Morgunblaðið - 10.07.2010, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 10.07.2010, Blaðsíða 34
34 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 2010 Grátlega einstakir þættir Nú þegar heimsmeist- arakeppnin í knatt- spyrnu er senn á enda, vil ég ekki láta hjá líða að þakka Ríkissjón- varpinu fyrir skemmt- unina. Einkum skemmtunina sem felst í hinum einstaklega vel heppnaða þætti, Allt í kringum hvern leik, þar sem sérfræðingarnir þrír, Pétur, Hjörvar og Auðun skeggræða leik- ina undir ágætri stjórn Þorsteins J. Vilhjálms- sonar. Þeir þættir bera af öðrum ís- lenskum sjónvarpsþáttum síðustu misserin, og eru eiginlega grátlega einstakir. Hver einasti þátttakandi er réttur maður á réttum stað. Sérfræð- ingarnir eru fróðir en einnig bæði áheyrilegir og skemmtilegir, án til- gerðar. Sérstaklega er gaman að Hjörvari Hafliðasyni, sem sýnir aldrei nokkur svipbrigði sem benda til þess að hann viti hversu orðheppinn hann er. Af hverju segi ég að þættirnir séu grátlega einstakir? Jú, það er vegna þess að umræðuþættir í Ríkissjón- varpinu síðustu árin eru almennt illa heppnaðir. Hlutdrægir stjórnendur, sem fylla hvern þátt af misbiluðum skoð- anabræðrum sínum, þykja til dæmis sjálf- sagðir hlutir í Efstaleit- inu. Í Kastljósinu virðist svo sú regla uppi, þegar kemur að þeim þrautum að hnýta á sig hálsbindi eða fallbeygja einföld orð rétt, að enginn stjórnandi megi kunna nema í mesta lagi annað hvort, helst hvorugt. Meira að segja karlkyns veðurfréttamenn mæta í útsendingu í gallabux- um, krumpuðum skyrt- um og undarlegum peysum. Ekkert af þessu á við um hið ágæta fótboltaspjall. Þar sitja fróðir, orðheppnir og hrokalausir menn, sem hafa raunverulegt vit á því sem þeir tala um. Og allir eru þeir klæddir eins og menn, að minnsta kosti ofan mittis. Fótboltaspjallið er helsta skraut- fjöður Ríkissjónvarpsins um þessar mundir. En nú lýkur heimsmeist- arakeppninni og Efstaleitið skraut- fjaðralaust. En þeir sem hafa alla þjóðina í skylduáskrift þurfa líklega ekki að hafa áhyggjur af því. Miskátur sjónvarpsáhorfandi. Ást er… … að bindast böndum. VelvakandiGrettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand HANN VILL LÁTA BREYTA NAFNINU SÍNU Í „HERRA JARÐEPLI“ ÉG VEIT EKKI HVAÐ ÉG Á AÐ GEFA ÞÉR. GEFÐU MÉR VÍSBENDINGU Ó, JÓN... ÞÚ ÞARFT EKKI AÐ GEFA MÉR NEITT HÚN ER SVO ÓSANNGJÖRN ÁSTIN ER GÓÐ ÍÞRÓTT FYRIR ÁHORFENDUR RAKEL SEGIR AÐ TUNGLIÐ SÉ ELDRA EN HÖFIN VIÐ STELPUR ÞURFUM OKKAR KVENHETJUR RAKEL! RAKEL! RAKEL! RAKEL! RAKEL! ÞÚ TALAR EKKI UM ANNAÐ EN ÞESSA KONU! GUÐ MINN ALMÁTTUGUR! HVERNIG HUNDUR ER ÞETTA?!? HANN VANN FYRSTU VERÐLAUN Á HUNDA- SÝNINGU Í FYRRA HVAÐA SÝNING VAR ÞAÐ? FJÖLSKYLDU- SÝNING HRÓLFS HRÆÐILEGA ÉG SETTI UPP AUGLÝSINGU UM AÐ HLJÓMSVEITIN MÍN SÉ TIL Í AÐ TAKA AÐ SÉR TÓNLEIKA Í HEIMAHÚSUM ...OG ÞAÐ KASTAR ENGINN FLÖSKU Í HÖFUÐIÐ Á OKKUR GANGI YKKUR VEL HELDUR EINHVER TÓNLEIKA HEIMA HJÁ SÉR? JÁ, ÞAÐ ER ORÐIÐ ANSI VINSÆLT ÞAÐ MYNDAST MJÖG ÞÆGILEG OG HUGGULEG STEMN- ING, AUK ÞESS SEM HLJÓMSVEITIN HELDUR MEGNINU AF PENINGUNUM ÞÁ FER HANN OG LÆTUR LÖGGUNA SJÁ UM RESTINA! HANN BJARGAÐI OKKUR, JONAH... OG ÞÚ VEIST ÞAÐ NÚNA GETUM VIÐ VERIÐ SAMAN MEIRA AÐ SEGJA KÓNGULÓARMAÐURINN GETUR GERT EITTHVAÐ RÉTT Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Þegar fregnir bárust af eigna-skiptingu Jóns Ásgeirs Jó- hannessonar og Ingibjargar Pálma- dóttur á lúxusíbúðum í New York fóru hagyrðingar á kreik á Leirn- um. Hjálmar Freysteinsson orti: Þætti mörgum karli klént og kynni ei sem best, að eiga bara 1% en eiginkonan rest. Davíð Hjálmar Haraldsson bætti við: Sýnist mörgum sama um það og sinna lítið hinu en vilja stýra umferð að eina prósentinu. Þá Kristján Eiríksson: Sá hundrað prósent átti áður einn í mörgu, víst óskaplega er nú háður Ingibjörgu. Hjálmar orti af öðru tilefni: Meðan endist auður manns ekki er grafar friður. Til að gá að genum hans grafa ’ann upp og niður. Friðrik Steingrímsson dregur lærdóm af örlögum Fischers: Af því læra maður má mætti kanski segja, aðeins grafar friðinn fá sem fátækastir deyja. Loks kastar Sigrún Haralds- dóttir fram limru í léttum dúr: Örlagabyttan hann Bolli blekaður lá oní polli er rolla ein grá rölti þar hjá og undrandi kinkaði kolli. Vísnahorn pebl@mbl.is Af lúxus og gröf Fischers Allar minningar á einum stað. ÍS L E N S K A S IA .I S M O R 48 70 7 01 /1 0 Minningar er fallega innbundin bók sem hefur að geyma æviágrip og allar minningargreinar sem birst hafa um viðkomandi í Morgunblaðinu eða á mbl.is. Bókina má panta á forsíðu mbl.is eða á slóðinni mbl.is/minningar Um leið og framleiðslu er lokið er bókin send í pósti. Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem birst hafa frá árinu 2000 og til dagsins í dag. –– Meira fyrir lesendur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.