Morgunblaðið - 10.07.2010, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 2010
ÚTSALA
38
ÞREP
Laugavegi 49 / sími 561 5813
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
„Námið er mjög markvisst og ef maður er sjálfur skipulagður á
ekki að vera neitt tiltökumál að ljúka stúdentsprófi á tveimur ár-
um,“ segir Klara Lind Gylfadóttir sem í dag brautskráist með
stúdentspróf frá Menntaskólanum Hraðbraut. Það væri í sjálfu
sér ekki í frásögur færandi nema af því að hún er sextán ára
gömul eða á þeim aldri þegar margir eru að byrja í framhalds-
skóla.
Klara var strax harðákveðin í því að taka námið föstum tök-
um. Hún gat flýtt fyrir sér með því að taka nokkrar námsgreinar
í grunnskóla með eldri bekkjum og náði þannig að ljúka sam-
ræmdum prófum strax eftir 9. bekk. Þá fór hún í Hraðbraut og
hefur náð níu námseiningum eftir hverja námslotu. Hver þeirrar
spannar fjórar vikur og svo koma próf sem taka fimmtu vikuna.
Sjöttu vikuna eru upptökupróf en þeir sem staðist hafa öll próf
fá frí. Nám til stúdentsprófs er fimmtán slíkar lotur og fyrir vik-
ið er framvindan mun hraðari en í öðrum framhaldsskólum þar
sem nemendur ljúka stúdentsprófi yfirleitt á fjórum árum.
„Fyrir marga hentar ábyggilega vel að taka námið á fjórum
árum. Ég vildi hins vegar taka þetta á skemmri tíma og þá er
mikilvægt að sá valkostur sé fyrir hendi,“ segir Klara Lind sem
er frá Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð. Í efri bekkjum grunnskólans
var hún í Hvolsskóla á Hvolsvelli þar sem hún segir mikið lagt
upp úr því að nemendur vinni sjálfstætt.
Eldgosið jók á námsáhuga
„Ég bjó mjög að þeirri ögun þegar ég byrjaði í Hraðbraut.
Námið lá opið fyrir mér og þegar til kom féll ég alveg fyrir jarð-
fræðinni. Systir mín er jarðfræðingur frá Háskóla Íslands og
það vakti áhuga minn á jarðvísindum. Og það svo sem dró ekki
úr áhuga að fylgjast með gosinu í Eyjafjallajökli í vetur sem
blasti við út um eldhúsgluggann heima í Fljótshlíðinni,“ segir
Klara Lind sem hefur innritað sig til náms í jarðfræði við HÍ og
byrjar í haust. Utan námsins kveðst hún eiga mörg áhugamál,
svo sem útiveru, ferðalög, skemmtanir og að vera með kærasta
sínum, Óla Val Ólafssyni, sem hún kynntist í Hraðbraut.
Hjá Háskóla Íslands man fólk ekki til þess að sextán ára nem-
andi hafi áður innritast þar til hefðbundins náms. Sautján ára
stúlka var þar í námi fyrir fáum misserum – en jarðfræðineminn
Klara Lind er væntanlegur methafi sem fulltrúi ungu kynslóðar-
innar. sbs@mbl.is
Sextán ára stúdent stefnir í jarðfræði
Klara Lind Gylfadóttir er yngsti nemandi sem innritaður er í hefðbundið nám í Háskóla Íslands
Tók nokkrar námsgreinar með eldri bekkjum í grunnskóla og brautskráist frá Hraðbraut í dag
Stúdent Valkostir í námi eru mikilvægir, segir Klara Lind.
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Þótt sólin sé hátt á lofti í júlí varpa ferðalangar
skugga sínum hvert á land sem þeir fara. Íslend-
ingar eru ferðaglaðir á sumrin og lögðu margir
land undir fót í gær til að njóta helgarinnar
fjarri heimaslóðum. Eins og verða vill hér á
norðurhjara er veðrið óútreiknanlegt en víðast
hvar á landinu er því spáð að skiptast muni á
skin og skúrir. Þó er reiknað með þurrviðri á
Norðvesturlandi og í Vestmannaeyjum.
Skuggalegur ferðalangur þeysist áfram veginn
Morgunblaðið/hag
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Fyrirtækið Skipti og dótturfélag þess, Tæknivörur, hafa
viðurkennt brot á samkeppnislögum með umfangsmiklu
ólögmætu samráði við fyrirtækið Hátækni. Tæknivörur
hafa fallist á að greiða 400 milljónir króna í stjórnvalds-
sekt vegna brotanna og Skipti skuldbundið sig til að selja
hlut sinn í fyrirtækinu. Stjórnendur fyrirtækjanna verða
þó ekki dregnir til ábyrgðar.
Samkeppniseftirlitið gerði húsleit hjá Skiptum og
dótturfélögum þeirra, Símanum og Tæknivörum, og
gögn sem þar fundust leiddu til þess að húsleit var einnig
gerð hjá Hátækni og móðurfélagi þess, Olíuverslun Ís-
lands. Skipti og Tæknivörur leituðu til Samkeppniseft-
irlitsins og aðstoðuðu við rannsókn málsins. Tæknivörur
og Hátækni eru helstu keppinautar í innflutningi og
heildsölu á farsímum og tengdum búnaði.
Það sem vekur athygli er að Samkeppniseftirlitið
hyggst ekki sækja stjórnendur fyrirtækjanna til saka þar
sem fyrirtækin aðstoðuðu við að upplýsa málið.
Stjórnendur fyrirtækj-
anna ekki sóttir til saka
Morgunblaðið/Heiddi
Samkeppniseftirlitið hlífir stjórnendum fyrirtækjanna
Tæknivörur og Hátækni
hafa átt í ólögmætu samráði
Ekki náðist sam-
komulag milli
Landsambands
slökkviliðs- og
sjúkraflutninga-
manna og launa-
nefndar sveitar-
félaga á fundi
hjá ríkissátta-
semjara sem
fram fór í gær.
Finnur Hilm-
arsson, varaformaður sambandsins,
sagði fundinn hafa gengið ágætlega
en allt sé enn í járnum. Málið sé þó
á viðkvæmu stigi og því best að
segja sem minnst um það. Næsti
fundur hefur verið boðaður eftir
helgi.
Samningar slökkviliðs- og sjúkra-
flutningamanna hafa verið lausir
frá 31. ágúst á síðasta ári og boðað
hefur verið til verkfalls í lok þessa
mánaðar. Þeir munu þó áfram
sinna hvers kyns bráðaþjónustu.
Síðast fóru slökkviliðsmenn í verk-
fall árið 1984.
Finnur vonast til að samningar
náist fyrir verkfall, enda það allra
síðasta sem nokkur vill.
Viðræður
þokast í
rétta átt
Finnur
Hilmarsson
Munu fara í verkfall í
lok júlí ef ekki semst