Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.11.2011, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 22.11.2011, Qupperneq 12
22. nóvember 2011 ÞRIÐJUDAGUR12 Umsjón: nánar á visir.is * Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður og gerð bílanna getur verið frábrugðin myndunum í auglýsingunni. Nánari upplýsingar veita ráðgjafar. Komdu í kaffi og spjallaðu við okkur. Segðu okkur hvað þú ert að pæla og við finnum örugglega hagstæða fyrirtækjalausn fyrir þig. Notaðu sérþjónustu atvinnubíla Ford Fáanlegur fjórhjóladrifinn (AWD) Komdu í kaffi Euro5Reglugerð Evrópu- sambandsins um hámarksútblástur gildir frá 01. 01. 2012. Með Euro 5 er sérstök áhersla lögð á að draga úr myndun koldíoxíðs og annarra gróður- húsalofttegunda. Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 | ford.is FordTransit Stilltu klukkuna að kvöldi og þú byrjar daginn heitur að morgni. Tímastillanleg olíumiðstöð er staðalbúnaður í Transit. Vertu í hópi þeirra bestu. Kauptu Ford. Standard heitur alla morgna Ford Transit sendibíll Ford Transit Connect sendibíll Verð án vsk frá 2.541.833 kr. Verð án vsk frá 3.577.690 kr. Verð með vsk frá 4.490.000 kr. Verð með vsk frá 3.190.000 kr. VIÐSKIPTI Vodafone og Síminn hafa bæði tapað viðskiptavinum í farsímaþjónustu það sem af er ári. Nova heldur áfram að bæta við sig viðskiptavinum og er nú komið með 24% markaðs hlutdeild. Þetta kemur fram í nýrri töl- fræðiskýrslu Póst- og fjarskipta- stofnunar (PFS) um íslenskan fjar- skiptamarkað á fyrri helmingi ársins 2011. Vodafone var með 116.065 við- skiptavini um síðustu áramót og 30,9% markaðshlutdeild. Þeim fækkaði um tæp fjögur þúsund á fyrri helmingi þess árs og voru 112.392 í lok júní síðastliðins. Þar af voru 103. 493 í farsímaþjónustu og 8.899 með 3G internet-nettengla (punga). Markaðshlutdeild Voda- fone á farsímanetinu var 29,8%. Vodafone hagnaðist um 55 milljón- ir króna á fyrri hluta ársins 2011. Framtakssjóður Íslands á 79% hlut í Vodafone. Áskriftum hjá Símanum held- ur áfram að fækka. Heildarfjöldi þeirra sem kaupa þjónustu í far- símaneti fyrirtækisins var 154.416 um mitt þetta ár. Þeim hafði fækkað um tæplega 2.500 það sem af er ári. 136.483 eru með farsíma- þjónustu hjá Símanum og 17.933 með 3G-punga. Markaðshlutdeild Símans er nú 41%. Fyrirtækið er með sterkustu stöðuna í föstum áskriftum þar sem það er með 48,5% af markaðinum. Fastar áskriftir skila mun meiri tekjum en frelsisáskriftirnar. Í árslok 2007 var Síminn drottnandi á farsímamarkaði. Heildarmarkaðshlutdeild fyrir- tækisins innan farsímanetsins var þá 60%. Síðan þá hefur viðskipta- vinum Símans fækkað um rúm- lega 30 þúsund. Og þeim hefur ekki tekist að ná inn nokkrum af þeim tæplega 65 þúsund viðskipta- vinum sem bæst hafa við markað- inn síðan þá. Skipti, móðurfélag Símans, tapaði 1,9 milljörðum króna á fyrri helmingi þessa árs. Klakki, sem áður hét Exista, er eigandi Skipta. Nova heldur enn áfram að bæta við sig viðskiptavinum. Í lok árs 2010 voru heildarviðskiptavinir fyrirtækisins samtals 82.545 tals- ins. Þeir eru nú 90.560. Af þeim eru 80.242 í farsímaþjónustu og 10.318 með 3G-punga. Markaðs- hlutdeild Nova var komin upp í 24% um mitt þetta ár. Þorri viðskiptavina Nova er svokallaðir frelsisviðskiptavinir, sem greiða fyrirfram fyrir notkun sína. Vert er að taka fram að við- skiptavinir Nova greiða ekki fyrir símtöl innan kerfis. Þar er Nova stærst með 40,4% markaðshlutdeild. Einungis um fimmtungur allra viðskiptavina Nova er með fastar áskriftir. Á tveimur árum hefur fyrirtækið rúmlega tvöfaldast á þeim markaði. Nova tapaði 160 milljónum króna á árinu 2010. Alls hefur fyrirtækið tapað 2,2 milljörðum króna á þremur árum. Novator, félag Björgólfs Thors Björgólfssonar, er eigandi Nova. Tal var með 16.798 viðskipta- vini um síðustu áramót. Fyrir- tækið hefur