Morgunblaðið - 10.07.2010, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 10.07.2010, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 2010 ÍMorgunblaðinu í gær var sagt fráþví að 97% af dagblaðaauglýs- ingum verslanarisans Haga hefðu farið til Fréttablaðsins á fyrri hluta ársins. Í hinu dagblaðinu, Morgun- blaðinu, birta Hagar aðeins 3% aug- lýsinga sinna. Hjá öðrum stórum auglýsendum eru þessi hlutföll 60/ 40, en ekki 97/3 eins og hjá Högum.     Sömu sögu erað segja um sjónvarpsauglýs- ingar á fyrri helm- ingi ársins, eins og lesa má um í Morgunblaðinu í dag. Verslanir Haga birta 95% auglýsinga sinna í miðlum 365 en aðeins 3% hjá RÚV og 2% hjá Skjá einum. Hagar halda sig við þessa auglýsinga- stefnu þrátt fyrir að mun meira sé horft á RÚV en á stöðvar 356 miðla.     Engin eðlileg skýring getur veriðá þessari auglýsingastefnu Haga og hana er ekki hægt að skýra með öðrum hætti en þeim, að Hagar séu notaðir til að styrkja fyr- irtækið 365 miðla.     Svo vill til að sömu aðilar stjórnaHögum og 365 miðlum, en eiga aðeins 365 miðla eftir að hafa misst Haga vegna glæfralegs reksturs.     Högum stjórna þessir aðilar ískjóli Arion banka, sem á Haga en lætur viðgangast að fé sé áfram fært frá Högum til fyrirtækis fyrr- um eigenda Haga, 365 miðla. Þeim megin fá þessir aðilar þar að auki stuðning ríkisbankans, Landsbank- ans, við að fjármagna fyrirtækið.     Bankarnir láta sem þeim komiþetta ekki við, en með stuðn- ingi þeirra endurreisa hinir föllnu útrásarvíkingar veldi sitt. Stjórn- völd telja sig líka stikkfrí. Ætli aðr- ir séu sammála því? Misnotkunin heldur áfram Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ STAKSTEINAR VEÐUR KL. 12 Í DAG Um 200 athugasemdir bárust Húna- vatnshreppi vegna aðalskipulags hreppsins, en frestur til að gera at- hugasemdir rann út fyrir tveimur dögum. Aðalskipulagið gerir ráð fyrir að þjóðvegurinn liggi óbreytt- ur um hreppinn þrátt fyrir vilja Vegagerðarinnar til að breyta leið- inni. „Það komu margar athugasemd- ir,“ segir Jens Pétur Jensen sveit- arstjóri. „Um 200 athugasemdir bárust vegna Húnavallaleiðar. Menn vilja fá þessa vegstyttingu inn á aðalskipulagið milli Akureyrar og Reykjavíkur.“ Flestar komu athugasemdirnar frá fólki utan sveitarfélagsins og langstærstur hluti þeirra var frá Akureyri. Jens segir fjöldann ekki koma sér á óvart. „Sérstaklega í ljósi þess að það voru komin stöðluð athugasemdaform á Akureyri sem menn gátu skrifað undir.“ Ekkert hefur verið fjallað um málið, en fundað verður 14. júlí nk. „Þá verður aðeins farið yfir þetta, en það verður engin endanleg ákvörðun tekin þá að ég tel. Ég held að menn verði að fá meiri tíma.“ Frestur til að skila inn at- hugasemdum vegna aðalskipulags Blönduóss, sem einnig gerir ráð fyr- ir óbreyttri legu hringvegarins, rennur út 12. júlí. Að sögn bæj- arskrifstofunnar hafa einhverjar at- hugasemdir borist vegna aðal- skipulagsins, en heildarfjöldi þeirra verður ekki tekinn saman fyrr en fresturinn rennur út. Húnavatnsleið, sem einnig hefur verið nefnd Svínavatnsleið, styttir hringveginn um 12,6 kílómetra með lagningu 16,7 kílómetra langs vegarkafla. Búið er að hanna veg- inn. Blönduósbær hefur sett sig upp á móti framkvæmdinni enda myndi umferðin ekki lengur liggja í gegn- um bæinn með tilheyrandi tekjutapi þeirra fjölmörgu fyrirtækja sem byggja afkomu sína á ferðamönn- um. Sigurbjörn Nökkvi Björnsson fjallaði um arðsemi vegastyttinga í lokaverki sínu frá HR. Var niður- staða hans sú