Morgunblaðið - 10.07.2010, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.07.2010, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 1 0. J Ú L Í 2 0 1 0  Stofnað 1913  159. tölublað  98. árgangur  GERÐI SAMNING VIÐ HAGKAUP UM FYLGIHLUTALÍNU SÝN ÓLAFAR NORDAL SÖFN Í SÓKN MALLA MAGAPÍNA OG KNÚTUR KVEF SUNNUDAGSMOGGINN VEIKYNDI VERÐA SICKNICE 37SIGRÚN Í GYÐJU 10 Hildur hannar veika bangsa sem eru ætlaðir fyrir veik börn Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is Hætt var við nauðungaruppboð á fasteign í Reykjavík í gærmorgun vegna réttaróvissu sem skapast hefur í kjölfar dóma Hæstaréttar um ólög- mæti gengistryggingar. Þegar fulltrúar sýslumanns mættu til upp- boðsins krafðist eigandi fasteignar- innar, sem er í vanskilum með geng- istryggt lán, að hætt yrði við uppboðið enda væri það ólögmætt. Eftir að hafa rætt málið um stund í einrúmi inni í bifreið ákváðu fulltrúar sýslumanns að hætta við uppboðið. Að sögn Þuríðar Árnadóttur, setts sýslumanns í Reykjavík, er þetta í fyrsta skipti sem uppboði er mótmælt á þessum forsendum. „Uppboðið var stöðvað vegna óvissu um hver van- skilin á láninu væru í raun í kjölfar dómsins.“ Það virðist því hvíla á herð- um skuldara að hreyfa við mótmælum við nauðungaruppboð svo réttaróviss- an sé mögulega tekin til athugunar. Óvíst er hvaða áhrif þessi ákvörðun hefur á önnur nauðungaruppboð en Þuríður útilokar ekki að sambærileg staða geti komið upp. „Þetta var nið- urstaðan í þessu máli. Málin eru svo margvísleg og ólík og svo er ekki allt- af hreyft við mótmælum. En sam- bærilegt mál gæti vissulega komið upp.“ Þegar hætt er við aðfarargerð á borð við nauðungaruppboð, hefur gerðarbeiðandi þann möguleika að skjóta ákvörðun sýslumanns til dóm- stóla. Lögmaður gerðarbeiðanda, sem í þessu tilviki var Frjálsi fjárfest- ingabankinn, lýsti því yfir að það yrði gert. Uppboð sveipuð óvissu  Sýslumaður hætti við nauðungaruppboð þegar eigandi krafðist þess í ljósi dóma  Ekki útilokað að sambærileg staða geti komið upp í framhaldi þessa máls Mikið um uppboð » Í lok júní voru skráðar 968 nauðungarsölubeiðnir á fast- eignum hjá sýslumanninum í Reykjavík. 127 fasteignir höfðu verið boðnar upp. » Frá og með gærdeginum var hlé gert á nauðungarupp- boðum fram í byrjun ágúst. Unga stúlkan virtist kunna vel við ómþýða tóna Snorra Helgasonar þar sem hún sat í makindum í regnbogarólu sem strengd er upp í Nikita- garðinum. Slæðingur af fólki var í garðinum þar sem menn á hjólabrettum sýndu listir sínar á meðan tónlistin var flutt. Regnbogarólan þægileg á rólegum hljómleikum Morgunblaðið/Eggert  Jón Ásgeir Jó- hannesson hefur samkvæmt heim- ildum Morgun- blaðsins greitt þrotabúi Glitnis 15 milljónir doll- ara, jafnvirði 1,9 milljarða króna. Samkvæmt sömu heimildum verð- ur listi yfir eignir Jóns Ásgeirs gerður opinber. Í gær hafnaði breskur dómstóll kröfu Jóns Ásgeirs um að kyrrsetn- ingu á öllum eignum hans víða um heim yrði hnekkt. Formaður slita- stjórnar Glitnis sagðist í vitnisburði sínum telja að Jón Ásgeir væri enn auðugur maður. »22 Greiddi þrotabúinu 