bætt við sig um 1.200 viðskiptavinum það sem af er ári og er með 4,8% markaðs hlutdeild. Rúmlega 97% allra farsíma- viðskiptavina Tals eru í farsíma- þjónustu. Tal tapaði 99 milljónum króna í fyrra og hefur samtals tapað um 900 milljónum króna á síð- ustu þremur árum. Eigið fé fyrirtækisins var neikvætt um síðustu áramót þrátt fyrir að nýir eigendur þess hafi sett 80 milljónir króna inn í nýtt eigið fé í fyrra. Tal er í eigu Auðar 1, fjárfestingar- sjóðs í vörslu Auðar Capital, og Kjartans Arnar Ólafssonar. Alterna, sem hóf starfsemi á Íslandi vorið 2010, virðist vera á útleið af íslenska farsíma- markaðinum. Einungis 1.257 áskriftir voru skráðar hjá fyrir- tækinu í lok júní og markaðs- hlutdeild þess var 0,3%. Eigandi Alterna er bandaríska fyrirtækið World Cell. thordur@frettabladid.is Nova með fjórðungshlutdeild á íslenskum farsímamarkaði Einungis fimmtungur viðskiptavina Nova er með fastar áskriftir. Vodafone tapaði viðskiptavinum á þessu ári eftir að hafa bætt við sig í fyrra. Síminn hefur misst tugþúsundir úr viðskiptum á undanförnum árum. VIÐSKIPTI Gert er ráð fyrir því að söluferli Pennans hefjist í febrúar 2012 þegar ársreikningur fyrir árið 2011 liggur fyrir. Áætlanir gera ráð fyrir að söluferlinu ljúki í maí eða júní. Þetta kemur fram í skriflegu svari Þórdísar Úlfs- dóttur, framkvæmdastjóra Eigna- bjargs sem heldur á 100% hlut í Pennanum. Eignabjarg er dóttur- félag Arion banka sem tók Penn- ann yfir fyrir um 32 mánuðum. Í gær var tilkynnt að Jóhanna Waagfjörð hefði verið ráðin for- stjóri Pennans í stað Helga Júlíus sonar sem gegnt hafði starfinu frá árinu 2009. Jóhanna hefur verið framkvæmdastjóri fjármála og rekstrar hjá Penn- anum frá því í febrúar. Hún var áður fjármálastjóri Haga um árabil. Þórdís segir að ákveðin kafla- skipti séu hjá Pennanum nú þegar endurskipulagningu félagsins sé lokið. „Staða Pennans er sterk og rekstur í samræmi við áætlanir. Fyrrverandi forstjóri hefur ákveðið að stíga til hliðar, og aðrir að taka við keflinu í sölu- ferlinu sem fram undan er.“ Arion banki stofnaði nýtt félag utan um rekstur Pennans á árinu 2009. Félagið hefur alls tapað rúmum milljarði króna frá því að það var sett á fót. Arion banki setti 200 milljónir króna í reiðufé inn í Pennann í september síðast- liðnum. Sú hlutafjáraukning var hluti af fjárhagslegri endurskipu- lagningu félagsins. - þsj Forstjóraskipti hjá Pennanum: Fer í söluferli í febrúar 2012 FORSTJÓRI Jóhanna Waagfjörð hefur tekið við forstjórastarfinu hjá Penn- anum. Íslenskir farsímanotendur sendu samtals 91,7 milljónir SMS-smáskilaboða á fyrstu sex mánuðum þessa árs. Það er um 10% aukning frá sama tímabili árinu áður og tæplega 25% aukning frá fyrstu sex mánuðum ársins 2009. Viðskiptavinir Nova send langflest sms-skilaboð allra, eða rúmlega 50 milljónir. Þeir sendu mun fleiri skilaboð en viðskiptavinir allra hinna fyrir- tækjanna til samans. Frítt er að senda öll skilaboð innan kerfis hjá Nova. Þá voru send 789 þúsund MMS-myndskilaboð á fyrri hluta ársins 2011. Þeim fjölgaði um rúm 30% á milli ára. Viðskiptavinir Vodafone og Nova voru langduglegastir við þessa iðju. Þeir sendu samtals 90% allra MMS-mynd- skilaboða sem send voru hérlendis frá janúarbyrjun til júníloka. 92 milljónir SMS send á sex mánuðum Markaðshlutdeild fjarskiptafyrirtækja Síminn 41% Vodafone 29,8% Nova 24% Tal 4,8% Alterna 0,3% Heimild: tölfræðiskýrsla Póst- og fjarskiptastofnunar Myndin sýnir heildarfjölda áskrifta innan farsímanets. BREYTINGAR Staðan á farsímamarkaði hefur breyst mikið á undan- förnum árum með tilkomu Nova inn á hann og gríðarlegri aukningu í notkun snjallsíma á borð við iPhone. 800 MILLJÓNA hagnaður varð af rekstri Eimskips á þriðja fjórðungi þessa árs. Alls hefur Eimskip hagnast um tvo milljarða á árinu.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.