Fréttablaðið - 18.11.2011, Page 60
18. nóvember 2011 FÖSTUDAGUR40
Við hringjum fljótlega í þig.
Söfnunarreikningur 546-26-6609, kt 660903-2590.
Símasöfnun Fjölskylduhjálpar Íslands hafin. 2500
börn búa hjá foreldrum sem neyðast reglulega til að
sækja sér mataraðstoð hjá Fjölskylduhjálp Íslands
sem leitar nú eftir stuðningi landsmanna.
HJÁLP Í NEYÐ Á HEIMASLÓÐUM
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 18. nóvember
➜ Tónleikar
17.30 Hellvar spilar á tónleikum í
verslun 12 Tóna við Skólavörðustíg.
Hljómsveitin hefur nýverið sent frá
sér geisladiskinn Stop That Noise. Allir
velkomnir.
20.00 Todmobile kemur fram í fyrsta
sinn í Hörpu, nánar tiltekið í hinni
glæsilegu Eldborg. Hljómsveitin mun
spila alla sína þekktustu slagara ásamt
lögum af nýrri plötu. Miðaverð er frá kr.
2.990 til 5.990.
20.00 Lay Low heldur útgáfutónleika í
Fríkirkjunni. Tilefnið er útgáfa plötunnar
Brostinn strengur. Tónleikarnir eru þeir
fyrstu í tónleikaferð söngkonunnar um
landið. Miðaverð er kr. 2.500.
20.00 Þórarinn Hjartarson segir og
syngur Lífsdagbók Páls Ólafssonar í sýn-
ingunni Lífsdagbók ástarskálds í Lands-
námssetrinu í Borgarnesi. Miðaverð er
kr. 2.500.
21.00 Slegið verður upp rokkveislu í
Valaskjálf á Egilsstöðum þar sem flutt
verða bestu lög The Beatles og The
Rolling Stones. Miðaverð er kr. 2.500.
21.00 Hljómsveitirnar Náttfari, Sudden
Weather Change og Nolo trylla lýðinn
á tónleikum á Bakkusi. Eftir miðnætti
tekur Dj Simon FKNHNDSM við og
spilar hressa tónlist.
21.30 Hljómsveitin Skuggamyndir frá
Býsans heldur tónleika á Café Haiti á
Geirsgötu 7. Hljómsveitin leikur balkan-
tónlist frá Tyrklandi, Grikklandi og Búlg-
aríu sem annáluð er fyrir dulúð, fjör og
brjálæði.
21.30 Hljómsveitirnar Shogun, Endless
Dark og Trust The Lies koma fram á tón-
leikum á Gauki á Stöng. Aðgangseyrir er
kr. 1.000.
22.00 Beggi Smári og Mood halda
tónleika á Café Rosenberg. Hljóm-
sveitina Mood skipa þeir Friðrik Geirdal
Júlíusson, Ingi S. Skúlason og Tómas
Jónsson.
22.00 Ingvar Grétarsson og Tómas
Tómasson halda tónleika á Obladí
Oblada á Frakkastíg 8. Aðgangseyrir er
kr. 1.000.
22.00 Jón
Jónsson
kemur
fram
á tón-
leikum
á Græna
Hattinum
á Akureyri.
Miðaverð er
kr. 2.000.
23.59 Mt
Eden treður
upp á Nasa. Dj
Joey D stýrir
tónlistinni
í byrjun
kvölds-
ins.
Hljóm-
sveitin
Sykur
tekur við af honum og gerir allt vitlaust
áður en Mt Eden stígur á svið. Miðaverð
er kr. 1.990 og er 20 ára aldurstakmark.
➜ Leiklist
19.00 Leikfélagið Silfurtunglið frum-
sýnir Saknað, frumsamið verk eftir Jón
Gunnar Þórðarson. Leikritið er sett
upp í Rýminu í samstarfi við Leikfélag
Akureyrar. Miðaverð er kr. 3.500.
20.00 Hin sprenghlægilega Hjóna-
bandssæla er sýnd í Gamla bíói. Miða-
verð er kr. 4.300.
20.00 Leiksýningin Alvöru menn er
sýnd í Austurbæ. Miðaverð er kr. 3.500.
20.00 Leikfélag Ölfuss sýnir Himnaríki
– geðklofinn gamanleik eftir Árna
Ibsen í leikstjórn Gunnars Björns Guð-
mundssonar í Versölum á Þorlákshöfn.