að arðsemin væri 20,8%, sem er með því mesta sem reiknað hefur verið út fyrir utan höfuðborgarsvæðið. Svínavatnsleið Ný veglína 1 Ný veglína 2 Ný veglína 3 Vegir sem tengjast Svínavatnsleið Þjóðvegur 1 Blönduós Svínavatn 731. Svínvetningabraut 728.Auðkúluvegur 724.Reykjabraut Auðkúla H ún af jö rð ur Laxárvatn LANGIDALUR Blanda Ti lR ey kj av ík ur Til Akureyrar Margir vilja stytta hringveginn  Um 200 athugasemdir vegna áforma um vegstyttingu í Húnavatnssýslu Veður víða um heim 9.7., kl. 18.00 Reykjavík 17 skýjað Bolungarvík 10 alskýjað Akureyri 9 skýjað Egilsstaðir 11 alskýjað Kirkjubæjarkl. 14 skýjað Nuuk 9 heiðskírt Þórshöfn 13 skýjað Ósló 22 heiðskírt Kaupmannahöfn 23 heiðskírt Stokkhólmur 24 skýjað Helsinki 25 léttskýjað Lúxemborg 31 heiðskírt Brussel 31 heiðskírt Dublin 17 súld Glasgow 17 skýjað London 31 heiðskírt París 31 heiðskírt Amsterdam 28 heiðskírt Hamborg 34 heiðskírt Berlín 33 heiðskírt Vín 29 léttskýjað Moskva 30 heiðskírt Algarve 29 heiðskírt Madríd 35 heiðskírt Barcelona 27 léttskýjað Mallorca 28 heiðskírt Róm 30 léttskýjað Aþena 28 léttskýjað Winnipeg 23 léttskýjað Montreal 30 alskýjað New York 29 léttskýjað Chicago 28 léttskýjað Orlando 32 heiðskírt 10. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:28 23:40 ÍSAFJÖRÐUR 2:44 24:33 SIGLUFJÖRÐUR 2:24 24:19 DJÚPIVOGUR 2:47 23:20 Ferðafélagið Útivist hefur sett upp nýjar göngubrýr á Krossá á Þórs- merkursvæðinu. Brýrnar leysa úr brýnni þörf hjá göngufólki sem þarf að komast milli Goðalands og Þórs- merkur, en síðustu ár hafa göngu- menn þurft að vaða eina eða fleiri kvíslar Krossár til að komast þar á milli. Fyrir er göngubrú undir Vala- hnjúki, en jökulsár eins og Krossá breyta gjarnan farvegi sínum og síð- ustu ár hefur áin að mestum hluta runnið framhjá brúnni. Með þessum nýju göngubrúm er þetta vandamál leyst með því að hafa þær á hjólum og er því hægt að færa þær til eftir því sem áin breytir sér. Undirstöður þeirra eru gerðar úr bómum af byggingakrönum og eru því sterk- byggðar og traustar. Brýrnar eru á Krossáraurum, gegnt Básum á Goðalandi og Stóra- enda í Þórsmörk, og nýtast fyrir fjöl- margar gönguleiðir á svæðinu. Má þar nefna Fimmvörðuháls yfir í Langadal og Húsadal, Laugaveg yf- ir í Bása, úr Básum inn að Kross- árjökli, Rjúpnafell og aðrar leiðir í Þórsmörk, úr Langadal og Húsadal í Goðaland og að gosstöðvunum á Fimmvörðuhálsi. Með tilkomu brúnna opnast því margvíslegir möguleikar til gönguferða í Þórs- mörk og Goðalandi. Á hjólum yfir Krossá Þórsmörk Margar góðar gönguleiðir opnast með nýju brúnum sem Útivist hefur komið upp yfir Krossá á Þórsmerkursvæðinu. Starfsmenn veitingastaðarins Nítjándu hæðarinnar hafa tekið höndum saman og ætla að bjóða þeim sem hingað til hafa reitt sig á aðstoð Fjölskylduhjálparinnar upp á súpu, brauð og drykkjar- föng á mánudögum í júlí. „Hér innanhúss kviknaði sú hug- mynd að við gætum lagt okkar af mörkum til þess að létta undir með þeim einstaklingum og fjöl- skyldum sem á þurfa að halda,“ segir Þórey Ólafsdóttir, markaðs- stjóri fyrirtækisins, í tilkynningu. Þórey segir að verkefnið sýni einnig að með því að snúa bökum saman geti bæði einstaklingar og fyrirtæki lagt sitt af mörkum til þess að hjálpa þeim sem á þurfa að halda. Fyrsta súpukvöld Nítjándu verð- ur nk. mánudag. Ekki verður tekið við pöntunum heldur eingöngu tekið á móti gestum á meðan hús- rúm leyfir. Opið er á milli 17-19. Súpa og brauð á mánudögum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.