15 milljónir dollara Jón Ásgeir Jóhannesson  Af sjónvarpsauglýsingum versl- ananna 10-11, Hagkaupa, Bónuss, Útilífs og Debenhams, sem allar eru í eigu Haga, birtust 95 af hundraði á sjónvarpsstöðvum í eigu 365 miðla, samkvæmt samantekt Capa- cent Gallup sem nær yfir fyrri helming þessa árs. Samanlagt áhorf á rásirnar sem um ræðir er rúmlega 30 af hundraði, einnig samkvæmt tölum frá Capacent Gallup. Samanlagt meðaláhorf á Ríkissjónvarpið fyrstu sex mánuði ársins, í aldurshópnum 12-80 ára, er yfir helmingur áhorfs á innlent efni í þeim aldurshóp. Áðurnefnd fyrirtæki Haga keyptu 3% af sínum auglýsingum hjá RÚV. »4 Hagar auglýsa nán- ast bara hjá 365 Sjónvarpsauglýsingar verslana Haga Fyrri hluta árs 2010 3% 2% 95%  „Þetta er spennandi riðill með hörkuleikjum og síðan tekur við hrikalegur milliriðill. Framundan er svo sannarlega skemmtilegt og erfitt verkefni,“ sagði Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðs- þjálfari í handknattleik, eftir að ljóst var hverjir andstæðingar Ís- lands verða á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Svíþjóð 13.-30. jan- úar á næsta ári en dregið var í riðla í Gautaborg síðdegis í gær. Ísland dróst í riðil með Austur- ríki, Ungverjandi, Noregi, Brasilíu og Japan. Þrjú lið fara upp í milli- riðil þar sem Frakkar, Spánverjar og Þjóðverjar eru líklegustu mót- herjarnir. » Íþróttir Spennandi riðill og hrikalegur milliriðill Hjalti Geir Erlendsson hjaltigeir@mbl.is Gengisstyrking síðustu mánaða gef- ur tilefni til frekari verðlækkana á matvælum að mati forsvarsmanna matvöruverslana. Könnun á vegum ASÍ sýnir að verð hefur farið lækk- andi síðan í febrúar. „Það er full ástæða til að búast við frekari verðlækkunum og þá sérstaklega hvað varðar innfluttar vörur,“ segir Eysteinn Helgason, framkvæmdastjóri Kaupáss, sem meðal annars rekur Nóatún, Krón- una og 11-11-verslanirnar. Hann segist einnig búast við einhverjum lækkunum á innlendum fram- leiðsluvörum en í kjölfar styrkingar krónunnar hafi aðföng orðið ódýrari fyrir innlenda framleiðendur. Það ætti svo að hafa áhrif til lækkunar vöruverðs. Eysteinn segir þetta þó allt háð stöðugri gengisþróun. Guðmundur Marteinsson, fram- kvæmdastjóri Bónuss, tekur í sama streng og Eysteinn. Verðlækkanir hafi þegar gert vart við sig vegna styrkingar krónunnar og býst hann allt eins við frekari lækkunum. Eysteinn Helgason segir verð á kjöti hafa lækkað undanfarna mán- uði og nú sé það lægra en það var fyrir tveimur árum. Það megi þakka svokallaðri iðnaðarfram- leiðslu, svo sem á kjúklingum og svínum. MMatarverð fer að líkindum » 14 Matarkarfan á að lækka  Jákvæð gengisþróun hefur áhrif á matvöruverð  Full ástæða til að búast við frekari verðlækkunum Verðkönnun sem ASÍ birti í vik- unni sýnir fram á lækkun mat- vöruverðs. Á því tímabili hafa virðisaukaskattur og vörugjöld hækkað. Þær hækkanir hafa ekki teljandi áhrif á matarkörf- una að sögn hagfræðings ASÍ. Áhrif skattahækkana sjást hins vegar á sælgæti og drykkjar- föngum. Áhrif skatta VERÐHÆKKUN Á SÆLGÆTI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.