Morgunblaðið - 10.07.2010, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 10.07.2010, Blaðsíða 37
Menning 37FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 2010 Hugrún Halldórsdóttir hugrun@mbl.is Bangsarnir Maggi Meiddi, Fjóla Hlaupabóla og Knútur Kvef eru á meðal þeirra VEIKYNDA sem hjálpa börnum að líða betur þegar þau veikjast. Bangsarnir koma úr hugmyndabanka grafíska hönnuðar- ins Hildar Hermannsdóttur, en þeir eru útskriftarverkefni hennar við Listaháskóla Íslands. Hugmyndin fæddist á kaffihúsi „Ég er búin að vera með skrímsli á heilanum í tvö ár. Ég var strax bú- in að ákveða að ég vildi gera skrímslabangsa, eitthvað litríkt fyr- ir krakka,“ segir Hildur glöð í bragði. Í skólanum var henni sagt að það tæki yfirleitt heilt ár fyrir tuttugu manna hóp að koma með hugmynd og útlit á því verkefni sem hún var með í huga, en hún lét það sem vind um eyrun þjóta. „Ég fór á brainstorm-fund á kaffi- húsi með kærastanum mínum, Jóa Kjartans, sem er með ótrúlega fal- legan huga. Það var krakki á kaffi- húsinu sem sagði: „Mamma, ég er búinn að taka vítamínin mín,“ og ég hugsaði, já vítamín, bangsar sem hjálpa börnum. Svo fórum við út í bangsa með algenga kvilla, sem börn eru vön að fá. Bangsa sem myndu hjálpa þeim og skilja veik- indin.“ Að sögn Hildar eru bangsarnir mjög litríkir og hressa alla við, börn sem fullorðna. Svenni Svínaflensa úr Norðlingaholtinu Aðspurð segir hún krakka taka böngsunum einstaklega vel. „Litla dóttir systur minnar var lasin um daginn og ég las fyrir hana bækling um bangsana. Hún vildi að ég læsi hann aftur og aftur. Svo benti hún á Möllu Magapínu og sagði: „Ég er með hana.“ Svo fékk ég sendar teikningar frá heilum bekk úr Norðlingaskóla. Kennarinn þeirra hafði farið á sýninguna mína og látið krakkana teikna sín eigin veikindi. Ég var næstum því farin að gráta. Þær voru ekkert smá flottar. Ég fer að setja þær inn á heimasíð- una mína. Þarna er til dæmis Svenni Svínaflensa, ógeðslega fyndið. Sum- ir voru að herma eftir mínum og það sýnir mér að krakkar hafa mjög mikinn áhuga á þessu.“ Mamma eins og verksmiðja Hildur var í eilitlu basli með að finna saumakonu sem gæti saumað eftir teikningum hennar en þegar móðir hennar, Guðbjörg S. Mar- teinsdóttir, heyrði af vandræðum dóttur sinnar var hún ekki lengi að rétta henni hjálparhönd. „Mamma átti inni sumarfrí, tók það út og var eins og verksmiðja. Ég fæ listgáfurnar frá henni. Ég bjó til átta bangsa með með nafni og teikn- ingum. Þetta var svo mikil vinna að hún hringdi í mig á fimmta og sagði: „Já, ég geri ekki fleiri.“ Þetta eru miklar pælingar, maður gerir sér ekki grein fyrir því hvað það er erf- itt að gera teikningu að þrívíðum hlut. Ef ég hefði fengið saumakonu úti í bæ og ekki verið við hlið mömmu þá hefðu bangsarnir ekki komið svona vel út. Hún skilur mig þegar ég tala með líkamanum og leik bangsana fyrir framan hana. Þeir heppnuðust ótrúlega vel. Það er svo oft sem maður sér bangsa úti í búð sem eru gerðir eftir teiknimyndum, en líkjast svo ekkert teikningunum sjálfum. Með böngsunum mínum færðu alveg sömu tilfinninguna.“ Að sögn Hildar er venjan að framleiða fyrst myndir eða bækur og svo bangsa í framhaldinu af því. Hún sé aftur á móti svo sjúk í bangsa að þessi röð hafi ekki hentað henni. Bangsar fyrst, hitt síðar „Ég er að vinna að barnabókum. Pælingin er að gera litlar bækur, svipaðar og Herrabækurnar. Það verður fínt að drífa þetta í gegn til að fá betri karakter í bangsana. Ég hef líka áhuga á teiknimynda- gerð, enda er ég alveg sjúk í teikni- myndir.“ Hildur áætlar að koma böngs- unum í sölu fyrir næstu jól, en segir að erfitt sé að vinna að verkefninu í sumar þar sem þorri manna sé í sumarfríi. Hún ætlar þó ekki að sitja aðgerðalaus og segist vera meira en til í að taka að sér verkefni á borð við teikningar og myndskreytingar. Veikir bangsar fyrir lasin börn Skrímsli Hildur hefur afar gaman af alls konar skrímslum og teiknimyndasögum. Guðmundur Egill Árnason gea@mbl.is Um þessar mundir ferðast hljómsveitin Fancy Toys um Ísland og heldur tónleika ásamt íslensku tónlistarkonunni Ragnheiði Gröndal. Breska hljómsveitin er skipuð þeim James Duncan sem spilar á slagverk, gítar, mandólín og syngur, Mickaël Téo sem syng- ur líka, spilar á gítar og úkúlele og Simon Robinson á bassa og trompett. „Við komum til Íslands fyrst fyrir fjórum árum og urðum ástfangnir af landinu. Fyrir tveimur árum komum við svo hingað til þess að spila á góðgerðartónleikum. Við spiluðum sextán sinnum á þremur dögum og þá tvisv- ar með Ragnheiði. Okkur líkaði mjög vel að spila með henni og við það sem hún var að gera. Svo þegar hún kom út í september þá vildum við spila með henni og tónlistar- samstarfið hefur verið alveg frábært. Hún spilaði nokkur af okkar lögum og við nokkur af hennar, þannig að okkur datt í hug að það gæti verið gott að semja einhver lög saman. Í júní kom hún til Lundúna og við sömdum saman „Puppet Dance“ og „Acci- dental Hero“,“ segir James. Rokkaðra en Ragnheiður er vön „Það var frábært og auðvelt að ná góðum hljómi. Þetta er aðeins rokkaðra og popp- aðra en það sem hún hefur verið að gera en ég held að það sé gott fyrir hana að fólk heyri hvaða vídd hæfileikar hennar hafa og okkur finnst frábært að fá að vinna með ís- lenskum listamanni. Við vildum líka ein- hvern sem myndi draga athygli að sér á Ís- landi, við vildum halda tónleika utan Reykjavíkur og það hefur gengið alveg ótrú- lega vel og við hlökkum til að koma til baka til borgarinnar. Við þekkjum hana ágætlega. Við höfum spilað á nokkrum mismunandi stöðum þar áður, m.a. á Rosenberg. Það er frábær staður og ætli hann sé ekki nokkuð virtur í Reykjavík,“ segir James, en á morg- un spila þeir lögin tvö sem þeir sömdu með Ragnheiði í júní, svo syngur hún fjögur af þeirra lögum og þeir taka fjögur af hennar lögum. Heimildarmynd eins og Spinal Tap „Við erum með smá kvikmyndahóp sem er að gera heimildarmynd um okkur og ferða- lagið okkar um Ísland með Ragnheiði. Einn í kvikmyndahópnum fór því miður með okk- ur þar sem við fórum í heitan pott og datt mjög illa. Hann fékk slæman skurð á fæt- inum. Ég auðvitað tók vélina og hélt áfram að taka það allt saman upp enda mjög gott efni, en hann er á spítalanum núna að láta sauma sig. Ég er að fara til hans á eftir.“ Hugmyndin að heimildarmyndinni kvikn- aði í Bretlandi þar sem ákveðið var að gera hljómsveit bresku strákanna að umfjöllunar- efninu, en myndin hefur tekið aðeins aðra stefnu frá upphaflegri ætlun þegar ljóst var að strákarnir myndu ferðast um Ísland með Ragnheiði. Ætla að vinna meira saman „Mickaël þekkir þann sem leiðir heimild- armyndina úr öðru verkefni. Hann vildi gera heimildamynd um okkur og við sögðumst ætla að starfa með Röggu og honum fannst það bara frábært. Svo er skipuleggjandi túrsins líka að hjálpa okkur með auka- upptökur. Þetta er svolítil svona ferðaheim- ildamynd um fallega náttúru landsins og þetta er líka svolítil rokkheimildamynd eins og Spinal Tap nema enginn þeirra lenti í pottaslysi þannig að við erum að brjóta þar hefðina.“ Hljómsveitinni hefur gengið vel að spila hérlendis en að sögn James líkar þeim mjög vel við Rosenberg og að spila á Íslandi yf- irhöfuð. „Við höfum enn ekki tekið meira upp með Röggu en samstarfið hefur verið mjög far- sælt tónlistarlega séð og ögrandi. Tónlist- armenn eru alltaf að reyna að ná sem mestu hver frá öðrum og fólkinu sem þeir starfa með og við náum rosalega miklu hvert úr öðru. Við tökum pakkann á Rosenberg og þegar því er lokið þá ætlum við bara að skemmta okkur,“ segir James að lokum. Tónleikaferðalag Fancy Toys um Ísland tekið upp fyrir heimildarmynd Fancy Toys Piltarnir bregða á leik í íslenskri náttúru á ferði sinni um landið. Bangsarnir hennar Hildar hafa vakið mikla athygli, bæði hér á landi og erlendis, og fyrirspurnum hreinlega rignir inn. „Það var stelpa sem fjallaði um þetta á veftímaritinu Coolhunting.com og við það fékk ég gífurleg við- brögð. Ég er búin að fá netbréf frá fólki í Banda- ríkjunum og hér heima. Það vilja allir vita hvar þeir geta keypt bangsana mína. Netverslanir eru byrjaðar að biðja um að selja þá og þeir eru ekki einu sinni komnir í framleiðslu,“ segir Hildur og hlær. Á Coolhunting er VEIKYNDUNUM, eða SICKNI- CES eins og þau verða kölluð á ensku, líkt við „psychedelic“ Kærleiksbirni en það hefur verið fjallað um þá víðar í netheimum, t.d. á síðunni Designlaunches.com. VEIKYNDI verða SICKNICE FYRIRSPURNUM RIGNIR INN Eyrún Eyrnabólga. www.hildurhermanns.com Morgunblaðið/Jakob Fannar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.