Miðaverð er kr. 2000. Sérstakur leikhús-
matseðill í Ráðhúskaffi í kvöld.
20.00 Leikritið Eftir lokin í leikstjórn
Stefáns Halls verður sýnt í Tjarnarbíói.
Miðaverð er kr. 3.200.
21.00 Stúdentaleikhúsið sýnir leikritið
Hreinn umfram allt í leikstjórn Þorsteins
Bachmann. Um er að ræða gamanleik
eftir Oscar Wilde. Almennt miðaverð er
kr. 1.500 en kr. 1.000 fyrir nema.
21.00 Dagbók Önnu Knúts – Helförin
mín er í senn drepfyndið uppistand og
einleikur. Sýningin er sýnd í Gaflara-
leikhúsinu í Hafnarfirði. Miðaverð er kr.
2.500.
➜ Opnanir
16.00
Magnús Jóns-
son leikari,
tón- og mynd-
listarmaður
opnar mál-
verkasýninguna
Hinir í Gallerí
Nútímalist,
Skólavörðustíg
3a. Opnunin
stendur til kl.
19 og eru allir
hjartanlega
velkomnir.
➜ Fundir
08.30 Vistbyggðarráð heldur fund í
fyrirlestrasal Listasafns Reykjavíkur í
Hafnarhúsinu við Tryggvagötu. Á fund-
inum verður fjallað um orkunýtnar
byggingar í vistvænu skipulagi. Hann
stendur til kl. 10. Fundarstjóri er Sigríður
Björk Jónsdóttir, framkvæmdastýra
Vistbyggðarráðs.
➜ Sýningarspjall
12.00 Pétur Thomsen ljósmyndari mun
segja gestum frá sinni sýn á verkum
Marcs Riboud. Nýlega var opnuð sýning
á verkum Ribouds á vegum Alliance
Française og Ljósmyndasafns Reykja-
víkur. Allir velkomnir.
➜ Uppákomur
14.00 Guðmundur Steinn Gunnarsson
og Páll Ivan Pálsson, meðlimir sam-
takanna S.L.Á.T.U.R., kynna nýja afurði
sína í tónleika- og upplestrarferð um
höfuðborgarsvæðið. Guðmundur Steinn
gaf nýlega út plötuna Horpma og Páll
Ivan bókina Music: a Thought Instigator.
Ferðin hefst í Bókasafni Seltjarnarness
kl. 14, næst koma þeir fram í Eymunds-
son í Suður-Kringlunni kl. 15, þar á eftir
í Bókasafni Kópavogs kl. 16 og enda í
Bókasafni Hafnarfjarðar kl. 17.
➜ Bókmenntir
17.00 Bókin
Angantýr eftir Elínu
Thorarensen er
loksins komin út.
Lesstofan mun fagna
útgáfu bókarinnar í
Þjóðmenningarhús-
inu við Hverfisgötu.
Boðið verður upp
á léttar veitingar og
að sjálfsögðu verður
bókin á sérstöku til-
boðsverði. Guðrún Helgadóttir rithöf-
undur mun lesa valda kafla úr bókinni.
Verið velkomin.
➜ Dansleikir
22.00 Hjómsveitin Spútnik ásamt
Telmu Ágústsdóttur spilar á dansleik á
skemmtistaðnum Spot í Kópavogi.
➜ Málþing
Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands
stendur fyrir málþingi í samstarfi við
rannsóknasetur og háskóla á Norður-
löndum og við Eystrasaltið. Viðfangsefni
málþingsins er að varpa ljósi á þær
leiðir sem þessi smáríki hafa valið til að
bregðast við áskorunum alþjóðasam-
félagsins á sviði efnahagsmála. Fram-
sögumenn eru Gylfi Zoëga, prófessor
við hagfræðideild HÍ og Baldur Þórhalls-
son, prófessor við stjórnmálafræðideild
HÍ. Málþingið stendur til kl. 17.30 og er
haldið í Norræna húsinu.
➜ Samkoma
17.00 Hollvinafélag í minningu Unu
Guðmundsdóttur í Sjólyst í Garði verður
stofnað í Gerðaskóla. Þar verður flutt
minningardagskrá um Unu, sem stund-
um var nefnd völva Suðurnesja. Allir eru
velkomnir og aðgangur er ókeypis.
➜ Fyrirlestrar
12.00 Sigurður Flosason heldur
erindi í hádegisfyrirlestraröð tónlistar-
deildar Listaháskóla Íslands í Sölvhóli.
