Fréttablaðið - 22.11.2011, Page 10
22. nóvember 2011 ÞRIÐJUDAGUR10
STJÓRNMÁL Sjálfstæðisflokkurinn
mun setja á fót nefnd sem kanna á
framtíðarskipan gjaldmiðilsmála
á Íslandi, samkvæmt ályktun
landsfundar flokksins í efnahags-
og skattamálum. Íslendingar
verði að geta skipt um gjaldmið-
il eftir þrjú til fimm ár ef þeim
sýnist svo og skoða þurfi for-
dómalaust alla kosti í gjaldmiðla-
málum sem Íslendingum standi
til boða.
Þá vill flokkurinn þjóðarsátt
og samræmda stefnu um skil-
yrði hliðstæð Maastricht-skil-
yrðunum, sem notuð eru í mynt-
bandalagi Evrópusambandsins.
Það þýðir að „verðbólga, lang-
tímavextir, afkoma ríkissjóðs og
heildarskuldir eiga að vera sam-
bærileg og þekkist í helstu við-
skiptalöndum Íslands,“ að því er
segir í ályktun. Með agaðri efna-
hagsstjórn verði unnt að draga úr
vægi verðtryggingar.
Flokkurinn segir núverandi
peningastefnu hafa beðið skip-
brot. Hann vill að lögð verði fram
tímasett áætlun um hratt afnám
gjaldeyrishafta. Tilvist haftanna
sendi þau skilaboð að gjaldmið-
illinn þjóni ekki hlutverki sínu
og þau fæli frá erlenda fjárfesta.
Landsfundurinn vill að unnið
verði markvisst að því að hrein
skuldastaða hins opinbera við
útlönd verði orðin jákvæð innan
fimmtán ára. Á sama tíma ættu
heildarskuldir ríkisins að vera
innan við 35 prósent af lands-
framleiðslu.
Sjálfstæðisflokkurinn ályktaði
sérstaklega um fjármál heimil-
anna og kemur þar fram að hann
vilji færa niður höfuðstól verð-
tryggðra og gengistryggðra hús-
næðislána. Það sé forsenda fyrir
auknum hagvexti og framtíðar-
uppbyggingu. Flokkurinn legg-
ur áherslu á séreignarstefnu
í húsnæðismálum, gera verði
fólki kleift að búa í eigin hús-
næði „með það að markmiði að
treysta fjárhagslegt sjálfstæði
þess með tilheyrandi eigna-
myndun og auknum ráðstöfun-
artekjum“. Þá verði að tryggja
virka samkeppni á lánamarkaði
vegna húsnæðiskaupa, en verð-
trygging neytendalána eigi ekki
að vera valkostur.
„Yfirlýsingar ráðherra um
þjóðnýtingar og stórfelld-
ar skattahækkanir ber að for-
dæma,“ segir í ályktun um
atvinnumál. Flokkurinn vill
auðvelda erlendum aðilum að
fjárfesta í atvinnulífinu og
ályktar að efla eigi kynningar-
og markaðsstarf tengt því.
Landsfundur vill einnig að skoð-
að verði með opnum hug að skrá
hluta af hlutabréfum Landsvirkj-
unar á markað. Þá megi stjórn-
völd ekki leggja stein í götu þess
að orkuauðlindir í nýtingarflokki
verði nýttar.
Gera á heildstæða dreif-
býlisþróunarstefnu og samning
við bændur til að stuðla að öfl-
ugu atvinnulífi í sveitum. Jafn-
framt verði áfram stuðst við afla-
markskerfi í sjávarútvegi, gerðir
afnotasamningar við núverandi
fiskveiðiréttarhafa og fyrir
afnotarétt renni gjald til ríkisins.
thorunn@frettabladid.is
Yfirlýsingar ráðherra
um þjóðnýtingar og
stórfelldar skattahækkanir ber
að fordæma.
ÚR LANDSFUNDARÁLYKTUN
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
MENNING Meira en helmingur
landsmanna hefur komið í tón-
listarhúsið Hörpu og þriðjungur
hefur sótt þar tónlistarviðburð.
