Fréttablaðið - 22.11.2011, Page 8

Fréttablaðið - 22.11.2011, Page 8
22. nóvember 2011 ÞRIÐJUDAGUR8 ALÞINGI Ríkisendurskoðun hefur hafnað beiðni Alþingis um að gera úttekt á áætluðum kostn- aði, forsendum og fleiri þátt- um sem tengjast fyrirhuguðum Vaðlaheiðargöngum. Er þetta í fyrsta sinn sem stofnunin hafnar beiðni frá Alþingi. Ástæðan er sú að slíkt er ekki lögbundið verkefni stofnunarinn- ar, auk þess sem Sveinn Arason ríkisendurskoðandi telur sig van- hæfan vegna fjölskyldutengsla sinna við Kristján L. Möller alþingismann, en þeir eru mágar. Kristján er stjórnarmaður í Vaðla- heiðargöngum ehf. og fyrrverandi samgönguráðherra. Sveinn segir að stofnunin verði að gæta þess að fara ekki út fyrir þann ramma sem tilgreinir lögbundið hlutverk sitt. „Auðvitað eru markatilvik eins og í öllum málum og þar verðum við að velja og hafna,“ segir hann. „Mál þurfa að vera afgerandi til að við höfnum beiðnum frá for- seta Alþingis.“ Sveinn segir að það sem hafi legið bak við beiðnina um Vaðlaheiðargöng hafi verið þannig útfært að augljóst væri að Ríkis- endurskoðun gæti ekki fram- kvæmt úttektina. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, segir það hafa verið nefnt í forsætisnefnd að þetta gæti orðið niðurstaða ríkis- endurskoðanda, en niðurstaðan var að það yrði hans að meta það. Óski þingmenn eftir því að stofn- unin geri úttekt á málum sé yfir- leitt orðið við því, en allar beiðnir fara í gegnum forsætisnefndina. Upphaflega kom ósk um úttekt frá umhverfis- og samgöngunefnd. - sv Ríkisendurskoðun hafnar beiðni forsætisnefndar um úttekt á arðsemi Vaðlaheiðarganga: Alþingi neitað um úttekt í fyrsta sinn ÁSTA RAGNHEIÐUR JÓHANNESDÓTTIR SVEINN ARASON 1. Hvað fékk Bjarni Benediktsson mörg prósent atkvæða í formanns- kjöri Sjálfstæðisflokksins um helgina? 2. Hvað stunda margir nám í Hús- stjórnarskólanum í Reykjavík? 3. Hvað hefur Heiðar Helguson skorað mörg mörk fyrir QPR síðan í október? SVÖR: 1. 55 prósent 2. 24 3. Fimm HEILBRIGÐISMÁL Algengasta verkja- og bólgulyf Íslendinga, íbúfen, er ófáanlegt í lausasölu. Ríkisendurskoðun gagnrýnir skort á samkeppni á lyfjamark- aðnum en úrvalið hér er minna en á Grænlandi og í Færeyjum. Ástæðan er sú að sending frá Actavis sem kom í síðustu viku af lyfinu reyndist óseljanleg. Lyfin koma í hitastýrðum gámum og voru þeir vitlaust stilltir. Þessi tímabundni íbúfen- skortur í landinu undirstrikar aðeins hluta af stærra vandamáli, sem er skortur á samkeppni á lyfjamarkaði. Í nýútkominni skýrslu Ríkis- endurskoðunar um þróun lyfja- kostnaðar hér á landi kemur fram að vegna smæðar markaðarins sé framboð lyfja hér mun minna en annars staðar á Norðurlöndum. - þþ Íbúfen ófáanlegt í lausasölu: Meira lyfjaúr- val í nágranna- löndunum ÍBÚFEN Lyfið er algengasta bólgulyfið á Íslandi. Sveiflaði hnífi í bústað Lögreglumenn voru kallaðir að sumarbústað skammt frá Borg í Grímsnesi í gærmorgun vegna manns sem lét ófriðlega og sveiflaði hnífi án þess þó að beina honum að fólki. Maðurinn var í hópi fólks sem var í teiti fram á nótt og undir morgun. Hann