Morgunblaðið - 10.07.2010, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 2010
Ný og endurbætt útgáfa
Handhæg
t
ferðakort
Hljóðbók
Arnar Jón
sson
les 19 þjó
ðsögur
Nýr ítarle
gur
hálendisk
afli
Hafsjór af fróðleik
um land og þjóð
Vegahandbókin sími: 562 2600Eymundsson metsölulisti
30.06.10-06.07.10
1.
Sæti
Gamla bókin tekin upp í á kr. 1.000
Aðeins í bókaverslunum - Ekki á bensínstöðvum
Listhópar Hins hússins hafa staðið fyrir gjörningum annan
hvern föstudag í sumar og flakkar þá hópurinn um bæinn í
mikilli sköpunargleði og heillar gesti og gangandi með ýmiss
konar uppákomum. Meðal annars settust ungar stúlkur í
veðurblíðunni við Stjórnarráðshúsið og gæddu sér á tei. Eft-
irtektarvert var stellið enda einstaklega lekkert. Um var að
ræða síðasta föstudag í sumar sem Föstudags-fiðrildin svo-
kölluðu flögruðu um borgina og óhætt að segja að þau hafi
haft töluvert meira pláss í dag en oft áður enda Austurstræti,
Pósthússtræti og hluta Hafnarstrætis lokað fyrir umferð.
Borgaryfirvöld samþykktu nýverið lokunina sem stendur út
ágústmánuð.
Líf og fjör á sólríkum degi í Reykjavík
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Föstudags-fiðrildin mála miðborgina rauða
Einar Örn Gíslason
einarorn@mbl.is
Á fyrri helmingi þessa árs auglýstu
verslanir í eigu Haga í 19 sekúndur á
sjónvarpsstöðvum 365 miðla fyrir
hverja eina sem auglýst var saman-
lagt í Ríkissjónvarpinu og á Skjáein-
um. Þetta kemur fram í samantekt
auglýsingamarkaðs Capacent Gall-
up. Á sama tímabili var meðaláhorf á
Ríkissjónvarpið rúmlega helmingur
af öllu innlendu áhorfi, eða 50,6 af
hundraði. Könnun Capacent Gallup
nær til aldurshópsins 12-80 ára.
Sjónvarpsstöðvar 365 miðla sem
um ræðir eru Stöð 2, Stöð 2 Sport,
Stöð 2 Sport 2 og Stöð 2 Extra. Sam-
anlagt meðaláhorf á þessar fjórar
rásir á fyrstu sex mánuðum ársins
var 32 af hundraði í sama aldurs-
flokki. SkjárEinn rekur síðan lestina
með 6,7 af hundraði. Áhorfstölur eru
fengnar frá Capacent Gallup.
Nær allt hjá stöðvum 365
Líkt og sjá má í meðfylgjandi töflu
kaupa þessar verslanir Haga, sem
eru 10-11, Hagkaup, Bónus, Útilíf og
Debenhams, 95% af innlendum sjón-
varpsauglýsingum sínum af stöðvum
í eigu 365 miðla. Svipaða sögu er að
segja af prentmiðlum, en frá því var
greint í Morgunblaðinu í gær að dag-
blaðaauglýsingar Haga eru nánast
eingöngu keyptar í Fréttablaðinu,
sem einnig er í eigu 365 miðla, eða 97
af hundraði. Höskuldur H. Ólafsson,
forstjóri Arion banka, eiganda Haga,
sagði í samtali við blaðið að sér þætti
sú tölfræði „afgerandi og sérstök.“
Meðvitað hjá stjórnendum
Höskuldur sagðist gera ráð fyrir
því að þessi stefna væri meðvituð hjá
stjórn Haga. Arion banki hefði hins
vegar ekkert með hana að gera þar
sem bankinn kæmi ekki að dagleg-
um rekstri Haga. Hlutfallið meðal
100 stærstu fyrirtækja landsins,
annarra en þeirra sem eru í eigu
Haga, er öllu jafnara, eða 60% í
Fréttablaðinu og 40% í Morgun-
blaðinu.
Viðskiptalegar forsendur
Finnur Árnason, forstjóri Haga,
sagði í samtali við blaðið að tölur
Capacent kæmu sér undarlega fyrir
sjónir. Hann segir að auglýsinga-
kaup fyrirtækja í eigu Haga réðust
alfarið af viðskiptalegum forsendum,
það sé ekkert leyndarmál hvar þau
kaupi sínar auglýsingar.
