Morgunblaðið - 10.07.2010, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 10.07.2010, Blaðsíða 33
Dagbók 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 2010 Sudoku Frumstig 7 9 5 4 1 2 2 8 9 4 7 1 7 2 6 1 2 9 4 7 6 5 1 4 5 9 2 2 1 6 7 3 9 6 1 3 6 9 2 7 3 3 5 9 1 9 4 5 6 5 7 4 2 5 6 1 9 3 8 3 5 4 7 8 1 7 4 6 4 1 3 1 7 2 9 8 6 1 8 3 9 4 5 2 7 2 7 3 6 5 8 1 4 9 5 9 4 7 1 2 3 8 6 9 3 5 2 4 1 6 7 8 7 4 1 8 3 6 9 5 2 8 6 2 5 7 9 4 3 1 1 5 9 4 8 7 2 6 3 4 2 7 1 6 3 8 9 5 3 8 6 9 2 5 7 1 4 4 8 2 9 6 7 5 1 3 3 6 7 1 4 5 2 8 9 9 5 1 3 8 2 7 4 6 6 9 8 5 7 1 3 2 4 5 7 3 4 2 8 9 6 1 1 2 4 6 9 3 8 7 5 7 4 6 8 3 9 1 5 2 2 3 5 7 1 4 6 9 8 8 1 9 2 5 6 4 3 7 9 5 3 2 1 4 7 8 6 4 7 2 6 8 5 9 1 3 6 8 1 3 7 9 5 4 2 5 1 6 4 9 3 8 2 7 3 9 7 1 2 8 6 5 4 8 2 4 5 6 7 3 9 1 2 4 8 9 3 6 1 7 5 7 3 5 8 4 1 2 6 9 1 6 9 7 5 2 4 3 8 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig töl- urnar 1-9 og aldrei má tví- taka neina tölu í röðinni. Í dag er laugardagur 10. júlí, 191. dag- ur ársins 2010 Orð dagsins: Sjá, Drottinn mun út fara frá bústað sínum, mun ofan stíga og ganga eftir hæðum jarðarinnar. (Mík. 1, 3.) Eins og dyggir lesendur Víkverjavita er hann mjög vinveittur Norðmönnum og tekur ábendingum þeirra ætíð sem bæði mikilvægum og nauðsynlegum. x x x Um daginn sat Víkverji meðnokkrum Norðmönnum að snæðingi. Skyndilega skiptist hóp- urinn í tvennt í umræðum og þjóð- arbrotin við borðið fóru að ræða sín á milli á sinni tungunni hvort. Í einu vetfangi þögnuðu Norðmennirnir þó og fóru að hlusta á Íslendingana. Svo fór einn þeirra að herma eftir Íslendingunum með því að segja: „Já! Jaaaá! Jájá! Jájájá!“ Þetta vakti mikla kátínu í herbúðum olíu- furstanna. x x x Norðmaðurinn góði var auðvitaðekki sá fyrsti sem bendir á ást Frónbúa á þessu ágæta orði. Sagt er að í Færeyjum séu Íslendingar stundum kallaðir Jáarar. Svo er þetta auðvitað miklu skárra en ef öll þjóðin væri með orðið „nei“ á heil- anum og segði fátt annað en það. Japanir fara svo hófstillta millileið og segja aldrei nei ef þeir vilja ekki gera eitthvað sem þeir eru beðnir um, heldur segja þeir „það er mjög erfitt“. Ekki veit Víkverji þó til þess að þeir segi sérstaklega mikið já. x x x En Norsarinn hafði greininlegaoft hlustað á eyjarskeggja ræða saman. Hann hélt áfram: „Jájá. Já! Héddna … haddna … eeeee. Jájájá. Sko, svona héddna. Héddna svona. Jájá. Ha? Jájá. Sko.“ Svona eru Íslendingar í eyrum hans og sem Norðmanni getur hon- um ekki skjátlast. Svona hljóta Ís- lendingar að vera. Víkverji gerði sig reyndar líklegan til að taka til and- svara fyrir þjóð sína, með því að benda á syngjandann í norskri tungu eða saka þá um linkind gagn- vart enskuáhrifum. Í þann mund hringdi hins vegar síminn og Vík- verji svaraði: „Já? Já, sæll … já … já … jájá … já … já …“ Og Norð- maðurinn hafði unnið. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 vökvi, 4 truflar, 7 horskur, 8 hroki, 9 gríp, 11 yf- irsjón, 13 sarga, 14 trú á Allah, 15 þvaður, 17 rándýr, 20 sár, 22 málmur, 23 blómið, 24 gorta, 25 þunn skífa. Lóðrétt | 1 slóttugur, 2 varkár, 3 magurt, 4 dugn- aðarmann, 5 pokaskjattar, 6 illa, 10 æviskeiðið, 12 blett, 13 muldur, 15 kroppur, 16 krumlu, 18 leika illa, 19 starfsvilji, 20 kvendýr, 21 mannvíg. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 flækingur, 8 lubbi, 9 tuska, 10 pól, 11 karpa, 13 aumur, 15 hrúts, 18 strák, 21 kot, 22 endir, 23 asnar, 24 fiðringur. Lóðrétt: 2 lúber, 3 keipa, 4 netla, 5 ufsum, 6 flak, 7 saur, 12 pot, 14 urt, 15 hret, 16 úldni, 17 skrár, 18 stafn, 19 runnu, 20 karm. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. O-O Be7 6. He1 b5 7. Bb3 d6 8. c3 O-O 9. h3 Rb8 10. d4 Rbd7 11. Rbd2 Bb7 12. Bc2 He8 13. Rf1 Bf8 14. Rg3 g6 15. a4 c5 16. d5 c4 17. Bg5 h6 18. Be3 Rc5 19. Dd2 h5 20. Bg5 Be7 21. Bh6 Bf8 22. Bg5 Be7 23. Be3 Rfd7 24. Rg5 Bf6 25. Hf1 De7 26. Re2 Rb6 27. Bxc5 dxc5 28. h4 Hf8 29. De3 Dc7 30. Had1 Hae8 31. axb5 axb5 32. d6 Dc6 33. Hd2 Hd8 34. Hfd1 Bg7 35. f4 exf4 36. Dxf4 Rd7 37. Rf3 Hfe8 38. Hf1 He6 Staðan kom upp á hollenska meist- aramótinu sem lauk fyrir skömmu í Einhoven. Stórmeistarinn Friso Nijboer (2567) hafði hvítt gegn alþjóðlega meist- aranum Robin Van Kampen (2481). 39. Rfd4! cxd4 40. Dxf7+ Kh7 41. Rxd4 Db6 42. Dxe6 Rc5 43. Dh3 Bxe4 44. Hf7 Bxc2 45. Hxc2 Rb3 46. De3 Rxd4 47. Hd2! og svartur gafst upp. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Spurning um sagnir. Norður ♠ÁD854 ♥7 ♦ÁD6542 ♣2 Vestur Austur ♠G6 ♠K9732 ♥ÁD10853 ♥64 ♦3 ♦KG1087 ♣10943 ♣5 Suður ♠10 ♥KG92 ♦9 ♣ÁKDG876 Suður spilar 3G. Úrvinnslan í 3G er lítið vandamál – jafnvel Hérinn hryggi gæti sloppið einn niður á góðum degi, eins og Mollo léti Göltinn segja. Nei, vandinn hér er að stoppa í 3G. Í EM-viðureign Íslands og Englands hóf vestur leikinn á báðum borðum: Townsend vakti á Multi 2♦, en Magnús Magnússon á 2♥, veikum. Við Multi-opnuninni sagði Jón Bald- ursson í norður rólega 2♠. Austur pass- aði, Þorlákur Jónsson sagði 3♣, Jón 3♦ og Þorlákur 3G. Málið afgreitt. Hac- kett-bræður voru í N-S á hinu borðinu. Þar stökk Jason í 4♦ við 2♥ Magnúsar til að sýna tígul og spaða. Þetta er góð sagnvenja, en álitamál hvort norður eigi nægan styrk. Alla vega reiknaði Justin með betri spilum og sagði 6G. Sig- urbjörn Haraldsson í austur hafði ekki trú á þeim samningi og dró upp do- blmiðann. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þeir eru margir sem eru á verði gagnvart þér svo þér hefur ekki tekist að koma málstað þínum á framfæri skýrt og skorinort. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú hefur sterka löngun til þess að ræða við yfirmenn þína eða aðrar mikil- vægar persónur í dag. Kannski iðar þú í skinninu að kaupa ótilgreindan hlut. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú gætir fundið fyrir óþol- inmæði snemma dags í dag. Gefðu þér tíma til að hafa samband við þá sem málið varðar. Drífðu endilega í því. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Það liggur í augum uppi að þú þarft að sleppa tökunum á ákveðnum hlutum lífi þínu. Efastu ekki um hæfileika þína. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Nú mega fjölskyldumálin ekki sitja á hakanum lengur. Lærðu að þekkja tak- mörk þín og stattu vörð um sjálfan þig því það gerir enginn annar. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Það er mikill ábyrgðarhluti að gefa öðrum ráð sem þeir eiga að fara eftir. Frekari undanlátssemi gæti gert þig bitr- an. Misskilningur getur margan hlutinn skemmt. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Láttu ekki hanka þig á því að verða tvísaga. Nálgastu því þá sem þig langar til að læra af, jafnvel þótt það kosti pen- inga. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þér ætti að ganga flest í hag- inn í dag. Byrjaðu á því að reyna að gera þér grein fyrir stöðunni. Frá og með deg- inum í dag ætti umbrotatímunum þó að vera lokið. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Mundu að þú ert ekki einn í heiminum og það á ekki síst við um vinnu- stað þinn. Haltu þig á mottunni því ann- ars muntu iðrast síðar. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú þarft að finna jafnvægi milli vinnunnar og heimilisins. Einhver er af- brýðisamur, en þú kemst ekki að því fyrr en þú deilir góðum tíðindum. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Vatnsberinn skynjar slúður um sjálfan sig. Láttu sjálfan þig ekki sitja á hakanum og það ríður á miklu að geta haldið uppi tjáskiptum við aðra. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Spennandi breyting á umhverfi er það sem þú þarft til þess að hleypa lífi í rómantíkina. Finndu þér einhvern góðan stað þar sem þú finnur frelsi og frið. Stjörnuspá 10. júlí 1815 Hið íslenska biblíufélag var stofnað í Reykjavík. Það er elsta félag landsins og hefur einkarétt á útgáfu Biblíunnar hér á landi. 10. júlí 1875 Haglél gerði í Biskupstungum og stóð það í þrjá tíma. Élinu fylgdi ofsastormur með þrumum og eldingum. „Hagl- kornin voru á stærð við tit- lingsegg og mörg þrjú föst saman,“ að sögn Þjóðólfs. 10. júlí 1951 Íslendingar sigruðu með yf- irburðum í norrænni sund- keppni sem stóð í tæpa tvo mánuði. Fjórði hver lands- maður hafði þá synt tvö hundruð metra. 10. júlí 1970 Ráðherrabústaðurinn á Þing- völlum brann. Bjarni Bene- diktsson forsætisráðherra, Sigríður Björnsdóttir kona hans og Benedikt Vilmund- arson dóttursonur þeirra fór- ust í brunanum. Tæpu ári síð- ar var reistur minnisvarði á staðnum. 10. júlí 2009 Hótel Valhöll á Þingvöllum eyðilagðist í eldsvoða. „Alveg hrikaleg sjón,“ sagði forsætis- ráðherra í samtali við Mbl.is. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Hrafnhildur Laxdal, Minni Grund, Hring- braut 50, verður sjötíu og fimm ára á morgun, sunnudaginn 11. júlí. Hún verður að heiman á af- mælisdaginn. 75 ára Sigurður Jónsson, fyrrum sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps, verður 65 ára í dag. Sigurður er vinsæll bloggari á mbl.is og tjáir hann sig þar aðallega um stjórnmál. Aðspurður segist hann ekki ætla að halda mikla veislu í tilefni dagsins. Það hafi hann gert þegar hann varð sextugur. „Ég verð nú bara í rólegheitum heima og ætla að passa eitt barnabarnið,“ segir Sigurður sem ætlar að bjóða nánustu fjölskyldu heim við betra tækifæri, þegar allir verða komnir úr fríi. Barnabarnið er það nýjasta í röð fimm barna- barna Sigurðar. „Það er þjóðhátíðarbarn, fætt 17. júní síðastliðinn,“ segir stoltur afinn. Hann kveðst ekki eiga í nokkrum vandræðum með barnfóstra- hlutverkið. „Þetta gefur lífinu gildi, að eignast barnabörnin.“ Þessa dagana nýtur Sigurður þess að taka því rólega, en sinnir ýmsum sérverkefnum þess á milli. „En það helsta sem ber að fagna á 65 ára afmælisdegi eru auðvitað full eftirlaun,“ segir Sigurður og hlær. gislibaldur@mbl.is Sigurður Jónsson fagnar 65 ára afmæli Verður barnfóstra í dag Nýirborgarar Nýja-Sjáland Aron Hugi fæddist 5. júlí kl. 6.44. Hann vó 2.970 g og var 50 cm langur. Foreldrar hans eru Lára Skærings- dóttir og Hjörtur Krist- jánsson. Reykjavík Atli Freyr fæddist 13. apríl kl. 23.37. Hann vó 3.825 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Katrín Hilmars- dóttir og Haraldur Ísleif- ur Cecilsson. Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.