Morgunblaðið - 10.07.2010, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 10.07.2010, Blaðsíða 22
22 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 2010 Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Jón Ásgeir Jóhannesson sendi Lár- usi Welding, fyrrverandi banka- stjóra Glitnis, tölvupóst fáum dög- um fyrir hrun bankans þar sem hann gerði grein fyrir innistæðum á reikningum í breskum bönkum upp á 40 milljarða króna. Þetta kom fram í vitnisburði Steinunnar Guð- bjartsdóttur, formanns slitastjórnar Glitnis, fyrir dómstólum vegna lög- sóknar slitastjórninnar gegn Jóni Ásgeiri og fleiri fyrri eigendum eða stjórnendum Glitnis. Breskur dóm- stóll synjaði í gær beiðni Jóns Ás- geirs um afléttingu kyrrsetningar á eignum hans. Úr 600 milljónum punda í eina Steinunn lagði fram tölvupósta sem rannsakendur Kroll höfðu graf- ið upp í þrotabúi Glitnis. Var þar um að ræða myndaskjal sem sýndi innistæður í fimm breskum bönkum fyrir samtals 202 milljónir punda. Yfirskrift tölvupóstsins var „For your eyes only“ eða: „Aðeins fyrir þig.“ Steinunn tók fram í vitnis- burði sínum að hún gæti ekki sýnt fram á hvort reikningarnir til- heyrðu Jóni Ásgeiri sjálfum eða fé- lögum í hans eigu. Hún sagðist hins vegar hafa fulla ástæðu til að trúa því að Jón Ásgeir væri ennþá auð- ugur og að hann hefði yfir miklu reiðufé að ráða. Steinunn benti einnig á að eigur Jóns Ásgeirs hefðu á tímabili numið um 600 millj- ónum punda, en samkvæmt eigna- yfirliti sem hann skilaði breskum dómstólum væru eignir hans aðeins um ein milljón punda eða tæpar 190 milljónir króna miðað við núverandi gengi krónunnar. Steinunn benti einnig á að Jón Ásgeir hefði ekki sýnt fram á með fullnægjandi hætti að ákveðnar eignir tilheyrðu eingöngu eiginkonu hans, Ingibjörgu Pálmadóttur, en ekki honum. Þannig kemur fram að Jón Ásgeir sé skráður fyrir 1% hlut í tveimur íbúðum í New York, en Ingibjörg fyrir afgangnum. Telja Jón Ásgeir eiga tugi milljarða í banka  Sendi forstjóra Glitnis reikningsyfirlit stuttu fyrir fallið Morgunblaðið/Kristinn Eignir Dómstólar féllust ekki á það að hnykkja kyrrsetningu eigna Jóns Ás- geirs Jóhannessonar. Slitastjórn Glitnis telur að Jón sé enn í dag auðugur. Eignir Jóns Ásgeirs » Formaður slitastjórnar Glitnis lagði fram tölvupóst frá Jóni Ásgeiri til Lárusar Welding þar sem fram kom yfirlit um 40 milljarða króna bankainni- stæður í Bretlandi. » Slitastjórnin bendir jafn- framt á að Jón Ásgeir telji sér aðeins eina milljón punda til eigna í dag, en á tímabili námu eignir hans 600 milljónum. Hrein eign lífeyr- issjóðakerfisins til greiðslu líf- eyris minnkaði um 21,9 milljarða króna í maí- mánuði eða um 1,2 prósent. Er þetta í fyrsta sinn síðan í febr- úar 2009 sem hrein eign lífeyris- sjóðanna minnkar á milli mánaða. Kemur þetta fram í tölum frá Seðlabanka Íslands. Helstu hreyfingar á efnahags- reikningi lífeyrissjóðakerfisins er að hlutabréfaeign þeirra minnkar umtalsvert eða um 34,5 milljarða króna og er þar einkum um að ræða lækkun í erlendri hlutabréfaeign þeirra. Eign í erlendum hlutabréfa- sjóðum lækkaði um 23 milljarða eða 6,7 prósent og í erlendum hluta- bréfum um 8,4 milljarða eða 9,3 prósent. Erlendir hlutabréfamarkaðir lækkuðu mikið í maímánuði í ár og kemur þessi lækkun hjá lífeyris- sjóðunum ekki á óvart. Skuldabréfaeign sjóðanna jókst aftur á móti um 18,4 milljarða króna í mánuðinum og er hlutur ríkissjóðs og Íbúðalánasjóðs þar stærstur. Jókst eign lífeyrissjóð- anna í ríkisskuldabréfum um 9,5 milljarða króna. Eign líf- eyrissjóða minnkaði Lækkun á útlendri hlutabréfaeign Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Rekstrarfélag skyndibitastaðarins Metrós, Lyst ehf., sem áður rak McDonalds á Íslandi, hefur selt reksturinn frá sér. Félagið Líf og heilsa keypti reksturinn í maí síðast- liðnum og tók formlega við honum í síðasta mánuði. Eigandi Lífs og heilsu er Ásgerð- ur Guðmundsdóttir. Hún segist í samtali við Morgunblaðið aðeins hafa keypt rekstur Metrós og tól og tæki sem eru nauðsynleg starfsemi staðarins. Engar skuldir fylgdu með í kaupunum. Metró varð til þegar eigandi Lystar, Jón Garðar Ög- mundsson, ákvað að segja skilið við hið heimsþekkta McDonalds-vöru- merki í fyrra. Breytingin átti sér stað þann 1. nóvember á síðasta ári. Segist hafa selt of snemma Jón Garðar segir í samtali við Morgunblaðið að Lyst sé á leiðinni í gjaldþrot, en hann eigi þó ekki von á öðru en að allar