Tónlistarmaðurinn spjallar um eigin
feril, reynslu og sýn á tónlist, kennslu
og önnur tengd mál. Allir velkomnir og
aðgangur er ókeypis.
➜ Tónlist
21.00 Dj Tooth & Ragga Sex þeyta
skífum á Barböru.
22.00 Dj KGB spilar velvalda tónlist á
Kaffibarnum.
22.00 Orri af X-977 mun spila bestu
rokktónlist sem völ er á fyrir gesti Bar
11.
23.00 Síðasta Kanilkvöld ársins fer
fram á Faktorý. Þar verður dansað eins
og enginn sé morgundagurinn. Meðal
þeirra sem stjórna tónlistinni eru Lím
Drím Tím syngjandi plötusnúðar, Atli
Kanill og Klebstoff. Aðgangur er ókeypis.
23.30 Dj Jónas stjórnar tónlistinni á
Vegamótum.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.
„Ég mæli með mánudagsbíói í Háskólabíói. Ég
ætla að fara í næstu viku, en þá verður Indiana
Jones-myndin Raiders of the Lost Ark sýnd. Ég
hlakka mikið til að sjá eina af uppáhaldsmyndum
barnæskunnar í fyrsta sinn á hvíta tjaldinu.“
Gott í bíó: Rebekka Jónsdóttir fatahönnuður
Uppáhaldið aftur í bíó
Todmobile er að gefa út sína
sjöundu plötu og heldur af
því tilefni útgáfutónleika í
Eldborgarsal Hörpunnar í
kvöld þar sem öllu verður
tjaldað til.
„Ég fullyrði það að þetta hlýtur
að vera einn af bestu hljómleika-
sölum í að minnsta kosti Evr-
ópu. Þetta er akkúrat umgjörðin
sem Todmobile kallar á,“ segir
gítarleikarinn og upptökustjór-
inn Þorvaldur Bjarni Þorvalds-
son um tónleikana í Eldborgar-
salnum í kvöld. Með í för verða
velflestir meðlimir og hjálpar-
kokkar Todmobile í gegnum tíð-
ina auk strengjasveitar og kórs.
Heimkynni Íslensku óperunnar
eru einmitt í Eldborgarsalnum
en Todmobile hélt lengi vel árlega
tónleika sína í Íslensku óperunni.
Má því segja að hljómsveitin
verði á heimavelli í kvöld.
Ferill Todmobile spannar 22
ár með vinsælum lögum á borð
við Brúðkaupslagið, Pöddulag-
ið, Stelpurokk og Stúlkan. Nýja
platan er sú sjöunda í röðinni og
nefnist einfaldlega 7 en fimm ár
eru liðin síðan sú síðasta, Ópus
6, kom út. Aðspurður segist Þor-
valdur Bjarni vera mjög ánægður
með gripinn „Ég tek alltaf mix-
þunglyndið og hlusta ekki á plöt-
una í eitt og hálft ár þegar ég er
búinn að klára hana en ég er bara
í mjög góðum fíling núna. Ég er
rosaspenntur fyrir að leyfa okkar
fólki að heyra nýju lögin.“
Eyþór Ingi Gunnlaugsson gekk
nýverið til liðs við Todmobile,
enda Eyþór Arnalds upptekinn
í stjórnmálastússi, og er Þor-
valdur Bjarni ánægður með liðs-
styrkinn. „Ég er ánægður og líka
stoltur af því að hér erum við
með einn albesta yngri söngv-
ara sem komið hefur fram síð-
ustu ár.“ Fyrstu tónleikar Eyþórs
Inga voru á Græna hattinum en
sá staður er í miklum metum
hjá Þorvaldi Bjarna og félögum.
„Eyþór var með Andreu í Rocky
Horror. Ég hringdi í hann og
spurði hvort hann gæti ekki hlust-
að á þetta í tvo daga og mætt.
Hann gerði það og gjörsamlega
vafði fólki um fingur sér.“
Tónlist Todmobile er samin
með tvo söngvara í huga og Þor-
valdi finnst Eyþór Ingi og Andr-
ea ná vel saman. „Það eru ein-
hverjir töfrar á milli þeirra sem
er frekar sjaldgæft. Þau njóta sín
svo vel á sviðinu og upphefja hvort
annað.“ freyr@frettabladid.is
Akkúrat rétta umgjörðin
TIL Í SLAGINN Öllu verður tjaldað til hjá Todmobile í Eldborgarsalnum í kvöld. Með í för verður kór og strengjasveit.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN