Morgunblaðið - 10.07.2010, Síða 10

Morgunblaðið - 10.07.2010, Síða 10
Margir vinna störf sem krefjast þess að þeir séu í tölvunni alla virka daga. Fólk er þá yfirleitt duglegt við að taka smánetrúnt, kíkja á fréttasíður, blogg, Facebook o.fl. sem vekur áhuga manns. Oft stelur þessi litli rúntur frá manni talsverðum tíma, sérstaklega ef hann er tekinn oftar en einu sinni á dag. Það er því um að gera að kveikja ekki á tölvunni heima um helgar heldur njóta þess að gera aðra hluti og eyða ekki dýrmætum frítíma í hugsanalausar flettingar milli síðna. Það er líka alltaf hægt að hugsa þetta þannig að það er þá þeim mun meira fyrir mann að skoða á mánudeginum! Endilega … … eigið tölvulausan dag Morgunblaðið/Kristinn Frí Láttu tölvuna eiga sig yfir helgina. PRUFUTÍMINN Matthías Árni Ingimarsson matthiasarni@mbl.is Það eru vonandi ekki margirsem hætta sér á bíl út íumferðina án þess að hafafarið í að minnsta kosti nokkra ökutíma og með öku- skírteini. Er það nokkuð? Gefum okkur það a.m.k. Sama gildir hins vegar sjaldnar þegar kemur að því að slá litla hvíta kúlu með kylfu og reyna að koma henni niður litla holu í sem fæstum höggum. Margir henda sér út í golf- íþróttina að öllu afli, en sumir huga þó ekki að því að fá smá leiðsögn um hvernig skuli nú slá þessa blessuðu kúlu sem beinast niður brautina hverju sinni og það ekki bara einu sinni heldur aftur og aftur og aftur. Sjálfur er ég einn af þeim sem hafa gerst sekir um að slá golfbolta og labba á eftir þeim í ófá skipti án þess að hafa hlotið nokkra kennslu í íþróttinni og ég hef lítið verið að hugsa um hvað ég sé að gera vit- laust og hvernig ég geti lagað hjá mér sveifluna. Leitað til fagmanns Ekki það að ég sé með golf- bakteríuna margfrægu og vakni fyr- ir allar aldir og slái nokkra bolta fyrir vinnu og sé með fyrstu mönn- um á teig þegar vellirnir eru opnaðir eftir vetrarlokun, mér þykir aftur á móti skemmtilegt að slá nokkra bolta annað slagið og kannski labba 18 holur í góðum vinahóp þegar vel viðrar. En í þessi örfáu skipti sem ég hef tekið upp golfkylfu hefur ár- angurinn verið frekar misjafn og all- an stöðugleika vantað. Einfaldlega vegna þess að ég er að gera hlutina bandvitlaust. Því fannst mér tími til kominn að leita ráða hjá fagmanni og sjá hvað ég er að gera vitlaust og Það skiptir öllu máli að gripið sé rétt Golf er án efa ein vinsælasta íþrótt sem stunduð er hérlendis. Hún krefst þolinmæði og fáir ná tökum á henni á einni nóttu. Því er til- valið að leita ráða hjá fagmönnum áður en haldið er út á völlinn og golfkúlan fer að fljúga í allar áttir. Morgunblaðið/Ernir Greining Björgvin fer yfir upptökur af sveiflunni til að bæta hana. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 2010 10 Daglegt líf Síðunni svipar til hinnar vinsælu lamebook.com nema hvað flickmylife er íslensk síða sem setur ekki aðeins inn færslur um athyglisverðar stöðu- uppfærslur, myndir eða aðdáenda- síður á Facebook heldur tekur einnig fyrir tví- eða þrífara, skringilegar auglýsingar, illskiljanlegt orðalag vefmiðla og svo mætti lengi telja. Aðstandendur síðunnar eru líka dug- legir við að birta gamlar myndir af þekktum Íslendingum og þar virðist vera vinsælastur útvarpsmaðurinn síkáti Ásgeir Kolbeins. Það er oft og tíðum góð skemmt- un að kíkja inn á síðuna og sjá ótrú- legustu hluti sem fólk lætur út úr sér á Facebook eða