Morgunblaðið - 10.07.2010, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 10.07.2010, Blaðsíða 25
25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 2010 Bílafrítt Gott er að fá sér sæti á gulum stólum við gult borð sem stendur á gulum bletti á gatnamótum Pósthússtrætis og Austurstrætis en miðbærinn er nú lokaður bílaumferð. Eggert Hægt er að rekja 9 dauðs- föll sem urðu í umferðinni árið 2006 til aksturs undir áhrifum áfengis. Þetta má sjá í skýrslum Rannsókn- arnefndar umferðarslysa þar sem fjallað er um orsak- ir þeirra 28 banaslysa sem urðu í umferðinni það ár og kostuðu 31 mannslíf. Að meðaltali tengist ölvun við akstur u.þ.b. 17-20% bana- slysa og það er því ljóst að árið 2006 er eitt versta dæmið sem sést hefur undanfarin ár en það ár mátti rekja um 29% banaslysa til ölvunar ökumanns. Trygging fyrir því að sagan endurtaki sig ekki ræðst ekki af heppni heldur því að ökumenn láti af því að aka eftir neyslu áfengis. „Það er allt í lagi að keyra. Ég finn ekkert á mér – er að fara svo stutta vega- lengd. Ég er minnst fullur af félögunum og búin að fá mér Ópal ef löggan stoppar mig.“ Þetta eru hugrenningar sem marg- ir hafa heyrt og kannast við. Þarna hefur ökumaðurinn mestar áhyggjur af því að lögreglan nái honum og taki hann úr um- ferð. Það fer hins vegar lítið fyrir ótt- anum við það að verða valdur að slysi. Ef þú tekur ákvörðun um að keyra eft- ir neyslu áfengis eru þrír möguleikar í stöðunni. Að heppnin bjargi þér, lög- reglan stöðvi þig eða þú lendir í slysi. Heppni er ekki val og við skulum því sleppa henni. Þá eru eftir þessir tveir kostir, að lögreglan stöðvi þig eða þú valdir slysi. Hvorn kostinn myndir þú velja? Þegar þú veltir þessu fyrir þér þá skaltu muna að slys af völdum ölvunar eru í flestum tilfellum alvarleg. Að aka undir áhrifum áfengis er ekki eitthvað sem maður lendir í. Það er ekki óhapp heldur ákvörðun sem maður tek- ur. Ein algengasta afsökunin sem notuð er til að réttlæta akstur eftir neyslu áfengis er að maður sé búinn að drekka svo lítið. Önnur ekki síður algeng afsök- un er að maður sé að fara svo stutta vegalengd. Þessar réttlætingar og fleiri til duga hins vegar skammt frammi fyrir fórnarlömbum ölvunaraksturs. Þær duga skammt frammi fyrir dómstólum eða tryggingarfélögum sem eiga fullan endurkröfurétt vegna þess kostnaðar sem hlýst af slysi og tjóni sem þú veldur með akstri undir áhrifum áfengis. Þú gætir einnig átt yfir höfði þér dóm fyrir manndráp af gá- leysi og/eða dóm fyrir að valda fólki líkamstjóni. Það þarf oft ekki nema stutta vegalengd og lítið magn áfengis til að af- leiðingarnar verði alvar- legar. Segjum að viðbragði ökumanns seinki um að- eins 1 sekúndu vegna þess að hann neytti lítils magns áfengis. Ef bíllinn sem hann ekur er á 70 km hraða þá færist hann um tæpa 20 metra á sekúndu. Ímyndum okkur að barn gangi skyndilega út á veg- inn í veg fyrir bílinn. Vegna einnar sek- úndu seinkunar á viðbragði ökumanns- ins færist bíllinn 20 metrum lengra en eðlilegt væri og á þeirri vegalengd stend- ur barnið sem bíllinn lendir á. Það verð- ur alvarlegt slys vegna þess eins að búið er að sóa dýrmætri sekúndu sem hefði getað stöðvað bílinn 20 metrum fyrr. Barnið hefði sloppið ef viðbragð öku- mannsins væri í lagi. Hafðu þetta í huga næst þegar þú veltir því fyrir þér hvort það sé ekki allt í lagi að setjast undir stýri eftir neyslu áfengis. Mörg okkar sem hafa treyst á heppn- ina hafa ekið eftir neyslu áfengis. Þeir sem nú standa uppi með það að hafa valdið dauða eða líkamstjóni vegna ölv- unaraksturs treystu líka á heppnina áð- ur en þeir lögðu upp í örlagaríka för. Ekki lenda í þeim aðstæðum að áfrýja þurfi afleiðingum takmarkaðrar dóm- greindar þinnar til alvörudómstóla. Taktu leigubíl eða fáðu far með ein- hverjum, sama hve lítið eða mikið áfengi þú hefur drukkið. Vertu búin(n) að gera ráðstafanir varðandi það að komast ferð- ar þinnar áður en þú smakkar áfengi. Góða ferð og góða skemmtun. Eftir Einar Magnús Magnússon » Þú gætir einnig átt yf- ir höfði þér dóm fyrir manndráp af gáleysi og/ eða dóm fyrir að valda fólki líkamstjóni. Einar Magnús Magnússon Höfundur er upplýsingafulltrúi Umferðarstofu. Heppni er ekki valkostur Almennings- samgöngur á Íslandi hafa alla tíð þótt vera með stopulasta móti og ekki mikil hefð fyr- ir því í þjóðarsálinni að nota slíka þjónustu, þó svo að hennar sé kraf- ist. Sem kröfuharðir Íslendingar viljum við yfirleitt fá bestu þjón- ustu sem völ er á með sem minnstum kostn- aði og óspart er á það deilt ef þjón- usta er skert eða ferðir felldar nið- ur. Við viljum tíðar ferðir og ódýrar, við viljum hraðlestir sem stoppa þó í hverju sveitarfélagi. Ekki að það hvarfli að neinum að því tíðari ferðir því dýrara verða kerfin og því fleiri stopp því hægari lest. Þetta er ósköp skiljanlegt en þó erfitt í meðförum. Skipulag á Ís- landi hefur löngum einkennst af dreifðri byggð, nokkuð sem hefur gert skipulag á almennings- samgöngum nokkuð erfitt í með- förum. Þegar við berum okkur sam- an við önnur lönd koma almenningssamgöngur alltaf illa út. Það er nefnilega mikill munur á því hvort um er að ræða götu A með þéttri þriggja hæða byggð eða götu B með einbýlishúsum sem hvert um sig skartar stórri lóð. Í stoppuskýli á götu A bíða ef til vill jafn margir eftir strætó og búa í götu B en þar er fólk hrifnara af einkabílnum, en þó eru einn eða tveir óheppnir ein- staklingar að bíða eftir strætó. Þeg- ar þjónusta er notuð af einhverju viti er líka eitthvert vit í því að bæta hana, auka tíðni, lækka kostnað. Ónotuð þjónusta verður hinsvegar afar dýr þjónusta. Sama vandamál á sér staðar úti á landsbyggðinni, jafnvel í ýktari mynd. Almenningssamgöngur milli smárra byggðakjarna eru illa nýtt- ar og því nokkuð dýrar. Nýting á ferðum fer oft og tíðum niður fyrir einn farþega að meðaltali. Sem dæmi úr íslenskum raunveruleika má nefna ákveðna sérleyfisferð, ek- in leið er 99 km og er meðalfjöldi farþega um 0,8 á hverja ferð, þess má geta að þessi ferð er niðurgreidd um rúmar 7 milljónir króna á ári. Þá má spyrja sig, er þetta réttlæt- anlegt? Almennings- samgöngur eru ekki endilega sjálfsagður réttur borgara, þær eru forréttindi. Á að halda endalaust áfram að veita þjón- ustu sem ekki er not- uð? Við verðum jú að átta okkur á því að þeir peningar sem halda uppi al- menningssamgöngum koma úr okkar vasa, úr vasa skattborgara. Það er ekkert