helgað minningu Matthíasar.
ÞETTA GERÐIST: 18. NÓVEMBER 1920
Matthías Jochumsson fellur frá
Í tilefni þess að tuttugu ár eru liðin í
dag frá stofnun Hins hússins verður
núverandi og fyrrverandi starfsmönn-
um hússins boðið til afmælisveislu milli
klukkan 16 og 18 í dag. Þeir starfsmenn
telja um 800 manns og má því búast
við að veislan verði hin fjölmennasta.
Markús H. Guðmundsson er forstöðu-
maður Hins hússins.
„Þetta er orðið mikill fjöldi sem hefur
starfað í Hinu húsinu í gegnum tíðina
þannig að það verður dagskrá á öllum
hæðum í dag með skemmtiatriðum og
tónlist þar sem ungmenni, gömul og ný,
koma fram og það verður kaka,“ segir
Markús. Hitt húsið hefur frá árinu 1991
hýst tómstundaaðstöðu fyrir ungt fólk
á aldrinum 16-25 ára, í fyrstu í gamla
skemmtistaðnum Þórskaffi en síðar
fluttist öll starfsemin í miðbæinn og
breyttist þá í allsherjar menningar- og
upplýsingamiðstöð fyrir ungt fólk.
„Ég held að fyrir ungmenni í Reykja-
vík skipti húsið miklu máli. Þeir eru
margir snertifletirnir sem húsið hefur
við ungt fólk og þótt við höldum því
ekki fram að við náum til allra er mikil
umferð ungs fólks hér. Yfir sumartím-
ann, þegar jafningafræðslan, götuleik-
húsið og önnur slík verkefni eru í gangi,
eru stundum 160 starfsmenn í húsinu,
en starfsmannatalan er breytileg, frá 25
starfsmönnum.“ Síðasta sumar sóttu um
400 ungmenni um jafningafræðsluna og
svipað var að segja með götuleikhúsið,
en 300 ungmenni sóttu um að komast
þar að. Markús segir gaman að geta
boðið upp á verkefni sem ungmenni hafi
svo mikinn áhuga á að taka þátt í.
„Við starfsmenn hússins njótum
mikils trausts hjá okkar yfirmönnum
og þannig höfum við fengið frjálsar
hendur til að breyta um áherslur milli
ára eftir því hvað er að gerast í þjóð-
félaginu. Í kringum 1995 var til dæmis
atvinnuleysi meðal ungs fólks og þá ein-
beittum við okkur að þeim málaflokki
og svo tók menningin yfir þegar þau
mál komust í betra lag. Nú hefur aftur
skapast þörf fyrir að koma að verkefn-
um tengdum atvinnumálum og við erum
til dæmis að keyra námskeið núna sem
heita Vítamín. Þar virkjum við ungt fólk
í samvinnu við Vinnumálastofnun.“
Markús segir Hitt húsið vera vöggu
menningar fyrir unga listamenn þar
sem margir stígi sín fyrstu skref.
„Hér er hægt að gera alls kyns til-
raunir í tónlist, dansi og öðru og þá
reynum við að veita ungmennum bæði
aðstoð og aðstöðu, en það er megin-
markmið hússins. Ólíkt því sem er í
félagsmiðstöðvunum fá ungmennin
hér lykil og gera við okkur samning.
Þannig hafa nokkur félög líka sína
aðstöðu hér og AA-fundir eru hér á
kvöldin og um helgar. Þá erum við
með heilmikla starfsemi fyrir fatlaða,
bæði klúbba og opið hús.“ Og þá er enn
margt eftir óupptalið.
„Auðvitað langar mann alltaf til
að gera meira en það öskrar á meira
fjármagn. Ég held að þetta snúist ekki
endilega um að húsnæði sé úti í öllum
hverfum heldur skiptir máli að ung-
lingar geti sótt í eitthvert fjármagn til
að geta æft tónlist eða dans eða sinna
sínum hugðarefnum.“
juliam@frettabladid.is
FYRRVERANDI OG NÚVERANDI STARFSMENN HINS HÚSSINS: Í TUTTUGU ÁRA AFMÆLI
Um 800 manna veisla haldin
BREYTILEGAR ÁHERSLUR „Við starfsmenn hússins njótum mikils trausts hjá okkar yfirmönnum
og þannig höfum við fengið frjálsar hendur til að breyta um áherslur milli ára eftir því hvað
er að gerast í þjóðfélaginu,“ segir Markús H. Guðmundsson, forstöðumaður Hins hússins.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Merkisatburðir
1897 Blaðamannafélag Íslands er stofnað.
1978 Rúmlega 900 meðlimir sértrúarsafnaðarins People’s
Temple í Jonestown í Gvæjana fremja fjöldasjálfsmorð.
1981 Áttunda hrina Kröfluelda hefst. Gosið stendur í fimm
daga.
1982 Vilmundur Gylfason gengur úr Alþýðuflokknum og stofnar
Bandalag jafnaðarmanna.
1993 Írska drengjahljómsveitin Boyzone er stofnuð.
2007 Námuverkamenn, 101 talsins, láta lífið í námuslysi í
Úkraínu.
Ítölsk dagskrá verður í
Háskóla Íslands í kvöld
í tilefni viku ítalskrar
tungu og menningar sem
haldin er víða um heim.
Með ítalskri viku er þess
minnst að 150 ár eru liðin
frá sameiningu Ítalíu.
Dagskráin ber yfir-
skriftina „ítölsk mósaík“
og hefst klukkan 18.30 í
stofu 101 í Lögbergi. Meðal
dagskrárliða er fyrirlestur
Maurizio Tani um listir og
stjórnmál Ítalíu, en Tani
er stundakennari í ítölsku
við Háskóla Íslands. Í
öðrum erindum er meðal
annars fjallað um ítalskar
skáldsögur og bókmenntir
Ítala. Að lokinni dagskrá
er boðið til umræðna og
léttra veitinga.
- jma
Ítölsk dagskrá
STÓRAFMÆLI SAMEININGAR Um þessar mundir eru 150 ár liðin frá
sameiningu Ítalíu.