myndatexta á fréttasíðum sem virðast ekki vera í nokkru samhengi við fréttina sem textinn stendur við. Þá hitta þeir oft naglann á höfuðið þegar kemur að tvíförum (þegar þeim er stillt upp hlið við hlið þá eru Kalli Berndsen og Snorri Ásmundsson alveg sláandi lík- ir) auk þess sem öllum finnst gaman að sjá gamlar myndir af Ásgeiri Kol- beins. Vefsíðan www.flickmylife.com Morgunblaðið/Frikki Vinsæll Íslendingar fá ekki nóg af Ásgeiri Kolbeins á flickmylife.com Hlegið að íslenskri vitleysu Það vill oft til þegar golfbolti er sleginn að hann leiti til hægri eða vinstri í stað þess að fara beint. Þegar það gerist er annaðhvort verið að húkka eða slæsa boltann. Húkk eða „hook“ eins og það heit- ir á ensku kallast það þegar bolt- inn er sleginn til vinstri hjá rétt- hentum leikmönnum en til hægri hjá örvhentum. Slæs eða „slice“ er öfugt við húkk, þ.e. rétthentur leikmaður slær boltann til hægri en örvhentur til vinstri. Húkka eða slæsa GOLFMÁLIÐ Gyðja Collection hefur gertsamning við Hagkaup umað verslunin selji nýja fylgihlutalínu sem hönnuð verður undir nýju nafni sérstaklega fyrir verslanir Hagkaupa. Línan mun samanstanda af skóm, töskum og beltum og kemur hún í verslanir Hagkaupa í mars 2011. Hún verð- ur þó aðeins til sölu í takmarkaðan tíma. „Þetta er mjög spennandi fyrir mig og gaman að fá að vinna náið með eins stóru „konsepti“ og Hagkaup eru. Ég er mjög spennt fyrir þessu og ég fer full af metnaði inn í þetta verkefni með Hag- kaupum,“ segir Sigrún Lilja Guðjónsdóttir, eig- andi Gyðju Collection. Nafnið hefur hins vegar ekki enn verið ákveðið. „Þar sem þetta er í raun afsprengi Gyðju þá má gera ráð fyrir að nafnið verði í ætt við það. Við horfum á þetta sem litla barn Gyðju.“ Undanfarin ár hefur færst í vöxt erlendis að þekktir stóran dreifingaraðila en Hagkaup er með verslanir um allt land þannig að línan nær til sem flestra landshluta. Það er í raun hugmyndin með þessu, að sem flestir geti náð sér í eintak af þessari nýju línu.“ Stefnt er að því að hafa fylgihlut- ina á viðráðanlegu verði og því verður notast t.d. við leðurlíki en línan er hugsuð fyrir annan mark- hóp en Gyðja Collection sem er hugsuð fyrir lúxusvörur. „Þetta verður alveg allt önnur lína en það verður samt mitt „twist“ á þessu. Ég er dálítil glamúrmanneskja og línan verður í ætt við það en þetta verður meira hugsað sem klassískari vara sem er hægt að nota hversdags. Sniðin verða þó einnig unnin út frá því sem er að gerast í tískuheiminum í dag.“ Ný fylgihlutalína í undirbúningi frá Gyðju Collection Gyðja gerir samning um nýja fylgihlutalínu Ljósmynd/Heiða Helgadóttir Sigrún í Gyðju Hún er að byrja að hanna nýju línuna. Undanfarin ár hefur færst í vöxt erlendis að þekktir hönnuðir hanni línur fyrir verslunar- keðjur undir eigin nafni. hönnuðir hanni línur fyrir versl- unarkeðjur undir eigin nafni sem eru innblásnar af hátísku en á viðráð- anlegra verði. T.d. hefur Jean Paul Gaultier hannað fyrir Target og Karl Lagerfeld og Roberto Cavalli fyrir H&M. Spurð hvernig samstarfið hafi kom- ið til segir Sigrún Lilja að hún hafi leit- að til Hagkaupa. „Mér fannst vera gat á markaðnum þarna. Mér fannst vera þörf á þessu og markaður fyrir þetta, sérstaklega á tímum sem þessum. Þá taldi ég Hagkaup góðan aðila til að starfa með, þar sem um er að ræða

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.