„Auglýsingar ráðast af verði og
dreifingu fjölmiðlanna sem þær birt-
ast í. Þegar verðið er rétt eru auglýs-
ingar keyptar,“ segir Finnur, og
bætir því við að Hagar séu að reka
fyrirtæki og hafi ekki efni á því að
kaupa auglýsingar „þar sem þær
sjáist ekki.“ Hann tekur dæmi af
góðu gengi Hagkaupa upp á síðkast-
ið. „Þeir sem sjá um auglýsingar
hvers fyrirtækis fyrir sig standa sig
vel í rekstrinum,“ segir Finnur.
Auglýsa nánast bara hjá 365
Um 95% sjónvarpsauglýsinga fyrirtækja Haga voru keyptar af stöðvum 365
Meðaláhorf er hins vegar langmest á Ríkissjónvarpið af íslenskum stöðvum
Auglýsingar Haga í sjónvarpi*
* Mælt í sekúndum. Fyrri hluti árs 2010.
10-11
Hagkaup
Bónus
Útilíf
Debenhams
Samtals
Samtals
90
804
672
1.231
194
2.991
3%
0
1.496
0
0
471
1.967
2%
67.609
10.052
10.911
40
446
89.058
95%
67.699
12.352
11.583
1.271
1.111
94.016
100%
Gosmökkur reis
frá eldstöðvum í
gær og sást
hann vel einkum
vegna þess að
loftið var tært
og frekar létt-
skýjað. „Þetta
var svo áberandi
í morgun því það
var svo gott veð-
ur,“ segir Sigþrúður Ármanns-
dóttir, landfræðingur á Veðurstof-
unni. „En þegar líða tók á daginn
fór að þykkna upp, þannig að mað-
ur hætti í sjálfu sér að sjá gufu-
strókinn.“ Aðspurð hvort hún sjái
fram á nýtt gos segist Sigþrúður
ekki útiloka neitt, sérstaklega í
ljósi sögunnar, en síðast stóð gosið
yfir í um tvö ár.
Að sögn Sigþrúðar verður Ár-
mann Höskuldsson, fræðimaður,
ásamt föruneyti á jöklinum í rann-
sóknum um helgina. „Eins og er
þá eru engin merki um aukna gos-
virkni. Það sést ekkert í mæla-
kerfunum og það eru engin merki
um eldsumbrot,“ segir hún. „En
ég myndi alls ekki þora að útiloka
neitt.“ gunnthorunn@mbl.is
Útiloka ekki
að gosið
hefjist á ný
Eyjafjallajökull.
Skúli Á. Sigurðsson
skulias@mbl.is
Gunnar Þ. Andersen, forstjóri Fjár-
málaeftirlitsins, segist telja að laga-
grundvöllur tilmæla eftirlitsins og
Seðlabanka Íslands um hvernig skuli
haga uppgjöri gengistryggðra lána sé
traustur. Umboðsmaður Alþingis
sendi stofnununum bréf þann 7. júlí
þar sem þær eru inntar eftir skýringu
á lagagrundvelli tilmælanna. Er hún
send í tilefni af formlegri kvörtun lán-
taka gengistryggðs láns til umboðs-
manns og ábendinga sem honum hafa
borist.
Óskar umboðsmaður einnig skýr-
inga á í hverju óvissa um lánakjör fel-
ist. Telur hann að ekki verði ráðið af
dómum Hæstaréttar um ólögmæti
gengistryggingar að þeir haggi vaxta-
ákvæðum eða öðrum ákvæðum lána-
samninga að því er kemur fram í fyr-
irspurnarbréfi hans.
„Við reiknuðum ekki sérstaklega
með því en það má alltaf búast við
svona löguðu. Það er ekkert sem kem-
ur okkur á óvart hér lengur,“ segir
Gunnar um það hvort fyrirspurn um-
boðsmanns sé óvænt. Hann segir að
leitast verði við að svara fyrirspurn-
inni fyrir 16. júlí en umboðsmaður
óskaði svara fyrir þann dag.
Segir Gunnar að ekki hafi verið tek-
in nein ákvörðun um að draga tilmæl-
in til baka, það hafi ekki enn komið til
umræðu. Í fyrirspurn umboðsmanns
segir að komi til þess verði ekki þörf á
að svara spurningum hans.
FME telur lagagrundvöll
gengislánatilmæla traustan
Ekki hefur komið til umræðu að draga tilmælin til baka
Dæmdu ekki um vexti
» Úr fyrirspurn umboðs-
manns:
„Af lestri dóma Hæstaréttar
[…] verður ekki annað ráðið en
að […] dómarnir lúti eingöngu
að úrlausn um gildi ákvæða
þessara samninga um verð-
tryggingu skuldar samkvæmt
þeim miðað við gengi.