svart og hvítt í þessum málum. Það er að sjálf- sögðu ekki hægt að ætlast til sömu nýtingar á þjónustu í fámennum sveitarfélögum eins og í þeim fjöl- mennari. En hvar á að draga mörk- in? Er hugsanlega hægt að nýta þá peninga skattborgara sem fara í að niðurgreiða illa nýtta þjónustu bet- ur? Svarið er sem betur fer já, það er hægt. En það þarf að hugsa það og skipuleggja það rétt. Það má ekki byrja á því að skera niður fé, fækka ferðum sem gerir það eingöngu að verkum að þjónustan verður jafnvel enn verr nýtt, fólk hreinlega hefur ekki tækifæri til að nýta hana. Lausnin gæti hinsvegar falist í einni af einfaldari formúlum markaðs- fræðinnar: Eftirspurn og framboð, Demand Responsive Transport Services (DRT) eða eftirspurn- arfylgnar almenningssamgöngur. Þessi tegund af almennings- samgöngum hefur þekkst um nokk- urt skeið og er ágætis reynsla af henni til dæmis bæði í Finnlandi og Skotlandi, en hefur hér á landi að- eins verið notuð í litlum mæli. Eftirspurnarfylgnar almennings- samgöngur byggjast upp á því að í staðinn fyrir að ákveðnar ferðaleið- ir og tímatafla sé til staðar þá er hringt eftir þjónustu eða hún pönt- uð í gegnum heimasíðu. Sem dæmi má taka sveitarfélag sem byði upp á slíkar samgöngur á ákveðnum tím- um dagsins. Sem viðskiptavinur þarftu að skrá þig daginn áður fyrir þjónustunni og ert þá sótt eða sótt- ur heim að dyrum og keyrður þang- að sem þú þarft að fara, heimferðin er svo skipulögð í samráði við bíl- stjóra og hugsanlega aðra farþega. Þetta er sérstaklega hentugt þar sem almenningssamgöngur eru illa nýttar. Ekki er keyrt nema farþeg- ar séu til staðar. Hugsanlega mætti nýta þessa þjónustu einnig til að þjónusta fatlaða, aldraða, skólabörn og íþróttafólk. En ef þetta er svona einfalt eins og í raun virðist vera, afhverju hef- ur þetta ekki verið framkvæmt í stað þess að henda milljónum út í loftið í samgöngur sem eru illa nýtt- ar og fá í staðinn kerfi sem líklega yrði betur nýtt, myndi spara pen- inga og myndi veita íbúum dreif- býlla svæða betri þjónustu? Eina svarið sem virðist vera til er hreinlega áhugaleysi, sama þreytta kerfið hefur verið við lýði í fjölda ára og málefni sem tengjast al- menningssamgöngum úti á landi hreinlega hunsuð. Þetta er þó von- andi að breytast þó hvatinn sé jafn óskemmtilegur og sparnaður í kjöl- far hruns. Þróunarfélag Austur- lands vinnur nú í samstarfi við Vegagerðina og sveitarfélagið Fjarðabyggð að verkefni sem snýr að nýjum lausnum í almennings- samgöngum fyrir dreifbýl svæði. Verkefnið er styrkt af Norður- slóðaáætlun Evrópusambandsins og heitir á frummálinu Rural Tran- sport Solutions (RTS) eða á ís- lensku almenningssamgöngur í dreifbýli. Verkefnið er unnið í sam- starfi við Finna, Skota og Svía. Spurningin er því ekki lengur hvort hægt sé að bæta almennings- samgöngur í dreifbýli, heldur hvort áhugi sé fyrir því hjá stjórnvöldum. Eftir Ingigerði Erlingsdóttur » Almennings- samgöngur í dreifðri byggð Íslands hafa reynst bæði dýr- ar og verið illa nýttar. En þarna er hægt að hagræða. Ingigerður Erlingsdóttir Höfundur er verkfræðingur. Almenningssamgöngur í íslensku byggðaskipulagi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.