Fréttablaðið - 22.11.2011, Page 11

Fréttablaðið - 22.11.2011, Page 11
ÞRIÐJUDAGUR 22. nóvember 2011 11 SAMFÉLAGSMÁL Herdís L. Storgaard, verkefna- stjóri slysavarna hjá Slysavarnahúsinu, hlaut í gær viðurkenningu samtakanna Barnaheilla í ár fyrir sérstakt framlag í þágu barna og mannréttinda. Herdís hefur frá árinu 1991 veitt slysavarnaverkefninu Árvekni forstöðu, en á þessum 20 árum hefur slysum á börnum fækkað um helming, úr 22.000 í um 11.000 ári. „Þróunin hefur verið jákvæð. Foreldrar eru sjálfir farnir að berjast til þess að tryggja öryggi barna sinna og stjórnvöld eru meira opin fyrir því að taka ábendingum en áður. Það er hins vegar mikið óunnið enn,“ segir Herdís, sem árlega sinnir rúmlega 2.000 fyrirspurnum og ábendingum. Þegar Forvarnahúsinu var lokað um síðustu áramót gerði hún samning við landlæknisemb- ættið um verkefnið. „Samningurinn er hins vegar að renna út um áramótin. Ég er eigin- lega orðin þreytt á því að vera alltaf að sanna mig og berjast fyrir því að tryggja smápen- inga til slysavarna barna sem ég sinni í því sem ég kalla slysavarnahúsið í Borgartúni 41. Eftir margra ára reynslu er það skoðun mín að svona verkefni sé betur borgið sem grasrótar- verkefni þótt það vinnist með hinu opinbera. Annars tekst það ekki.“ - ibs Barnaheill veittu Herdísi Storgaard viðurkenningu fyrir baráttu fyrir börn í 20 ár: Slysum hefur fækkað um helming VIÐURKENNING Stefán Sverrisson, nemandi í Linda- skóla, afhenti Herdísi Storgaard viðurkenninguna ásamt Helga Ágústssyni, formanni samtakanna Barnaheilla. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FERÐAÞJÓNUSTA Ný íslensk ferða- skrifstofa, Ferð.is, hefur tekið til starfa. Ferðaskrifstofan, sem er í eigu VITA ferðaskrifstofu, er frábrugðin öðrum netbókunarsíð- um að því leyti að um ferðaskrif- stofu er að ræða sem hefur öll til- skilin leyfi og tryggingar, að því er segir í fréttatilkynningu frá rekstraraðilum. Þar segir jafnframt að verið sé að svara kalli neytenda eftir ódýrum en jafnframt öruggum kosti í skipulagningu ferðalaga. Ferð.is býður upp á pakkaferð- ir en einnig flug, eingöngu hótel og eða bílaleigubíla. - ibs Ferð.is í eigu VITA: Ný ferðaskrif- stofa á netinu REYKJAVÍK Allir greiðsluseðlar frá Reykjavíkurborg verða sendir út rafrænt í heimabanka viðskipta- vina frá og með næstu mánaða- mótum. Talið er að þetta muni spara borginni allt að 45 milljónir króna á ári. Einstaklingar eldri en 67 ára og fyrirtæki eru einu aðil- arnir sem fá senda prentaða seðla senda heim. Borgin hætti að senda út prent- aða greiðsluseðla vegna fasteigna- gjalda í fyrra og hefur það sparað um 280 þúsund heimsendingar á prentuðum reikningum. - sv Tugmilljóna sparnaður: Greiðsluseðlar verða rafrænir LÖGREGLUMÁL Lögreglumenn á Selfossi höfðu nýverið afskipti af ökumanni bifreiðar. Maður- inn var grunaður um að hafa verið undir áhrifum fíkniefna við aksturinn. Í framhaldi þessara afskipta var gerð leit á heimili ökumanns- ins, að fengnum dómsúrskurði þar að lútandi. Fíkniefnahundur- in Buster tók þátt í leitinni. Hann gaf vísbendingu um að á til- teknum stað væru fíkniefni. Það reyndist vera á rökum reist því lögreglumenn drógu fram nokkra hassmola sem vógu samtals um fjörutíu grömm. - jss Var gripinn glóðvolgur: Buster benti á falda hassmola SAMGÖNGUMÁL Bandaríska flug- félagið Delta Air Lines mun fljúga milli Keflavíkurflugvallar og John F. Kennedy-flugvallar í New York næsta sumar. Delta tilkynnti þetta í gær, en flugfélagið flaug einnig hingað til lands síðasta sumar. Fimm flug verða í hverri viku frá og með 2. júní á næsta ári. Í tilkynningu frá félaginu segir að flugleiðin hafi reynst eftirsóknarverð fyrir bandaríska ferðamenn í fyrra. Þá geti far- þegar frá Íslandi náð tengiflug- um beint frá Kennedy-flugvelli til 45 áfangastaða innan Banda- ríkjanna. - þeb Milli New York og Keflavíkur: Delta flýgur til Íslands á ný FYRSTA FLUGIÐ Delta hóf flug til Keflavíkur í byrjun júní á síðasta ári og ætlar að fljúga á ný næsta sumar.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.