Fréttablaðið - 22.11.2011, Page 34
22. nóvember 2011 ÞRIÐJUDAGUR22
BAKÞANKAR
Kolbeins
Óttarssonar
Proppé
Við hringjum fljótlega í þig.
Söfnunarreikningur 546-26-6609, kt 660903-2590.
Símasöfnun Fjölskylduhjálpar Íslands hafin. 2500
börn búa hjá foreldrum sem neyðast reglulega til að
sækja sér mataraðstoð hjá Fjölskylduhjálp Íslands
sem leitar nú eftir stuðningi landsmanna.
HJÁLP Í NEYÐ Á HEIMASLÓÐUM
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Atli minn, ég
veit að ísskápur-
inn þinn er
bilaður en reglur
eru reglur...
LÁRÉTT
2. báru að, 6. skóli, 8. málmur, 9. arr,
11. átt, 12. frárennsli, 14. goðmögn,
16. hvað, 17. fugl, 18. kærleikur, 20.
stöðug hreyfing, 21. högg.
LÓÐRÉTT
1. ákefð, 3. pot, 4. árstíð, 5. líða vel,
7. kvængast, 10. æxlunarkorn, 13. svif,
15. sigta, 16. rámur, 19. í röð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. komu, 6. fg, 8. tin, 9. sig,
11. sa, 12. afrás, 14. tótem, 16. ha, 17.
ari, 18. ást, 20. ið, 21. stuð.
LÓÐRÉTT: 1. ofsa, 3. ot, 4. misseri,
5. una, 7. giftast, 10. gró, 13. áta, 15.
miða, 16. hás, 19. tu.
Var helgin
góð
strákar?
Já var
það já... Jæja?!
Þá er vatnsdælan
komin aftur í lag.
Mig vantar bara
undirskrift...
Jæja
hvað?
Ekkert,
ekkert!
Takk
félagi!
Geðveik!
Við fórum í
almennings-
garðinn og
horfðum á
stelpur!
flott er!
Ég straujaði
skyrtuna fyrir
þig Palli.
Takk.
Þú ættir kannski
að íhuga það að
nota minna af
ilmspreyinu.
Æi
mamma!
Fljótur! Drífum
okkur heim áður
en þú verður
vaxinn upp úr
þessum!
Á dögunum heyrði ég áhugaverðan fyrir-lestur þar sem brugðið var ljósi á þjóð-
erniskennd eftir hrun. Niðurstaðan var sú
að háð og íronía skipa meiri sess í sjálfs-
mynd þjóðarinnar eftir hrun en fyrir. Hér
eru þeir varnaglar slegnir að sjálfsmynd
þjóðarinnar er afskaplega brothætt hugtak
og varla til og að þjóðin sem slík er ekki ein
heild. En að öllum fræðilegum fyrir-
vörum slepptum þá brá fyrirlestur-
inn áhugaverðu ljósi á orðræðuna
um þjóðina og þjóðernið.
ÞÆR hugleiðingar eru sér-
staklega áhugaverðar nú um
stundir. Í bólunni fyrir hrun var
múgsefjunin slík að Íslending-
ar virtust trúa því að þeir væru
öðrum þjóðum fremri. Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
sló tóninn með mæringum sínum
á eðli Íslendingsins sem full-
komnaðist í útrásarvíkingunum.
Forsetinn dýrkaði þá og þjóðin
líka. Það var ekki nóg að þeir
væru klárir bissnessmenn
(sem síðar kom í ljós að þeir
voru alls ekki) heldur voru
þeir ofar í þróunarstiga
heimsins en bissnessmenn
annarra þjóða. Og fyrst
þeir voru það, þá vorum við
það líka.
NÚ ER horft til þessa tíma með vænum
skammti af kaldhæðni. Við fyrirverðum
okkur fyrir það hvernig við létum og
erum búin að gleyma því að þeir sem
ekki sungu með í lofsöngvunum voru
einfaldlega úthrópaðir sem gamaldags
úrtölufólk. Lofkórinn hefur breyst í
kaldhæðinn lastkór sem gerir grín að
því hvernig hann eitt sinn var. Það er
gott að mörgu leyti; húmörinn getur
verið haldreipi þegar áföll dynja yfir.
HIÐ algjöra hrun sjálfsmyndar þjóð-
arinnar hefur kallað á kaótíska leit að
nýrri sjálfsmynd. Sjaldan hafa jafn
margir stjórnmálamenn verið vissir um
að þeir tali í nafni þjóðarinnar; þjóð-
in vill þetta, þjóðin telur hitt, þjóðin
kallar eftir einu, þjóðin hafnar öðru.
Því miður virðist lærdómurinn um að
þjóðin sé ekki heild sem tali einni röddu
ekki runninn upp fyrir stjórnmálamönn-
um. Heill stjórnmálaflokkur beinir nú
sjónum mögulegra kjósenda sinna aftur
til gamalla gilda; þegar þjóðin var órofa
heild og lífið einfalt.
HÉR kemur ókeypis ráð fyrir
stjórnmála menn. Hættið að tala í nafni
þjóðarinnar. Leggið fram raunhæfa
stefnu, talið af sannfæringu og ykkar
verða atkvæðin. Þjóðin, það erum við.
Í þjóðarinnar nafni, amen
Pantaðu
í síma
565 600
0
eða á w
ww.som
i.is
Frí heim
sending
*
TORTILLA
VEISLUBAKKI
EÐALBAKKI
LÚXUSBAKKI
DESERTBAKKI
GAMLI GÓÐI
TORTILLA OSTABAKKI
30 bitar
30 bitar
20 bitar
20 bitar
20 bitar
50 bitar
Fyrir 10 manns
ÁVAXTABAKKI
Hver samlokubakki er hæfilegur fyrir fjóra eða fimm.
*Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar.
FRÁ SÓMA ER KOMINN
NÝTT
FYRIR JÓL
IN
Hamborgarahryggur
og kartöflusalat
Dönsk lifrakæfa,
sveppir og beikonJólasíldarsalat