Fréttablaðið - 18.11.2011, Qupperneq 74
18. nóvember 2011 FÖSTUDAGUR54
FÓTBOLTI Skotinn Willie McKay er
umdeildur umboðsmaður knatt-
spyrnumanna og meðal þeirra
þekktustu í sinni starfsstétt.
Hann var einn þeirra sem rann-
sóknarnefnd enska knattspyrnu-
sambandsins tók sérstaklega
fyrir árið 2007 þegar grunur lék
á um stórfellda mútustarfsemi í
tengslum við félagaskipti knatt-
spyrnumanna.
Í dag er hann enn starfandi
sem umboðsmaður en nú einbeit-
ir sér hann fyrst og fremst að því
að styrkja eitt lið – B-deildarliðið
Doncaster Rovers. Félagið réði
hann beinlínis til starfa (reynd-
ar fyrir bara 100 pund á viku,
rúmar átján þúsund krónur) til að
finna félaginu leikmenn sem gætu
styrkt liðið.
Allir eiga að hagnast
Aðferðafræðin er í raun einföld.
Þeir leikmenn sem McKay vill fá
til Doncaster eru ekki lengur í náð-
inni hjá sínum félögum, sem eru
því viljug að lána þá til liða eins og
Doncaster. Stóru félögin taka þátt í
launakostnaði leikmannanna, sem
fá að spila á ný og sýna sig fyrir
öðrum og betri liðum. Þannig
fær Doncaster leikmenn sem það
hefði annars aldrei átt möguleika
að kaupa.
McKay kom fyrst með Sene-
galann El-Hadji Diouf, sem var
reyndar samningslaus í sumar.
Hann gerði þriggja mánaða samn-
ing og skoraði til að mynda tvö
mörk í óvæntum 3-2 sigri liðsins á
Ipswich í síðustu umferð.
Meðal annarra leikmanna sem
McKay hefur fært Doncaster eru
bakvörðurinn Pascal Chimbonda
(sem gerði skammtímasamning)
og Herita Ilunga, sem er á mála
hjá West Ham.
Samkvæmt lánsfyrirkomulag-
inu greiðir Doncaster varnar-
manninum Ilunga tvö þúsund pund
(372 þúsund kr.) í vikulaun en West
Ham sér um afganginn. Doncaster
greiðir lánsmönnum aldrei meira
en tvö þúsund pund í vikulaun.
Hvort fleiri koma verður tíminn
að leiða í ljós en sögusagnir eru
á kreiki um að einn þeirra leik-
manna sem McKay hefur auga-
stað á er Mahamadou Diarra hjá
Real Madrid.
Sjálfur sagði McKay í viðtali
við fréttavef BBC í gær að félagið
ætti lítinn möguleika á að bjarga
sér frá falli. „Önnur félög hafa
ekki sýnt neinum leikmanni áhuga,
nema Billy Sharp [sóknarmanni],“
sagði hann til að undirstrika hvað
félagið væri illa statt hvað úrval
leikmanna varðaði.
„Við þurfum því að gera eitt-
hvað öðruvísi. Eitthvað nýtt. Það
ber að hafa í huga að launakostn-
aður Peterborough er 3,5 milljónir
punda. Launakostnaður Doncas-
ter er 8,5 milljónir en samt eru
þeir fyrir ofan okkur í töflunni,“
sagði McKay.
Löglegt en siðlaust?
Það er ekkert ólöglegt við starf-
semi McKay og Doncaster. Það
hefur enska knattspyrnusam-
bandið staðfest. Mörgum finnst
hins vegar ósanngjarnt að láns-
kerfið sé notað á þennan máta. Að
stór knattspyrnufélög geti lánað
minni liðum leikmenn sem styrkja
þau að verulegu leyti, og svo þarf
félagið sem fær leikmanninn að
láni ekki að greiða nema brot af
launum leikmannsins.
Til að mynda var bent á dæmi
Craigs Bellamy sem var lánað-
ur frá Manchester City til Car-
diff City á síðasta tímabili. Bel-
lamy var á himinháum launum
hjá Man chester City, sem sá þó
áfram um að greiða stærstan
hluta launanna.
Sum félög eru sögð áhugasöm
um þetta fyrirkomulag en for-
ráðamenn annarra félaga hafa
sínar efasmdir. Eins og Colin Sex-
stone, stjórnarformaður Bristol
City sem leikur í sömu deild.
„Ég held að þetta muni ekki
gagnast þeim. Þeir eru í raun að
fá málaliða til skamms tíma sem
eru aðeins að nota félagið fyrir
sína eigin hagsmuni,“ sagði hann.
Doncaster er sem fyrr segir í
neðsta sæti ensku B-deildarinn-
ar en fróðlegt verður að fylgjast
með gengi liðsins næstu vikur og
mánuði. eirikur@frettabladid.is
Kemur umboðsmaðurinn til bjargar?
Enska B-deildarfélagið Doncaster Rovers situr á botni deildarinnar en félagið ákvað fyrr í haust að reyna
óvenjulegar leiðir til að koma liðinu á réttan kjöl. Umdeildur umboðsmaður á að bjarga liðinu frá falli.