skuldir félagsins verði greiddar að fullu. Við gengis- lækkun krónunnar á árinu 2008 hækkuðu langtímaskuldir Lystar úr 100 milljónum króna í rúmlega 205 milljónir, að því er kemur fram í árs- reikningi fyrir árið 2008. Jón Garðar segir sig hugsanlega hafa verið of fljótur á sér að selja reksturinn, í ljósi niðurstöðu Hæsta- réttar þess efnis að gengistrygging lánsfjár væri óheimil: „Ég reikna ekki með öðru en að ég hefði getað unnið úr málum Lystar, ef ég hefði vitað hver niðurstaða Hæstaréttar hefði orðið,“ segir hann. Til viðbótar við tvöföldun langtímaskulda við lánastofnanir hlóðust viðskipta- skuldir Lystar upp árið 2008. Jón Garðar segist munu róa öllum árum að því að greiða upp skuldir Lystar: „Margir af þessum aðilum sem ég hef verið að kaupa af eru orðnir vinir mínir. Ég mun reyna allt til að koma í veg fyrir að þessir menn tapi á við- skiptum við mig.“ Skyndibitastaðurinn Metró seldur  Fyrrverandi eigandi Lystar segir all- ar skuldir félagsins verða greiddar upp Morgunblaðið/Sverrir McDonald́s Kvaddi Ísland síðasta haust með tilkomu Metró. Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is Breyting hefur orðið á eignarhaldi Europris á Íslandi undanfarið. Norð- mennirnir hafa komið með fjármagn inn í félagið og Petter Christian Wilskow, Stein-Erik Björnsen og Kjell Olav Krathe tekið sæti í stjórn þess. Europris á Íslandi þiggur einkaumboð (franchise) sitt frá Eu- ropris í Noregi, sem jafnframt er stærsti birgir þess. Höfuðstöðvar Europris eru jafnframt í Noregi. Félagið rekur sex smásöluverslan- ir á Íslandi, fjórar á höfuðborgar- svæðinu, eina á Akureyri og eina á Selfossi. Matthías Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Europris á Íslandi, segir að ekki sé fyrirhugað að gera breytingar á verslanafjölda. Dagleg- ur rekstur félagsins verði með ná- kvæmlega sama sniði og verið hefur. Reksturinn almennt erfiður Spurður um ástæðu breytinganna á eignarhaldi, segir hann Norðmenn- ina einfaldlega koma að rekstrinum nú „til þess að standa við bakið á fyr- irtækinu áfram. Þeir hafa verið að koma inn í fyrirtækið og styrkja okk- ur, styrkja fyrirtækið, sem eignarað- ilar.“ Rekstur á Íslandi hafi almennt verið erfiður undanfarin tvö ár, og Europris ekki farið varhluta af þeirri stöðu mála. Matthías segir engar breytingar framundan á rekstrinum. Sömu stjórnendur komi til með að stýra fyrirtækinu áfram, bæði í yfirstjórn þess sem og verslunarstjórn. Norðmenn styðja við rekstur Europris á Íslandi  Aðkoma nýrra eignaraðila styrki reksturinn Morgunblaðið/Arnaldur Óbreytt Breytt eignarhald er ekki fyrirboði breytinga á rekstri Europris ● Skuldatrygg- ingarálag á evruskuldir rík- issjóðs Íslands hefur þróast með töluvert ólíkum hætti en almennt gerist á mark- aði með evr- ópskar skulda- tryggingar frá upphafi annars ársfjórðungs, að því er segir í Morg- unkorni Íslandsbanka. Á þessu tímabili hafa skuldatrygg- ingar í Evrópu almennt hækkað í verði á meðan álagið á ríkissjóð Ís- lands hefur lækkað um þriðjung. Kaup Seðlabanka, fyrir hönd rík- issjóðs, á verulegum hluta útistand- andi evruskuldabréfa síðarnefnda aðilans ásamt batnandi lausa- fjárstöðu í erlendum gjaldeyri eru helstu ástæður þessa að mati grein- ingardeildar bankans. Enn er skuldatryggingarálag á ríkissjóð til eins árs þó talsvert hærra en álagið til fimm ára. Á fimmtudag var fyrrnefnda álagið 4,23 prósent en hið síðarnefnda 3,23 prósent samkvæmt gögnum úr Bloomberg-gagnaveitunni. „Er það athyglisvert í ljósi þess að sá gjald- eyrir sem liggur á lausu í Seðla- bankanum, þegar frá eru taldar gjaldeyrisinnstæður, ætti að duga auðveldlega fyrir útflæði vegna greiðslna ríkissjóðs næsta árið og raunar nokkuð lengur,“ segir í Morg- unkorninu. Álag á evruskuldir ríkisins hefur lækkað ● Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,23 prósent í viðskiptum gær- dagsins og stendur nú í 192,38 stigum. Verðtryggður hluti vísitölunnar lækkaði um 0,29 prósent og sá óverðtryggði um 0,07 prósent. Velta á skuldabréfamarkaði nam 6,17 milljörðum króna og þar af voru við- skipti með óverðtryggð skuldabréf fyrir 4,15 milljarða króna. Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækk- aði um 0,13 prósent og var lokagildi hennar 906,46 stig. Hlutabréf Marels lækkuðu um 0,55 prósent, en gengi bréfa annarra fyrirtækja í vísitölunni stóð í stað. Lækkun í kauphöll Stuttar fréttir…

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.