var handtekinn og færður í fangageymslu þar sem hann var látinn sofa úr sér. LÖGREGLUFRÉTTIR EGYPTALAND, AP Bráðabirgða- stjórnin sem ríkt hefur undan- farna mánuði í Egyptalandi sagði af sér í gær í skugga mikillar mót- mælaöldu sem staðið hefur frá því á laugardag. Stjórnin hefur sætt mikilli gagn- rýni fyrir dugleysi og undirlægju- hátt í samskiptum við herinn. Samhliða uppsögninni lýsti hún því yfir að hún hygðist þó áfram fara með daglega stjórn lands- ins þar til ákveðið yrði hvernig brugðist skyldi við. Öryggissveitir herforingja- stjórnarinnar köstuðu táragas- hylkjum inn á Tahrir-torgið í Kaíró í gær og börðust þar við þús- undir mótmælenda þriðja daginn í röð. Átökin hafa kostað að minnsta kosti 24 lífið. Mótmælendur, flestir ungir aðgerðasinnar, halda til streitu kröfum sínum um að herforingja- stjórnin láti völdin í hendur borg- aralegrar ríkisstjórnar. Harðir bardagar hafa geisað á torginu, mótmælendur kasta steinum og eldsprengjum að svartklæddri lög- reglunni, sem svarar með gúmmí- kúlnahríð. Á sunnudagskvöld gerði lög- reglan atlögu að mótmælendum í því skyni að rýma torgið. Það mistókst. Stanslaus straumur slasaðra mótmælenda var inni í bráðabirgðaskýli á gangstéttun- um umhverfis torgið þar sem sjálf- boðaliðar gerðu að sárum þeirra. Mótmælin hófust á laugar- dag, viku fyrir fyrstu þingkosn- ingarnar í landinu eftir að Hosní Múbarak var hrakinn frá völdum í ársbyrjun. Vonir höfðu staðið til að kosningarnar yrðu fyrsta skrefið í átt að því að raunverulegt lýðræði kæmist á í Egyptalandi. Þess í stað hafa kosningarn- ar fallið í skuggann af vaxandi reiði í garð herforingjastjórn- arinnar, sem mótmælendur saka um að þokast óðum í átt að sams konar einræðistilburðum og einkenndu stjórnarhætti Múbaraks. Þeir óttast jafnframt að herforingjastjórnin muni áfram ríkja yfir þeirri stjórn sem tekur við að kosningunum loknum, líkt og verið hefur með bráðabirgða- stjórnina undanfarna mánuði. Herinn hefur sagt að hann muni ekki draga sig í hlé fyrr en eftir forsetakosningarnar, sem hefur verið gefið í skyn að verði haldnar í lok 2012 eða snemma árs 2013. Starfsmaður líkhúss í Kaíró staðfesti í gær að minnst 24 hefðu látist í mótmælunum, þar af fimm frá miðnætti á sunnudag. Að sögn lækna við torgið hafa hundruð manna leitað sér aðhlynningar. Einn þeirra kveðst sinna 80 manns á hverri klukkustund. Mest sé um fólk með eymsli í augum og hálsi af völdum táragass og sár í andliti eftir gúmmíkúlur. Nokkrir hafa misst augu af völdum slíkra skota. stigur@frettabladid.is Bráðabirgðastjórn Egypta segir af sér vegna mótmæla Minnst 24 hafa látist í átökum mótmælenda og lögreglu í Kaíró síðan á laugardag. Bráðabirgðastjórnin sagði af sér í gær. Seint í gærkvöld var óljóst hvort herforingjaráðið hafði fallist á afsögn stjórnarinnar. DAVÍÐ OG GOLÍAT Mótmælendurnir hafa skotið steinum úr teygjubyssum og kastað eldsprengjum að brynvarinni lögreglu. Á móti skýtur lögregla táragashylkjum og gúmmíkúlum. Á þriðja tug liggja nú í valnum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.