GÓÐUR GLUGGI Pascal Chimbonda og El-Hadji Diouf fóru báðir til Doncaster til að
auglýsa sig og freista þess að komast aftur að hjá stórum klúbbi. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Bretar eru æfir eftir að
Sepp Blatter, forseti Alþjóðaknatt-
spyrnusambandsins [FIFA], lét
óheppileg ummæli nýverið falla
í viðtali við CNN-sjónvarpsstöð-
ina. Þar sagði hann að kynþátta-
fordómar væru ekki til staðar í
knattspyrnunni og að hægt væri
að leysa þau mál sem upp kæmu
með því að takast í hendur.
„Kynþáttaníð á sér ekki stað
á knattspyrnuvellinum,“ sagði
Blatter í viðtalinu. „Kannski ger-
ist það í samskiptum leikmanna að
eitthvað sé sagt eða gert sem ekki
er rétt. Sá sem verður fyrir áhrif-
um af þessu verður að hafa í huga
að þetta er leikur. Við erum í leik
og í lok hans tökumst við í hend-
ur. Svona lagað getur átt sér stað,
vegna þess að við höfum lagt svo
mikið á okkur í baráttunni gegn
kynþáttaníði og mismunun.“
Óhætt er að segja að ummæl-
in hafi vakið reiði í Bretlandi, en
þar í landi eru menn enn öskureið-
ir út í Blatter fyrir að fá ekki að
halda HM 2018 eins og þeir sóttu
um. Blatter hefur mátt berjast
við ásakanir um að mútustarf-
semi og spilling eigi sér stað
innan FIFA í ríkum mæli en því
hefur hann ávallt neitað. Víst er
að þessi ummæli auka álit Breta
ekki mikið, en mörg mál tengd
kynþáttafordómum í enskri knatt-
spyrnu hafa komið upp í haust.
Blatter reyndi að draga í land
með yfirlýsingu sem birtist á
heimasíðu FIFA í gærkvöldi. „Ég
veit líka að kynþáttaníð á sér stað
í knattspyrnunni, því miður. Ég
veit að þetta er stórt vandamál í
okkar samfélagi sem hefur áhrif
á íþróttir,“ segir í yfirlýsingunni.
„Ummæli mín voru misskilin.“
Yfirlýsingin hafði þó lítið að
segja og komu margir fram í
fjölmiðlum í gær og kröfðust
afsagnar Blatters, til að mynda
Gordon Taylor, formaður samtaka
atvinnumanna í Englandi, og Hugh
Robertson, íþróttamálaráðherra
Bretlands.
„Hann verður að hætta, íþrótt-
arinnar vegna,“ sagði Robertson
við enska fjölmiðla. „Ummælin
eru algerlega óviðunandi og enn
ein ástæðan til að velta því fyrir
sér hvort þessi maður eigi að vera
æðsti maður knattspyrnunnar í
heiminum.“
Rio Ferdinand, leikmaður Man-
chester United, átti í orðaskiptum
við Blatter á samskiptavefnum
Twitter í gær, en lesa má nánar
um þau á íþróttavef Vísis. Þetta
skrifaði Ferdinand meðal annars
síðdegis í gær:
„Orð þín um kynþáttafordóma í
knattspyrnu segja allt sem segja
þarf um vanþekkingu þína á
málinu.“ - esá
Ummælum Sepps Blatter, forseta FIFA, um kynþáttafordóma mætt af mikilli reiði í Bretlandi og víðar:
„Kynþáttafordóma má leysa með handsali“
BLATTER Umdeildur og veit sjálfsagt vel
af því. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Litháinn Vladimír
Romanov hefur ákveðið að
setja skoska knattspyrnufélagið
Hearts á sölu, þar sem hann er
orðinn þreyttur á fótbolta. Hann
keypti félagið árið 2005 en lands-
liðsmaðurinn Eggert Gunnþór
Jónsson er á mála hjá félaginu.
„Ég vil hætta í fótbolta og hef
gefið þá skipun að finna skuli
knattspyrnufélögum mínum nýja
eigendur,“ sagði hann í samtali
við rússneska fjölmiðla í gær.
Auk Hearts á hann einnig FBK
Kaunas í heimalandinu og Partiz-
an Minsk í Hvíta-Rússlandi.
Á ýmsu hefur gengið á þeim
sex árum sem Hearts hefur verið
í eigu Romanovs, en á þeim tíma
hafa til að mynda átta mismun-
andi knattspyrnustjórar stýrt lið-
inu. Samingur Eggerts Gunnþórs
við félagið rennur út í sumar. - esá
Orðinn þreyttur á fótbolta:
Romanov setur
Hearts á sölu
EGGERT GUNNÞÓR Hefur verið lykil-
maður í liði Hearts undanfarin ár.