Eru þetta niðurstöður nýrrar
könnunnar MMR á aðsókn Íslend-
inga í húsið, sem opnað var í júní.
Fólk á aldrinum 18 til 29 ára
hefur farið í Hörpu í meiri mæli
en eldra fólk, 56 prósent í yngsta
aldursflokknum en 50 prósent
eldra fólks. Þá virðast tekjur
skipta einhverju máli í þessu
samhengi þar sem aðsóknin er
minnst í tekjuminnsta hópnum,
43 prósent, en mest í tekjuhæsta
hópnum, 65 prósent. - sv
Mikil aðsókn í tónlistarhúsið:
Rúm 50 prósent
komið í Hörpu
HARPA Rannsókn MMR sýnir að aðsókn
landsmanna í Hörpu hefur verið
töluverð. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Landsnet opnar vef
Landsnet hefur opnað upplýsingavef
um háspennuloftlínur og jarðstrengi.
Markmiðið er að þar geti allir sem
áhuga hafa fundið á einum stað helstu
staðreyndir um kosti og galla lína
og strengja, stefnumótun í þessum
efnum, bæði heima og erlendis, sem
og fjölmiðlaumfjöllun hérlendis.
UPPLÝSINGAMÁL
KJARNORKU MÓTMÆLT Þessari
fuglahræðu komu mótmælendur upp
í Norður-Þýskalandi til að mótmæla
fyrirhuguðum flutningi á kjarnorku-
úrgangi um landsvæðið. NORDICPHOTOS/AFP
Setja á fót nefnd um fram-
tíðarskipan gjaldeyrismála
Íslendingar eiga að skoða alla kosti í gjaldeyrismálum fordómalaust og geta skipt um gjaldmiðil. Þá á að
skapa þjóðarsátt um skilyrði hliðstæð Maastricht-skilyrðunum, samkvæmt landsfundi Sjálfstæðisflokksins.
AF LANDSFUNDI Fjölmargar ályktanir litu dagsins ljós á landsfundi Sjálfstæðisflokksins um liðna helgi. Ályktað var í sjö málaflokk-
um auk þess sem almenn stjórnmálaályktun var samþykkt. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
MENNING Alþjóðleg tungumálamiðstöð Stofn-
unar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum
tungumálum við Háskóla Íslands hefur
fengið samþykki Menningarmálastofnun-
ar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) um að
starfa undir formerkjum hennar.
„Þetta er mikil viðurkenning fyrir Stofn-
un Vigdísar Finnbogadóttur og mun efla
starf hennar og gera henni kleift að rækja
betur alþjóðlegar skyldur sínar,“ segir í til-
kynningu. Í gær var einnig sagt frá því að
efna eigi til opinnar hönnunarsamkeppni
um byggingu tungumálamiðstöðvarinnar.
Ætlunin sé að hefja framkvæmdir eftir eitt
til eitt og hálft ár og að byggingin verði
tekin í notkun árið 2014.
Þá segir í tilkynningu að Stofnun Vigdísar
Finnbogadóttur hafi í samstarfi við mennta-
og menningarmálaráðuneytið og íslensku
UNESCO-nefndina kappkostað að miðstöðin
hlyti viðurkenningu sem UNESCO-stofnun.
Erindi um þetta hafi verið samþykkt sam-
hljóða á allsherjarráðstefnu Menningar-
málastofnunarinnar 4. nóvember síðastlið-
inn. Viðurkenningin sé kærkomin.
„Standa vonir til að hún muni auðvelda
stofnun Vigdísar að eflast enn frekar og
rækja alþjóðlegt hlutverk sitt en það er
öðru fremur að stuðla að fjöltyngi og skiln-
ingi á ólíkri menningu þjóða og varðveislu
tungumála.“
- gar
Tungumálamiðstöð Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum:
Stofnun Vigdísar fær viðurkenningu UNESCO
ÁFANGA NÁÐ Vigdís Finnbogadóttir, Katrín Jakobsdóttir
menntamálaráðherra og Kristín Ingólfsdóttir, rektor
Háskóla Íslands, á blaðamannafundi í gær.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VILH
ELM