Fréttablaðið - 22.11.2011, Síða 26
KYNNING − AUGLÝSINGJólabakstur ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 20116
ALLT VIÐ HÖNDINA
Til að létta sér baksturinn er afar gott að undirbúa sig vel. Í fyrsta lagi
ætti að lesa yfir uppskriftina áður en haldið er í verslunarferðina og skrifa
niður á miða það sem vantar. Vont er að vakna upp í miðjum bakstri við
að eggin eru búin.
Með því að raða öllum hráefnunum upp á borð sem á að nota verður
öll vinnan mun auðveldari. Gott er að vinna sér í haginn með því að
skera niður þær hnetur og möndlur sem á að nota eða annað það sem
þarfnast einhverrar vinnslu. Einnig er gott að tína til þau áhöld sem á þarf
að halda. Með þessum hætti tekur enga stund að henda í eina köku eða
smákökuuppskrift.
Ekki gleyma að kveikja á ofninum í tíma til að þurfa ekki að bíða eftir því
að hann hitni eftir að kökudeigið er tilbúið.
Gott í matinn-uppskrifta-vefurinn fór í loftið í apríl 2009 í kjölfarið á markaðs-
setningu á Gott í matinn-matar-
gerðarlínunni frá MS,“ segir Erna
Erlendsdóttir, markaðsstjóri hjá
MS. „Vefurinn hefur notið mik-
illa vinsælda og fjölgar heimsókn-
um stöðugt inn á síðuna. Þar má
finna fjöldann allan af uppskrift-
um fyrir jólahátíðina, allt frá hug-
myndum að jólakökunum og kon-
fekti og til jólamatarins, svo allir
ættu að geta fundið eitthvað við
sitt hæfi.“
Erna segir áhugann fyrir jóla-
uppskriftunum á síðunni vera
mikinn. „Við sjáum umferðina
inn á síðuna aukast mikið þegar
jólin nálgast og fólk farið
að huga að jóla-
matseðlinum og
jólabakstrinum.“
Notendum síð-
unnar býðst einnig
að skrá sig inn á eigið
svæði, svonefnt „mitt
svæði“ og safna uppá-
halds uppskriftunum saman
á einn stað. „Margir þaul-
reyndir kokkar og áhugamenn
um matargerð koma að uppskrift-
unum á vefnum eins og Nanna
Rögnvaldardóttir, Klúbbur mat-
reiðslumeistara, Árni Þór Arnórs-
son og Inga Elsa Bergþórsdóttir svo
einhverjir séu nefndir,“ segir Erna.
Hún segir vert að nefna að á
næstu vikum verði Gott í mat-
inn-vefurinn aðgengilegur
á farsímaviðmóti. Það auð-
veldi notendum að fara inn
á vefinn í símanum sínum og
fletta upp í uppskriftum.
Frábærar uppskriftir
á gottimatinn.is
Fjölda jólauppskrifta er að finna á Gott í matinn-vefsíðunni sem nýtur mikilla vinsælda.
Þar er að finna hugmyndir að öllu mögulegu, ljúffengum jólakökum, -konfekti og mat.
Á vefsíðunni gottimatinn er að finna fjölda spennandi jólaupp-
skrifta.
Sælkerar koma ekki að tómum kofanum á vefsíðunni.