MYND/VALLI
KÖRFUBOLTI Íslenskir leikmenn
eru ekki mjög áberandi meðal
stigahæstu leikmanna Iceland
Express-deildar karla í körfubolta,
en sex umferðir eru nú búnar af
deildinni. Enginn kemst inn á
topp tíu og aðeins þrír eru á topp
tuttugu ef við teljum Justin Shouse
með, en hann fékk íslenskan
ríkisborgararétt í sumar.
Marvin Valdimarsson hjá Stjörn-
unni og Magnús Þór Gunnars-
son hjá Keflavík eru stigahæstu
íslensku leikmennirnir í deildinni,
en þeir hafa báðir skorað 119 stig
í 6 leikjum, eða 19,8 að meðaltali
í leik.
Marvin hefur verið í aðal-
hlutverki í Stjörnuliðinu eftir að
Jovan Zdravevski meiddist og
skoraði 53 stig samtals í síðustu
tveimur leikjum Stjörnunnar.
Marvin hefur hitt úr 19 af 31
skoti sínu í þessum tveimur sigur-
leikjum, sem gerir 61 prósents
skotnýtingu. Marvin náði í síð-
asta leik á móti Snæfelli að hækka
stigaskor sitt þriðja leikinn í röð,
en hann skoraði þá 28 stig og setti
niður sex þriggja stiga körfur.
Magnús hefur líka rofið tutt-
ugu stiga múrinn í síðustu tveim-
ur leikjum, en hann hefur skorað
mikið fyrir Keflavík þrátt fyrir að
þrír erlendir leikmenn leiki með
Keflavíkurliðinu. Magnús hefur
skorað þrjár eða fleiri þriggja
stiga körfur í fimm af sex leikjum
sínum og hefur enginn leikmaður
í deildinni skorað fleiri þriggja
stiga körfur. Magnús hefur sett
niður 25 þrista, eða 4,2 að meðal-
tali í leik.
Magnús er stigahæsti leikmaður
Keflavíkurliðsins, en hann hefur
skorað aðeins meira en Steven
Gerard Dagustino. Magnús er þar
með eini íslenski leikmaðurinn
sem er stigahæstur hjá sínu liði
í Iceland Express-deildinni en öll
hin ellefu lið deildarinnar eru með
erlendan leikmann í fararbroddi.
Þórsarinn Darrin Govens er
langstigahæsti leikmaður deild-
arinnar, en hann hefur skorað 19
stigum meira en næsti maður og
er með 29,0 stig að meðaltali í leik.
ÍR-ingurinn Nemanja Sovic er í 2.
sætinu með 25,8 stig að meðaltali
í leik. - óój
Íslendingar eru ekki áberandi meðal stigahæstu manna í fyrstu sex umferðum Iceland Express-deildar karla:
Magnús og Marvin skora mest Íslendinga
MAGNÚS ÞÓR GUNNARSSON Eini
Íslendingurinn sem er stigahæstur í sínu
liði. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
MARVIN VALDIMARSSON Skoraði sam-
tals 53 stig í síðustu tveimur leikjum
Stjörnunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Lögreglan í Asker og
Bærum í Noregi hefur ákveðið
að rannsaka
hvort lög hafi
verið brotin
þegar Veigar
Páll Gunnars-
son var seldur
frá Stabæk
til Vålerenga.
Lögreglurann-
sókn mun hefj-
ast á næstunni
þar sem allt
„söluferlið“
verður rannsakað.
Nina Bjørlo, yfirmaður í lög-
regluumdæmi Asker og Bærum,
segir í viðtali við Aftenposten
að lögreglan hafi skoðað málið á
undanförnum vikum og ákveðið
að setja í gang rannsókn með
formlegum hætti.
Talið er að forráðamenn
Stabæk hafi lækkað verðið á
Veigari Páli til þess að komast
hjá því að greiða franska félaginu
Nancy háa fjárhæð vegna sölunn-
ar. Nancy keypti Veigar Pál frá
Stabæk á sínum tíma og þegar
Veigar fór frá Frakklandi aftur
til norska liðsins var samið um
að Nancy fengi 50% í sinn hlut ef
Veigar yrði seldur frá Stabæk.
- seth
Mál Veigars Páls í Noregi:
Lögreglan mun
rannsaka málið
FÓTBOLTI Enska knattspyrnusam-
bandið ákvað í vikunni að kæra
Luis Suarez, leikmann Liverpool,
fyrir kynþáttaníð og gæti hann á
endanum fengið sex leikja bann,
að minnsta kosti.
Þetta var fullyrt í enska götu-
blaðinu The Mirror í gær. Þar
kemur fram að Suarez verði
einnig mögulega sektaður, en mál
hans verður tekið fyrir á næstu
vikum.
Liverpool, félag hans, birti
yfirlýsingu þar sem fullum stuðn-
ingi er lýst við Suarez. Hann
sneri aftur til Liverpool í gær,
en búist er við því að hann muni
svara ásökunum fullum hálsi
enda hefur hann ávallt haldið
fram sakleysi sínu. - esá
Luis Suarez hjá Liverpool:
Mögulega sex
leikja bann
VEIGAR PÁLL
GUNNARSSON